Morgunblaðið - 09.08.2001, Qupperneq 7
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 B 7
FÓLK
BALDUR Aðalsteinsson, ung-
mennalandsliðsmaður í knattspyrnu,
skrifaði undir nýjan samning við ÍA
á þriðjudag og er samningurinn til
tveggja ára. Baldur, sem er 21 árs
gamall, hefur leikið með ÍA frá árinu
1999 en áður hafði hann leikið með
Völsungi í heimabæ sínum, Húsavík.
Á þremur keppnistímabilum með ÍA
hefur Baldur leikið alls 35 deildar-
leiki og skorað þrjú mörk.
GYLFI Þór Orrason, milliríkja-
dómari í knattspyrnu, dæmir í dag
leik í Lettlandi á milli FC Dinaborg
og NK Osijek. Aðstoðardómarar
hans eru Einar Guðmundsson og
Sigurður Þór Þórsson, en Jóhannes
Valgeirsson er fjórði dómari.
EGILL Már Markússon dæmir
leik í Hvíta-Rússlandi – viðureign
Shakhtior Soligorsk og CSKA Sofía.
Eyjólfur Finnsson og Gunnar Gylfa-
son eru aðstoðardómarar, en Bragi
Bergmann fjórði dómari.
TVEIR leikmenn úr efstu deild
karla voru úrskurðaðir í leikbann á
fundi aganefndar KSÍ í fyrrakvöld.
Bjarki Pétursson, Breiðabliki, fékk
eins leiks bann vegna brottvísunar
og missir því af leik Blika gegn Fylki
á mánudag og Bjarnólfur Lárusson,
ÍBV, fékk sömuleiðs eins leiks bann
vegna fjögurra gulra spjalda og
hann verður því fjarri góðu gamni
þegar Eyjamenn sækja KR-inga
heim á sunnudaginn.
ÍR-ingurinn Arnór Gunnarsson
var úrskurðaður í tveggja leikja
bann og félagi hans, Hjörtur Fjeld-
sted, í eins leiks bann en báðir voru
þeir reknir af leikvelli gegn Þrótti á
dögunum. Einn leikmaður úr 1. deild
til viðbótar fékk eins leiks bann,
Englendingurinn Michael David
Carter úr Leiftri.
EFTIRTALDIR leikmenn sem
leika í 2. deild voru úrskurðaðir í
leikbönn: Brynjar Þór Gestsson,
Haukum, Almir Mesetovic, Sindra,
Emil Sigurðsson og Hilmar Þór
Hákonarson úr Skallagrími, Gunn-
ar Jarl Jónsson, Leikni R. og Karl
Finnbogason, Víði.
GUÐNI Bergsson og félagar hans
í enska úrvalsdeildarliðinu Bolton
töpuðu í vináttuleik fyrir spænska 1.
deildarliðinu Alaves í fyrrakvöld,
2:0. Guðni lék allan leikinn en þetta
var annað tap Bolton fyrir spænsku
liði á nokkrum dögum en liðið tapaði
um helgina fyrir Atletico Bilbao, 1:0.
RÍKHARÐUR Daðason verður
ekki með Stoke þegar liðið mætir
QPR í fyrstu umferð ensku 2. deild-
arinnar sem hefst á laugardaginn.
Ríkharður hefur átt við meiðsli að
stríða í hné en hann meiddist á æf-
ingaferðalagi Stoke til Austurríkis í
síðasta mánuði. Meiðslin gera það að
verkum að Ríkharður getur heldur
ekki verið með íslenska landsliðinu
sem mætir Pólverjum á Laugardals-
vellinum í næstu viku.
NÍGERÍSKI landsliðsmaðurinn
Celestine Babayaro skrifaði undir
samning við Chelsea í gær og rennur
samningurinn út árið 2005. Babay-
aro er 22 ára gamall og hefur leikið
85 leiki með Chelsea frá því hann
kom til liðsins árið 1997 frá belgíska
félaginu Anderlecht. Babayaro mun
berjast um vinstri bakvarðarstöðuna
við Graeme Le Saux en Jon Harley
sem einnig hefur leikið í þeirri stöðu
hefur ákveðið að fara til Fulham.
