Morgunblaðið - 03.04.2001, Blaðsíða 8
KNATTSPYRNA
8 B ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
formúla 1 á mbl.is
taktu þátt í
netleiknum
NÆSTA KEPPNI
HVAÐ ER FORMÚLA 1?
LIÐ OG ÖKUÞÓRAR
MÓT ÁRSINS OG BRAUTIR
ÚRSLIT MÓTA
STIG ÖKUÞÓRA
STIG BÍLASMIÐA
SIGRAR
FYRRI MEISTARAR
ÍTAREFNI
FORMÚLASPJALL
MYNDASYRPUR
John Toshack
gerist „stjóri“
JOHN Toshack, sem hefur verið þjálfari spænska liðsins Real
Sociedad síðustu mánuði, tilkynnti um helgina að á næstu leik-
tíð yrði hann framkvæmdastjóri félagsins.
„Ég ætla að vera eins og ensku stjórarnir; ég ræð öllu í
sambandi við liðið og uppstillingu þess, en sé ekki um daglegar
æfingar. Ábyrgðin verður mín og Jose Luis Astiazaran, forseti
félagsins, hefur samþykkt að við gerum þessar breytingar,“
sagði Toshack um helgina.
Bæjarar fengu Werder Bremen íheimsókn á laugardaginn og
töpuðu 3:2. Efsta sætið er engu að
síður þeirra en Kaiserslautern hefði
getað skotist á toppinn á sunnudeg-
inum þegar liðið tók á móti Dort-
mund. En leikmenn Dortmund gáfu
ekki kost á því heldur sigruðu 4:1 og
skutust þar með sjálfir í annað sæt-
ið, en Kaiserslautern er í því sjötta.
Gestirnir í München náðu foryst-
unni eftir 25 mínútur þegar Pizarro
skoraði úr víti. Elber jafnaði
snemma í síðari hálfleik en skömmu
síðar kom Bode Bremen yfir á ný en
Jancker jafnaði á 67. mínútu og
þannig var staðan allt þar til mínúta
var til leiksloka að Pizarro gerði
annað mark sitt og tryggði sigur
Bremen.
„Við gerðum nokkur mistök í
vörninni og Bremen nýtti þau vel.
Við tókum líka óþarflega mikla
áhættu þegar við reyndum að skora
sigurmarkið. Stundum er betra að
sætta sig við að ná einu stigi. Nú
verðum við að gleyma þessum leik
og hugsa um leikinn við United á
þriðjudaginn,“ sagði Ottmar Hitz-
feld, þjálfari Bayern.
„Við lékum illa í síðustu tveimur
leikjum, en í dag lékum við vel og
þetta var sanngjarn sigur,“ sagði
Thomas Schaaf, þjálfari Bremen.
Leverkusen átti möguleika á að
komast í efsta sætið því liðið tók á
móti Schalke síðar á laugardeginum
en þrátt fyrir að leika á heimavelli
gátu leikmenn ekki nýtt tækifærið.
Schalke sigraði 3:0 og skaust í
þriðja sætið, með jafn mörg stig og
Leverkusen en með betri marka-
mun. Það gekk því ekkert allt of vel
hjá efstu liðunum, það er að segja
Bæjurum, Leverkusen og Kaisers-
lautern.
Hins vegar gekk ágætlega hjá
Eyjólfi Sverrissyni og félögum hjá
Hertu sem sigruðu 1860 München
3:0 í Berlín og eru nú í 5. sæti með
46 stig eins og þrjú önnur lið. Eyj-
ólfur lék allan leikinn og átti þátt í
öðru markinu sem kom eftir horn-
spyrnu.
Stuttgart hefði getað forðað sér
af fallsvæðinu þegar Kölnarbúar
komu í heimsókn. En leikmenn
Stuttgart eru greinilega heillum
horfnir og töpuðu 3:0. Liðið er því í
næstneðsta sæti.
Spennan magnast
SPENNAN á toppi þýsku deild-
arinnar magnast enn. Bayern
München hefur eins stigs for-
ystu á Dortmund og tveimur
stigum þar á eftir koma
Schalke, Leverkusen, Hertha
Berlín og Kaiserslautern. Mun-
urinn á stöðu efsta liðsins og
þess sem er í sjötta sæti er því
aðeins þrjú stig.
THORSTEN Fink, miðvallarleik-
maður Bayern München, verður
ekki með þegar liðið mætir Manc-
hester United í Meistaradeildinni í
kvöld. Fink meiddist á hné í tapleik
liðsins gegn Werder Bremen á laug-
ardaginn.
JENS Jeremies fór einnig af velli
meiddur á ökkla og óvíst hvort hann
verður með í kvöld.
RAUÐA stjarnan í Júgóslavíu
tapaði 2:1 um helgina fyrir nágrönn-
um sínum í OFK Beograd. Þetta er
fyrsti deildarleikurinn sem liðið tap-
ar í langan tíma, en það hafði leikið
51 leik í deildinni án þess að tapa.
