Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 7

Morgunblaðið - 20.03.2001, Page 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 B 7 17. 03. 2001 8 3 6 4 7 8 9 17 19 20 23Tvöfaldur1. vinningur í næstu viku Einn vinningar för til Finlands og 3 til Noregs 14. 03. 2001 11 16 24 31 32 44 1 35 Leikurinn var jafn og spennandiallan tímann en KR-ingar gerðu út um leikinn af vítalínunni í framlengingunni. 15 sekúndum fyrir leikslok skoraði gamli Haukamað- urinn Jónatan Bow úr tveimur vítaskotum og kom sín- um mönnum þremur stigum yfir. Haukar áttu möguleika á að jafna metin en þeir misstu knöttinn skömmu fyrir leikslok og í kjölfar- ið brutu þeir á Jóni Arnóri Stef- ánssyni. Honum urðu ekki á nein mistök og Jón Arnór tryggði meisturunum sigurinn með því að skora úr báðum vítaskotunum. Það var mikill darraðardans stiginn á lokamínútum venjulegs leiktíma þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna eins og raunar allan leiktímann. Jón Arnar Ingvarsson misnotaði gott færi fyrir Hauka 38 sekúndum fyrir leikslok og KR- ingar lögðu upp í sókn. Henni lauk með skoti Ingvaldar Magna Haf- steinssonar sem geigaði og Hauk- arnir höfðu 14 sekúndur til að knýja fram sigur og oddaleik. Heimamenn fóru hins vegar illa að ráði sínu. Jón Arnar datt með knöttinn en náði honum aftur og bæði hann og Lýður Vignisson tóku erfið skot sem bæði geiguðu og því þurfti að grípa til framleng- ingar sem KR-ingar voru sterkari í. ,,Ég er auðvitað mjög ánægður að hafa klárað þetta einvígi í tveimur leikjum en ég er ekki jafnánægður með spilamennsku okkar í þessum leik. Við vissum að Haukarnir kæmu mjög grimmir til leiks. Þeir voru fastir fyrir og ein- hvern veginn svöruðum við þeim ekki í sömu mynt. Það var mikið um mistök undir lok venjulegs leiktíma en sigurinn hefði hæglega getað fallið Haukunum í skaut. Það er hins vegar gott sjálfstraust í okkar liði og það vó þungt í fram- lengingunni. Það er mikill hugur í mönnum að fara alla leið eins og í fyrra en þá verðum við að spila betur,“ sagði Arnar Kárason, leik- stjórnandi KR, við Morgunblaðið eftir leikinn. Jón Arnór Stefánsson var best- ur í annars jöfnu liði KR. Jónatan Bow átti góða kafla sem og Ólafur J. Ormsson meðan hans naut við en hann fór meiddur af velli í byrj- un þriðja leikhluta. Arnar Kárason lék vel í fyrri hálfleik og Keith Vassell var óhemjuöflugur undir körfunni, en hann tók alls 23 frá- köst í leiknum. Mike Bargen og Guðmundur Bragason voru langatkvæðamestir í liði Hauka. Guðmundur var mjög sterkur í fyrri hálfleiknum og skoraði þá 15 stig en nokkuð dró af honum í þeim síðari. Bargen var að gera góða hluti þar til undir lok venjulegs leiktíma þegar hann tók tvö vond skot með skömmu milli- bili. Það var slæmt fyrir Haukana að Jón Arnar fékk sína þriðju villu strax í fyrsta leikhlutanum og hann kom því lítið við sögu fyrr en í síðari hálfleiknum. Marel Guð- laugsson og Bragi Magnússon, tveir af reyndari leikmönnum Hauka, náðu sér engan veginn á strik og við því máttu Haukarnir ekki í þessum leik enda breiddin mun meiri hjá KR-liðinu. Hauk- arnir ætluðu sér stóra hluti í