Morgunblaðið - 03.04.2001, Qupperneq 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 B 3
Try
gg
ðu
þé
r á
sk
rif
t s
tra
x
eða í síma 515 6100
www.syn.is
2. - 8. apríl
lau
lau Prinsinn Naseem Hamed
- Marco Antonio Barrera
Hnefaleikar kl. 00:55
sun Bandaríska meistara-
keppnin í golfi
kl. 20:00
sun Arsenal -
Tottenham Hotspur
Enski bikarinn kl. 12:10
sun Wycombe Wanderers
- Liverpool
Enski bikarinn kl. 14:45
sun Sacramento Kings
- Portland Trail Blazers
NBA kl. 17:00
Barcelona - Liverpool
UEFA-keppnin kl. 19:05
fim
Leeds Utd
- Deportivo La Coruna
Meistarakeppnin kl. 20:45
mið
Arsenal - Valencia
Meistarakeppnin kl. 18:40
mið
Galatasaray
- Real Madrid
Meistarakeppnin kl. 20:45
þri
Man. Utd
- Bayern Munchen
Meistarakeppnin kl. 18:40
þri
Southampton
- Ipswich Town
Enski boltinn kl. 18:50
mán
fös
fim Bandaríska meistara-
keppnin í golfi
kl. 21:10
Bandaríska meistara-
keppnin í golfi
kl. 20:00
Bandaríska meistara-
keppnin í golfi
kl. 19:30
Frumsýnd í Háskólabíói 6. apríl
Besta myndin
Sundance Film Festival 2000
Besti leikstjórinn
Sundance Film Festival 2000
BRANDUR Brekkan skrifaði í
gær undir samning við KR en
Brandur hefur æft með vesturbæj-
arliðinu frá því um áramót. Brand-
ur er 18 ára og leikur í stöðu vinstri
vængmanns hefur búið í Svíþjóð á
undanförnum árum og leikið með
neðrideildarliðinu Sirius. Samning-
ur Brands og KR er til eins árs en
þess má geta að Einar Brekkan
leikmaður Örebro er bróðir
Brands.
STEFÁN Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæmdu stórleik í undan-
úrslitum meistaradeildar Evrópu í
handknattleik um helgina. Þeir
voru í Slóveníu og dæmdu viður-
eign Celje Lasko gegn Portland frá
Spáni. Spánverjarnir unnu með
þremur mörkum og með fimm
mörkum samtals.
BRASILÍSKI framherjinn Elber
sem leikur með þýska liðinu Bay-
ern München segir að fyrirliði
enska landsliðsins, David Beck-
ham, sé ekki eins góður og menn
vilja af láta. „Beckham getur gefið
góðar sendingar fyrir markið og
skapað þannig hættu en aðrir þætt-
ir í leik hans eru ekkert sérstakir,“
segir Elber á opinberri heimasíðu
sinni.
MANCHESTER United tekur á
móti Elber og félögum í kvöld í
fyrri leik liðana í 8 liða úrslitum í
meistaradeild Evrópu. Elber sendi
Arsenal tóninn fyrir leik liðanna í
riðlakeppni fyrir skemmstu og
sagði hann þá að leikmenn Bayern
þyrftu ekki að bera neina virðingu
fyrir liði frá Lundúnum.
FÓLK
Adolf Sveinsson kom Stjörnunniyfir en Ellert Jón Björnsson
jafnaði fyrir ÍA. Það voru síðan
Garðar Jóhannsson, Rúnar Páll Sig-
mundsson og Birkir Ómarsson sem
bættu við mörkum og tryggðu
Garðbæingum stórsigur. Hann dug-
ar þeim þó skammt því þeir komast
ekki áfram úr riðlakeppninni en ÍA
og FH voru fyrir umferðina um
helgina búin að tryggja sér sæti í 8-
liða úrslitunum.
Fram og Grindavík komust í 8-liða
úrslitin um helgina. Grindavík vann
Tindastól, 2:0, í Reykjaneshöll og
Fram vann Víking, 4:3, á gervigras-
inu í Laugardal. Þar skoraði Þor-
björn Atli Sveinsson tvö mörk fyrir
Framara sem komust í 3:0 og 4:1 en
Stefán Arnarson skoraði þrennu fyr-
ir Víking í síðari hálfleiknum.
Fylkismenn urðu fyrstir til að
vinna FH-inga í deildabikarnum, 2:1,
í Laugardalnum á laugardaginn, en
sigurinn kom of seint fyrir Árbæinga
sem komast ekki áfram úr riðla-
keppninni.
Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur,
lögðu ÍBV 1:0 í Laugardalnum og
skoraði Fikret Alomerovic sigur-
markið úr vítaspyrnu. Valur á þó
ekki möguleika á að komast áfram.
