Morgunblaðið - 10.04.2001, Qupperneq 9
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 B 9
HEIÐAR Helguson sat á vara-
mannabekknum allan tímann í liði
Watford sem gerði jafntefli á móti
Crystal Palace í 1. deildinni.
GUÐNI Bergsson og félagar hans í
Bolton fengu óvænt frí um helgina en
leik liðsins á móti Crewe var frestað
þar sem keppnisvöllur Crewe þótti
ekki leikhæfur vegna vatnselgs.
LÁRUS Orri Sigurðsson kom ekk-
ert við sögu hjá WBA sem gerði
markalaust jafntefli á móti topplið
Fulham. Lárus sat á varamanna-
bekknum.
ÓLAFUR Gottskálksson lék í
marki Brentford sem vann góðan
útisigur á Wigan, 3:1, í 2. deildinni.
Ívar Ingimarsson var ekki í leik-
mannahópi Brentford vegna
meiðsla.
HELGI Valur Daníelsson var á
varamannabekknum í liði Peter-
brough sem tapaði fyrir Wrexham í
2. deild.
BJARNÓLFUR Lárusson fékk
ekki að spreyta sig með Scunthorpe
sem tapaði fyrir Hull í 3. deildinni,
2:1. Bjarnólfur sat sem fastast á
bekknum en hann hefur til þessa ver-
ið fastamaður í liðinu.
ANDRI Sigþórsson lék allan tím-
ann í liði Salzburg sem tapaði fyrir
toppliði Tirol, 1:0, í austurrísku úr-
valsdeildinni um helgina. Þetta voru
sömu úrslit og í leik liðanna þann 1.
apríl. Andri og félagar eru í sjötta
sæti deildarinnar.
JÓHANNES Karl Guðjónsson var
ekki í leikmannahópi Waalwijk sem
gerði 1:1 jafntefli við Twente í hol-
lensku úrvalsdeildinni. Waalwijk er í
fjórða sæti deildarinnar á eftir stór-
veldunum PSV, Feyenoord og Ajax,
og hefur ekki tapað leik eftir áramót.
JÓHANNES Harðarson lék allan
leikinn með MVV Maastricht sem
tapaði á heimavelli, 1:4, fyrir TOP
Oss í hollensku 1. deildinni.
TÓMAS Ingi Tómasson lék ekki
með AGF sem vann stórsigur á OB,
4:1, í dönsku úrvalsdeildinni. AGF er
í 9. sæti af 12 liðum í deildinni.
HELGI Kolviðsson lék ekki með
Ulm vegna meiðsla þegar lið hans
tapaði fyrir Aachen, 1:0, í þýsku 2.
deildinni. Ulm er í mikilli fallhættu
en liðið er í næst neðsta sæti deild-
arinnar.
GUNNLAUGUR Jónsson lék allan
leikinn með Uerdingen sem vann
varalið Dortmund, 2:0, í þýsku 3.
deildinni.
HELGI Sigurðsson lék síðasta
hálftímann með Panathinaikos sem
vann Athinaikos, 4:0, á útivelli í
grísku knattspyrnunni. Hinn 37 ára
gamli Krzysztof Warchycha skoraði
tvö markanna og hefur nú skorað 232
mörk í grísku deildakeppninni. Hann
vantar tvö mörk enn til að verða næst
markahæstur þar frá upphafi.
STABÆK steinlá fyrir Brann, 3:0,
í æfingaleik sem fram fór á heima-
velli Brann að viðstöddum 1200
áhorfendum. Pétur Marteinsson lék
síðari hálfleikinn í liði Stabæk og
Tryggva Guðmundssyni var skipt
útaf á 73. mínútu. Keppni í norsku
úrvalsdeildinni hefst á annan dag
páska.
STRÖMSGODSET burstaði 1.
deildarlið Kongsvinger, 6:2. Stefán
Gíslason lék allan leikinn fyrir
Strömsgodset og Veigar Páll Gunn-
arsson síðustu 10 mínúturnar.
HARALDUR Ingólfsson skoraði
annað mark Raufoss sem gerði jafn-
tefli, 2:2, við Romerike í æfingaleik
um helgina.
GUÐNI Rúnar Helgason skoraði
fyrir Hönefoss gegn sama félagi,
Romerike, en Guðni og félagar biðu
þar lægri hlut, 2:1.
