Morgunblaðið - 03.04.2001, Qupperneq 5
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 B 5
Ólafur Stefánsson var marka-hæsti leikmaður Magdeburg í
leiknum en hann skoraði 5 mörk og
því 13 samtals í leikjunum tveimur.
Stefan Kretzchmar og Erik Göthel
gerðu fjögur mörk hvor, en Juan
Dominguez skoraði 8 mörk fyrir
Bidasoa.
Magdeburg hafði undirtökin í
leiknum lengst af og var yfir í hálf-
leik, 10:8. Þjóðverjarnir juku forskot
sitt og staðan var 14:9 þegar níu mín-
útur voru liðnar af síðari hálfleik. Þar
með hafði Magdeburg samanlagt 13
marka forystu og formsatriði virtist
að ljúka leiknum. Þá hrökk allt í bak-
lás og á næstu 11 mínútum skoraði
Bidasoa átta mörk gegn engu. Staðan
var orðin 17:14, Bidasoa í hag, og 12
sekúndum fyrir leikslok komst
heimaliðið í 23:16. Þrátt fyrir það átti
Henning Fritz stórleik í marki Mag-
deburg og hélt liði sínu á floti. Spán-
verjarnir þurftu aðeins eitt mark
enn, en það var Magdeburg sem átti
síðustu sóknina og Göthel skoraði
sautjánda mark liðsins þegar 5 sek-
úndur voru til leiksloka.
Vorum orðnir logandi hræddir
„Við vorum orðnir logandi hræddir
um að við hefðum kastað öllu frá okk-
ur og værum á leið út úr keppninni.
Ef leikurinn hefði verið aðeins lengri
væri þátttöku okkar í henni lokið,“
sagði Stefan Kretzchmar við blaðið
Volksstimme.
Ólafur Stefánsson sagði við sama
blað að Magdeburg hefði sýnt hand-
bolta í hæsta gæðaflokki fyrstu 40
mínúturnar í Irun. „Við verðum síðan
að draga þann lærdóm af lokakafl-
anum, fyrir leikina við Metkovic, að í
slíkum úrslitaviðureignum eru það
allar 120 mínúturnar sem skipta
máli,“ sagði Ólafur.
Það eru EHF-meistarar tveggja
síðustu ára sem mætast í úrslitunum.
Metkovic vann keppnina í fyrra, hafði
þá betur gegn Flensburg frá Þýska-
landi á fleiri mörkum á útivelli en lið-
in unnu heimaleikina með tveggja
marka mun. Magdeburg vann keppn-
ina árið 1999, sigraði þá Valladolid
frá Spáni í úrslitum, 33:22 á heima-
velli eftir að hafa tapað fyrri leiknum,
25:21. Ólafur var markahæstur
ásamt tveimur öðrum í síðari leiknum
með 5 mörk en Alfreð tók við þjálfun
Magdeburg að því tímabili loknu.
Spænskur úrslitaleikur
Það verða spænsku liðin Barcelona
og Portland sem leika til úrslita í
meistaradeild Evrópu. Barcelona
lagði Kiel, 32:27, og sneri dæminu við
eftir fjögurra marka tap í Þýska-
landi. Kiel missti þar með af síðasta
tækifæri sínu til að vinna titil á þessu
tímabili en aðeins tvö ár eru síðan lið-
ið vann fjórfaldan sigur, heima og í
Evrópukeppni. Portland gerði vel að
vinna Celje í Slóveníu, 32:29, eftir að-
eins tveggja marka sigur í fyrri leikn-
um á eigin heimavelli.
Þá leika Flensburg frá Þýskalandi
og Ademar Leon frá Spáni til úrslita í
Evrópukeppni bikarhafa.
Áframhald Magde-
burg hékk á bláþræði
ALFREÐ Gíslason og Ólafur Stefánsson eru komnir í úrslit EHF-
bikarsins í handknattleik með liði sínu, Magdeburg. Þýska félagið
bar lægri hlut fyrir Bidasoa á Spáni, liðinu sem Alfreð lék með á sín-
um tíma, 23:17 á laugardaginn. Það kom ekki að sök því Magdeburg
vann fyrri leikinn, 32:24, og mætir króatísku Haukabönunum,
Metkovic Jambo, í tveimur úrslitaleikjum, heima og heiman.
Eftir tveggja marka tap í fyrrileiknum að Ásvöllum var ljóst
að á brattann yrði að sækja fyrir
Haukana enda króatíska liðið
geysilega öflugt,
bæði sóknar- og
varnarlega og eins
og í fyrri leiknum
var markvörður
Króatanna Haukunum mjög erfið-
ur og varði til að mynda fimm
hraðaupphlaup Haukanna í röð í
seinni hálfleik. Metkovic hafði und-
irtökin í leiknum allan tímann. Í
hálfleik var munurinn þrjú mörk,
16:13, og Metkovic hélt Haukunum
í hæfilegri fjarlægð frá sér allan
tímann.
