Morgunblaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. ÁGÚST 2001 C 11HeimiliFasteignir
arkitektúr. Því byggingar ættu í
raun réttri að vera eins færanlegar
og hver önnur mannanna verk. Nú-
tímatækni býður vissulega upp á það
og gamaldags rótarskot húsa er ein-
göngu tilkomið vegna þyngsla þeirra
fyrrum. Í eldfjallalöndum ætti ekki
síst að hugsa fyrir færanlegum hús-
um – t.d. þar sem hraun er fyrir.
Því gosið í Vestmannaeyjum um
árið kostaði þjóðin a.m.k. eina veru-
lega gengisfellingu í fasteignaupp-
bótum. – Það kemur svo málinu ekk-
ert við að menn læra í erlendum
arkitektaskólum að hús séu rótföst
fyrirbæri. Rétt eins og Newton kall-
inn sem miðaði kenningar sínar um
aðdráttarafl jarðarinnar við þann
misskilning að kyrrstaða væri eðli
allra hluta í geimnum.
Næst komum við að húsi TAZ-
dagblaðsins sem auðvitað er Vestur-
Berlínarmegin. Þetta hús er sérstak-
lega skemmtilega útfærður módern-
ismi með tæknilegu ívafi. Fyrir um
tuttugu árum ákvað TAZ-fyrirtækið
að kaupa gamalt hús við Koch-stræti
(til hægri á myndinni) og byggja síð-
an við annað eins rými.
Gamla húsið er frá 1906 en mjög
framúrstefnulegt fyrir þann tíma. Á
því eru þegar þessar útvöxnu boga-
línur sem seinna urðu eitt af aðal-
einkennum póstmódernismans. Og
glerið er ekki sparað þá fyrir daga
miðstöðvarhitunar. Hins vegar hefur
arkitektinum tekist einkar vel upp
með að byggja við gamla húsið án
þess að skemma það sem fyrir var.
Þarna standa nú tvær kynslóðir húsa
hlið við hlið og bara spurningin hvort
þeirra eldist betur? – Ég veðja á
aldamótahúsið.
Hefðbundinn kassi
og frjálst form
Við rekumst enn á nokkur hús
sem æpa á okkur: Fyrst verður fyrir
skemmtilegur endir á húsalengju
neðarlega við Markgrafen-stræti.
Gott dæmi um nútímaarkitektúr þar
sem blandað er saman gamla hefð-
bundna kassanum og frjálsu formi.
Í Dúfnagötu á bakaleiðinni til
neðanjarðarlestarinnar er útfarið
gamalt hús sem stendur þar gleið-
brosandi eftir vel heppnaða andlits-
lyftingu. Og að lokum er svo í næstu
götu við ný bygging belgíska sendi-
ráðsins sem kemur fyrir sjónir eins
og alvarleg prestfrú með sex gul-
rauðar lappir.
Um leið og gengið er niður í lest-
aropið til að ná lest númer tvö –
rennur í hugann að rétt sé að bera
næst niður í skoðun á nýjum arki-
tektúr – fyrir þessar síður – við suð-
urenda Friedrich-strætis þar sem
heitir Mehring-torg – en það fyrst
eftir viku. Og í því bili rennur neð-
anjarðarlest númer tvö að brautar-
pallinum undir Húsfógetatorgi á leið
að Alexandertorgi.
Belgíska sendiráðið. Glaðhlakkalegt uppgert hús við Dúfnagötu.
Bakgarður í húsareit Aldo Rossi.
Endaraðhús við Markgrafenstræti.
kingdome/@mailberlin.net
Við Gendarmen-markaðinn.
ATVINNUHÚSNÆÐI
LAUGAVEGUR Mjög gott verslunar-
húsnæði á horni Laugavegs og Baróns-
stígs. Húsnæðið er með nokkurra ára
leigusamning. Nánari uppl. á skrifstofunni.
EINBÝLISHÚS
VESTURHÓLAR Mjög gott 197,5 fm
einbýlishús með lítilli aukaíbúð, fjórum
svefnherbergjum, stofu og borðstofu með
glæsilegu útsýni. Arinn í stofu. Auk þess
eru óskráðir 80 fm í kjallara. Góður bílskúr
29,3 fm. Verð kr. 23,9 millj.
HÆÐIR
NJÖRVASUND Um 100 fm sérhæð í
tvíbýlishúsi ásamt 40 fm bílskúr. Skiptist í
samliggjandi stofur, tvö herbergi, rúmgott
eldhús og baðherb. Parket á gólfum.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara. Falleg
lóð í góðu umhverfi. Verð 15,0 millj.
4RA - 5 HERBERGJA
MEISTARAVELLIR - MEÐ BÍL-
SKÚR 4ra herb. íbúð 104,3 fm á 2. hæð
sem skiptist í 2-3 svefnherb., rúmgóða
stofu með útgangi á svalir, eldhús með
borðkróki, baðherb. með baðkari og
glugga. Bílskúr m/gryfju fylgir, 20,8 fm.
Skuldlaus eign. Verð 13,0 millj.
HÁALEITISBRAUT Mjög góð 4ra
herbergja íbúð á 4. hæð í góðu fjölbýlis-
húsi. Rúmgóð stofa með nýju parketi, þrjú
svefnherb. Flísalagt bað og fallegt eldhús
með þvottahúsi innaf. Mikið útsýni. Sam-
eign mjög snyrtileg.
