Vísir - 03.08.1979, Blaðsíða 8

Vísir - 03.08.1979, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 2. ágúst 1979. 8 utgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjdri: Davifi Guðmundsson Ritstjórar: Olafur Ragnarsson Höröur Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elías Snæland Jónsson. Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. . Blafiamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Indriöason, Gunnar vtuglysinga-og solustjóri: Páll Stefánsson Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Páll Magnússon, Sigurður Sigurðsson, ' Auglýsingar og skrifstofur: Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Sfðumúla 8. Simar 84611 og 82260. Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit Afgreifisla: Stakkholti 2-4 simi 84611. og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Ritstjórn: Sifiumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 3J00á mánuðr innanlands. Verð T lausasölu kr. too eintakið. „Prentun Blaðaprent h/f Lítum raunsætt á stðöuna Þeir islendingar, sem telja a6 viö munum I framtiöinni geta eignast Jan Mayen, veröa aö fara aöllta á taflstööuna raunsæjum augum, — annars er hætt viö aö viö töpum bæöi hafréttarskákinni og loönustofninum. Búast má nú við/ að íslenskir loðnusjómenn fari brátt að ókyrrast í höfnum, sökum þess að íslensk stjórnvöld hafa bannað þeim að hefja loðnu- veiðar við Jan Mayen fyrr en eftir tæpar þrjár vikur. Stöðugar fréttir berast þessa dagana af afla Norðmanna á loðnumiðum þar nyrðra og er búist við að 150 til 200 skip muni verða komin til veiða frá Noregi innan skamms. Eins og bent var á í Vísi í gær getur norski loðnu- flotinn flutt heim svo sem 100 þúsund tonn í einni veiðiferð, eða það aflamagn sem íslendingar vildu semja um að Norðmenn veiddu úr loðnustof ninum. Ekkert formlegt samkomulag var gert um það atriði og er alls- endis óvíst, hvort norska stjórnin treystir sér til þess að stöðva veiðarnar við Jan Mayen, þegar því marki er náð, ekki síst vegna þess, hve mikill þrýstingur er á hana frá stjórnarandstöðuþing- mönnum í Noregi og útgerðar- mönnum, sem telja hana ekki hafa staðið sig nægilega vel í Jan Mayen-málinu. Kjartan Jóhannsson, sjávar- útvegsráðherra, staðfesti í Vísi i gær, að hann myndi hitta norska ráðherra á norrænum jafnaðar- mannafundi í Kaupmannahöfn um aðra helgi, og má því búast við að reynt verði að komast að niðurstöðu varðandi Jan Mayen- deiluna. Svo virðist sem loðnugangan við Jan Mayen stef ni nú í norður- átt og fjarlægist íslensku 200 mílna mörkin þannig að ólíklegt er að dragi til tíðinda á umdeilda svæðinu sitt hvoru megin við miðlínuna næstu dagana. Aftur á móti eykst stórlega hættan á þvi að stórir flotar veiðiskipa og verksmiðjuskipa frá austantjaldslöndunum, sem frést hefur af í nánd við Jan Mayen komi á loðnumiðin og dæli upp slíku loðnumagni að grund- völlur loðnuvertíðar hér við land næsta vetur bresti algerlega. Þeir aðilar hérlendis, sern gera sér vonir um að við getum í framtíðinni algerlega eignast Jan Mayen og lögsöguna um- hverfis eyjuna,verða að fara að líta raunsæjum augum á stöðuna og gera sér grein fyrir, að við erum þegar komnir í tímahrak og getum tapað þessari hafréttar- skák ef við leikum ekki rétt á næstu dögum. Þegar við loksins yrðum að sætta okkur við endanleg taf llok; yfirráð Norðmanna á eyjunni, útfærslu þeirra í 200 milur og hugsanlega miðlínureglu i átt til íslands, gæti svo farið að ryk- suguskip Rússa yrðu búin að sjúga upp á þessu hafsvæði allan íslenska loðnustofninn. Hvar stæðum við þá? „Þaö þýöir ekki aö vera að rlfast út I Rlkisútvarpiö. Eöli sinu sam- kvæmt veröur þvi ekki haggaö”, segir ólafur Hauksson. Aumingja tónlistar- deild útvarpsins. Hún á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Skamm- irnar dynja á henni, for- ráðamönnum og starfs- fólki. Hlustendakönnun útvarpsins