JIM Smith, knattspyrnustjóri
Derby, segist ekki vera á leið frá lið-
inu, en orðrómur hefur verið í gangi
um að hann hætti í vor og Colin Todd
taki við. Smith, sem stendur á sex-
tugu, á eitt ár eftir að samningi sín-
um við Derby og ætlar að standa við
hann.
FÓLK
Arsenal réð lengst af lögum og lof-um í leik sínum á móti Totten-
ham en Neil Sullivan, markvörður
Spurs, var sá leikmaður sem Arsenal
gekk illa að brjóta á bak aftur. Sulliv-
an varði hvert dauðafærið á fætur
öðru en alls sköpuðu leikmenn Arsen-
al sér 22 góð marktækifæri í leiknum.
Frakkarnir í liði Arsenal sáu um að
leggja upp og skora mörkin fyrir sína
menn. Eftir að Gary Docherty hafði
náð forystu fyrir Tottenham á 14.
mínútu jafnaði Patrick Vieira metin
með glæsilegu skallamarki eftir góða
fyrirgjöf Roberts Pires og Pires var
svo aftur á ferðinni stundarfjórðungi
fyrir leikslok þegar hann skoraði sig-
urmarkið eftir góðan undirbúning
landa síns, Sylvains Wiltords.
Vissi að við mundum vinna
„Þetta var frábær leikur af okkar
hálfu en við gerðum þetta of erfitt
fyrir okkur. Þrátt fyrir að lenda undir
snemma leiks þá vissi ég að við mund-
um vinna. Það var auðvitað ergilegt
að horfa upp á öll færin sem fóru for-
görðum og ég hef verið nógu lengi í
boltanum til að vita það að svona leik-
ir geta tapast,“ sagði Arsene Weng-
er, knattspyrnustjóri Arsenal, eftir
leikinn.
Glenn Hoddle stjórnaði liði Totten-
ham í fyrsta skipti og hann sagði eftir
leikinn að brotthvarf Sol Campbells
úr liði sínu hefði gert möguleika Tott-
enham á að vinna að engu. Campbell,
sem var tæpur fyrir leikinn vegna
meiðsla, haltraði meiddur af velli og
það var skarð fyrir skildi í liði Totten-
ham.
„Campbell var utan vallar þegar
Arsenal jafnaði metin og við það að
missa hann úr vörninni mynduðust
stór göt sem leikmenn Arsenal nýttu
sér. Meiðsli voru að angra leikmenn
fyrir leikinn og ef þetta hefði ekki
verið undanúrslitaleikur hefðu fjórir
til fimm leikmenn ekki spilað,“ sagði
Hoddle.
Wycombe stóð í Liverpool
Það tók liðsmenn Liverpool 78
mínútur að brjóta á bak aftur vörn
Wycombe en þá skoraði varamaður-
inn Emile Heskey gott skallamark
eftir góða fyrirgjöf Stevens Gerr-
ards. Fimm mínútum síðar innsiglaði
Robbie Fowler sigur Liverpool með
glæsilegu marki sem kom beint úr
aukaspyrnu. Leikmenn Wycombe
börðust eins og ljón allan tímann og
báru litla virðingu fyrir andstæðing-
um sínum og það fór vel á því að þeir
áttu síðasta orðið í leiknum þegar
Keith Ryan vippaði yfir Sander
Westerveld markvörð Liverpool
skömmu fyrir leikslok.
„Ég get ekki annað en tekið hatt-
inn ofan fyrir leikmönnum Wycombe.
Við vissum vel að þeir mundu selja
sig dýrt sem þeir og gerðu og mér var
auðvitað mjög létt þegar Fowler
skoraði annað markið,“ sagði Gerard
Houllier, stjóri Liverpool, en læri-
sveinar hans eiga möguleika á þrenn-
unni. Liverpool vann fyrr á leiktíðinni
sigur í deildarbikarkeppni, liðið er
komið í undanúrslit UEFA-keppn-
innar og nú í úrslit bikarkeppninnar.
Greinilegt er að sigursælasta lið
ensku knattspyrnunnar frá upphafi
er að vakna til lífsins eftir rýra upp-
skeru á undanförnum árum.
Reuters
Robert Pires fagnar sigurmarki sínu gegn Tottenham, 2:1.
