Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 6
KÖRFUKNATTLEIKUR
6 B ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ég bjóst við þessu í dag en þaðskilur á milli stóru liðanna og
þeirra litlu í keppni sem þessari.
Hamarsmenn hafa
hins vegar gert vel í
vetur. Leikur Guð-
jóns kom mér ekki á
óvart; hann hefur
verið góður í síðustu leikjum en
hann og allt liðið skiluðu sínu í dag.
Vörnin var lykillinn að sigrinum og
eins lögðum við upp með að halda
Chris Dade niðri. Þessi úrslita-
keppni leggst vel í mig en við ætl-
um okkur alla leið,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavík-
ur.
Keflvíkingar buðu upp á þriggja
stiga skotsýningu í upphafi þriðja
leikhluta og gáfu þeir vísbendingu
um hvað væri í vændum. Þeir
hreinlega yfirspiluðu heimamenn á
öllum vígstöðvum, en Hamar tók
t.d. ekki eitt einasta sóknarfrákast
í fyrsta leikhluta en eftir hann var
staðan 28:14.
Keflvíkingar héldu allan leikinn
áfram að auka muninn en Hamar
átti aldrei möguleika á að komast
inn í leikinn. Í lok þriðja leikhluta
var munurinn orðinn 32 stig og að
lokum var 44 stiga munur á lið-
unum og voru heimamenn stein-
hættir að vera með.
Guðjón Skúlason fór fremstur
sinna manna og þeir Gunnar Ein-
arsson og Calvin Davis áttu góðan
leik. Í heild spiluðu Keflvíkingar
allir vel og eins var gaman að sjá til
Hjartar Harðarsonar en hann kem-
ur mjög sterkur inn eftir mjög erf-
ið meiðsl í vetur. Í liði Hamars var
Svavar Pálsson einna bestur. Chris
Dade náði sér aldrei almennilega á
strik í leiknum enda vel gætt af
Keflvíkingum. Hamarsmenn eiga
þó hrós skilið fyrir tímabilið, þrátt
fyrir endasleppa úrslitakeppni.
„Betra liðið vann, maður vill
gleyma þessum leik sem fyrst en
muna eftir tímabilinu og því já-
kvæða sem gerðist í vetur. Her-
bragðið hjá þeim virtist vera að
vinna með sem stærstum mun í
Keflavík þannig að við myndum
mæta niðurbrotnir í seinni leikinn.
Þetta fer að vera í síðasta sinn sem
við getum borið við reynsluleysi,“
sagði Pétur Ingvarsson eftir leik-
inn.
KEFLVÍKINGAR sýndu allar sínar bestu hliðar á sunnudagskvöldið
þegar þeir tryggðu sér sæti í fjögurra liða úrslitum Epson-deild-
arinnar. Keflvíkingar voru ekki í vandræðum með Hamarsmenn í
Hveragerði en Keflavík vann stórsigur, 62:106. Þá átti Guðjón
Skúlason stórleik, gerði 36 stig, þar af tíu þriggja stiga körfur, og
var hrein unun að sjá til hans í upphafi leiks.
Helgi
Valberg
skrifar
Morgunblaðið/Hilmar Bragi
Calvin Davis átti góðan leik með Keflvíkingum. Hér sækir hann að körfu Hamarsmanna.
Skildi á milli
þeirra stóru
og litlu
Baráttan öðru fremur skóp sig-ur heimamanna. Hlynur Bær-
ingsson, sem meiddist á ökkla í
upphafi síðasta
leiks í Njarðvík,
byrjaði vel og skor-
aði 10 stig í fyrsta
leikhluta sem end-
aði 31:22 fyrir heimamenn. Sóknir
heimamanna gengu vel og hittnin
var með ágætum. Alexander Erm-
olinski, þjálfari Skallagrímsmanna,
sem oft hefur verið kjölfestan í
leik liðsins, lenti í villuvandræðum
með þrjár villur strax eftir 5 mín-
útna leik. Sigmar Egilsson, besti
leikmaður Skallagríms, sem hafði
verið mjög hreyfanlegur bæði í
sókn og vörn fékk var kominn með
fjórar villur fyrir leikhlé.
Þetta raskaði aðeins varnar-
leiknum og Njarðvíkingar gengu á
lagið og jöfnuðu í þriðja leikhluta
65:65. Þar fóru fremstir Brenton
Birmingham, Logi Gunnars og
Halldór Karlsson. Allir léku
Njarðvíkingar mjög fast og náðu
mun fleiri fráköstum en heima-
menn.
Hafþór Gunnarsson átti góðan
leik hjá Skallagrími, sérstaklega í
þriðja leikhluta, og sýndi mikla
áræðni þegar hann keyrði beint að
körfunni á móti sér miklu stærri
mönnum eins og Friðriki Stefáns-
syni sem réð oftast ríkjum í teign-
um.
Spennan var mikil þegar síðasti
leikhluti hófst og jafnframt mikill
hiti í leikmönnum enda hafði verið
leikið fast. Skallagrímsmenn byrj-
uðu betur með tveimur þriggja
stiga körfum frá Sigmari. Borg-
nesingar komust í 78:71 en þó
sýndi Brenton Birmingham klærn-
ar og virtist næstum geta skorað
þegar honum sýndist og lagaði
stöðuna í 80:78. Gamli refurinn
Birgir Mikaelsson gekk fram og
náði að halda Brenton aðeins í
skefjum og vel fór á því að Warren
Peebles skoraði síðustu þrjú stig
heimamanna sem dugðu til sigurs
85:82.
