Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 5
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 B 5 Try gg ðu þé r á sk rif t s tra x eða í síma 515 6100 www.syn.is 19.-25. mars Búlgaría - Ísland HM í knattspyrnu kl. 15:15 lau England - Finnland HM í knattspyrnu kl. 18:00 lau Oscar de la Hoya - Arturo Gatti Hnefaleikar kl. 02:00 sun Miami Heat - San Antonio Spurs NBA kl. 17:00 sun Úrslitakeppnin Epson-deildin kl. 19:45 lau Engin hetja í liðinu Hermann segir að George Burl- ey, knattspyrnustjóri Ipswich Town, eigi stóran þátt í velgengni liðsins. Þá eigi David Sheepshanks, stjórnarformaður liðsins, einnig þátt í velgengninni en hann hafi stýrt liðinu af festu á undanförnum árum. „Sheepshanks hefur bullandi trú á því sem Burley gerir og hefur stutt knattspyrnustjórann í öllu því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur. Sheepshanks hefur unnið vel fyrir liðið, stuðlað að stækkun vallarins, fengið inn nýja fjárfesta og sýnt aðhald í peningamálum. Það sama er hægt að segja um Burley sem hefur fjárfest vel og keypt góða leikmenn fyrir tiltölu- lega lágar fjárhæðir og þeir blómstra síðan undir hans stjórn. Hann hefur gefið sér góðan tíma til þess að búa til gott lið, en það hafði komist í úrslitakeppni 1. deildar síðastliðin fjögur ár. Ég held því að liðið sé nú að sýna hvað í því býr. Ipswich-liðið býr yfir gríðarlega sterkri liðsheild, það er engin hetja sem skarar fram úr heldur er þetta samvinna ellefu leikmanna inni á vellinum.“ Hermann segir að sam- vinna leikmanna sé ekki aðeins inni á vellinum heldur nái hún einnig út fyrir leikvanginn á Portman Road. Þeir hittist oft fyrir utan æfingar og keppni og haldi hópinn. „Þetta er lítið bæjarfélag og það er mikil stemmning í kringum félagið, ekki síst þegar vel gengur en þá skartar bærinn bláum lit. Það er gríðarlega mikil samheldni hér meðal leik- manna, þrátt fyrir að við látum finna vel fyrir okkur á æfingum, en þegar út af vellinum er komið eru allar þrætur gleymdar og við tök- um upp léttara hjal,“ segir Her- mann og bendir á að leikmanna- hópurinn sé skemmtilegur og í honum margir sterkir karakterar sem þoli mikla samkeppni. Vonbrigði ársins að falla úr deildabikarkeppninni Eyjamaðurinn hóf atvinnu- mennsku síðla sumars 1997 er hann yfirgaf herbúðir ÍBV og skrifaði undir samning við Crystal Palace sem þá lék í úrvalsdeild. Hann hef- ur einnig leikið með Brentford og Wimbledon og hefur afrekað það að leika í öllum fjórum deildum ensku knattspyrnunnar. Ipswich Town er fjórða félagið sem hann gengur til liðs við þar í landi. Spurður hvort hann telji sig mun betri knattspyrnumann nú en þeg- ar hann hóf keppni með Crystal Palace fyrir hartnær fjórum árum segir Hermann það engan vafa og líklega hafi hann aldrei leikið betur en nú. „Það er engin launung að ég finn mikinn mun á mér sem knatt- spyrnumanni, ekki síst hefur mér tekist að bæta einstaka þætti, eins og knatttæknina,“ segir Hermann sem hefur í ófá skipti komist í fremstu víglínu með liði sínu. Hann er búinn að vera iðinn við mark andstæðinganna og skoraði sitt fyrsta mark fyrir Ipswich Town gegn Manchester City í úrvals- deildinni skömmu fyrir áramót og minnstu munaði að hann gerði mark í 3:1-sigri gegn Bradford en þar hafnaði skalli hans í samherja sem fékk markið skráð á sig. „Það er frábær tilfinning að skora mörk. Vitanlega er aðalatriðið að liðið vinni leikina en ég neita því ekki að það er ljúft að skora, og ef heppnin væri með mér væri ég búinn að skora fleiri mörk fyrir liðið. Meðal annars hef ég átt skot í slá, stöng og andstæðingar hafa bjargað á línu. Ég var sérstaklega svekktur að skora ekki gegn Birmingham í undanúrslitum deildarbikarkeppn- innar en þar munaði hársbreidd að okkur tækist að komast í úrslita- leikinn gegn Liverpool. Við höfðum unnið fyrri leikinn 1:0 á heimavelli þar sem ég