Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 9

Morgunblaðið - 03.04.2001, Síða 9
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2001 B 9  DERRICK Moore hefur verið ráðinn sem golfkennari hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur. Moore var að- stoðarmaður hjá Joe Mckie í klúbbnum síðustu tvö árin og hefur nú verið ráðinn til að aðstoða John Nolan við kennslu hjá GR.  SPÁNSKI maraþonhlauparinn Diego Garcia, sem vann til silfur- verðlauna á EM 1994, lést á laug- ardaginn. Garcia, sem var aðeins 39 ára gamall, var að æfa fyrir keppni í hálfu maraþoni þegar hann fékk hjartaslag og tókst ekki að bjarga honum.  AARON Peirsol, 17 ára piltur frá Texas, sigraði í 200 metra baksundi á bandaríska meistaramótinu um helgina. Piltur synti á 1.56,56 og hefur aðeins einn synt vegalengdina hraðar en hann, heimsmethafinn Lenny Krayzelburg, en hann setti metið 1.55,87 1999. Til gamans má nefna að Íslandsmet Arnar Arnar- sonar er 1.58,99, en það setti hann á Ólympíuleikunum í Sydney í haust.  ANNAR táningur, Michael Phelps, aðeins 15 ára gamall, setti heimsmet í 200 metra flugsundi á mótinu, synti á 1.54,92 og er fyrstur í heiminum til að synda vegalengd- ina undir 1.55. Tom Malchow, sem átti heimsmetið, varð annar á 1.55,60.  ED Moses setti einnig heimsmet, synti 50 metra bringusund á 27,39 sekúndum en Anthony Robinson hafði sett heimsmet í greininni á fimmtudag og Moses vildi endilega bæta það enda stefnir hann að því að eiga metið í öllum vegalengdum bringusundsins.  DÓMSTÓLL Körfuknattleiks- sambands Evrópu ákvað um helgina að AEK í Aþenu og Tau Vit- oria frá Spáni skyldu leika á ný fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Honum lauk með 75:74 sigri AEK. Leikið var í Aþenu en Spánverjarnir sögðu heimamenn hafa gert sigurkörfuna þremur sekúndum eftir að leik- klukkan gall. Liðin eiga að mætast á miðvikudaginn í þessum endur- tekna leik en liðin mættust öðru sinni á dögunum og þá vann Tau 70:67. FÓLK Slíkir voru yfirburðir Skotans aðhann var meira en hring á undan öllum öðrum ökuþórum sem í mark komust nema Schumacher. Þriðji varð Þjóð- verjinn Nick Heid- feld hjá Sauber sem komst á pall í fyrsta sinn, þökk sé áhrifamiklum akstri við afar erfiðar aðstæður, en Heidfeld sýndi og sannaði að honum hefur farið mikið fram frá því hann hóf keppni í byrj- un síðasta árs. Í fjórða sæti varð Olivier Panis og vann þar með fyrstu stig BAR- liðsins og hið sama gerði Giancarlo Fisichella fyrir Benetton og hljóta stigin þau að vera fransk-ítalska liðinu mikill léttir eftir mótlæti að undanförnu. En þótt Coulthard stæði uppi sem öruggur sigurvegari fæst aldr- ei úr því skorið hvernig honum hefði vegnað í keppninni við Juan Pablo Montoya hjá Williams, sem ótvírætt var stjarna kappaksturs- ins, eftir að rigna tók. Montoya drottnaði fyrri hluta akstursins en var keyrður út úr brautinni er hann tók fram úr bílum sem orðnir voru hring á eftir. Montoya sýndi kænsku og dirfsku sem borgaði sig í lok annars hrings. Hékk í Schumacher á beina kaflanum í lok hringsins eftir að ör- yggisbíll var farinn úr brautinni og notaði kjölsogið til að skjótast inn fyrir Schumacher í fyrstu beygju. Hélt rósemi og knúði heimsmeist- arann til að láta forystuna af hendi. Segja má að þetta hafi ekki bara verið framúrakstur af hálfu Monto- ya, sem var í sínu þriðja móti í Formúlu-1. Heldur tákn þess að þar væri kominn til skjalanna öku- þór sem láta mun til sín taka í íþróttinni. Svo og að Williamsliðið hafi aftur smíðað bíl sem tilbúinn sé í slaginn á toppnum. Einnig, og það sem mest er um vert, að hann er óhræddur við að takast á við fræg- asta og harðskeyttasta keppanda formúlunnar. Eftir að Montoya komst fram úr dró smám saman í sundur með þeim Schumacher en Coulthard kom svo í humátt á eftir honum. Í áhorfendastúkunum fögnuðu þús- undir Kólumbíumanna frammistöðu síns manns en gleði þeirra fékk snögglega endi er Jos Verstappen hjá Arrows keyrði með óskiljan- legum hætti aftan á Montoya svo báðir féllu úr leik. Fékk Hollend- ingurinn 1,5 milljónar