Oddaleikur
í Njarðvík
BORGNESINGAR sigruðu deild-
armeistarana frá Njarðvík 85:82
fyrir troðfullu húsi í æsispenn-
andi leik á sunnudagskvöldið.
Borgnesingar ætluðu greinilega
ekki að láta slakan fyrsta leik í
úrslitunum slá sig út af laginu,
barátta þeirra var til fyr-
irmyndar og með sigrinum
tryggðu þeir sér oddaleik, sem
fer fram í kvöld í Njarðvík.
Guðrún Vala
Elísdóttir
skrifar
Það er kannski lýsandi fyrir leik-inn á sunnudagskvöld að það
tók Tindastólsmenn 4 mínútur að
skora sín fyrstu
stig. Það má reynd-
ar segja að gestirnir
hafi aldrei náð neinu
sambandi við leik-
inn, hvorki í vörn né sókn. Heima-
menn voru reyndar ekki búnir að
finna fjölina sína heldur þannig að
leikurinn var í jafnvægi í fyrsta leik-
hluta sem lauk með því að heima-
menn höfðu skorað 17 stig en gest-
irnir 15. Í öðrum leikhluta gerðu
heimamenn í raun út um leikinn og
jörðuðu gestina á öllum sviðum. Það
er ekki oft sem jafn lágvaxið lið og
Grindvíkingar hefur betur í fráköst-
um en það gerðu þeir í þessum leik
og voru gríðarlega grimmir í vörn-
inni. Það var enda að duga eða drep-
ast og einbeiting heimamanna var
lengstum góð en gestirnir virkuðu
utangátta. Gestirnir töpuðu 23 bolt-
um á meðan heimamenn töpuðu 11.
Heimamenn náðu mest 18 stiga for-
ustu í leikhlutanum, 39:21. Hálfleik-
stölur hljóðuðu upp á örugga for-
ustu heimamanna sem settu 43 stig
á meðan gestirnir gerðu 29 stig. Í
þriðja leikhluta héldu heimamenn
áfram að spila góða vörn en Tinda-
stólsmenn gáfust ekki upp og virt-
ust til alls líklegir. Oft er talað um
10 stiga múrinn, þ.e. að koma for-
skoti andstæðinganna niður fyrir 10
stig, og það tókst gestunum í stöð-
unni 50:41 og þrjár mínútur eftir af
leikhlutanum. Þá sögðu heimamenn
hingað og ekki lengra og skoruðu 10
stig í röð þannig að í lok þriðja leik-
hluta var staðan 60:41. Heimamenn
héldu uppteknum hætti í síðasta
leikhlutanum og forskot þeirra
jókst jafnt og þétt. Eftir 4 mínútna
leik var munurinn orðinn 30 stig og
gestirnir hættir. Ef ekki hefði kom-
ið til góð rispa hjá Ómari Sigmars-
syni er ljóst að munurinn hefði orðið
enn meiri en hann skoraði 4 þriggja
stiga körfur í þessum leikhluta sem
voru öll hans stig og hann varð fyrir
bragðið stigahæstur. Með þessari
rispu fær hann líka titilinn skásti
leikmaður Tindastóls en aðrir fá
lægri einkunn. Hjá heimamönnum
var liðsheildin best og er langt síðan
liðsmenn Grindavíkurliðsins hafa
spilað jafn vel hver fyrir annan í
vörn og sókn.
„Við komum til að vinna, stiga-
munur skiptir engu máli, staðan er
1:1. Við vorum að spila okkar slak-
asta leik og Grindavík komst upp
með að spila harða vörn. Þeir fóru
eins langt og þeir komust í því,“
sagði Valur Ingimundarson, þjálfari
Tindastóls.
Einar Einarsson, þjálfari Grinda-
víkurliðsins, var léttari á brún en
kollegi hans. „Við spiluðum mjög vel
enda ekki hægt að falla út á heima-
velli. Það kom einfaldlega ekki til
greina. Við vorum ekki sáttir við
leik okkar á Króknum. Valur (Ingi-
mundarson) var ósáttur við dóm-
gæsluna í kvöld en við á Króknum.
Það verður hörkuleikur á Króknum,
vonandi jafn og spennandi.“
Stórsigur sprækra
Grindvíkinga
Grindvíkingar tóku leikmenn Tindastóls í kennslustund á sunnu-
dagskvöld. Yfirburðir heimamanna voru algjörir og Stólarnir áttu án
efa sinn slakasta leik í vetur en heimamenn sennilega sinn besta.
Leiknum lauk með stórsigri heimamanna sem skoruðu 85 stig á
meðan gestirnir skoruðu 58 eftir að heimamenn höfðu verið yfir í
hálfleik 43:29. Liðin eru þar með jöfn, 1:1, og mætast í oddaleik um
sæti í undanúrslitunum á Sauðárkróki í kvöld.
Garðar
Vignisson
skrifar