Morgunblaðið - 13.07.2001, Síða 3
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 B 3
H
la
u
p
a
h
jó
l
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
0
6.
2
00
0
/
M
00
7
Ármúla 40• Sími: 553 5320
H
la
u
p
a
h
jó
lSumar-
smellurinn
Hlaupahjól
Samanbrjótanleg.
Fyrir börn og fullorðna.
Stillanleg hæð á stýri.
Mjúk hjól, góðar legur.
Sumartilboð kr: 6.900.-
Verð áður kr: 11.500.-
LÖNG hefð er fyrir því aðdagblöð og aðrir fjöl-miðlar birti lesendum sín-um stjörnuspádóma. Þar
er hægt að fá upplýsingar um það
sem framtíðin ber í skauti sér og
ráðgjöf um hvernig hyggilegast sé
að haga lífinu þann daginn, allt eftir
því hvaða stjörnumerki á í hlut. Ekki
taka þó allir boðskapinn alvarlega
enda tiltekið í sumum blaðanna að
spádómarnir séu fyrst og fremst
ætlaðir sem dægradvöl.
Alvöru stjörnuspekingar starfa
hins vegar á ýmsum vettvangi og
segja spádóma sína byggða á ná-
kvæmum athugunum á innbyrðis af-
stöðu og gangi himintunglanna sem
þeir telja að hafi áhrif á allt lífshlaup
fólks á jörðinni.
Byggir á fornri frægð
Í fornöld var stjörnuspekin virt
vísindagrein og á miðöldum var hún
kennd við alla helstu háskóla heims.
Hún hafði mikil áhrif á daglegt líf og
menningu – þessu má jafnvel finna
stað enn þann dag í dag. Enska orðið
lunatic, sem þýðir brjálæðingur, er
dregið af latneska orðinu luna, sem
þýðir tungl, en fyrrum trúðu menn
að tengsl væru milli kvartilaskipta
tunglsins og geðsýki í mönnum –
samanber einnig tunglsýki í ís-
lensku.
Stjörnuspekin átti mikið
blómaskeið í Evrópu á 13.–
17. öld þegar varla var til
sá kóngur, kirkjulegur
leiðtogi eða smáfursti sem
ekki leitaði fyrst til hirð-
stjörnuspekings áður en hann
tók mikilvægar pólitískar ákvarð-
anir. Á þessum tímum byggðu
reikniaðferðir stjörnuspekinnar á
því að jörðin væri nafli alheimsins
sem tunglið, sólin og aðrar stjörnur
á himinfestingunni snerust í kring-
um. Kópernikus, og síðar Galileo,
sýndu hins vegar fram á að sólin
væri miðpunktur alheims. Þar með
voru reikningsfræðilegar forsendur
stjörnuspekinnar brostnar og eftir
það fór smám saman að fjara undan
henni. Hún var útskúfuð úr sam-
félagi vísindanna, afgreidd sem hver
önnur bábilja og stjörnuspekingar
stimplaðir mestu loddarar.
Undir smásjá vísindanna
Ef marka má nýlega umfjöllun í
Sunday Times virðast nú ýmis teikn
á lofti um að vísindasamfélagið sé ef
til vill að endurskoða afstöðu sína til
stjörnuspekinnar. Háskólinn í Sout-
hampton myndaði nýlega rannsókn-
arhóp sem hyggst skoða áhrif him-
intunglanna á ýmsar hliðar
mannlegrar hegðunar.
Christopher Bagley, sem er
félagssálfræðingur og stýrir rann-
sóknarhópnum, viðurkennir að
stjörnuspekin sé hornkerling í vís-
indasamfélaginu en telur samt að
það sé þess virði að prófa kenningar
hennar með vísindalegum hætti.
Hann bar saman fæðingardaga 12
þúsund einstaklinga sem þjást af
geðsjúkdómum á borð við geðklofa
og komst að því að ákaflega margir
þeirra eru fæddir á tímabili í lok
mars og byrjun apríl. Hann segir
þessa niðurstöðu, sem spannar
stjörnumerki hrútsins, koma heim
og saman við spádóma stjörnuspek-
innar.
