Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 4
ÍÞRÓTTIR
4 B ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
JÓHANNES Karl Guðjónsson og
félagar í RKC Waalwijk halda áfram
að koma á óvart í hollensku úrvals-
deildinni og unnu Feyenoord, 2:0, á
sunnudaginn. Jóhannes Karl, sem
átti þátt í fyrra markinu, lék allan
leikinn á miðjunni hjá Waalwijk sem
er í fjórða sæti, næst á eftir stórveld-
unum þremur, PSV, Feyenoord og
Ajax.
JÓHANNES Harðarson lék allan
leikinn með MVV Maastricht sem
gerði jafntefli á útivelli, 1:1, við ADO
Den Haag í hollensku 1. deildinni.
Maastricht er í 15. sæti af 18 liðum.
HELGI Kolviðsson lék síðustu 25
mínúturnar með Ulm sem tapaði
heima, 0:2, fyrir hans gamla félagi,
Mainz, í þýsku 2. deildinni. Ulm er
nú næstneðst og í alvarlegri fall-
hættu.
GUNNLAUGUR Jónsson lék allan
leikinn með Uerdingen sem tapaði,
1:0, fyrir varaliði Werder Bremen í
3. deild.
ANDRI Sigþórsson og félagar í
Salzburg töpuðu heima fyrir Tirol
Innsbruck, 0:1, í austurrísku úrvals-
deildinni á laugardaginn. Andri lék
allan leikinn og var tvívegis nálægt
því að skora með skalla. Í seinna
skiptið varði markvörður Tirol
glæsilega frá honum.
ATLI Sveinn Þórarinsson, tvítug-
ur Akureyringur, átti mjög góðan
leik í vörn Örgryte sem vann 2.
deildarliðið Åtvitaberg, 4:0, í 4. um-
ferð sænsku bikarkeppninnar á
laugardaginn. Þetta var fyrsti móts-
leikur Atla með Örgryte en hann lék
með vara- og unglingaliðum sænska
félagsins á síðasta tímabili.
BJARNI Þorsteinsson lék sinn
fyrsta leik með norska liðinu Molde
þegar það vann góðan sigur í Svíþjóð
á liði Helsingborg, 3:0. Bjarni, sem
meiddist strax við komuna til Molde
snemma á árinu, lék síðustu 7 mín-
úturnar.
DANSKA knattspyrnufélaginu
AGF, sem Tómas Ingi Tómasson
leikur með, var á laugardag forðað
frá gjaldþroti á síðustu stundu.
Félaginu tókst þá að útvega sér
ábyrgðir fyrir 40 milljóna króna láni
en að öðrum kosti hefði það vænt-
anlega verið sent niður í 2. deild.
AGF steinlá síðan, 5:1, fyrir AaB í
úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Tóm-
as Ingi lék ekki með Árósaliðinu,
sem er í mikilli fallhættu.
RAKEL Ögmundsdóttir lék síð-
ustu 10 mínúturnar með Phila-
delphia Charge sem vann öruggan
sigur á Carolina Courage, 4:1, á
laugardaginn. Þetta var síðasti op-
inberi leikur Charge áður en liðið
hefur keppni í nýju bandarísku at-
vinnudeildinni hinn 22. apríl.
ARON Kristjánsson skoraði 2
mörk fyrir Skjern sem vann góðan
sigur á toppliðinu Kolding, 29:27, í
dönsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik á sunnudaginn. Skjern er í
fimmta sæti, stigi á eftir Virum, þeg-
ar þrjár umferðir eru eftir en fjögur
efstu liðin leika um meistaratitilinn.
JÓHANN Samúelsson skoraði 2
mörk fyrir Bjerringbro sem vann Ik-
ast úti, 28:20. Bjerringbro er í sjötta
sæti með jafnmörg stig og Skjern en
lakari markatölu.
HULDA Bjarnadóttir varð
markahæst hjá kvennaliði Skjern
með 4 mörk þegar það tapaði stórt
fyrir úrvalsdeildarliði Ikast í 16-liða
úrslitum dönsku bikarkeppninnar,
38:16. Skjern vann sér á dögunum
sæti í 1. deild.
STAVANGER Handball, lið Sig-
urðar Gunnarssonar, er úr leik í
baráttunni um sæti í fjögurra liða úr-
slitunum um norska meistaratitilinn
í handknattleik eftir tap fyrir Bodö,
30:25, á sunnudaginn.
