Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 5
rir
ða
um
nn
til
nn-
kki
ik-
gja
nn-
ssi
r
að
a –
nn
ég
leik þegar það býðst,“ segir Guðný
sem fer með lítið hlutverk í væntan-
legri kvikmynd Mikaels Torfasonar,
Gemsum.
nsson í Landi og sonum.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2001 B 5
KVIKMYNDIN Jón Oddurog Jón Bjarni var fyrstamynd Þráins Bertelssonarleikstjóra.
Myndin var tekin árið 1980 og
frumsýnd 1981. Ýmsir þjóðþekktir
leikarar léku í myndinni en stjörn-
urnar voru þó án efa tvíburabræð-
urnir sjálfir, Jón Oddur og Jón Bjarni.
Þeir voru leiknir af bræðrunum Vil-
helmi Jósefs og Páli Jósefs Sævars-
sonum. Páll býr nú á Spáni en Vilhelm
Jósefs – Jón Bjarni – sem annars býr
og starfar í Borgarnesi, var staddur í
Reykjavík á dögunum.
„Þráinn Bertelsson og samstarfs-
fólk hans fór um alla skóla í leit að tví-
burum. Þá vorum við tíu ára gamlir,
ég og Palli bróðir minn. Einum eða
tveimur dögum eftir að þau hittu okk-
ur höfðu þau samband og létu vita að
þau vildu fá okkur tvo til að leika í
myndinni.“
Ég gerði
þessa mynd
„Ég held ég hafi bara verið ég sjálf-
ur í myndinni, frekar en ég hafi bein-
línis leikið. Við bræður vorum alveg
eins og Jón Oddur og Jón Bjarni. Afar
samrýndir og miklir prakkarar,
kveikjandi í hlutum og svona.“ Vil-
helm segir að þeir hafi orðið latari
við prakkarastrikin eftir vinnuna að
myndinni.
„Á frumsýningarkvöldi man ég
samt, þegar ég hafði setið frumsýn-
inguna sjálfa, að ég gekk fram og sá
fullt af fólki sem beið eftir að sjá
myndina. Það var algjör örtröð við
miðasöluna. Ég opnaði dyrnar upp á
gátt og hrópaði yfir mannþröngina:
„Gjörið svo vel! Það fá allir frítt
inn!“ Miðavörðurinn spurði mig:
„Hvað ertu að gera, þú mátt þetta
ekki,“ en ég svaraði bara: „Jú víst,
ég gerði þessa mynd.“ Þá lét hann
mig vera og fólkið fékk ókeypis í
bíó.“
Kvennagullin
Vilhelm jánkar því að þeir bræður
hafi notið hylli meðal jafnaldra
sinna eftir kvikmyndaleikinn.
„Stelpurnar létu okkur ekki í friði
eftir að myndin var frumsýnd. Einu
sinni komum við fjórir saman, ég,
bróðir minn og tveir vinir okkar, á
samkomu í Tónabæ. Þá kallar plötu-
snúðurinn: „Kvikmyndastjörnurnar
eru komnar!“ Og stelpurnar hóp-
uðust svo um okkur að við hlupum
burt og læstum okkur inni á kló-
setti. Þegar við sluppum út yfirgáf-
um við staðinn. Okkur fannst þetta
ógurlega gaman.“
Eftir örfáar uppákomur í þessum
dúr yfirgáfu piltarnir landið:
„Nokkrum dögum eftir frumsýn-
ingu fluttum við út til Costa del Sol,
með mömmu.“ Það var þó ekki
frægðin sem hrakti þá brott, þeir
höfðu þegar alið manninn að nokkru
á Spáni. Þar bjó síðan Vilhelm og
starfaði við hitt og þetta þar til fyrir
þremur árum, að hann flutti til Ís-
lands. „Jú, auðvitað veltum við því
fyrir okkur þá að starfa við leiklist.
En ég held ég sé því fegnastur að
svo fór ekki, þetta virðist vera bölv-
að hark.“
Jón Oddur og Jón Bjarni eru
hvergi gleymdir. Samstarfsmenn
Vilhelms í Borgarnesi vildu að vísu í
fyrstu ekki trúa að hann hefði leikið
í myndinni. „Þau féllust þó á það að
lokum, og nú veit þetta öll sveitin.“
„Ég er eiginlega hálfur Spánverji
og hálfur Íslendingur núna,“ segir
Vilhelm. „Allir vinir mínir búa á
Spáni, og ég sakna þeirra. Bróðir
minn er líka giftur þarna úti. Ég
ætla að kíkja í heimsókn í sept-
ember.“
Kveiktum
í hlutum
og svona
Vilhelm hefur lengst af búið á
Spáni en er nú fluttur í Borg-
arfjörð.
Vilhelm Jósefs (t.v.) og Páll Jósefs ásamt Sólrúnu Yngvadóttur.Jón Oddur og Jón
Bjarni er byggð á bók-
um Guðrúnar Helga-
dóttur. Prakkararnir
takast á við íslenskt
borgarlíf kringum
1980, reglur fullorð-
inna, umhyggju fyrir
minni máttar, efn-
ishyggju og dauða.
Land og synir er gerð
eftir skáldsögu Indriða
G. Þorsteinssonar.
Sögulegt baksvið henn-
ar er flutningur Íslend-
inga úr sveitum til
bæja. Bóndasonurinn
Einar vill yfirgefa jörð
þegar faðir hans deyr.