FÉLAGI Babayaro í nígeríska
landsliðinu, Finidi George, mun
leika með Ipswich á næsta keppn-
istímabili. George lék með spænska
liðinu Real Mallorca og hefur nú
þegar samið við Ipswich um kaup og
kjör en spænska liðið fær rúmlega
400 milljónir króna í sinn hlut.
GLENN Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, er áhyggjufullur
vegna meiðsla í herbúðum liðsins.
Teddy Sheringham og Stephen
Carr verða örugglega ekki með í
fyrstu leikjum Tottenham í úrvals-
deildinni, Sheringham er meiddur í
hásin og Carr í hné. Þá er Tim
Sherwood meiddur á ökkla.
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ekki yrði um miklar
áherslubreytingar í
leik liðsins í Belgíu
að ræða. „Byrjunar-
liðið verður að öllum
líkindum það sama
og í undanförnum deildarleikjum.
Við munum leika áfram 4:3:3 og
Belgarnir gera slíkt hið sama. Það
ætti að henta okkur ágætlega en það
er ekkert leyndarmál að aðaláhersl-
an hjá okkur verður á að fá ekki á
okkur mark á útivelli og reyna síðan
að nýta þau tækifæri sem í boði
verða. Við eigum að geta komið
þeim á óvart og ætlum okkur að
gera það í kvöld,“ sagði Ólafur.
Forsetinn boðar markaregn
gegn Íslendingunum
Í Belgíu búast flestir við því að
baráttan um meistaratitilinn standi
á milli Anderlecht og Brugge, en
félögin skáru sig nokkuð úr í fyrra
þar sem Anderlecht stóð uppi sem
meistari. Brugge hefur kostað miklu
til að ná árangri og á þessu ári er
áætlað að velta félagsins verði um
1,6 milljarðar króna.
Í belgískum fjölmiðlum er haft
eftir forseta Club Brugge, Van
Maele, að hann telji að Brugge muni
skora mörg mörk gegn ÍA og í báð-
um leikjunum loknum ætti íslenska
liðið að hafa fengið á sig a.m.k. tíu
mörk. Unglingaþjálfari liðsins,
Cedo Janvinski, reyndi að draga úr
ummælum forsetans en Janvinski
var hér á landi fyrir skemmstu og sá
ÍA leggja Keflvíkinga að velli á úti-
velli. „Framherji liðsins, Hjörtur
Hjartarson, er hættulegasti leik-
maður liðsins og við verðum að gæta
hans vel. Miðvarðaparið Gunnlaug-
ur Jónsson og Reynir Leósson, eru
hávaxnir, fljótir og sterkir og það
verður ekki létt að komst fram hjá
þeim. Það má búast við að leikmenn
ÍA verjist af krafti gegn okkur í
Belgíu og þetta verður án efa mjög
erfiður leikur,“ segir Janvinski við
belgíska fjölmiðla. Norðmaðurinn
Trond Sollied, sem er þjálfari
Brugge, hefur lítið tjáð sig um leik-
inn að undanförnu. Sollied á í nokkr-
um erfiðleikum með að stilla upp
reynslumiklum varnarmönnum
gegn ÍA og samkvæmt öllu verður
varnarlína liðsins skipuð ungum og
óreyndum leikmönnum sem ætti að
auka möguleika Skagamanna á að
skora mark á útivelli.
Við ætlum að koma
þeim á óvart í Brugge
AKURNESINGAR leika fyrri leik sinn í forkeppni Evrópukeppni
félagsliða í Belgíu í kvöld þegar liðið sækir Club Brugge heim. Þetta
er annað árið í röð sem ÍA leikur gegn belgísku liði í Evrópukeppni
en árið 1999 tapaði ÍA fyrir Lokeren í 2. umferð Intertoto-keppn-
innar og fyrir ári töpuðu Skagamenn, 6:2 samanlagt, fyrir Gent í for-
keppni Evrópukeppni félagsliða, en Kári Steinn Reynisson og Har-
aldur Hinriksson skoruðu mörk liðsins á útivelli.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
Í samtali við Morgunblaðið sagðistBjarni Jóhannsson, þjálfari Fylk-
ismanna, vera hæfilega bjartsýnn á
gott gengi í viður-
eignum félaganna en
varaði þó menn við
að reisa skýjaborgir.