SANDEFJORD, sem tapaði fyrir
Haukum í EHF-keppninni í vetur,
er komið í bikarúrslitin í norska
handboltanum eftir sigur á Dram-
men, 37:36, í fjórframlengdum leik.
Sandefjord mætir Runar.
FÓLK
Ragnar með
sigurmarkið
gegn Mont-
pellier
RAGNAR Óskarsson tryggði
Dunkerque óvæntan sigur á
meisturum Montpellier,
24:23, í frönsku 1. deildinni í
handknattleik á sunnudag-
inn. Hann skoraði sig-
urmarkið úr vítakasti á loka-
sekúndum leiksins. Ragnar
gerði 5 mörk í leiknum, tvö
þeirra úr vítaköstum.
Dunkerque hefur gengið
mjög vel eftir að keppni
hófst á ný í Frakklandi eftir
HM og hefur unnið fimm
leiki og gert eitt jafntefli í
sjö leikjum frá þeim tíma.
Montpellier, með sjö
franska heimsmeistara inn-
anborðs og auk þess lands-
liðsmenn frá Svíþjóð og
Egyptalandi, hefur á hinn
bóginn ekki verið nema svip-
ur hjá sjón eftir HM. Liðið
vann alla leiki sína fyrir ára-
mót en hefur síðan tapað
þrívegis og gert eitt jafntefli
í sex leikjum.
Chambery er með yf-
irburði í deildinni, hefur
unnið alla 18 leiki sína og er
með 54 stig. Paris SG er með
48, Ivry 43, Créteil 42, Mont-
pellier 41, Toulouse 40 og
Dunkerque er nú komið með
38 stig og getur blandað sér
í baráttuna í efri hluta deild-
arinnar með þessu áfram-
haldi.
VONIR Dormagen um að halda sér í
þýsku 1. deildinni í handknattleik
biðu hnekki á laugardagskvöldið þeg-
ar liðið tapaði heima fyrir Essen,
27:29. Dormagen er í þriðja neðsta
sætinu og er nú fimm stigum á eftir
þeim liðum sem eru fyrir ofan strikið.
Róbert Sighvatsson skoraði þrjú
mörk fyrir Dormagen en Patrekur
Jóhannesson eitt fyrir Essen. Patrek-
ur var aðeins með í 15 mínútur því þá
var hann rekinn af velli með rautt
spjald fyrir gróft brot. Oleg Velyky,
úkraínska stórskyttan, var í aðalhlut-
verki hjá Essen og skoraði tólf mörk.
Gústaf Bjarnason skoraði þrjú
mörk fyrir Minden sem vann öruggan
sigur á meiðslum hrjáðu liði Bad
Schwartau, 27:21.
Róbert Julian Duranona hafði
hægt um sig og skoraði tvö mörk þeg-
ar Nettelstedt vann auðveldan útisig-
ur á botnliði Hildesheim, 29:20. Nett-
elstedt komst úr fallsæti með
sigrinum.
Staða
Dormagen
versnar
N-Kórea opin
fyrir hlaupara
YFIRVÖLD í Norður-Kóreu
hafa samþykkt að leyfa 30 er-
lendum hlaupurum að taka
þátt í Pyongyang-maraþon-
hlaupinu. Þykir þetta nokkr-
um tíðindum sæta og ekki
síður að í fyrsta skipti kemur
útlendur styrktaraðili að
hlaupinu. Yfirvöld hafa gefið
grænt ljós á að 20 hlauparar
úr hópi þeirra bestu í heim-
inum megi keppa að þessu
sinni. Reiknað er með að er-
lendu keppendurnir komi frá
Kenýa, Eþíópíu, Bretlandi,
Rússlandi, Japan, Kanada,
Bandaríkjunum, Ástralíu,
Danmörku og Hong Kong.
Það voru Framstúlkur sem komuákveðnari til leiks í Eyjum.
Með Hugrúnu Þorsteinsdóttur í
markinu sem varði
vel náðu þær að
leiða leikinn fyrstu
mínúturnar eða þar
til Eyjastúlkur náðu
að jafna metin og í kjölfarið að kom-
ast yfir á 6. mín. leiksins. Fram-
stúlkur misstu síðan Svanhildi
Þengilsdóttur út af í tvígang um
miðbik hálfleiksins og við það gengu
Eyjastúlkur á lagið. Eyjastúlkur
náðu mest fjögurra marka forystu í
stöðunni 9:5. Það var síðan horna-
maðurinn, Guðrún Þóra Hálfdánar-
dóttir, sem hélt Framstúlkum inni í
leiknum og skoraði þrjú mörk í röð
gegn einu Eyjastúlkna og náði að
minnka muninn niður í eitt mark í
stöðunni 10:9. Framstúlkur ná í
kjölfarið að jafna leikinn og má
segja að leikurinn hafi verið í járn-
um út hálfleikinn. Hálfleikstölur
13:12, Eyjastúlkum í vil.