Annar vísindamaður, Pat
Harris, sem er stjörnuspek-
ingur með meistaragráðu í
heilsusálfræði, hyggst
rannsaka hvort hin hrjóstr-
uga pláneta Satúrnus geti
haft áhrif á frjósemi kvenna.
Hún leitar nú að 150 konum til þess
að taka þátt í rannsókninni en í
hópnum verða konur sem eiga börn,
konur sem eru að reyna að eignast
börn og konur sem hafa gengist und-
ir meðferð vegna ófrjósemi. Pat
Harris ætlar að bera saman stjörnu-
kort hverrar konu við stöðu Satúrn-
usar og hins „frjósama“ Júpíters á
þeim tíma sem þær reyndu að verða
barnshafandi og rýna síðan í nið-
urstöðurnar. Markmið rannsókn-
arinnar er að freista þess að sjá fyrir
hvenær konur eru frjósamastar og
að fækka dýrum ófrjósemis-
aðgerðum.
Auk háskólans í Southampton er
rannsóknarvinna byggð á kenn-
ingum stjörnuspekinnar nú stunduð
bæði í Manchester og Plymouth –
fleiri breskir háskólar munu bætast
við síðar á árinu. Hermt er að vís-
indaleg stjörnuspeki sé einnig í
sókn í Bandaríkjunum þar sem
sumir háskólar útskrifa fólk með
BA-gráðu í þessum fræðum.
Ró fyrir hrelldar sálir
Í umræddri grein í Sunday Times
er einnig vitnað í Dr. Christopher
French við Goldsmiths College í
London en hann fæst við að rann-
saka sálfræðilega þætti í trú manna
á yfirskilvitlegum fyrirbærum. Að
hans sögn lesa 75% fólks stjörnuspá-
dóma og einn af hverjum fimm legg-
ur trúnað á þá. Heldur minna hlut-
fall greiðir fyrir ráðgjöf hjá
stjörnuspekingi þar sem skyggnst er
inn í framtíðina með því að nota
stjörnukort. Stjörnukortin eru
byggð á ýmsum upplýsingum um
fæðingartíma viðkomandi og stöðu
himintunglanna á þeim tíma. Í fram-
haldi af þessu má rifja upp að sam-
kvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá
því í mars á þessu ári lesa 38% les-
enda Morgunblaðsins stjörnuspána
og að það er einkum yngsti aldurs-
hópurinn sem það gerir.
Í grein Sunday Times kemur einn-
ig fram að Nancy Reagan, fyrrver-
andi forsetafrú Bandaríkjanna, hafi
haft mikla trú á stjörnuspekinni og
mun hún hafa átt það til að fresta
mikilvægum fundum ef henni sýnd-
ist að samspil stjarnanna væri sér
ekki nógu hagstætt. Stjörnuspek-
ingur þeirra hjóna, Joan Quigley,
mun á sínum tíma hafa mælt með því
að leiðtogafundur Reagans og Gorb-
atchevs yrði haldinn í Reykjavík.
Sjálf hjartadrottningin, Díana prins-
essa, vandi einnig komur sínar til
stjörnuspekings til þess að fá ráð.
Christopher French segir að tiltrú
almennings á stjörnuspeki og öðrum
yfirskilvitlegum fyrirbærum aukist
þegar félagslegur óstöðugleiki er
ríkjandi og öryggi einstaklinga er
ógnað. Fólk vilji endurheimta stjórn
á lífi sínu og það vilji fá svör við
áleitnum spurningum. Stjörnu-
spekin virðist geta veitt sum-
um þá sálarró sem sóst er eftir
og þeir fá ekki með því að leita
á náðir hefðbundinna trúar-
bragða. Eftirspurn virðist að
minnsta kosti stöðug, nú er hægt
að fá stjörnuspá dagsins senda á
SMS formi og á Netinu er jafnvel
boðið upp á stjörnuspá fyrir gælu-
dýr.
Nýlegar rannsóknir breskra vís-
indamanna sem tengjast fullu
tungli leiddu ýmislegt furðu-
legt í ljós. Greining á talna-
gögnum frá konunglega
sjúkrahúsinu í Bradford
sýndi til dæmis að hundar
eru gjarnari á að bíta þegar
tunglið er fullt. Rannsókn-
arniðurstöður frá háskól-
anum í Leeds sýna að margfalt
fleiri leita til heimilislækna eftir fullt
tungl en á öðrum tímum.
