Morgunblaðið - 03.04.2001, Side 1
2001 ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÞÓREY EDDA BÆTIR SIG ENN Í STANGARSTÖKKI / B12
BIRGI Leifi Hafþórssyni hefur
verið boðið að keppa á Algarve
Portuguese Open-golfmótinu
síðar í þessum mánuði. Þetta er
með stærstu mótum á evrópsku
mótaröðinni og mikill heiður fyr-
ir Birgi Leif að fá boð á það.
„Það er auðvitað frábært að fá
þetta boð, en Peter Salmon hjá
Úrvali/Útsýn á allan heiðurinn
af þessu því hann hefur unnið
mikið í þessu og það tókst hjá
honum. Ég held það sé fyrst og
fremst vegna þess að hann þekk-
ir svo marga í kringum golfið í
Algarve og ég þakka kærlega
fyrir þetta tækifæri,“ sagði Birg-
ir Leifur í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Mótið hefst 26. apríl og stend-
ur í fjóra daga. Leikið verður á
Quinta do Lago-vellinum og
verðlaunafé er ein milljón evra.
„Þetta er alvörumót og það
verður frábært að fá að taka þátt
í því,“ sagði Birgir Leifur. Í fyrra
sigraði Gary Orr frá Skotlandi í
mótinu, lék á 13 undir pari, en þá
var keppt á Penina-vellinum.
Meðal keppenda þá voru Ian
Woosnam, Joakim Häggman og
Paul Broadhurst, svo einhverjir
séu nefndir. Woosnam endaði í 9.
sæti á sjö höggum undir pari en
hann lék síðasta hringinn á sex
höggum undir pari.
Birgi Leifi boðið
til Portúgals
■ Stóð sig vel/B11
SIGURÐUR Jónsson, knattspyrnu-
maður úr FH, þarf að gangast undir
liðþófaaðgerð á hné í vikunni. Hann
verður frá knattspyrnuiðkun næstu
3–4 vikurnar en að öllu óbreyttu ætti
Sigurður að verða klár í slaginn þegar
Íslandsmótið hefst um miðjan næsta
mánuð. Sigurður fer því ekki með
FH-liðinu til Portúgals í dag en þang-
að eru FH-ingar að fara ásamt fleiri
íslenskum liðum í æfinga- og keppn-
isferð.
Davíð var hjá Hereenveen
Davíð Þór Viðarsson, unglinga-
landsliðsmaður úr FH, kom í fyrra-
dag heim frá Hollandi en þar dvaldi
hann við æfingar hjá hollenska 1.
deildarliðinu Heerenveen í vikutíma.
Davíð, sem er 17 ára gamall miðvall-
arleikmaður, hefur undanfarna mán-
uði verið undir smásjá nokkurra er-
lendra félaga.Á síðasta ári var hann
tvívegis til reynslu hjá skoska úrvals-
deildarliðinu Celtic og þá var hann
einnig hjá hollensku liðunum Utrecht
og Groningen auk þess sem hann var
hjá Germinal Beerschot í Belgíu. Þá
hefur Morgunblaðið heimildir fyrir
því að norsku meistarararnir í Rosen-
borg vilji fá að berja Davíð Þór aug-
um en eldri bróðir hans, Arnar Þór, er
landsliðsmaður og leikur sem kunn-
ugt er með Lokeren í Belgíu.
Sigurður í
liðþófaaðgerð
HLYNUR Jóhannesson, hand-
knattleiksmarkvörður úr HK,
hefur átt í viðræðum við tvö dönsk
félög að undanförnu og miklar lík-
ur eru á að hann leiki í Danmörku
á næsta tímabili.
Félögin eru Team Helsinge,
sem er í 10. sæti af 14 liðum í úr-
valsdeildinni, og Midtsjælland,
sem er á leið í úrslitakeppni um
úrvalsdeildarsæti.
„Ég er ákveðinn í að breyta til
eftir að hafa leikið í sjö ár með
HK. Ég fann í vetur að ég var far-
inn að dala og þurfti á því að halda
að skipta um umhverfi. Mér líst
mjög vel á dönsku félögin, að því
tilskildu að þau verði í úrvals-
deildinni næsta vetur, en það
skýrist ekki fyrr en síðar í þessum
mánuði svo málin eru í biðstöðu
þangað til deildarkeppninni í Dan-
mörku lýkur,“ sagði Hlynur við
Morgunblaðið í gær.
Hlynur til Danmerkur?
EIÐUR Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea sigur á Middlesbrough í ensku
úrvalsdeildinni á laugardaginn, 2:1. Þetta var 12. mark Eiðs fyrir Chelsea í
30 leikjum á tímabilinu, og í 15 af þessum leikjum hefur hann komið inn á
sem varamaður. Níu markanna hefur Eiður gert í úrvalsdeildinni sem er
það mesta sem íslenskur knattspyrnumaður hefur nokkurn tíma skorað á
einu tímabili í þeirri deild. Eiður Smári fær mjög góða dóma í enskum fjöl-
miðlum og sagt er að hann hafi verið kaldur sem ís er hann skoraði sig-
urmarkið – með því að vippa knettinum yfir markvörð Middlesbrough.
„Hann gerði allt rétt …,“ sagði þulur BBC, þegar hann sagði frá markinu.
Reuters
Eiður Smári hefur fagnað mörgum mörkum.
Kaldur sem ís
■ Bestu kaup Chelsea.../B2