GLASGOW Rangers tapaði um
helgina sjöunda leiknum í skosku úr-
valsdeildinni og með því á Celtic
möguleika á að tryggja sér titilinn
um næstu helgi.
RIVALDO, sem leikur með Barce-
lona, segist ætla að leika áfram í
Evrópu eftir að samningur hans við
félagið rennur út eftir tvö ár. Hann
segist ekki vilja fara heim til Brasilíu
strax enda er honum kennt um slakt
gengi landsliðsins að undanförnu.
FRANSKA liðið Nantes komst um
helgina í undanúrslit bikarkeppninn-
ar með því að sigra Auxerre 4:1 í
framlengdum leik. Nantes er bikar-
meistari síðustu tveggja ára og von-
ast til að verða þriðja liðið í Frakk-
landi til að hampa bikarnum þrjú ár í
röð. Mickaël Landreau, fyrirliði og
markvörður Nantes, gerði sér lítið
fyrir og varði tvær vítaspyrnur í síð-
ari hálfleik og tryggði liði sínu þar
með framlengingu, en staðan var 1:1
eftir 90 mínútna leik.
ÞRÍR voru reknir af velli þegar
Standard Liege vann Charleroi 3:2 í
belgísku deildinni á sunnudaginn,
tveir úr liði heimamanna í Charleroi.
ALLAN Gaarde, danskur leik-
maður hjá Udinese á Ítalíu, fékk
rauða spjaldið án þess að taka þátt í
leiknum þegar lið hans mætti Regg-
ina. Gaarde var að hita upp og búa
sig undir að verða skipt inn á þegar
hann sendi aðstoðardómara tóninn.
Sá var snöggur að gera dómara
leiksins aðvart og hann sýndi
Gaarde umsvifalaust rauða spjaldið.
FÓLK
Það blés samt ekkert sérlegabyrlega fyrir heimamenn í
Roma þegar þeir tóku á móti Ve-
rona því gestirnir komust yfir eftir
tæpan hálftíma og þannig var stað-
an í leikhléi og allt þar til tíu mín-
útur voru liðnar af síðari hálfleik að
Montella tókst að jafna – sumir
segja þó að um sjálfsmark hafi ver-
ið að ræða – og þá var ísinn brotinn.
Batistuta bætti öðru marki við
fimm mínútum síðar og Montella
því þriðja.
Brasilíumaðurinn Cafu lék sinn
100. leik í ítölsku deildinni og hélt
upp á það með frábærum leik, lagði
upp tvö mörk Roma.
„Þegar maður skoðar stöðuna
virðist vera auðvelt fyrir okkur að
halda þetta út, en ég vil minna
menn á að það getur allt gerst í
íþróttum og níu stig geta horfið
fljótt,“ sagði Fabio Capello, þjálfari
Roma. „Við ræddum málin í róleg-
heitunum í leikhléi og urðum sam-
mála um að við hefðum vart efni á
að tapa leiknum. Ákveðið var að
reyna í það minnsta að sigra og það
gekk eftir,“ bætti þjálfarinn við.
Juventus fékk Brescia í heimsókn
og allt virtist stefna í sigur heima-
manna en Roberto Baggio jafnaði
fyrir gestina á 86. mínútu og var
þetta 167. markið sem kappinn ger-
ir í efstu deild á Ítalíu. Parma, sem
er í 4. sæti, gerði markalaust jafnt-
efli við Bologna og Lazio, sem er í
þriðja sæti, tapaði á útivelli fyrir
AC Milan þannig að Roma jók for-
ystu sína á toppnum.
Neðsta liðið, Bari, kom virkilega
á óvart og sigraði aldrei þessu vant.
Liðið fékk Lecce í heimsókn á laug-
ardaginn og vann 3:2 og setur
aukna spennu í botnbaráttuna því
fimm stig skilja nú milli Bari og Vi-
cenza, sem er í sjötta neðsta sætinu.
Segja má að Christian Vieri hafi
séð um Perugia þegar Inter Mílanó
kom í heimsókn því hann skoraði öll
þrjú mörk gestanna í 3:2 sigri
þeirra. Þetta er fyrsta þrenna Vier-
is í eitt og hálft ár.
Massimo Taibi, markvörður
Reggina tryggði liði sínu stig er það
tók á móti Udinese. Gestirnir voru
marki yfir allt þar til tvær mínútur
voru til leiksloka að heimamenn
fengu hornspyrnu. Taibi brá sér í
sóknina, enda allt lagt undir til að fá
stig, og skallaði glæsilega í mark
gestanna.
AP
Massimo Taibi, markvörður Reggina, skorar hér jöfnunarmarkið gegn Udinese, 1:1.
Roma heldur sínu striki
ROMA heldur sínu striki og hefur níu stiga forystu þegar tíu um-
ferðir eru eftir. Helstu keppinautum liðsins um ítalska meistaratit-
ilinn hlekktist á um helgina og þeir virðast þess ekki megnugir að
veita Rómverjum verðuga keppni.