Enginn aufúsugestur
Enda þótt tilraunir séu nú gerðar
með kenningar stjörnuspekinnar í
ýmsum háskólum líta flestir vís-
indamenn þó á hana sem boðflennu í
vísindasamfélaginu. Í grein Sunday
Times er vitnað í Neil Turok sem er
prófessor í stjörnufræði við háskól-
ann í Cambridge. Hann gefur ekki
mikið fyrir stjörnuspekina sem hann
lýsir sem fullkominni andhverfu al-
vöru vísinda. Hann segir að stjörnu-
spekingar komist upp með að halda
fram fáránlegum kenningum sínum
þar sem þær séu byggðar á svo fá-
tæklegum vísindalegum grunni að
hvorki sé hægt að sanna né afsanna
þær. Heather Couper, sem er geim-
vísindamaður, segir gagnslítið og
villandi að skipa stjörnuspekinni á
bekk með stjörnufræðinni. Slíkt sé
mjög óréttlátt gagnvart stjörnu-
fræðinni sem rannsaki lífið og leitist
við að útvíkka þekkingu mannsins á
himingeimnum.
Við New York háskóla í Buffalo
hafa vísindamenn undanfarin 25 ár
beitt aðferðum raunvísinda við að
rannsaka ýmis yfirskilvitleg fyr-
irbæri. Þar á bæ telja menn
sig hafa rannsakað kenn-
ingar stjörnuspekinnar
meir og betur en
nokkru sinni hefur verið
gert í sögu greinarinnar.
Niðurstöður rannsóknanna
hafa ávallt verið neikvæðar
fyrir stjörnuspekina – að sögn
Paul Kurtz, sem leiðir þessar rann-
sóknir, er lítið eða ekkert sem sann-
ar að hægt sé að tengja fæðingarstað
og fæðingarstund einstaklings við
gang sólar, tungls, plánetanna eða
stjörnumerkjanna þannig að eitt-
hvert vit sé í. Meginniðurstaða
þeirra er að kenningar stjörnuspek-
innar byggi á fornum hindurvitnum í
stað vísindalegra sannana. Stjörnu-
speki eigi því alls ekkert erindi inn í
kennsluskrár háskólanna.
Sá ekki fyrir
harmleikinn í Nepal
Sagt er að Nepalbúar reiði sig
mikið á stjörnuspekinga og aðra spá-
menn. Nýlega mátti lesa í fréttum að
stjörnuspekingur nepölsku hirð-
arinnar hefði ekki getað séð fyrir
hinn mikla harmleik þegar krón-
prinsinn banaði níu ættmennum sín-
um áður en hann réði sjálfum sér
bana. Stjörnuspekingur þessi og
fjölskylda hans hafa lesið í stjörnu-
kort fyrir konungsfjölskylduna í 20
ættliði. Margir hafa verið látnir taka
pokann sinn fyrir minni afglöp í
starfi.
rh
Háskólar gefa stjörnuspádómum vaxandi gaum
Stjörnuspeki
kukl eða vísindi?
The Sunday Times, 17. júní 2001
Morgunblaðið, 23. september 1989
og 7. júní 2001
The Catholic Encyclopedia
!
!
!!
"!
#$!
%!&!
$!
"!
"!!
Niðurstöður eru úr könnuninni „Lífsgildi Íslendinga 1999“ og birtar
með góðfúslegu leyfi Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Skýrsla
könnunarinnar í heild er óbirt en úrvinnsla gagna stendur yfir.
Hafði stjörnuspekingur Reagan-
hjónanna áhrif á staðarval leið-
togafundarins 1986?
Morgunblaðið/RAXar ég fór í fínu fötin hennar mömmu,“
segir Bergþóra brosandi. „Fötin eru
bróderuð með pallíettum, perlum og
pífum. Einnig sýndi ég peysur úr
þæfðri ull og líka skó sem eru nokk-
urs konar ballettskór.“
Bergþóra segir fötin hafa verið
frekar ólík því sem hún hefur áður
fengist við að því leyti að þau eru ekki
eins mikið í anda naumhyggjunnar
líkt og flest annað sem hún hefur
gert. „Ég ákvað að vinna eingöngu
með hvíta tóna í þetta skiptið því ég
vissi að landslagið og bakgrunnurinn
yrði í dökkum grábrúnum og svört-
um litum.“
Hugmyndin góð en þónokkur
vonbrigði með skipulag
Stúlkurnar voru ánægðar með þá
reynslu sem þátttakan í sýningunni
færði þeim en um leið voru þær sam-
mála um að skipulag tískuhátíðarinn-
ar hefði ekki verið sem skyldi.
