Morgunblaðið - 20.03.2001, Blaðsíða 8
Það sem stóð upp úr á mótinu másegja að hafi verið 400 m. fjór-
sund Arnar Arnarsonar sem bætti
eigið met um tæpar
12 sekúndur. Þetta
frábæra sund kom
Erni í 5. sæti á
heimsafrekalistan-
um og var stemmningin í sundhöll
Vestmannaeyja engu lík þegar Örn
lauk sundinu. Þá setti Örn Íslands-
met í 50 m. flugsundi, 50 m. skrið-
sundi, 100 m. fjórsundi og boðsund-
sgreinunum 4x200 m. skriðsundi og
4x100 m. skriðsundi. Örn syndir sem
fyrr fyrir SH.
Lára Hrund setti
þrjú met
Lára Hrund Bjargardóttir, SH,
stóð sig vel og setti hún þrjú Íslands-
met. Lára Hrund setti met í 200 m.
fjórsundi, 4x200m. skriðsundi og 200
m. skriðsundi. Þá tryggði Lára
Hrund sér keppnisrétt á heims-
meistaramótinu í Japan sem fram
fer í júlí.
Jakob Jóhann Sveinsson Ægi,
einn okkar allra besti sundmaður,
sló eigið Íslandsmet í 100 m. bringu-
sundi frá í nóvember og synti á tím-
anum 1.02,52. Jakob, ásamt Erni og
Láru Hrund, verða því þátttakendur
fyrir Íslands hönd á HM í Japan.
Kolbrún Ýr með
glæsilegt met
Sundkonan Kolbrún Ýr Kristjáns-
dóttir frá Akranesi setti glæsilegt Ís-
landsmet í 50 m. baksundi og bætti
eigið Íslandsmet frá í desember
1998. Kolbrún Ýr synti á tímanum
29,45 sek og var óheppin að tryggja
sér ekki keppnisrétt á HM í sumar
þar sem munaði aðeins 6/100 úr sek.
að hún næði lágmarki.
Boðsundsveitir SH voru í sviðs-
ljósinu á IMÍ í Eyjum. Sveitirnar
settu 3 Íslandsmet, kvennasveitin í
4x200 m skriðsundi og karlasveitin í
4x200 m skriðsundi og 4x100 m.
skriðsundi.
Þeir sem skipa boðsundsveitir SH
eru ásamt Erni Arnarsyni og Láru
Hrund Bjargardóttur þau Berglind
Ósk Bárðardóttir, Sunna Björg
Helgardóttir, Anja Ríkey Jakobs-
dóttir og þeir Ómar S. Friðriksson,
Ásgeir Ásgeirsson og Guðmundur
Hafþórsson.
Örn og met-
in í Eyjum
INNANHÚSSMEISTARAMÓT Íslands í sundi sem fram fór í Eyjum
um helgina verður líklega í minnum haft í framtíðinni. Á mótinu féllu
hvorki fleiri né færri en 13 Íslandsmet og kom Sundfélag Hafn-
arfjarðar að tíu þeirra með þau Örn Arnarson og Láru Hrund Bjarg-
ardóttur fremst í flokki. Þetta er í 11. sinn sem mótið er haldið og
skráðu 119 keppendur sig til sunds á mótið frá 13 félögum víðs
vegar að á landinu.
Boðsundsveit SH fór mikinn á IMÍ um helgina og setti tv
landsmet, hún er skipuð Erni Arnarsyni, Ásgeiri Ásgeirs
Ómari Snævari Friðrikssyni og Guðmundi S. Hafþórssy
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Jakob Jóhann Sveinsson bætti eigið met í 100 m bringusundi.
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar
SUND
8 B ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir
keppti á IMÍ í Eyjum um
helgina. Kolbrún Ýr, sem
keppir fyrir hönd ÍA eins og
ævinlega og náði sér vel á stri
í mótinu, setti m.a. eitt Íslands
met ásamt því að fá verðlaun
fyrir besta afrek mótsins í
kvennaflokki. „Ég er mjög sát
við mitt gengi eftir helgina og
það er langt síðan mér hefur
gengið svona vel. Ég vildi sýn
hvað í mér býr á IMÍ og það
gekk heldur betur eftir. Það
sem er núna fram undan hjá
mér eru Smáþjóðaleikarnir í
júní en ég ætlaði mér að kom-
ast á HM en þar munaði 6/100
úr sekúndu að ég kæmist
þangað. En engu að síður er é
virkilega ánægð með mitt efti
mótið.“ En náðust öll makmið
sem Kolbrún Ýr setti sér fyrir
helgina. „Ég ætlaði mér að
synda á betri tíma í 200 m.
baksundi en það gekk ekki eft
ir. Ég byrjaði of hratt og var
frekar stressuð í sundinu,
þannig að maður er enn þá að
læra í sundinu,“ sagði þessi
geðþekka unga stúlka í samta
við Morgunblaðið.