vetur og því hljóta það að vera vonbrigði að tímabilinu á þeim bænum sé nú lokið. ,,Auðvitað eru þetta vonbrigði. Við ætluðum lengra en þetta, en því miður var margt sem spilaði á móti okkur á tímabilinu. Jón Arn- ar hefur til að mynda ekki getað beitt sér sem skyldi vegna meiðsla og þá misstum við Ingvar Guð- jónsson í meiðsli í nokkrar vikur. Það jákvæða við þetta tímabil er að margir ungir strákar öðluðust reynslu og ég myndi ætla að fram- tíðin hjá Haukum sé mjög björt. Ég get ekki látið það ógert að nefna dómgæsluna í þessum leik. Þar hallaði verulega á okkur. Þeir dæmdu trekk í trekk villur á okk- ur en slepptu þeim á KR-inga og það gerði útslagið. KR-ingarnir unnu þennan leik á vítalínunni með hjálp dómaranna. Mér fannst mínir menn leggja sig vel fram og með eðlilegri dómgæslu hefði sig- urinn lent okkar megin,“ sagði Ív- ar Ásgrímsson, þjálfari Hauka, við Morgunblaðið. Haukar úr leik HAUKAR eru úr leik í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik eftir tap á heima- velli fyrir KR, 82:87, í fram- lengdum leik. KR-ingar unnu báðar viðureignir liðanna og halda ótrauðir áfram baráttunni um titilinn en Haukarnir eru komnir í sumarfrí, mikið fyrr en þeir höfðu ætlað sér. Guðmundur Hilmarsson skrifar Heimamenn mættu munákveðnari til leiks og höfðu tíu stiga forystu eftir fyrsta leik- hluta. Þar munaði mest um framlag Stefaníu Ásmunds- dóttur sem spilaði sérstaklega vel í fyrri hálfleiknum. Gestirnir bitu þó öllu hressilegar frá sér fyrir hlé og staðan í hálfleik var 40:38, KFÍ í hag. Leiðir skildi í þriðja leikhluta en þá hvarf allt flæði úr sóknarleik Ísfirðinga, þökk sé að mestu öfl- ugum varnarleik gestanna sem höfðu örugga forystu allt fram í miðjan síðasta leikhluta. Þá kom kippur í leik Ísfirðinga sem minnk- uðu muninn í þrjú stig þegar um mínúta var eftir en Keflvíkingar innbyrtu sigurinn á reynslunni sem hefur fleytt þeim langt í þeirri rimmu er þessi tvö lið hafa háð að undanförnu. Stefanía var best Ísfirðinga í leiknum en auk hennar voru þær Jessica Gaspar, Tinna Björk Sig- mundsdóttir og Anna Soffía Sig- urlaugsdóttir atkvæðamiklar. Lið- ið sýndi hetjulega baráttu í lokin, á sama tíma og Karl Jónsson þjálf- ari drap tímann á hliðarlínunni með því að elta dómara leiksins og upplýsa þá nánar um þeirra hlut- verk á vellinum. Reynslan geislaði af Brooke Schwartz frá fyrstu mínútu en hún átti frábæran leik og var potturinn og pannan í sigri gestanna. Einnig er vert að minnast á góða frammi- stöðu þeirra Kristínar Blöndal og Sigríðar Guðjónsdóttur sem báðar stóðu sig með mikilli prýði. Keflavík í úrslit KEFLAVÍK tryggði sér sæti í úr- slitum 1. deildar kvenna í körfu- knattleik á sunnudagskvöldið með tíu stiga sigri á KFÍ fyrir vestan, 69:79. Þetta var þriðji sigur gestanna á Ísfirðingum á stuttum tíma, og líkt og í þeim tveimur fyrri þurftu Keflavík- urstúlkur að hafa fyrir þessum. Halldór Bjarkason skrifar Skagamenn eru með örugga for-ystu í A-riðlinum en þar eru FH- ingar einnig taplausir og þeir burst- uðu Tindastól, 7:1, í Laugardalnum á sunnudaginn. Atli Viðar Björnsson skoraði tvö marka