„Hugmyndin að tískusýningunni
er vissulega frábær,“ segja Anna Rut
og Helga. „Skipulagsleysið kom okk-
ur verulega á óvart. Ýmislegt kom
upp á á síðustu stundu sem þurfti að
bjarga fyrir horn,“ segja þær og eiga
þá m.a. við aðstöðuna sem hönnuðum
bauðst meðan á sýningunni stóð. Í
upphafi áttu hönnuðirnir að hafa að-
stöðu í tjöldum við Skansinn en
margir þeirra létu þá óánægju sína í
ljós og var aðstaðan flutt í bátaskýli.
Herðatré, fataslár og aðrir þarfir
hlutir fyrir undirbúning sýningarinn-
ar voru ekki fyrir hendi, að sögn fjór-
menninganna, en vaskir Eyjamenn
voru fengnir til að útvega þá á elleftu
stundu.
„Í svona stórri sýningu er afar
mikilvægt að allir vinni vel saman frá
upphafi – það gekk ekki alveg upp í
þetta skiptið. En heimamenn stóðu
við sitt,“ segir Selma.
„Til þess að svona dæmi gangi upp
þurfa mun fleiri aðilar að koma að
skipulagningu og verkaskipting inn-
an þess hóps að vera ákveðin,“ segir
Bergþóra.
Að sögn fjórmenninganna skiptir
það miklu máli fyrir þær sem hönnuði
hvernig til tekst með sýningar af
þessari stærðargráðu sem geta, ef
rétt er haldið á spilunum, verið góð
kynning á íslenskri hönnun og land-
inu.
„En það er mikilvægt að læra af
þessari reynslu til að gera Ísland eft-
irsóknarverðari vettvang fyrir sýn-
ingar sem þessa,“ segir Bergþóra.
Alþjóðlegar sýningar
mikilvæg kynning
Alþjóðlegar tískusýningar eru
mikilvæg kynning fyrir hönnuði og
þar myndast oft fagleg og viðskipta-
leg tengsl sem koma sér vel í tísku-
heiminum.
„Það er nauðsynlegt fyrir okkur að
hitta aðra hönnuði og einnig allt það
fjölmiðlafólk sem þarna var saman
komið,“ segir Anna Rut. „En því mið-
ur gafst ekki nægur tími til þess eftir
sýninguna að kynnast fólkinu og
koma sér á framfæri.“
„Þar sem sýningin var haldin á Ís-
landi var athyglin óneitanlega mikið á
okkur og margir blaðamenn lýstu t.d.
áhuga á að heimsækja búðirnar okk-
ar, en gafst ekki tími til þess,“ bætir
Bergþóra við.
En stúlkurnar segja að þrátt fyrir
allt hafi sjálf tískusýningin heppnast
mjög vel og áhorfendur verið ánægð-
ir. „Umhverfið var sérstaklega fal-
legt og þaðan sem áhorfendur sátu
sást út á haf,“ segir Berþóra og þær
bæta við að að tjaldabaki hafi hönn-
uðirnir og aðstoðarmenn þeirra allir
lagst á eitt um að gera sýninguna sem
frambærilegasta. Frakkarnir Marck
Ronzier, aðstoðarmaður hönnuðarins
Darja Richter, og Erik Halley tóku
að sögn hönnuðanna stjórnina í sínar
hendur, enda þaulvanir að setja upp
tískusýningar um allan heim.
Selma segir að endingu að eftir
sýninguna hafi þeir þátttakendur og
fjölmiðlamenn sem hún ræddi við
verið sáttir og þótt mikið til Vest-
mannaeyja koma, bæði umhverfisins
og heimamanna sem lögðu hönd á
plóginn við að gera sýninguna sem
best úr garði.