Er
enn
að
læra
1. Örn Arnarson, SH, 50 m flugsund
24,54. Eldra metið setti Örn á IMÍ
1999 í Vestmannaeyjum, 24,87.
2. Lára Hrund Bjargardóttir, SH,
200 m fjórsund 2:17,31. Eldra met-
ið átti hún sjálf og var það einnig
sett á IMÍ í Eyjum 1999, það var
2.18,81.
3. Örn Arnarson, 50 m skriðsund
22,83. Fyrra metið var sett í des-
ember 1999 á EM í Lissabon, það
var 22,96.
4. Karlasveit SH í 4x200 m skrið-
sundi 7.35,34. SH átti eldra metið
7.41,28, sett á IMÍ í Eyjum fyrir 2
árum.
5. Örn Arnarson synti fyrsta sprett-
inn í 4x200m skriðsundi og bætti
eigið met frá EM 1999 í Lissabon,
hann synti á 1.46,72, eldra metið
var 1:47,17.
6. Kvennaboðsundssveit SH í 4x200
m skriðsundi, 8:44.93. Gamla metið
þeirra, sem var 8:45.32, sett árið
2000, í mars. Sveitina skipuðu þær
Berglind Ósk Bárðardóttir, Sunna
Björg Helgardóttir, Anja Ríkey
Jakobsdóttir og Lára Hrund
Bjargardóttir.
7. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir 50 m
baksund, 29,45. Eldra metið átti
hún sjálf frá í desember 1998, það
var 30 sekúndur sléttar.
8. Örn Arnarson, 400m fjórsund,
4:11.78. Vitað var að Örn stefndi á
að bæta eigið Íslandsmet sem fyrir
sundið var 4:23.69. Hann gerði sér
lítið fyrir og bætti Íslandsmetið
um tæpar 12 sekúndur og er nú í 5.
sæti á heimsafrekalistanum í 25 m
laug.
9. Jakob Jóhann Sveinsson, Ægi,
bætti eigið met í 100 m bringu-
sundi, synti á 1.02,52. Gamla metið
var 1.03,15 og var sett 25. nóv-
ember sl.
10. Lára Hrund Bjargardóttir, 200 m
skriðsund, 2:02.61. Átti sjálf eldra
metið, 2:02.87 .
11. Örn Arnarson 100 m fjórsund,
56,05. Þetta var fimmta Íslands-
met Arnar og sett í undanrásum.
Eldra metið setti hann sjálfur í
apríl í fyrra og var það 56,35.
12. Lára Hrund Bjargardóttirsetti sitt
þriðja Íslandsmet með því að
synda 200 m flugsund á 2.20,84.
Bætti hún rúmlega fimm ára gam-
alt met Eydísar Konráðsdóttur,
Keflavík. Það var 2.21,04.
13. Karlasveit SH í 4x100 m skrið-
sundi, 3:26,26. Sveitin átti sjálf
eldra metið sem sett var í nóv-
ember 2000, 3.29,83.
Íslands-
metin sem
sett voru í
Eyjum
MAÐUR IMÍ Eyjum er án efa Örn Arnarson
sem sýndi það og sannaði enn einu sinni að
hann er í fremstu röð í heiminum. Örn gerði sér
lítið fyrir og bætti Íslandsmetið í 400 m. fjór-
sundi um heilar 12 sekúndur sem gerist ekki á
hverjum degi. Alls setti Örn sex Íslandsmet á
mótinu, sem voru hvert öðru glæsilegra. Þá var
Örn valinn besti sundmaður IMÍ á lokahófi sem
haldið var á sunnudagskvöld. „Ég er bara mjög
sáttur eftir helgina enda má maður ekki vera
neitt annað. Þetta var frábært mót og Íslands-
metin létu ekki á sér standa hér í Eyjum. Það
sýnir sig að hér er mesta stemmningin og mótið
ætti að vera hér oftar.“ Örn, sem ætlaði sér að
gera atlögu að Evrópumeti Króatans Gordan
Krozjuk í 100 m. baksundi á IMÍ, ákvað að
hætta við það. Morgunblaðinu lá forvitni á að
vita hvers vegna. „Ég ákvað að einbeita mér að
400 metra fjórsundinu frekar og það gekk bara
rosalega vel. Ég verð bara að gera atlögu að
metinu síðar.“ Aðspurður um nám í Bandaríkj-
unum sagði Örn að það ætti eftir að koma í ljós
á næstu mánuðum hvert hann stefndi. Hann
sagðist vera að skoða þessi mál í þaula og ætl-
aði að gefa sér góðan tíma í það.
Get ekki ann-
að en verið
ánægður