Ljóst er fyrir lokaumferð riðla-
keppninnar að Grindavík, Fram,
FH, ÍA, Breiðablik, KR og Keflavík
fara í 8-liða úrslitin en hörð keppni
er um fjórða sætið í B-riðlinum milli
ÍBV, ÍR og KA. ÍR vann þar sigur á
Leiftri, 2:0, í Laugardalnum.
Í neðri deildinni kom nýja Aust-
fjarðaliðið, Fjarðabyggð, skemmti-
lega á óvart með því að sigra 2. deild-
arlið Hauka, 1:0, og 1. deildarlið
Dalvíkur, 4:1.
STJÖRNUMENN komu á óvart í deildabikarkeppni KSÍ á sunnudag-
inn þegar þeir unnu stórsigur á Skagamönnum, 4:1, í Reykjanes-
höllinni. Þetta var annað tap ÍA í röð eftir sigra í fjórum fyrstu leikj-
um sínum og ekki bætti úr skák að Ólafur Þórðarson, leikmaður og
þjálfari ÍA, var rekinn af velli tíu mínútum fyrir leikslok.
■ Úrslit, markaskorarar
og stöður /B11
Stjarnan vann stórsigur á ÍA
Dagnogo samdi við KR
FRANSKI knattspyrnumaðurinn Moussa Dagnogo skrifaði
um helgina undir samning við Íslandsmeistara KR og leikur
með þeim út tímabilið. Dagnogo hefur verið í röðum KR-inga í
tæpar tvær vikur og spilað einn leik, gegn ÍR, en þar skoraði
hann mark og þótti leika vel. Dagnogo er 28 ára og lék síðast
með skoska úrvalsdeildarliðinu St. Mirren en áður með Brist-
ol Rovers í Englandi, Uniao Madeira í Portúgal og Nantes í
Frakklandi. Hann hefur fengið úthlutað KR-treyju númer 18
fyrir sumarið.
Í öðru marki leiksins sýndi Her-mann hversu öflugur hann getur
verið sem sókndjarfur bakvörður.
Þrír varnarmenn Southampton
reyndu að stöðva Hermann sem lék
á þá alla og gaf knöttinn fyrir markið
þar sem Stewart skallaði knöttinn í
netið.
Með sigrinum er Ipswich komið í
þriðja sæti deildarinnar með 52 stig,
fimm stigum minna en Arsenal sem
er í öðru sæti en 18 stig skilja að
efsta liðið, Manchester Unted, og
Ipswich.
Stuðningsmenn Southampton
stóðu upp fyrir leikinn og fögnuðu
þjálfaranum, Stuart Gray, sem tók
að sér að stýra liðinu eftir að ljóst
var að Glenn Hoddle færi til Totten-
ham. Leikmenn Southampton voru
samt sem áður annars hugar eftir
breytingarnar.
Landliðsþjálfari Englendinga,
Sven Göran Eriksson, var mættur til
að fylgjast með Stewart og varð vitni
að stórleik framherjans sem er nú
markahæsti leikmaður deildarinnar
með 18 mörk.
Southampton hafði sigrað í síð-
ustu fimm leikjum í deildinni og ekki
fengið á sig mark í síðustu sjö leikj-
um. „Við vissum að það yrði erfitt að
skora hjá Southampton en góð sam-
vinna gerði það að verkum að Stew-
art fékk tækifæri til að skora mörkin
þrjú,“ sagði George Burley, fram-
kvæmdastjóri Ipswich.
Stewart hefur skorað 20 mörk í
vetur, þar af 18 í deildarkeppninni,
en fyrir 18 árum skoraði John Wark
20 mörk fyrir Ipswich í deildar- og
bikarkeppni.
„Það er ánægjulegt að vera nefnd-
ur í sama andartaki og John Wark en
hann er einn þekktasti leikmaður
liðsins og hetja þess á árum áður,“
sagði Stewart við enska fjölmiðla eft-
ir leikinn.
Hermann
sýndi takta
HERMANN Hreiðarsson og félagar hans í Ipswich Town unnu
Southampton á útivelli, 3:0, í ensku úrsvalsdeildinni í gærkvöld.
Marcus Stewart skoraði öll þrjú mörk Ipswich og átti Hermann
Hreiðarsson þátt í tveimur fyrstu mörkum leiksins og var annað
markið sérlega glæsilegt.
Ipswich Evening Star
Hermann Hreiðarsson lék vel með liði Ipswich Town í gær sem
vann Southampton 3:0 á útivelli í gær í ensku úrvalsdeildinni.
Hermann átti þátt í tveimur mörkum liðsins.