átti meðal annars skalla í stöng. Í upphafi síðari leiksins, sem fór fram í Birmingham, fékk ég boltann hægra megin á vellinum og náði að komast fram hjá leik- mönnum Birmingham í gegnum spil við samherja. Mér tókst að komast í gegnum varnarmúrinn og ég var í ákjósanlegu færi inni í vítateig og ætlaði að renna bolt- anum í fjærhornið. Ég tók boltann utanfótar og boltinn fór fram hjá markverðinum en því miður einnig rétt fram hjá markinu. Það var leiðinlegt að komast ekki áfram í keppninni og allir voru sársvekktir. Þetta var kjörið tækifæri til þess að komast í Evrópukeppni og ná í verðlaunapening og það er ekki á hverjum degi sem það tækifæri býðst í ensku knattspyrnunni. Þetta voru vonbrigði ársins,“ sagði Hermann en hann og félagar hans töpuðu 4:1 fyrir Birmingham eftir framlengingu. Félaginu gekk einn- ig allt í mót í upphafi árs og það tapaði fimm leikjum í röð í bik- arkeppni og deild. Hermann telur ekki að allur vindur sé úr félaginu eftir að það var slegið út úr bik- arkeppninni heldur hafi leikmenn tekið sig saman í andlitinu og markmiðið sé að ljúka tímabilinu á sómasamlegan hátt. Nú þegar hef- ur liðið unnið tvo leiki í röð. „Við erum meðal efstu liða í deildinni og það hefur gengið framar vonum en til þess að við getum haldið okkur á toppnum þarf liðið að standa sig á lokasprettinum. Það er enginn vafi að liðið ætlar sér eitt af sex efstu sætum deildarinnar þegar upp er staðið. Við ætlum við að reyna að ná sæti í Evrópukeppninni og nú er kjörið tækifæri fyrir okkur að sýna hvað býr í okkur.“ Veitingastaðir helsta áhugamálið Hermann býr ásamt eiginkonu sinni, Rögnu Lóu Stefánsdóttur, og þremur börnum: Stefáni 14 og Elsu sjö ára, sem eru börn Rögnu Lóu, og Telmu sem Hermann og Ragna Lóa eignuðust fyrir 15 mánuðum. Hermann segir að fjölskyldan hafi aðlagast enskri menningu vel, ekki síst í Ipswich sem er lítið bæj- arfélag og ekki ólíkt því íslenska. „Það var erfitt fyrir Elsu að aðlag- ast fyrst í stað eftir að við komum til Englands, enda talaði hún enga ensku, en síðan hún náði valdi á tungumálinu hefur henni gengið allt í haginn, ekki síst í námi. Stef- án talaði ensku áður en hann kom og því átti hann ekki í neinum vandræðum og líður vel í Englandi. Við bjuggum í sama þorpinu skammt frá Lundúnum á meðan ég lék með hinum félögunum og það tók oft tíma að koma börnunum í skólann en við búum nú í útjaðri Ipswich og þau geta gengið í skól- ann. Þá tekur það skamman tíma að fara til Lundúna. Það má því segja að við séum ánægðari hér ef eitthvað er.“ Hermann segir að Ragna Lóa, sem lék áður með ís- lenska kvennalandsliðinu í knatt- spyrnu, hafi meðal annars dregið fram skóna aftur og æft um tíma með kvennaliði Ipswich. Spurður um hvað hann hafi fyrir stafni þegar hann sé ekki við æf- ingar eða keppni segir Hermann að hann sýsli við eitt og annað. „Það er til dæmis snókerstofa hér í bæn- um og ég kem þar reglulega við. Þá reyni ég að heimsækja íslensku leikmennina sem eru hér í Eng- landi, eins og Ólaf Gottskálksson, Ívar Ingimarsson, Eið Smára Guð- johnsen og Bjarnólf Lárusson. Við reynum að hittast endrum og eins en það er oft erfitt vegna leikja. Þá hittir maður Íslendinga af og til, eins og á þorrablóti Íslendinga- félagsins fyrir skömmu. Annars er ávallt gestkvæmt hjá okkur hjón- um og við erum sífellt að sýna fólki staðinn. Eitt það helsta sem hægt er að sýna fólki hér í Ipswich eru veitingastaðirnir. Við erum búin að þræða flesta veitingastaðina hér í bænum og ætli það megi ekki segja að það sé áhugamál hjá mér númer eitt. Þá fer ég í golf en geri minna af því yfir vetrarmánuðina og þeg- ar kalt er í veðri. Þegar ég fæ frí frá fótboltanum á sumrin reyni ég að komast heim í nokkrar vikur og einnig reynum við í fjölskyldunni að komast á sólarströnd í eina viku áður en æfingatímabilið hefst á ný.