Vísir - 27.08.1979, Side 20

Vísir - 27.08.1979, Side 20
vísm Mánudagur 27. ágúst 1979. Finnsk srafík í Norræna húsinu Sýning á finnskri nútima grafik var opnuö í Norræna húsinu á laugardaginn. Þar sýna sextán finnskir graffldista- menn hundraö tuttugu og átta verk. Grafik hefur blómstrað i Finnlandi allt frá 1968 eins og annarsstaðar á Norðurlöndum og áhugi á þessari listgrein hefur aukist. A sýningunni i Norræna húsinu koma fram allar graf- Iskar aðferðir, svo sem æting, trérista, steinþrykk og sáld- þrykk. Meðal þeirra sem þarna eiga verk eru nokkrir af þekkt- ustu listamönnum Finnlands eins og Peníti Kaskipuro, Vainö Rauuvinen og Ina Colliander. Sýningin kemur hingað frá Listasafni N.-Jótlands I Álaborg og verður opin alla daga frá kl. 14-19. Grafíksýn ingunni lýkur sunnudaginn 9. september. —JM Aðdragandl styrjaldar Komin er út hjá Almenna bókafélaginu fyrsta bókin I bókaflokknum „Aðdragandi styrjaldareftir RobertT. Elson, rithöfund sem var blaðamaður hjá Time-Life um áratuga skeið. Þýðandi er Jón 0. Ed- wald, og ritstjóri hinnar islensku útgáfu bókaflokksins er örnólfur Thorlacius. „Aðdragandi styrjaldar” hefst á frásögn um lok fyrri heimsstyr jaldar og um Versala- samningana og lýkur þar sem innrás í Pólland er aö hefjast Auk frásagna um aödraganda striðs i Evrópu, byltinguna i Rússlandi, kreppuna og upp- gang fasista i ftaliu og nasista i Þýskalandi, Spánarstriðið, hernám Tékkóslóvakiu og Austurrikis, — er greint frá ástandi og átökum i öðrum heimsálfum. Svo sem, innrás Itala i' Abbesinu, miílistriðs- árunum i Bandarikjunum og vaxandi spennu milli banda- rikjamanna og Japana, borg- arastyrjöld i Kina og innrás Japana i landið. Höfundur bókarinnar hafði sér til halds og trausts ýmsa bandaríska og evrópska sér- fræðinga um millistriðsárin. JM Kvikmyndasýningar á vegum MIR Sovésk kvikmynda- gerö sexiiu ára A þessu hausti eru liöin 60 ár frá upphafi sovéskrar kvikmynda- gerðar og hyggst félagsstjórn MIR, Menningartengsla Islands og Ráðstjórnarrikjanna, minnast afmælisins litillega, fyrst meö kvikmyndasýningum I MÍR-saln- um, Laugavegi, og síöar meö sýn- ingum á nokkrum úrvalsmyndum i einu kvikmyndahúsanna á Reykjavikursvæðinu. Kvikmyndasýningarnar I MIR- salnum verða dagana 25.-27. ágúst. Sýndar veröa þrjár gamlar kvikmyndir, sem telia má klass- Iskar I sovéskri kvikmyndasögu: myndröðin um Maxim og bylting- una, en þessar myndir voru gerð- ar' á árunum 1934-1938 undir stjórn Grigori Kozintsévs og Leo- nid Traubergs. Tvær fyrstu kvik- myndanna um Maxim hafa verið sýndar margoft áður á vegum MIR, en siöasta myndin I rööinni, Viborgarhverfiö, er nú sýnd hér i fyrsta skipti i kvöld kl. 20.30. Elna lelkhuslö með llfsmarkl - segir Jón Júlíusson nýskloaður iramkvæmdasllórl Alhýðulelkhússlns ,,Ég hlakka mikið til að starfa við Albýðuleikþúsið, þvi þarna er ungt og friskt fólk og þetta er eina leikhúsið sem eitthvað lifs- mark var með siðastliðinn vetur að minu mati” sagði Jón Július- son, leikari, sem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Al- þýðuleikhússins. Jón kvaðst ætla að taka sér fri frá leiklistarstörfum næstu eitt til tvö árin, nema eitthvað sér- stakt kæmi upp. Hann sagðist ekki vera alveg ókunnugur starfi sem þessu, þvi þegar hann hefði verið I leikhópnum sem setti upp Skollaleik, en það var sýnt viða innan lands og ut- an, hefðu þeir þurft að annast ailar útréttingar sjálfir. Panta hús, vinna búninga, setja upp leikmynd og allt sem til féll. „Það er samt sem áður margt nýtt i þessu starfi en það leggst afar vel I mig Starfsemi leikhússins er um það bil að hefjast og það verða teknar upp sýningar á nokkrum leikritum sem sýnd vorui fyrra við mikla aðsókn, svo sem Blómarósir, Við borgum ekki og Nornin Baba Jaga. Böðvar Guð- mundsson er að skrifa leikrit sem verður sett upp i Alþýðu- leikhúsinu en að öðru leyti er verið að hefja undirbuninga að vetrarstarfinu þessa dagana,” sagði Jón Júliusson. — JM Jón Júliusson leikari hefur starfað að garðyrkjustörfum I sumar og sést hér i þvi hlutverki. Aihýðuleikhúsið vm slærra húsnæði Reynum áfram að fá Slgtún segir Arnar Jónsson lelkari „Það vantar hvorki áhuga né aðsókn hjá Alþýðuleikhúsinu, heldur húsnæði og aðstöðu” sagði Arnar Jónsson, leikari, þegar Visir spurði um hag leik- hússins sem nú hefur ráðið sér framkvæmdastjóra. Arnar sagði að það væri gert til að samræma starf leikhússins og gera það markvissara. „Fölk nær ekki nógu vel sam- an þegar það er alltaf á hlaup- um og rétt kemst á æfingar” sagði hann. „Það verður þvi bara að ráða fólk með einhver laun, annars missum við það bara i aðrar stöður. Hvort það sé þörf fyrir Alþýðuleikhúsið? Aðsóknin hefur ljóslega sýnt að það er grundvöllur fyrir starfsemi þess. Enhúsnæðiösemviðerum i er svo litið að það er alveg á mörkum að sýningar standi undir sér. Við höfum verið að reyna að komast inn i Sigtún við Austurvöll, en ekki tekist. Póstur og simi er með mötu- neyti fyrir starfsfólk sitt þar I hádeginu, en að öðru leyti er húsiðekki notað. Viðerum ekki búin að gefast upp og munum ýta á að einhver leið verði fundin til að við fáum afnot af húsinu — að minnsta kosti á kvöldin” sagði Arnar Jónsson. —JM Arnar Jónsson Arnar Jónsson I hlutverki Þorleifs Kortssonar I Skollaleik sem Alþýðuleikhúsið sýndi i fyrra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.