Morgunblaðið - 20.03.2001, Síða 9
Morgunblaðið/Sigfús Gunnarvö Ís-
ssyni,
yni.
SUND
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 B 9
Þetta er búið að vera virkilegaskemmtilegt mót og að fylgjast
með Erni Arnarsyni er alger unun,
einskonar sýning.
Það er alveg hægt að
segja það að sund-
íþróttin er á uppleið
og sú vinna sem er
búin að vera í gangi síðustu ár er svo
sannarlega að skila sér í dag,“ sagði
Benedikt.
Nú eru heldur færri þátttakendur
á IMÍ í Eyjum heldur en undanfarin
ár, veistu af hverju það stafar?
„Það eru ýmsir hlutir sem þarf að
skoða þegar við sjáum misjafna þátt-
töku í sumum greinum, hvort að við í
forystunni erum að gera einhverja
feila eða hvort áhuginn er svona lítill.
Hvernig finnst þér að sjá Bryndísi
Ólafsdóttur keppa hér í Eyjum eftir
nokkurra ára fjarveru?
„Alveg reglulega gaman. Það hef-
ur verið að gerast út um allan heim
að fólk sem hefur jafnvel horfið frá
keppni kemur aftur til keppni og er
að skila árangri í fremstu röð. Einnig
hjálpar það okkur að halda fólki í
sundíþróttinni sem er vel. Bryndís
hefur verið að standa sig vel á
mótinu og það er virkilega gaman að
fylgjast með henni.“
Hvernig lýst þér á skipulagningu
mótsins?
„Þau hafa unnið þetta virkilega vel
hér í Eyjum og undirbúningur allur
til mikillar fyrirmyndar. Þeir sem
hafa starfað lengi í kringum sundið
segja að hér sé stuðið og stemmn-
ingin og það hefur sýnt sig í gegnum
tíðina. Hér í Eyjum erum við öll sam-
an og hópurinn þjappast meira sam-
an en ella og allir vinna að sömu
markmiðum.“
Hvað finnst þér hafa staðið upp úr
á mótinu?
„Ég held að það sé engin spurning
að fjögur hundruð metra fjórsund
Arnar Arnarsonar standi upp úr, það
var engu líkt að horfa á hann synda
þetta sund, enda bætti hann sig um
tæpar tólf sekúndur. Það þarf mikið
að ganga á áður en svona sund eru
slegin út. Þannig að maður getur
verið stoltur að eiga svona sund-
mann sem Örn er,“ sagði Benidikt
Sigurðsson.
Gekk eins og vel smurð vél
Mótstjóri IMÍ í Eyjum, Ólafur
Ólafsson, var virkilega sáttur við
gang mála þegar Mogunblaðið hafði
tal af honum í lok móts. „Þetta er bú-
in að vera stórkostleg helgi og sýnir
sig að sundhöllin hér í Eyjum er ein
sú allra besta á landinu. Undirbún-
ingurinn er búinn að ganga vel og
allt hefur gengið eins og í sögu. Til að
svona mót gangi sem best þarf að
hafa gott starfsfólk og góðan tækja-
búnað. Ætli það hafi ekki komið hátt
í 40 manns að skipulagningu mótsins
og má segja að allt hafi gengið eins
og vel smurð vél. Þannig að ég get
ekki verið annað en ánægður eftir
helgina í ljósi þess að mörg met féllu
í lauginni,“ sagði Ólafur Ólafsson.
Framtíðin
er björt
BENEDIKT Sigurðsson, formað-
ur Sundsambands Íslands, var
kampakátur þegar Morg-
unblaðið náði tali af honum rétt
eftir að hann var búinn að af-
henda Erni Arnarsyni gull-
verðlaun fyrir 400 m fjórsund
þar sem Örn fór á kostum.
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar
Kolbrún Ýr og Örn best
Í LOKAHÓFI IMÍ í Eyjum voru veitt verðlaun fyrir bestu af-
rek mótsins og til þess sundfólks sem er með hæsta stigafölda
úr tveimur sundum samanlagt. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir ÍA
hlaut verðlaun fyrir besta afrek í kvennaflokki fyrir 50 m bak-
sund, þar sem hún synti á 29,45 sek. Fyrir það sund fékk hún
960 stig. Örn vann besta afrekið í karlaflokki fyrir Íslands-
metið í 400m fjórsundi 4.11,78 mín. sem gefur 1.006 stig.
Erla Dögg Haraldsdóttir úr Njarðvík og Hákon Jónsson í
Breiðabliki voru valin efnilegasta sundfólkið á IMÍ 2001.
r
ik
s-
tt
g
a
0
ég
ir
ð
r
t-
ð
ali
BRYNDÍS Ólafsdóttir, margfaldur
Íslandsmeistari og ein fremsta sund-
kona landsins til margra ára, keppti
á IMÍ í Eyjum. Bryndís, sem ekki
hefur stungið sér til sunds á sund-
móti á Íslandi undanfarin fjögur ár,
keppti fyrir hönd Ægis á mótinu og
gerði sér lítið fyrir og vann til nokk-
urra verðlauna. Morgunblaðinu lá
forvitni á að vita hvernig það væri
að keppa á móti á Íslandi eftir svona
langa fjarveru. „Það svolítið skrítið
þar sem maður þekkir fáa en ég hef
verið að keppa á sundmótum í
Þýskalandi með ungum krökkum
þannig að þetta er kannski ekkert
nýtt fyrir mig.“ Þótt svo að Bryndís
syndi ekki eins mikið og fyrir nokkr-
um árum náði hún að komast 7 sinn-
um á pall á mótinu. „Ég vann sex
silfur og eitt gull á mótinu. Ég hélt
kannski að ég kæmist á pall í 50m.
skriðsundi en mér datt ekki í hug að
ég kæmist svona oft á pall. Þannig
að ég get ekki verið annað en sátt
við mitt gengi á IMÍ,“ sagði Bryndís.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Þær höfðu um margt að ræða á IMÍ í Eyjum um helgina. Ragn-
heiður Runólfsdóttir og Bryndís Ólafsdóttir.
Kraftlyftingar og sund
LÁRA Hrund Bjargardóttir var í
essinu sínu á IMÍ í Eyjum um
helgina. Lára Hrund setti þrjú Ís-
landsmet ásamt því að vera valin í
landsliðshóp Íslands sem keppir á
HM í Japan í sumar. Morgunblaðið
náði tali af Láru Hrund á lokahófi
IMÍ á sunnudagskvöldið. „Ég er
rosalega ánægð með mitt gengi á
IMÍ. Ég setti mér það markmið að
setja þrjú Íslandsmet og það gekk
eftir þannig að það hefði ekki getað
verið betra hjá mér. Það sem er
fram undan hjá mér eru Smáþjóða-
leikarnir og síðan var verið að til-
kynna mér að ég væri á leið til Jap-
ans í sumar. Þannig að það eru
stanslausar æfingar fram undan
hjá mér,“ sagði Lára Hrund sem
var svo hás að hún kom varla upp
orði.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Lára Hrund Bjargardóttir, SH, hafði ástæðu til að brosa breitt í Eyjum. Hún setti tvö Íslandsmet og
tryggði sér einnig farseðilinn á HM í Japan í sumar.
Allt gekk upp hjá mér