Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.04.2001, Blaðsíða 12
Síðasta landsmót Hauks GAMLA kempan Haukur Eiríksson frá Akureyri, sem er orð- inn 37 ára, var að keppa á Skíðamóti Íslands í 20. sinn og hann veitti ungu göngumönnunum verðuga keppni. Haukur sagðist ekki hafa tölu á verðlaunum sínum á landsmóti en hann sigr- aði í göngu á þremur síðustu mótum og komst á verðlaunapall nú, þótt ekki hafi hann unnið sigur að þessu sinni. Haukur varð í 3. sæti í 30 km göngu, 4. sæti í 15 km göngu, 3. sæti í boðgöngu og 3. sæti í tvíkeppni. Aðspurður um framhaldið sagði Haukur að þetta hefði verið sitt síðasta mót. „Ég er mjög ánægður með minn feril og það er ágætt að ljúka honum hér heima. Það er gaman að fylgjast með þessum ungu strák- um sem hafa verið að bæta sig mikið og þeir gátu haft mig, „gamla manninn“, til viðmiðunar.“ Áslaug Eva Björnsdóttir og Ingvar Steinarsson frá Skíða- félagi Akureyrar urðu bikarmeistar- ar Skíðasambands Íslands í alpa- greinum í kvenna- og karlaflokki, fyrir besta samanlagðan árangur á bikarmótum vetrarins. Áslaug Eva varð jafnframt bikarmeistari í flokki 15–16 ára stúlkna. Félagi þeirra Baldur Helgi Ing- varsson varð bikarmeistari í göngu karla en Hanna Dögg Maronsdóttir frá Ólafsfirði varð bikarmeistari í göngu kvenna. Andri Þór Kjartans- son, Breiðabliki, varð bikarmeistari í alpagreinum í flokki 15–16 ára, Guð- rún J. Arinbjarnardóttir, Skíðaliði Reykjavíkur, í flokki 13–14 ára stúlkna og Karl F. Jörgensen frá Neskaupstað í flokki drengja 13–14 ára. Í flokki 17–19 ára í göngu varð bikarmeistari Jakob Einar Jakobs- son frá Önundarfirði. Bikarmeistar- ar Skíðasambands Íslands árið 2001 voru krýndir í lok keppni á Skíða- móti Íslands í Hlíðarfjalli á sunnu- dag. Bikarmeistarar krýndir Unnusta Björgvins, Harpa RutHeimisdóttir frá Dalvík, stóð sig einnig mjög vel á mótinu en hún vann glæsileg- an sigur í svigi kvenna á sunnudag. Dagný Linda Krist- jánsdóttir var einn- ig sigursæl, hún sigraði í stórsvigi, varð í fjórða sæti í svigi og sá ár- angur dugði henni jafnframt til sigurs í alpatvíkeppni. Björgvin og Dagný Linda voru jafnframt sig- ursæl á þeim FIS-mótum sem fram fóru í Hlíðarfjalli, bæði fyrir Skíðamót Íslands og samhliða keppni á landsmótinu. Björgvin sagði eftir sigurinn í svigi á sunnudag að þessi árangur sinn á mótinu væri samkvæmt áætlun og hann var því að vonum ánægður með sinn hlut. Björgvin var með næst besta tímann eftir fyrri ferðina í svigi, á eftir Jóhanni F. Haraldssyni úr Reykjavík, en keyrði grimmt í seinni ferðinni og tryggði sér sigur. Björgvin sagði að þetta hafi verið ánægjulegur dagur fyrir sig og unnustu sína, Hörpu Rut, sem sigraði í svigi kvenna. „Við töluðum um það fyrir keppnina í svigi að vinna sigur, það gekk eftir og það er því ekki hægt að fara fram á meira.“ Harpa Rut var einnig með næst besta tímann í sviginu eftir fyrri ferðina, á eftir Helgu B. Árnadótt- ur úr Reykjavík en sneri dæminu við í þeirri seinni. „Þessi árangur kom mér ekki á óvart því ég ætlaði mér sigur. Ég gaf allt í seinni ferð- ina og er rosalega ánægð með ár- angurinn. Mér hefur gengið vel í sviginu í vetur en ekki eins vel í stórsvigi.