„Það er nokkuð ljóst
að við verðum að eiga toppleiki til að
komast áfram í keppninni en ef smá-
skammtur af heppni er með í för þá
ættum viðað geta strítt þeim veru-
lega,“ sagði Bjarni.
Hvað leggið þið upp með fyrir
fyrri leikinn gegn Pogon Szczecin?
„Við förum með það að markmiði
að vinna leikinn. Þá er mjög mikil-
vægt að við fáum ekki á okkur mark
hér á heimavelli. Við vitum að það er
við ramman reip að draga þar sem
við erum langt á eftir í styrkleika-
lista miðað við pólsk lið en þrátt fyrir
það megum við ekki hugsa eins og
litli maðurinn – heldur bíta á jaxlinn
og gera okkar besta þegar á hólminn
er komið.“
Ertu búinn að kynna þér lið mót-
herjanna vel?
„Ég tel að ég sé búinn að vinna al-
veg þokkalega heimavinnu. Ég er
búinn að kynna mér hvaða leikaðferð
þeir nota og veit hvar möguleikar
okkar liggja í þessu. Það vildi svo
skemmtilega til að við mættum liðinu
á æfingamóti á Spáni í febrúar en
bæði lið eru mikið breytt síðan þá og
því er sú viðureign ekki marktæk.“
Verður eflaust mikil stemmn-
ing á Laugardalsvelli
Nú er mikil stemmning í herbúð-
um Fylkis fyrir leikinn – skiptir slík-
ur stuðningur miklu máli?
„Það er engin spurning að stuðn-
ingur áhangenda Fylkis skiptir tölu-
verðu máli þegar komið er í svona
leiki. Við höfum átt því láni að fagna
hér í Árbænum að það skiptir ekki
máli hvar leikir sem við spilum eru –
alltaf virðast stuðningsmenn liðsins
fylkja sér saman um að styðja sitt lið.
Það verður eflaust mikil stemmning
á Laugardalsvellinum og vonumst
við til að sjá sem flesta því þetta
pólska lið er mjög gott og með marga
skemmtilega leikmenn.“
Þá sagði Bjarni að þó svo að Fylkir
væri að spila sinn fyrsta Evrópuleik,
væru nokkrir leikmenn sem hefðu
spilað Evrópuleiki. „Steingrímur Jó-
hannesson á að baki að ég held fjór-
tán Evrópuleiki, einnig hafa Sverrir
Sverrisson og Alexander Högnason
spilað leiki í Evrópukeppnum. En
fyrst og fremst förum við í leikinn til
að njóta dagsins og síðan verða þess-
ir leikir góð viðbót í reynslubanka
leikmanna,“ sagði Bjarni.
Síðari leikur liðanna fer fram
fimmtudaginn 22. ágúst og er flogið
til Kaupmannahafnar 21. ágúst og
þaðan til Szczecin í Póllandi.
Megum ekki hugsa
eins og litli maðurinn
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fylkismenn hafa fagnað mörgum sigrum að undanförnu. Ná þeir að fagna sigri í sínum fyrsta
Evrópuleik, eins og Grindvíkingar gerðu á dögunum?
FYLKIR tekur þátt í Evrópu-
keppni í knattspyrnu í fyrsta
skiptið í sögu félagsins og er
mótherjinn Pogon Szczecin frá
Póllandi. Dagurinn er því merki-
legur í sögu Fylkismanna. Pog-
on Szczecin hefur aftur á móti
spilað tvisvar sinnum í Evrópu-
keppni, síðast 1987. Síðari leik-
ur liðanna fer fram í Póllandi 22.
ágúst.
Skapti Örn
Ólafsson
skrifar
Fylkismenn og Skagamenn verða í sviðsljósinu í Evrópukeppninni