Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.03.2001, Qupperneq 12
KNATTSPYRNA 12 B ÞRIÐJUDAGUR 20. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Leikurinn hafði verið fremurrólegur og lítið gerðist í fyrri hálfleik. Rúnar kom inn í síðari hálfleik og kom markið skömmu síðar. Hann hefur verið veikur en lék í 60 mínútur með varaliðinu á föstudagskvöldið og skoraði þá eitt mark í 5:0 sigri á Charleroi. Við mark Rúnars færð- ist fjör í leikinn og fóru þeir nafnar Arnar Grétarsson og Við- arsson fyrir heimamönnum og Rúnar kom sterkur inn. Auðun Helgason stóð sig vel í vörninni og lék þar allan leikinn. Arnar Grétarsson fékk spark í læri í leiknum en ætti að vera orðinn góður fyrir landsleikinn um næstu helgi. „Forseti Lokeren setti liðinu það takmark fyrir leik- tíðina að ná fimmta sæti, við erum núna í sjötta sæti og raunhæft að við getum komist ofar,“ sagði Auðun í samtali við Morgunblaðið. Læknir Lokeren-liðsins óskaði eftir því við Leekens þjálfara að hann gæfi leikmönnum tveggja daga frí frá æfingum. Læknir ótt- ast að vírus sá sem hrjáð hefur Rúnar upp á síðkastið kunni að smitast út til fleiri leikmanna Lokeren. Varð Leekens við þeirri beiðni. Fyrsta tap Anderlecht Anderlecht tapaði sínum fyrsta leik í deildinni á þessu tímabili þegar liðið heimsótti Gent og tap- aði 2:1. Meistarar Anderlecht sögðu eftir 2:0 sigur á Real Madrid í meistaradeildinni á dögunum að sigurinn gæfi liðinu aukið sjálfs- traust en það virðist hafa komið fyrir lítið í Gent. Gestirnir komust þó yfir snemma í síðari hálfleik en heimamenn jöfnuðu skömmu síðar og 18 ára egypskur unglingur, Ahmed Hossam, tryggði heima- mönnum sigur með marki á síð- ustu mínútu leiksins. Meistarar Anderlecht höfðu fyrir leikinn um helgina sigraði í 20 leikjum og gert fimm jafntefli. Harelbeke, lið Sigurðar Ragn- ars Eyjólfssonar, tapaði um helgina fyrir KV Mechelen, 2:0. Sigurður Ragnar var ekki í leik- mannahópi Harelbeke að þessu sinni og lék heldur ekki með vara- liðinu þar sem leik þess var frest- að. Draumamark hjá Rúnari RÚNAR Kristinsson gerði sannkallað draumamark þegar hann tryggði Lokeren 1:0 sigur á Charleroi í belgísku deildinni á laug- ardaginn. Rúnar fékk knöttinn til hliðar vð vítateig mótherjanna, sneri af sér tvo leikmenn og skaut hárnákvæmu bogaskoti í horn- ið fjær – glæsilega gert. Kristján Bernburg skrifar frá Belgíu JÓHANNES Karl Guðjónsson tryggði RKC Waalwijk dýrmætan sigur á Willem II, 3:2, í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudaginn. Jóhannes skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyr- ir leikslok, beint úr aukaspyrnu. Þetta var þriðja mark hans í 24 deildaleikjum í vetur og lið hans er nú komið af alvöru í slaginn um sæti í Evrópukeppni. Waalwijk hef- ur komið mjög á óvart á tímabilinu og er í fimmta sæti deildarinnar. Jóhannes skoraði sigurmark LAS Palmas sá til þess að Deportivo Coruna næði ekki að minnka mun- inn á toppi spænsku deildarinnar, sigraði 2:0. Leikmenn Las Palmas voru ákveðnir í að láta fjárhags- áhyggjur stjórnar félagsins ekki hafa áhrif á leik sinn og gerðu tvö mörk í fyrri hálfleik, bæði eftir horn- spyrnu. Í síðari hálfleik einbeitti lið- ið sér að vörninni með góðum ár- angri. Kanaríeyjaliðið er í ellefta sæti deildarinnar en Deportivo enn í öðru sæti, tveimur stigum á undan Val- encia og fimm á eftir Real Madrid. Real Madrid fór til Mallorca á sunnudag og þurfti að sætta sig við 1:0-tap og verður að gera sér að góðu að halda fimm stiga forystu í deildinni. Mallorca-liðið virðist hafa eitthvert tak á Evrópumeisturunum því þegar liðin mættust á Bernabeu í nóvember sigraði Mallorca 2:0. Loks sigur hjá Las Palmas Leikmenn Lazio gerðu raunargott betur en gera Roma greiða því með sigrinum er liðið aðeins tveimur stigum á eftir Juve og níu á eftir Roma sem hafði sigr- að í síðustu sjö leikjum í