hefur nefni- lega leitt í Ijós að tónlist- ardeildin leikur helst þá tónlist sem enginn vill hlusta á. Tónlistardeildin reynir að sjálfsögðu að bera hönd fyrir höfuð sér. Þetta er Ríkisútvarpið með stóru erri, segir hún, og það þýðir ekki að spila bara tómt popp. Það verður að mennta lýðinn tónlistarlega. Unnendur léttrar tón- listar geysast fram á rit- völlinn, og segja að ástandið sé ófært. Það verði að breyta um tón- listarstefnu. Burt með óperufauskana sem ráða öllu í útvarpinu, segja þeir. En það er verið aö deila um keisarans skegg. Rikisútvarpiö getur ekki sinnt óskum fjöldans. Þaö hefur aldrei sinnt óskum fjöldans, og skoöanakönnun sem forráöa- menn þess taka hvort sem er ekkert mark á, mun ekki breyta neinu þar um. Hversu mikiö sem menn ham- ast, þá veröa litlar breytingar á Rikisútvarpinu. Þaö er i eöli sinu ihaldssöm stofnun. Stjórnend- urnir eru ihaldssamir. Dag- skrárstjórn Rikisútvarpsins er i höndum útvarpsráös. Útvarps- ráö er skipaö stjórnmálamönn- um, og stjórnmálamenn eru ekki þekktir fyrir aö vera skemmtilegir. Hvernig er hægt aö ætlast til aö þeir geri skemmtilega dagskrá. Rikisútvarpiö þarf fyrst og fremst aö þjóna öllum. Þaö sem einum likar fellur ekki öörum. Þess vegna litur hlustendakönn- un út eins og mest allt efni Rikis- útvarpsins sé illa þokkaö. Þaö þýöir sem sagt ekki aö Ólafur Hauksson, blaöamaöur, skrifar I tilefni af hlustenda- könnun Rikisútvarpsins og segir aö hlustandinn muni aldrei fá þaö sem hann vilji á meöan rlk- iö einoki útvarpsrekstur hér á landi, en meö þvi aö gefa út- varpsrekstur frjálsan sé best hægtaösinna óskum hlustenda. vera aö rifast út i Rikisútvarpiö. Eöli sinu samkvæmt veröur þvi ekki haggaö. Rikisútvarpiö getur ekki gert miklu betur en þaö gerir nú þeg- ar. Ef popp réöi rikjum I tón- listarflutningi Rikisútvarpsins, þá mundu unnendur annarrar tónlistar ærast. Lausn vandans er ekki sú aö rifast I tónlistardeild rikisút- varpsins. Lausn vandans er aö hætta rekstri Rlkisútvarps og gefa útvarpsrekstur frjálsan. Ein dagskrá fullnægir engum. Dagskrárnar veröa aö vera þrjár, fjórar, eöa tiu eöa fimmtán, allt eftir þvi hvaö markaöurinn ber. Þaö þýöir ekki aö leita til Rikisútvarpsins eftir fjölgun dagskráa. tltvarpsstjóri segir I nýlegu viötali i Helgarpóstinum aö fjölgun rása sé svo dýrt fyrirtæki aö hann sjái ekki fram á framkvæmd þess. Meö þvi aö gefa útvarpsrekst- ur frjálsan er best hægt aö sinna óskum hlustenda. Þá veröur úr fjölda dagskráa aö velja, og fleiri ættu aö finna eitthvaö viö sitt hæfi. Eðli frjáls útvarpsreksturs gefur hlustendum lika betra tækifæri til að veita aöhald. Frjálsar útvarpsstöðvar veröa aö vera vakandi fyrir þvi að halda hlustendum sinum, ella missa þær auglýsingatekjur. Þeir sem eru á móti frjálsum rekstri útvarpsstööva bera oft viö aö slikar stöövar mundu ein- göngu bjóöa upp á popp. En þeir hafa ekkert til að rökstyöja til- gátur sinar. t löndum þar sem rekstur útvarpsstööva er frjáls, bjóöa útvarpsstöövar upp á jafn mikla breidd og rikisútvarpiö islenska, ef ekki meiri. Sá er munurinn, aö ef útvarpsrekstur er gefinn frjáls, þá fá hlustend- ur að velja. Þegar þeir hafa eingöngu Rikisútvarp, þá er val- iö ofan I þá. Allt þaö starfsfólk sem nú heldur uppi dagskrá Rlkisút- varpsins gæti hæglega rekiö sex til sjö frjálsar útvarpsstöövar. Slikur rekstur er nefnilega yfir- leitt ódýr, þar sem stöövarnar sérhæfa sig i gerö útvarpsefnis, og eru staöbundnar. Þá er held- ur ekki miðaö viö aö hver út- varpsstöð þurfi aö reka 100 milljón króna sinfóniuhljóm- sveit. Ofan á allt er einkarekstur hagkvæmari en rfkisrekstur. Sama hversu djöflast er, þá batnar Rfkisútvarpiö ekki nema aö vissu marki. Hlustandinn fær aldrei þaö sem hann vill ef eir.okun ríkisins á útvarpinu heldur áfram. Þvi er nauðsyn á aö gefa útvarpsrekstur frjáls- an.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.