“ Hann kveðst einnig leggja mikla áherslu á að koma heim á sumrin, eins og hann orðar það, og hitta fjölskyldu og vini. Spurður um hvort hann sakni einhvers á Ís- landi segist hann sakna matarins. „Ég finn það þegar ég er búinn að vera lengi út hve íslenski maturinn er góður og ekki má gleyma ís- lenska vatninu. Þá sakna ég einnig útisundlauga sem er alls staðar að finna heima. Hér eru engar úti- laugar, að vísu eru hér heitir pottar en þeir eru allir inni. Það er því ekki sami sjarminn yfir laugunum og heima þar sem hægt er að sitja í pottunum í ískulda eins og maður gerði oft eftir æfingar með ÍBV,“ segir Hermann sem hefur bætt úr pottaleysinu og ætlar að láta sækja sundpottinn sem var í garðinum hans þar sem hann bjó áður en hann flutti til Ipswich. Óverðskulduð gagnrýni á Atla Senn líður að því að næsta hrina landsleikja hefjist. Hermann, sem hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár, tók þátt í fyrstu leikjum íslenska liðsins í undankeppni heimsmeistaramóts- ins í haust, en þá tapaði liðið fyrir Dönum og Tékkum en vann Norð- ur-Íra. Spurður um hvernig hann mæti stöðu liðsins að loknum þrem- ur fyrstu leikjunum sagði hann að liðið hefði leikið vel í fyrstu æfinga- leikjunum undir stjórn Atla Eð- valdssonar en það yrði að viður- kennast að leikirnir gegn Dönum og Tékkum hefðu ekki gengið nægilega vel. „Þetta voru lélegir leikir af okkar hálfu gegn Dönum heima og Tékkum ytra.“ Hermann, sem lék á vinstri vængnum gegn Tékkum, sagði að Atli hefði lagt upp með ákveðna herkænsku fyrir leikinn. „Því miður gekk þessi áætlun ekki upp og í raun veit ég ekki hvað gerði útslagið með að þessir leikir gegn Dönum og Tékk- um fóru á þennan veg. Það má ekki gleyma því að við vorum búnir að ná góðum árangri áður en kom að þessum leikjum, til dæmis unnum við Svía. Hvað er langt síðan að við unnum Svía? Þá vorum við búnir að vinna Finna og gera jafntefli við Norðmenn. Síðan koma tveir léleg- ir leikir en okkur tókst að vinna Norður-Íra í næsta leik á eftir. Það hefur oft háð íslenska liðinu að þurfa að stjórna leikjum en í þess- um leik leystum við hlutverk okkar vel af hendi og áttum að vinna stærri sigur. Það var ekki laust við smáspennu í manni því sigurmarkið kom ekki fyrr en undir lokin en sigur var okkur lífsnauðsynlegur í keppninni. Þetta var einfaldlega góður sigur gegn Norður-Írum sem eiga flesta leikmenn í ensku úrvals- deildinni og ég hef trú á að íslenska liðið muni styrkjast eftir því sem á líður, enda sýndum við hvað í okk- ur býr í síðustu undankeppni Evr- ópumótsins. Það er engin ástæða til annars en svo veit enginn hvað ger- ist, við erum hins vegar staðráðnir í að standa okkur. Íslenska liðið hefur áunnið sér mikla virðingu er- lendis og ég verð var við það hér í Englandi. Við erum allavega komn- ir á kortið.“ Aðspurður segir hann að sú gagnrýni sem Atli fékk eftir leikina gegn Tékkum og Dönum sé óverðskulduð. „Hann var spurður að því eftir Tékkaleikinn hvort hann ætlaði að segja af sér. Sú spurning fannst mér með ólíkind- um og fjarstæðukennd. Atli verður að fá tíma til þess að slípa liðið saman og ekki er laust við að hann hafi orðið fyrir óvæginni gagnrýni af hálfu fjölmiðla.“ Þegar tímabilinu lýkur mun Her- mann eiga fjögur ár eftir af samn- ingi sínum við Ipswich. Þegar hann er spurður um hvort hann ætli sér að ljúka þeim árum sem hann á eft- ir hjá Ipswich segist hann ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér. „Það er erfitt að spá fram í tímann. Ég gerði fimm ára samning við Wimbledon og lauk aðeins einu ári af þeim samningi. Ég vona að ég nái lengra og komist á toppinn, all- ir vilja komast eins langt og þeir geta. Annars væri ég til í að ljúka samningi mínum hér, svo lengi sem liðið verður áfram í flokki bestu liða. Það verður tíminn aftur á móti að leiða í ljós.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.