„Ég get ekki verið annað en
stoltur af frammistöðu liðsins í
þessum leik og í keppninni yfir höf-
uð og segi hiklaust að við féllum
með sæmd út úr keppninni. Við
áttum aldrei möguleika á sigri en
munurinn hefði kannski getað orð-
ið minni. Við byrjuðum ágætlega
og héldum jöfnu alveg upp í 8:8. Þá
fengum við á okkur fjögur hraða-
upphlaupsmörk í röð og eftir það
má segja að Króatarnir hafi haft
leikinn í höndum sér. Því miður var
markvarslan ekki nógu góð hjá
okkur en menn gáfu sig alla í leik-
inn sem var mjög skemmtilegur,“
sagði Viggó Sigurðsson þjálfari
Hauka í samtali við Morgunblaðið í
gær en Haukarnir voru þá staddir
á flugvellinum í Frankfurt á leið til
Íslands eftir að hafa flogið fyrst frá
Dubronik til Split, frá Split til Zag-
reb og frá Zagreb til Frankfurt.
„Metkovic er mjög öflugt lið og
ég er því ánægður hve okkur tókst
að veita þeim keppni í þessum
leikjum. Króatarnir þurftu að hafa
verulega fyrir því að vinna þetta
einvígi en það má segja að fyrri
leikurinn hafi gert vonir okkar að
engu að komast í úrslitin. Þessi
seinni leikur var töluvert betri af
okkar hálfu og það var eiginlega
synd að fara með tap á bakinu til
Króatíu. Fyrir vikið var vonlítið að
ætlast til að komast í úrslitin en
engu að síður var liðið að standa
sig mjög vel,“ sagði Viggó.
Fórnuðum deildarmeistara-
titlinum fyrir Evrópukeppnina
Þátttakan í Evrópukeppninni
hlýtur að vera góð reynsla fyrir
þína leikmenn?
„Það er ekki nokkur spurning.
Strákarnir hafa fengið gríðarlega
mikið út úr Evrópukeppninni og
þeir hafa öðlast feikilega mikla
reynslu. Ég held að ég tali fyrir
munn allra þegar ég segi að menn
hafi gaman af þátttökunni en að
sama skapi hefur hún tekið sinn
toll. Ég met þannig að við höfum
fórnað deildarmeistaratitlinum fyr-
ir Evrópukeppnina en þannig verð-
ur þetta víst að vera. Það er erfitt
að vera að berjast á toppnum á
þremur vígstöðvum í einu. Það er
engin eftirsjá hjá okkur í Haukum
að hafa farið út í þetta ævintýri og
ég veit að strákarnir og ég sjálfur
munum ekki gleyma þessum vetri í
bráð.“
Aftur á næsta
tímabili
Haukarnir hafa þegar ákveðið að
taka þátt í Evrópukeppninni á
næsta tímabili. Sigurinn í bikar-
keppninni hefur þegar tryggt lið-
inu sæti í Evrópukeppni bikarhafa
en Viggó segir að takmarkið sé að
komast í meistaradeildina og takist
það er líklegt að Haukarnir sleppi
við að fara í 1. umferð forkeppn-
innar vegna góðs gengis í EHF-
keppninni í ár.
Að sögn Viggós lítur út fyrir að
Haukarnir sleppi nokkuð vel fjár-
hagslega frá þátttökunni í Evrópu-
keppninni enda hefur verið vel
staðið að öllu hjá félaginu auk þess
sem Hafnarfjarðarbær, Sparisjóð-
ur Hafnarfjarðar og fleiri fyrirtæki
hafa stutt myndarlega við bakið á
liðinu
Það er skammt stórra högga hjá
Haukunum því að á föstudaginn
hefst slagurinn um Íslandsmeist-
aratitilinn. Haukar fá erkifjendur
sína úr FH í heimsókn á Ásvelli og
segir Viggó að menn séu auðvitað
byrjaðir að undirbúa sig fyrir þann
mikla slag.
„Það meiddist sem betur fer
enginn í leiknum á móti Metkovic
og við erum farnir að búa okkur
undir hörkuleiki við FH-ingana.
Menn eru eðlilega mjög þreyttir
eftir gríðarlega erfitt ferðalag en
ég verð vonandi búinn að hrista
þreytuna úr mönnum fyrir föstu-
daginn.“
Við féllum út
með sæmd
ÆVINTÝRINU hjá Haukum í
Evrópukeppninni í handknatt-
leik á þessari leiktíð er lokið
en eftir 29:25 tap á móti króat-
íska liðinu Metkovic Jambo í
síðari viðureign liðanna í und-
anúrslitum EHF-keppninnar í
Króatíu á laugardaginn
tryggðu Króatarnir sér sæti í
úrslitum keppninnar. Metko-
vic, sem á titil að verja, vann
samanlagt með sex marka
mun, 51:46, og mætir þýska
liðinu Magdeburg, liði Alfreðs
Gíslasonar og Ólafs Stef-
ánssonar, í úrslitum.
Morgunblaðið/RAX
Rúnar Sigtryggsson skoraði fimm mörk fyrir Hauka gegn Metkovic í Króatíu.
Viggó, þjálfari Hauka, ánægður með seinni leikinn við Metkovic
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Halldór
með
met
HALLDÓR Ingólfsson
skoraði sjö mörk gegn
Metkovic í Króatíu,
þannig að hann hefur
skorað 68 mörk í leikj-
um í Evrópukeppni í
vetur. Það er marka-
met. Halldór jafnaði
met Hans Guðmunds-
sonar, FH – 60 mörk – í
leik gegn Sporting á
dögunum. Hann skoraði
síðan eitt mark gegn
Metkovic að Ásvöllum
og sjö úti.