Draumaúrslitaleikur
Arsenal og Liverpool
KNATTSPYRNUÁHUGAMENN fengu flestir hverjir ósk sína uppfyllta
á sunnudag en þá varð ljóst að það verða Arsenal og Liverpool sem
leika til úrslita í ensku bikarkeppninni á þúsaldarvellinum í Cardiff í
Wales 12. maí. Bæði liðin unnu verðskuldaða sigra. Arsenal lagði
granna sína í Tottenham, 2:1, á Old Trafford í Manchester og á Villa
Park í Birmingham urðu sömu úrslit í viðureign Liverpool og bikar-
bananna í Wycombe sem leikur í 2. deild.
Ástralinn Harry Kewell skoraðifyrra mark leiksins, sitt fyrsta í
eitt ár, og Írinn Robbie Keane inn-
siglaði sigurinn í síðari hálfleik með
snotru marki en hann vippaði knett-
inum yfir Paul Jones, markvörð
Southampton.
„Við réðum ferðinni allan tímann
þrátt fyrir að mínir menn hafi virkað
hálfþreyttir eftir sigurinn frábæra á
Deportivo í meistaradeildinni,“ sagði
David O’Leary, stjóri Leeds, eftir
leikinn.
Chelsea vann annan útisigur sinn í
deildinni í röð, þá fyrstu á þessu
tímabili, en þeir bláklæddu burstuðu
Derby á Pride Park, 4:0. Gianfranco
Zola skoraði fyrsta markið á 64. mín-
útu og á síðustu fimm mínútum opn-
uðust flóðgáttirnar. Jimmy Floyd
Hasselbaink skoraði annað markið
og sitt 20. á leiktíðinni og Úrúgvæinn
Gustavo Poyet skokkaði af vara-
mannabekknum og skoraði tvö mörk
á lokamínútunum.
Eiður Smári Guðjohnsen var í
byrjunarliði Chelsea en var tekinn út
af í leikhléi en Þórður Guðjónsson
fékk að spreyta sig síðustu átta mín-
úturnar í liði Derby sem aftur er
komið í bullandi fallbaráttu. „Þungu
fargi var létt af okkur þegar við unn-
um West Ham á útivelli um síðustu
helgi og við vissum að eftir þann leik
mundu hlutirnir breytast sem þeir
hafa og gert,“ sagði Gustavo Poyet
eftir leikinn.
Spurningin sem margir velta fyrir
sér er hvort Coventry takist enn einu
sinni að bjarga sér frá falli á síðustu
stundu. Coventry sótti Leicester
heim og fór þaðan með öll stigin og
var þetta annar sigur Coventry í röð.
„Staða okkar er betri núna en áður
en flautað var til leiks á laugardaginn
fyrir viku. Með þessum sigri eigum
við von um að halda sætinu og með
svipaðri spilamennsku á það að vera
hægt,“ sagði Gordon Strachan, stjóri
Coventry.
Coventry fékk óskabyrjun því eft-
ir aðeins 62 sekúndur var Craig Bell-
amy búinn að koma gestunum yfir.
Átta mínútum síðar jafnaði Ade Ak-
inbiyi metin. Hann var fljótur að átta
sig og náði frákastinu eftir skot Arn-
ars Gunnlaugssonar sem Chris Kirk-
land varði. Lee Carsley og John
Hartson sáu svo um að tryggja Cov-
entry sætan sigur með tveimur
mörkum í seinni hálfleik. Arnar
Gunnlaugsson lék allan tímann í liði
Leicester sem tapaði fimmta leik sín-
um í röð.
Fyrir leikinn á móti Aston Villa
hafði West Ham tapað fimm leikjum
í röð og það stefndi í þann sjötta. En
varnarjaxlinn Igor Stimac bjargaði
stigi í höfn fyrir Lundúnarliðið þegar
honum tókst að jafna metin þremur
mínútum fyrir leikslok.
Enn seig á ógæfuhliðina hjá Man-
chester City og eftir 3:1-tap fyrir
Everton á sunnudaginn er fátt sem
bendir til annars en að City kveðji
úrvalsdeildina eftir eins árs veru.
Bjargar Coventry sér enn einu sinni?
LEEDS United er á mikilli siglingu um þessar mundir, bæði í ensku
úrvalsdeildinni og ekki síður í meistaradeildinni. Eftir dapurt gengi
framan af leiktíðinni hafa lærisveinar Davids O’Learys heldur betur
tekið sig á og eru komnir upp í þriðja sæti deildarinnar en það sæti
gefur farseðil í meistaradeildina á næstu leiktíð. Leeds tók á móti
Southampton á Elland Road og vann sannfærandi sigur, 2:0, og
hafa Leedsarar ekki tapað síðustu 10 deildarleikjum sínum.