Hafnarfjarðarliðs- ins. Fram vann góðan sigur á Fylki, 2:1, í Laugardalnum á sunnudags- kvöldið. Andri Fannar Ottósson skor- aði fyrst fyrir Fram og síðan gerði Þórhallur Dan Jóhannsson Fylkis- maður sjálfsmark en Sverrir Sverr- isson lagaði stöðuna með marki fyrir Fylki. Breiðablik er eina ósigraða liðið í B-riðli eftir 2:1 sigur á ÍBV í Reykja- neshöll á laugardaginn. Eyjamenn voru sterkari framan af og Unnar Hólm Ólafsson kom þeim yfir en Sæv- ar Pétursson og Arngrímur Arnarson svöruðu fyrir Blika með mörkum sitt hvorum megin við hlé. Sigurður Grét- arsson, þjálfari Breiðabliks, var rek- inn af varamannabekknum um miðj- an fyrri hálfleik fyrir mótmæli. Leiftur kom á óvart með því að sigra Valsmenn sannfærandi, 3:1, og Valur er þar með á botni B-riðilsins, án sigurs. Valsmenn misstu Hjörvar Hafliðason markvörð meiddan af velli 20 mínútum fyrir leikslok en hann hafði leyst Þórð Þórðarson af hólmi í leikhléi. Útispilarinn Betim Haxhij- adini varði mark Vals það sem eftir var leiks og hélt hreinu. KA-menn eru mjög frískir þessa dagana og þeir unnu stórsigur á ÍR- ingum, 4:0, í slag 1. deildarliðanna. Í neðri deildinni hefur 1. deildarlið KS farið illa af stað og töpuðu Sigl- firðingar illa gegn 3. deildarliðum um helgina, 0:4 gegn Fjölni og 1:5 gegn HK. Skagamenn enn á sigurbraut SKAGAMENN eru einir með fullt hús stiga í efri deild deildabik- arsins í knattspyrnu eftir sigur á Víkingi, 2:1, á gervigrasinu í Laugardal á sunnudagskvöldið. Sigur þeirra hékk þó á bláþræði því Grétar Rafn Steinsson skor- aði sigurmark ÍA mínútu fyrir leikslok en fjórum mínútum áð- ur hafði Ólafur Pétursson, markvörður Víkings, varið víta- spyrnu frá Haraldi Hinrikssyni, sem gerði fyrra mark ÍA. ■ Úrslit, stöður og marka- skorarar /B15 Með sigrinum varð Schumacherfyrsti ökuþórinn í tæpa hálfa öld til að vinna sex Formúlu-1 mót í röð en fara verður aftur til áranna 1952 og 1953 til að finna ökuþór sem gert hef- ur betur. Þá vann annar Ferrariþór, Ítalinn Alberto Ascari, níu mót í röð. Enginn hefur þó haft forystu í Formúlu-1 mótum jafn- lengi og Schumacher en hann hefur verið í fyrsta sæti í kappakstri í 78 mótum af 145, samtals í 2.676 hringi og 12.410 kílómetra. Eftir aðeins tvo hringi var sem hellt væri úr fötu svo bílarnir skaut- uðu á brautinni og höfnuðu sumir ut- an vegar og féllu úr leik. Schumacher hélt forystu eftir ræsinguna en hélt sig vera fallinn úr leik er hann missti bílinn útaf brautinni í bleytunni. Bar- richello fór útaf á sama stað en slapp sömuleiðis við að skella á vegg eða festast í möl. Varð það báðum til happs að bílarnir löskuðust ekki. Er ökuþórarnir streymdu inn í bíl- skúra til að skipta yfir á regndekk tók Schumacher áhættu sem hann átti eftir að græða á; valdi millidekk í stað fullra regndekkja. Er brautin tók að þorna kom það val sér vel því hann gat fyrir vikið ekið mun hraðar á þurru köflum brautarinnar og vann sig með undraverðum og skjótum hætti upp úr 11. sætinu í það fyrsta. Eftir það leit hann ekki um öxl og gat leyft sér að spara bílinn á loka- hringjunum sakir þess yfirburða for- skots sem hann hafði náð er þriðj- ungur