“ Harpa Rut hefur stund- að nám samhliða æfingum í Opp- dal í Noregi undanfarin tvö ár og hún á þar eftir eitt ár í námi. Meiðsli hafa hrjáð hana töluvert síðustu ár en hún fótbrotnaði fyrir fimm árum og hefur tvívegis þurft að fara í aðgerðir í kjölfarið og Morgunblaðið/Kristján Björgvin Björgvinsson frá Dalvík einbeittur á svip í sviginu. Morgunblaðið/Kristján Harpa Rut Heimisdóttir frá Dalvík á fullri ferð í sviginu. BJÖRGVIN Björgvinsson skíðamaður frá Dalvík sýndi frábæra takta á Skíðamóti Íslands sem lauk í Hlíðarfjalli við Akureyri á sunnudag. Björgvin vann sigur í stórsvigi á föstudag, í svigi á sunnudag og tryggði sér þar með sigur í alpatvíkeppni. Björgvin sýndi mikinn styrk og keyrði af miklum krafti á mótinu við misjafnlega erfiðar að- stæður en slæmt skyggni gerði keppendum oft erfitt fyrir. Kristján Kristjánsson skrifar BALDUR Helgi Ingvarsson frá Akureyri sýndi mikla keppnis- hörku er hann bar sigur úr být- um í 30 km göngu karla 20 ára og eldri á Skíðamóti Íslands í Hlíðarfjalli á sunnudag, þar sem gengið var með hefðbundinni að- ferð. Baldur Helgi háði harða rimmu við Ólaf Th. Árnason frá Ísafirði, sem hafnaði í öðru sæti. Ólafur hafði hins vegar betur í 15 km göngu með frjálsri aðferð á fimmtudag. Baldur Helgi hafn- aði þá í öðru sæti og árangur hans á mótinu dugði honum til sigurs í tvíkeppninni. Katrín Árnadóttir frá Ísafirði, systir Ólafs Th., sigraði í 10 km göngu kvenna 16 ára og eldri á sunnu- dag og endurtók þar með leikinn frá því á fimmtudag, er hún vann sigur í 5 km göngu með frjálsri aðferð og hún vann því einnig sigur í tvíkeppninni. Þann sama leik lék Önfirðingurinn Jakob Einar Jakobsson, sem vann sigur í 15 km göngu 17-19 ára á sunnu- dag, í 10 km göngu á fimmtudag og í tvíkeppni. Samhliða keppni í göngu á Skíðamóti Íslands voru keyrð FIS-mót og þar sem ís- lensku keppendurnir náðu einnig góðum árangri. Baldur Helgi sagði eftir sig- urinn í 30 km göngunni að það hafi verið góð tilfinning að koma í mark en gangan hefði vissulega tekið vel í. „Ég hef stefnt að þessum sigri í allan vetur og því mikið hugsað um þessa göngu á æfingum að undanförnu. Mér tókst að auka forskotið á Ólaf jafnt og þétt og það gaf mér auk- inn kraft. Þá voru aðstæður frá- bærar í dag og brautin góð.“ Katrín var að vonum ánægð sem árangur sinn á mótinu en hún ætlaði sér einnig sigur á sunnudag og það gekk eftir. „Ég náði góðri göngu og var í meira stuði en á fimmtudag, auk þess sem ég er heldur skárri af kvef- inu sem hefur verið að hrjá mig. Þá var færið enn betra en á fimmtudag.“ Aðspurð um fram- haldið sagði Katrín að hún ætlaði að sjá til með næsta vetur en hún hefði áhuga á að þjálfa unga krakka og einnig tæki námið sinn tíma. Jakob Einar keppir fyrir Ísa- fjörð líkt og systkinin Katrín og Ólafur en hann tók skýrt fram að hann kæmi frá Önundarfirði. Hann sagði að árangur sinn á mótinu væri í samræmi við vænt- ingar. Hann sagðist þó hafa verið í betra formi fyrr í vetur en styrk- ur sinn hafi dugað til sigurs nú og það skipti öllu máli. Jakob Einar hefur sótt um skólavist í Geilo í Noregi næsta vetur og vonast eftir að komast þar að, auk þess sem hann á sér þann draum að komast á Ólympíuleik- ana árið 2006. Morgunblaðið/Kristján Baldur Helgi Ingvarsson frá Akureyri bar sigur úr býtum í 30 km göngu karla með hefðbundinni aðferð á Skíðamóti Íslands í Hlíðarfjalli á sunnudag, að auki vann hann sigur í tvíkeppninni. Þá varð Baldur bikarmeistari SKÍ í karlaflokki. Baldur sýndi keppnis- hörku hún hefur reyndar enn ekki náð sér að fullu. Dagný Linda sagði að sigurinn í alpatvíkeppninni hafi komið sér skemmtilega á óvart. „Ég reiknaði alls ekki með þetta góðum árangri í sviginu en þetta var virkilega góður endir á góðu móti,“ sagði Dagný Linda, sem lagði grunninn að sigri í alpatvíkeppninni með glæsilegum sigri í stórsviginu á föstudag. Skíðamót Íslands tókst með miklum ágætum og var öllum þeim sem að komu til mikils sóma. Veð- urguðirnir voru þó ekki í neinu há- tíðarskapi lengst af og slæmt skyggni gerði bæði keppendum og starfsfólki erfitt um vik og hætta varð við keppni í risasvigi. Björgvin sigursæll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.