Eyjastúlkur byrjuðu síðari hálf-
leik af krafti og héldu þeim engin
bönd. Þær náðu að komast í þriggja
marka forystu í stöðunni 16:13. Góð
vörn hélt Framstúlkum inni í leikn-
um og hefðu þær getað jafnað metin
í stöðunni 17:16 en skot í slá úr víti
kom í veg fyrir það. Framstúlkur
náðu síðan í tvígang að minnka mun-
inn niður í eitt mark en Eyjastúlkur
settu í gír þegar 10 mín. lifðu leiks
og uppskáru góðan sigur, 26:22.
Bestan leik Framstúlkna átti ung
og efnileg stúlka, Guðrún Þóra Hálf-
dánardóttir, sem spilaði virkilega
vel í horninu og skoraði grimmt
ásamt því að halda Safamýrarstúlk-
um inni í leiknum á köflum. Þá varði
Hugrún Þorsteinsdóttir vel í mark-
inu og Marina Zoueva stóð sig einn-
ig vel.
Markvörður Eyjastúlkna, Vigdís
Sigurðardóttir, varði eins og ber-
serkur í leiknum og þar á meðal tvö
víti. Vigdís hefur spilað geysilega vel
í vetur og á eflaust eftir að reynast
Eyjastúlkum vel í úrslitarimmunni.
Einnig spiluðu Anita Andreasen og
Tamara Madsec virkilega vel.
„Þetta var baráttuleikur frá upp-
hafi til enda. Mér fannst margir
hlutir detta þeirra megin í leiknum,
þær voru heppnari í mörgum atrið-
um. Það vantaði smáheppni í þetta
hjá okkur og ég er ekki í vafa um að
ef það hefði gerst þá hefðum við
klárað leikinn. Við vorum staðráðn-
ar í að klára þennan leik en svo fór
sem fór. Vigdís varði virkilega vel
fyrir þær og það munar um minna.
Þá náðum við að stoppa hraðaupp-
hlaupin hjá þeim sem þær hafa verið
frægar fyrir en það má segja að það
hafi bara ekkert gengið upp hjá okk-
ur síðustu tíu mínúturnar,“ sagði
Hafdís Guðjónsdóttir, fyrirliði
Framstúlkna, sem var að spila sinn
síðasta handboltaleik í Eyjum á
laugardaginn þar sem hún hyggst
leggja skóna á hilluna.
„Ég get nú ekki verið annað en
ánægð með að hafa unnið Fram og
vera komin í úrslitarimmuna. Viljinn
var okkar aðalvopn í dag, við ætl-
uðum okkur að komast í úrslitaleik-
ina því við vitum hvað það er gaman
að standa í þessu og sigurviljinn
fleytti okkur sannarlega langt í dag.
Mér líst alveg virkilega vel á úr-
slitakeppnina og ég er handviss um
að úrslitarimman fer í fimm leiki þar
sem annað liðið vinnur 3:2. Ég vona
að við vinnum en ég ætla ekkert að
vera að spá um það. Við komum í
þessa leiki til að hafa gaman af hlut-
unum og síðan er bara að vona að
heilladísirnar verði okkar megin. Ef
við spilum eins og við gerðum í dag
mega Haukarnir passa sig,“ sagði
Vigdís Sigurðardóttir, fyrirliði Eyja-
stúlkna, eftir leikinn á laugardag.
Amele Hagic, Edda Björk Eggertsdóttir og Anita Andreasson skoruðu grimmt gegn Fram.
Meistarar
ÍBV mæta
Haukum
EYJASTÚLKUR tóku á móti stöllum sínum úr Safamýrinni í hreinum
úrslitaleik um sæti í kapphlaupinu um Íslandsmeistaratitilinn á
laugardaginn. Leikurinn bráðfjörugur í alla staði, fullt hús og mikil
stemning í leikmönnum sem áhorfendum. Þó svo að leikurinn hafi
lengstum verið jafn uppskáru Eyjastúlkur sigur á sprækum Fram-
stúlkum, 26:22, og mæta því Haukastúlkum í rimmunni um Íslands-
meistaratitilinn.
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar
!
"!
#
$
%&