hringjanna var eftir. Um tíma ók hann hvern hring fimm sekúndum hraðar en McLaren-mennirnir. Schu- macher segir að engu hefði breytt um úrslitin þótt öryggisbíllinn hefði verið skemmdur í brautinni, en hann ók á undan ökuþórunum í eina 8 hringi. Forsvarsmenn McLaren sögðust ekki hafa búist við að bíllinn yrði sendur út og því sett full regndekk undir bíla Coulthards og Häkkinens og segja að bíllinn hafi aukinheldur verið óþarflega lengi í brautinni, sem Schumacher tók reyndar undir með. Ron Dennis, aðalstjórnandi McLa- ren, varar við því að afskrifa lið sitt, það sé þrátt fyrir allt með fleiri stig en á sama tíma í fyrra, en McLaren hlaut ekkert stig úr fyrstu tveimur mótum ársins 2000. Coulthard heitir sömuleiðis betrumbót og segir betri tíð í vændum fyrir lið sitt. „Við vitum að við höfum ekki náð nándar nærri öllu út úr bílnum sem í honum býr. Við þurfum að ná betra jafnvægi í hann áður. Það sem menn eru að upp- lifa er mjög góður Ferraribíll gegn ótálguðum silfurörvum,“ sagði Skot- inn eftir keppnina. Barrichello lenti í útistöðum við Schumacher-bræðurna eftir keppni. Sakaði Ferrari-félaga sinn um að hafa klekkt á sér með ósæmilegum framúrakstri er þeir reyndu að kom- ast upp strolluna eftir að öryggisbíll- inn fór úr brautinni. Sætti síðan gagnrýni Ralfs Schumacher hjá Williams fyrir samstuð í fyrstu beygju. Yngri Schumacherinn sagði Brasilíumanninn ekki hafa farið að reglum eða gildandi siðum er hann gaf sér ekki eftir beygjuna eftir að Williamsbíllinn var kominn framúr við beygjubyrjun. Svaraði Barri- chello fyrir sig og sagði Ralf Schu- macher hafa bremsað fullseint og beygt svo af meiri dirfsku en góðu hófi gegndi. Heinz-Harald Frentzen hjá Jord- an átti sitt besta mót í rúmt ár og háði harða hildi um sæti í Sepang við Mika Häkkinen, Ralf Schumacher og Jos Verstappen og hafði betur; varð á endanum fjórði. Mótið var sögulegt fyrir Michelin-dekkjafyrirtækið því með fimmta sætinu vann Ralf Schu- macher fyrstu formúlustigin fyrir það. Schumacher hefur 10 stiga forskot á Coulthard og Barrichello í stiga- keppni ökuþóra að loknum tveimur mótum af 17, með 20 stig gegn 10 hjá hvorum þeirra. Fjórði er Heinz-Har- ald Frentzen með 5 stig. Mika Häkk- inen vann sín fyrstu stig á árinu og er í 7.–8. sæti í stigakeppninni ásamt landa sínum unga, Kimi Räikkönen. Í stigakeppni bílsmiða hefur Ferrari 30 stig, McLaren 11, Jordan 5, Sabu- er 4 og Williams 2. Schumacher sigldi til öruggs sigurs MICHAEL Schumacher sigldi til öruggs sigurs í tíðindasömum Malasíukappakstrinum þar sem skýfall í upphafi keppni setti talsvert strik í reikninginn og bauð upp á tilþrif. Má segja að hann hafi á endanum skilið keppendurna eftir í kjölsoginu og haft mótið í hendi sér því hann kom 23 sekúndum á und- an Ferrarifélaga sínum Rubens Barrichello á mark. David Coult- hard hélt merki McLaren á lofti af veikum mætti en segja má að silfurörvarnar séu heillum horfnar og standi sem stendur skarlatsfákum Ferrari nokkuð að baki. Reuters Þeir fögnuðu sigri í Malasíu; Barrichello og Schumacher. Ágúst Ásgeirsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.