króna sekt fyrir glannaskapinn. Coulthard tók nú við forystunni en hennar naut hann ekki lengi því í rigningarstoppunum virtist hann ætla að tapa henni til Schumachers. En með næstum því bíræfnum hætti hrifsaði hann frumkvæðið aft- ur er þeir Schumacher nálguðust marklínuna með Minardibíl rétt á undan. Greip Coulthard til þess bragðs að laumast innfyrir bæði Schumacher og Tarso Marques og náði forystu á ný. Rétt á eftir sner- ist Ferraribíllinn á brautinni og eft- ir það átti Schumacher aldrei möguleika á að keppa um fyrsta sætið. Með sigrinum, sem er sá 10. á ferlinum, hefur Coulthard 20 stig í keppninni um heimsmeistaratitil ökuþóra en Schumacher 26. Stend- ur Skotinn mun betur að vígi en McLarenfélagi hans Mika Häkk- inen, sem einungis hefur 1 stig. Drap hann á bíl sínum í upphafi ræsingar og lauk keppni því áður en hún byrjaði. Heimamaðurinn Rubens Barric- hello var og fljótt úr leik. Komst næstum því ekki af stað þar sem keppnisbíll hans bilaði er hann ók út á rásmarkið. Hljóp inn í bílskúr og komst á síðustu sekúndum í varabíl út í brautina aftur. Reyndist fullsókndjarfur með þeim afleiðing- um að hann klessti á Ralf Schumac- her hjá Williams snemma í keppn- inni. SKOTINN David Coulthard hjá McLaren stöðvaði á sunnudag sig- urgöngu Michaels Schumachers hjá Ferrari í formúlu-1 í afar tíð- indasömum kappakstri í Interlagosbrautinni við Sao Paulo í Bras- ilíu. Réð Coulthard lögum og lofum í brautinni eftir að tók að rigna enda hafði hann tekið þá áhættu við uppsetningu bílsins fyrir keppni að skúra myndi meðan á akstri stæði. Vann því á herfræð- inni sem hingað til hefur þótt sterkasta hlið Schumachers og Ferr- ari. Reuters David Coulthard fagnar sigrinum í Sao Paulo. Ágúst Ásgeirsson skrifar Coulthard stöðvaði sigurgöngu Schumachers Sjö ára bið Stjörnunnar í öðrusæti eftir Íslandsmeistaratitli í hópleikum lauk á laugardaginn þeg- ar eldra lið félagsins hampaði gullinu í íþróttahúsinu við Austurberg. Það mátti hinsvegar ekki tæpara standa því þær höfðu aðeins 0,05 stigi betur en fimleikafélagið Björk – 25,25 á móti 25,20 – en sá munur gæti legið í því að jafnvægi í einhverri æfingunni hafi ekki verið nægilega gott. Sex félög sendu lið á mótið: Björk, Gerpla, Grótta/KR, Keflavík og Sel- foss ásamt Stjörnunni en keppt var á dýnu, í dansi og á trampólíni. „Við náðum líka að verða bikarmeistarar í haust svo að þetta var mikil keppni og mikil pressa á liðinu um að vinna,“ sagði Hrafnhildur María Gunnarsdóttir, sem var í sigurliði Stjörnunnar á laugardaginn, sem varð einnig bikarmeistari fyrr í vet- ur. „Mesta stressið var í fyrstu æf- ingunum en svo tókum við okkur á og lukum keppninni með prýði en það hefur alltaf verið mikil keppni á milli þriggja liða.“ Mikil rekistefna varð þegar kom að útreikningum því ekki voru allir sáttir við að einkunn Bjarkar í dansi væri aðeins 8,2 á meðan Stjarnan fékk 9,05 stig en eftir mikil fundar- höld var ákveðið að einkunnin skyldi standa þótt afar umdeild væri. Mótið snerist einnig um hvaða tvö lið færu á Norðurlandamótið í hópfimleikum, sem haldið verður í Finnlandi í lok apríl. Reglan hefur verið sú að ef lið fær yfir 25 stig er það valið þó að annar háttur hafi verið hafður á í fyrra þegar Gerpla keppti á Norð- urlandamótinu en þær fengu 24,80 stig á laugardaginn. Allar líkur eru því á að Stjarnan og Björk haldi utan og þar sögðust Bjarkarstelpur ætla að sýna hvers þær væru megnugar enda æfa þær mjög mikið. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Sigurlið Stjörnunnar í Íslandsmótinu í hópfimleikum á laugardaginn. Efri röð frá vinstri: Hrafn- hildur María Gunnarsdóttir, Heiðdís Halldórsdóttir, Lára Kristín Ragnarsdóttir, Jóhanna Sig- mundsdóttir, Elín Gunnlaugsdóttir og Kristín Einarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Sólveig Jóns- dóttir, Ragnheiður Þórdís Ragnarsdóttir, Elsa Steinunn Halldórsdóttir, María Kristbjörg Árnadóttir, Andrea Gunnlaugsdóttir og Sigurbjörg Ólafsdóttir. Sjö ára bið Stjörnunnar á enda Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.