Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 2
ÍÞRÓTTIR 2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ 37. titill Celtic í höfn CELTIC varð skoskur meistari í knattspyrnu í 37. sinn þegar lið bar sigurorð af St.Mirren, 1:0. Celtic hefur haft mikla yfirburði í ár og sést það best á því að þó svo að enn séu fimm leikir eftir eru úr- slitin ráðin. „Liðið hefur verið hreint frábært allt tímabilið. Ég hugsaði aldrei um að titillinn væri í höfn fyrr en í dag og það var frábær tilfinning þegar dómarinn flautaði til leiksloka. Þrátt fyrir yfirburði okkar er ljóst að við verðum að styrkja liðið ef við ætlum okkur að gera eitthvað í meistaradeild Evrópu á næsta tímabili,“ sagði knattspyrnustjórinn Martin O’Neill. STOKE hækkaði sig um eitt sæti í ensku 2. deildinni eftir 2:1 útisigur á Luton og er liðið nú í fimmta sæti með 67 stig eins og Walsall sem á tvo leiki til góða. Wigan er í sjötta sætinu með 65 stig eftir óvænt tap á heimavelli fyrir Brentford og á hæla þeirra í sjö- unda sætinu kemur Bristol City með 64 stig. Fyrra mark Stoke var sjálfs- marki, en Graham Kavanagh skoraði sigurmarkið með skalla eftir vel útfærða aukaspyrnu Bjarna Guðjónssonar. Brynjar Björn Gunnarsson og Bjarni voru í byrjunarliðinu, en Bjarni fór af velli á 87. mínútu. Birkir Kristinsson og Stefán Þórðarson voru á varamanna- bekknum, en Ríkharður Daðason var frá vegna meiðsla. Stoke í fimmta sætið Fyrstu fimm mínútur leiksinsskiptust liðin á um að skora og hittni leikmanna beggja liða var með ágætum. Danski miðherjinn Jes V. Hansen skoraði átta stig í röð, þar af tvær þriggja stiga körfur, í lok fyrsta leikhluta og eftir það var leikurinn nánast eign Njarðvíkinga. Vel studdir af fjölmörgum stuðnings- mönnum náði Tindastóll að minnka muninn í sex stig, 56:50, þegar um þrjár mínútur lifðu af þriðja leik- hluta en þá tók Teitur Örlygsson til sinna ráða. Teitur skoraði átta stig í röð fyrir Njarðvíkinga og reynsluleysi Tindastólsmanna var áberandi á þessum kafla. Lélegt skotval og óskynsamlegur leikur varð aðall Tindastóls þegar mest á reyndi, í stað þess að koma knett- inum á Shawn Myers, sem var nánast óstöðvandi í vítateignum. Bæði liðin hafa yfir að ráða tveimur hávöxnum mið- eða fram- herjun og óhætt að segja að mikið gangi á í baráttu þeirra undir körf- unni. Friðrik Stefánsson á erfitt uppdráttar í sókninni en Hansen nýtir sér það vel að hann er ágætis skytta utan af velli. Shawn Myers er allt í öllu hjá Tindastóli og þeg- ar leikkerfi liðsins ganga ekki upp bjargar hann oftar en ekki mál- unum á eigin spýtur. Michail Antropov tók af og til ágætis skorpur en einvígi „turnanna tveggja“ í báðum liðum lauk með stórmeistarajafntefli. Léleg skotnýting Sjálfstraustið virðist fara þverr- andi hjá Lárusi Degi Pálssyni, Ómari Sigmarssyni og Kristni Friðrikssyni fyrir utan þriggja stiga línuna. Þremenningarnir hittu engu af alls átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum og þar af leiðandi gátu varnarmenn Njarð- víkinga einbeitt sér að því að stöðva þá Antropov og Myers. Leikmenn Tindastóls hittu engu af alls fimmtán þriggja stiga skotum sínnum á meðan heimamenn settur niður ellefu slíkar. Svavar Birg- isson átti fína spretti í liði en hann verður að skjóta meira þegar illa gengur hjá liðinu. Brenton Birmingham er lykill- inn að velgengni Njarðvíkinga gegn Tindastóli. Adonis Pomones, Tindastóli, átti í miklum erfiðleik- um í vörninni í upphafi gegn Birm- ingham sem skoraði þá 22 af alls 26 stigum sínum í leiknum. Teitur Örlygsson er annað tromp Njarð- víkinga og virðist hann eflast með hverjum leik í