SKÓGARÁS Mjög falleg 107,7 fm
íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi ásamt
vönduðum 25,3 fm bílskúr. Þrjú svefnher-
bergi, stofa með suðursvölum, fallega inn-
réttað eldhús með borðkróki, baðherbergi
með baðkari, stórum sturtuklefa og góð-
um innréttingum. Sérþvottahús í íbúð.
Parket og flísar á gólfum. Áhvíl. 5,3 millj.
Verð 14,9 millj.
3JA-4 HERBERGJA
ÞÓRUFELL 3ja herb. íbúð á 3. hæð í
góðu fjölbýli, töluvert endurnýjuð, m.a.
nýleg innrétting í eldhúsi svo og gler og
gluggar. Vestursvalir með miklu útsýni.
LAUTASMÁRI Falleg og nýleg 3ja
herbergja íbúð á 10. hæð í góðu lyftuhúsi.
Sérþvottahús í íbúð. Parket og flísar á
gólfum. Suðursvalir. Áhvílandi húsbréfalán
6,0 millj. Verð 12,2 millj.
BREIÐAVÍK Glæsileg og mjög rúm-
góð 3ja herb. íbúð, 109 fm, í góðu fjölbýli.
Rúmgóð stofa með suðursvölum og fal-
legt flísalagt baðherb. Sérþvottahús i
íbúð. Góð áhvílandi lán. Verð 12,9 millj.
SUMARHÚS
ODDSHOLT Í nágrenni Minni-Borgar,
Grímsnesi, er til sölu nærri fullbúið 50,8
fm sumarhús á 5.000 fm eignarlóð, tilbú-
ið til afhendingar strax.
Þórhildur Sandholt
lögfr. og lögg. fast.sali.
Gsm 898 8545
Gísli Sigurbjörnsson
sölumaður
FAX 568 3231
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
Fjöldi annarra eigna á skrá
Digranesvegur 121 fm á hæð með
sérinngangi. Fjögur svefnherb. Parket. Hús
nýlega klætt að utan með Steni. Nýtt járn á
þaki. Suðurlóð. V. 14 millj. (901)
Holtagerði 116 fm efri hæð með sér-
inngangi í tvíbýli. Nýleg innrétting í eldhúsi.
Endurnýjaðar hitalagnir í íbúð. Bílskúr um
22 fm. Laus fljótl. V. 14 millj.(835)
Hlíðarhjalli 130 fm neðri hæð í tvíbýli.
Þrjú svefnherbergi. Stæði í upphituðu
bílahúsi. Laus í okt. (875)
Álfhólsvegur 135 fm miðhæð í
þríbýli. 4 svefnherbergi. Yfirbyggðar suður-
og vestursvalir. 25 fm bílskúr. Mikið útsýni.
(908)
2JA-5 HERBERGJA ÍBÚÐIR
Hamraborg Góð 60 fm 2ja herb. á 8.
hæð. Suðursvalir. Vesturgluggi í borðkrók í
eldhúsi. Mikið útsýni. Laus strax.
Einkasala. (901)
Álfatún 107 fm glæsileg 4ra herb. íbúð
á efstu hæð. Þrjú svefnh. Parket á stofu og
herb. Suðursvalir. Mikið útsýni. Bílskúr. V.
14,8 millj.(900)
Lundarbrekka 104 fm endaíbúð á 2.
hæð. Þrjú svefnherb. Flísar á baði. Parket
á stofu. Svalainngangur. Mikið útsýni (907)
NÝBYGGINGAR
Reynihvammur 60 fm neðri hæð
með sérinng. í tvíbýli. Afh. fullfrágengin að
utan án málningar og fokheld að innan.
Tilb. til afhendingar. V. 8,5 millj.
SUMAHÚS OG LÓÐIR
Hraunborgir - Grímsnesi 38 fm
mjög góður bústaður m. hita og rafmagni.
50 fm sólpallur. Mikil ræktun og mikið
útsýni.
EINBÝLISHÚS
Hraunbraut Glæsilegt 191 fm einbýli
á tveimur hæðum, 4 svefnherb., arinn í
stofu, nýleg innrétting í eldhúsi,
enduðnýjuð og flísalögð baðherbergi. 24
fm bílskúr. Mikið útsýni. Laust 1. sept. V.
24 millj.(910)
Melgerði - Kópavogi Eldra
einbýli, hæð og ris. Fjögur svefnh. Stór lóð.
Bílskúrsréttur. V. 12 m. V. 13 millj.(917)
Víghólastígur 158 fm einbýli á
tveimur hæðum. Tvær saml. stofur, þrjú
svefnh. Pottur í garði. Mjög falleg lóð. 70
fm bílskúr. V. 19 millj. (911)
RAÐHÚS OG PARHÚS
Fjallalind 145 fm glæsilegt parhús á
einni hæð. Þrjú svefnherbergi. 25 fm
bílskúr af heildarst. (916)
Birkigrund 126 fm raðhús á tveimur
hæðum. Fjögur svefnherbergi. Parket á
stofu. Bílskúrsréttur. (876)
Jörfagrund - Kjalarnesi 145 fm
raðhús á einni hæð. Þrjú rúmgóð
svefnherbergi. Möguleiki á 4. herb. í risi.
Rúmgóð stofa. 31 fm bílskúr. Mikið útsýni.
Sjón er sögu ríkari. Áhv. 9,7 m. (848)
SÉRHÆÐIR
Sogavegur Glæsileg 134 fm miðhæð
með sérinngangi í þríbýli. Þrjú svefnherb.
Flísalagt baðherb. og gestasnyrting. 25 fm
bílskúr. Laust fljótlega. V. 20 millj. (913)