deildinni. Óvæntur stórsigur Lazio setur spennu í deildina. Argentínumað- urinn Hernan Crespo og Tékkinn Pavel Nedved gerðu hvor um sig tvö mörk fyrir heimamenn. Juven- tus réði nokkuð gangi leiksins í fyrri hálfleik en heimamenn skor- uðu eitt mark og annað í fyrstu sókn sinni í þeim síðari. Leikmenn Juventus virtust þó til alls líklegir, allt þar til Collina dómari rak Edgar Davids af velli á 58. mínútu. Hann hafði fengið gult í fyrri hálf- leik, fyrir fremur sakleysislegt brot, og fékk annað gult fyrir ann- að brot sem þótti síst alvarlegra. Davids var allt annað en kátur er hann gekk af velli. Mínútu síðar lagaði Alessandro Del Piero stöðuna en Nedved svar- aði sex mínútum síðar og Crespo gulltryggði sigurinn á 81. mínútu og skömmu síðar rak Collinas ann- an leikmann Juventus af velli, að þessu sinni Frakkan David Trez- eguet. Lazio hefur sigrað í níu af síðustu ellefu leikjum, eða síðan Dino Zoff tók við liðinu af Sven Göran Ericksson, enska landsliðs- þjálfaranum. Juventus hefur ekki fengið á sig fjögur mörk síðan febrúar 1998. Þá laut liðið í gras, 4:2, fyrir Parma og Crespo gerði þrennu. Fyrir leikinn á sunnudaginn hafði Juve ekki fengið á sig mark í deildinni síðan 11. febrúar. Parma heldur fjórða sætinu, vann öruggan sigur á Udinese og AC Milan lék ágætlega sinn fyrsta leik undir stjórn Cesare Maldini, vann Bari 4:0. Lazio setur strik í reikninginn LAZIO setti nokkurt strik í reikninginn á toppi ítölsku deildarinnar á sunnudaginn er liðið lagði Juventus. Efsta liðið, Roma, nýtti sér greiðann þó ekki til fullnustu því það varð að sætta sig við markalaust jafn- tefli gegn Reggina. Stórleikur umferðarinnar varleikur þegar Dortmund fékk Leverkusen í heimsókn en aðeins munaði tveimur stigum á liðunum. Heimamenn voru varla búnir að átta sig á að leikurinn væri hafinn þegar staðan var orðin 2:0 fyrir gestina eftir aðeins tíu mínútur. „Við vildum láta vita af okkur strax í upphafi leiks og ákváðum að byrja af krafti,“ sagði Berti Vogts þjálfari Leverkus- en, sæll og glaður eftir leikinn. Heimamenn minnkuðu muninn fimm mínútum síðar og það var ekki fyrr en á lokamínútunni að þriðja mark Leverkusen kom. Sætur sigur og 46 stig eins og Bæjarar voru með þar til síðar um daginn. Dortmund féll hins vegar niður um eitt sæti því á sunnudaginn gerðu leikmenn Kaiserslautern sér lítið fyrir og heimsóttu Bremen þar sem þeir sigruðu Werder Breman 2:1. Liðið þar með komið með 46 stig eins og Leverkusen en Dortmund sem fyrr með 45 stig og nú í fjórða sæti. Það var sannkallaður nágrannas- lagur í München þegar Bayern heimsótti 1860. „Svona nágranna- leikir eru alltaf mikil hátíð fyrir stuðningsmenn liðanna og ég held að þeir hafi ekki orðið fyrir von- brigðum með þennan leik, hann var mjög skemmtilegur,“ sagði Ottmar Hitzfeld þjálfari Bayern og bætti við að leikmenn hans hefðu verið dálítið lengi að koma sér í takt við leikinn en eftir að það tókst hafi ekki verið spurning hvort liðið væri betra. „Ég vara menn við of mikilli bjartsýni því þrátt fyrir að vikan hafi verið góð hjá okkur, sigur á Arsenal og svo núna aftur, skipast oft veður í lofti í knattspyrnunni og það mjög skyndilega.“ Eyjólfur Sverrisson var fjarri góðu gamni þegar Herta heimsótti Energie Cottbus og tapaði 3:0. Eyj- ólfur tók út leikbann um helgina. Herta er í sjötta sæti með 43 stig eins og Schalke sem varð að sætta sig við eitt stig þegar Freiburg kom í heimsókn. Reuters Hasan Salihamidzic og Stefan Effenberg, leikmenn Bayern München, kljást hér við Martin Stranzl, leikmann TSV 1860 München. Berti Vogts var mjög ánægður BAYERN München er með þriggja stiga forystu í þýsku deildinni eftir leiki helgarinnar. Leverkusen náði Bayern að stigum á laugardaginn en Ba- yern urðu ekki á nein mistök síðar um daginn er liðið vann nágranna sína 1860 í München.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.