úrslitakeppninni. Logi Gunnarsson er einnig skæður að finna leið að körfunni en hann lét minna að sér kveða í sókninni að þessu sinni en gerði það með tilþrifum þegar hann tók sig til. Verkefni Vals Ingimundarsonar þjálfara Tindastóls verður að finna varnaraðferð sem dregur úr yf- irburðum bakvarða Njarðvíkur og efla sjálfstraust þeirra leikmanna sem eiga að skjóta utan af velli. Brenton Birmingham, fyrirliðiNjarðvíkinga, var ánægður með leikinn og sagði að fyrirfram hefðu þeir búist við bar- áttumiklu liði Tinda- stóls. „Við fylgdumst með síðustu tveimur viðureignum þeirra gegn Keflavík og þeir voru ekki að leika eins vel í dag gegn okkur og þeir eru vanir. Það var áætlun okkar að leika af miklum krafti og það tókst ágætlega. Leikurinn á Sauðárkróki verður samt sem áður mjög erfiður og þá verða allir búnir að gleyma þessum leik.“ Birmingham virtist geta skorað þegar honum sýndist svo gegn varn- armönnum Tindastóls og aðspurður sagði hann að takmarkið væri að gera Tindastól erfiðara um vik. „Það á að vera erfitt að stöðva mig þegar ég er að leika eins og ég geri best. Í fyrri hálfleik fann ég mig vel og félagar mínir voru duglegir að senda boltann. Hlutverkin snerust við í seinni hálfleik þegar meiri áhersla var lögð á að stöðva mig, en við það losnar um aðra leikmenn og við kunnum að nýta okkur það. Stóru leikmennirnir gefa lítið eftir í baráttunni í vítateignum og það er eiginlega jafnt á komið með liðunum undir körfunni. Bakverðirnir verða lykillinn að því að opna leikinn og þar tel ég að við höfum vinninginn,“ sagði Birmingham. Njarðvík vinnur þrjá leiki í röð ef sjálfstraustið vantar Valur Ingimundarson, þjálfari Tindastóls, var ekki ánægður með af- rakstur kvöldsins á heimaslóðum hans í Njarðvík. „Við vorum engan veginn tilbúnir í þennan leik. Allt sem við gerðum í vörn og sókn var frekar illa fram- kvæmt og það er ekki uppskriftin að velgengi hér í Njarðvík. Brenton Birmingham var okkur erfiður í fyrri hálfleik og okkur tókst aðeins að stoppa í götin í þriðja leikhluta. Um tíma áttum við ágætis möguleika á að koma okkur inn í leikinn en í stað þess að nota möguleikann sem gafst gerð- um við fjölmörg mistök og þetta rann út í sandinn. Það var nánast enginn leikmaður sem lék af eðlilegri getu í okkar liði og við vonum að mesti sviðsskrekkurinn sé farinn af okkur. Njarðvíkingar hafa leikmenn innan- borðs sem kunna að höndla svona úr- slitaleiki og það sást að þeir voru til- búnir í þetta verkefni. Enginn okkar virtist vera með sjálfstraust þegar við skutum á körfuna og verði framhald á þessu hjá okkur vinna Njarðvíkingar þessa rimmu 3:0,“ sagði Valur. Morgunblaðið/Þorkell Logi Gunnarsson sækir að körfu Tindastóls, þar sem Michail Antropov er til varnar. Eftir Sigurð Elvar Þórólfsson Bakverðirnir verða lykillinn                                                 Skagfirðingar fóru tómhentir heim úr Ljónagryfjunni Njarðvík- ingar voru til í tuskið LEIKMENN Tindastóls þreyttu flestir frumraun í úrslitum þegar fyrsti úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla fór fram á sunnudagskvöld. Ljónagryfja Njarðvíkinga reyndist norðanmönnum erfið og slæmur kafli þeirra í 2. leik- hluta lagði grunninn að 89:65 sigri Njarðvíkinga. Sjálfstraust og markvissar aðgerðir í sókn og vörn var aðalsmerki Njarðvíkinga og með stórleik frá Teiti Örlygssyni var aldrei spurning hvort liðið myndi vinna. Liðin mætast aftur í kvöld á Sauðárkróki en Njarðvíkingar eru í miklum ham þessa dagana og gætu gert það sem engu liði hefur tekist í vetur, að sigra á Sauðárkróki. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.