Vísir - 19.09.1979, Side 5
VÍSIR
Miövikudagur 19. september 1979
Umsjón:
Guömundur
Pétursson
FJARLÆGJA EITURGASK)
Herliö og slökkviliö i Hamborg hélt áfram I gær viö aö fjarlægja
gamlar skotfærabirgöir og taugagassprengjur, sem fundust f haug
frá striösárunum. Gekk verkiö óhappalaust, en mikill óhugur hefur
verið i borgarbúum vegna eiturgassins, sem er eitt hættulegasta
eiturefnavopn, sem maöurinn hefur fundiö upp.
Carter ætlar að bjðða
sið fram til endur-
kjðrs á næsta ári
Spurningin um framboö Cart-
ers Bandarikjaforseta til endur-
kjörs á næsta ári er ekki lengur,
hvort hann muni gefa kost á sér,
heldurhvenær hannmuni lýsa þvi
yfir.
Jody Powell, blaðafulltrúi
Hvita hússins, sagöi i gær, aö
enginn vafi léki á þvi, aö Carter
mundi gefa kost á sér. Hann
sagöi, aö þaö heföi þó ekki veriö
ákveöiö, hvenær Carter tilkynnti
framboö sitt opinberlega.
Þetta kemur mönnum ekki ýkja
mikíö á óvart, þótt skoöanakann-
anir hafi veriö Carter mjög óhag-
stæöar. Nokkrir helstu ráögjafar
Carters hafa ráölagt honum aö
kunngera framboö sitt hiö fyrsta
til þess aö öölast forskot á Ed-
ward Kennedy, sem talinn er
mundu veita Carter mikla sam-
keppni, ef hann gæfi kost á sér.
Kosningaráögjafar Carters
komu saman á mánudagskvöld til
þess aö ráöa ráöum sinum, um
hvernig Carter eigi aö haga kosn-
ingabaráttunni.
Kennedy öldungadeildarþing-
maöur, sem nýtur miklu meira
fylgis I skoöanakönnunum en
Carter, hefur sagt, aö hann ihugi
aö gefa kost á sér, en muni ekki á-
kveöa sig fyrr en undir árslok.
Dauðvona
Talnlng póstatkvæða
Þetta flóttabarn liggur
dauövona vegna næringar-
skorts i fióttamannabúöum
i Thaiiandi. Bandariskur
læknir, sem var á ferö á
þessum slóöum, tók
myndina og gaf ófagrar
lýsingar á aðbúnaði flótta-
fólksins. Þetta barn naut
t.d. ekki læknisaöstoöar,
fremur en annað flóttafólk
frá Kampútsiu, sem
streymir inn i Thailand og
flytur meö sér fréttir af
hungursneyð, farsóttum og
mannfelli I heimabyggöum
þess.
Kjörstjórnarmenn I Sviþjóö
ljúka i dag talningu póstatkvæöa,
sem úrslit þingkosninganna eru
talin velta á, svo naumur sem at-
kvæöamunur var á sunnudaginn.
Þegar hér er komiö talningu,
viröast vinstri flokkarnir ætla aö
fá 175 þingsæti en hægri flokkarn-
ir 174. Þó hafa miö- og hægri-
flokkarnir 2040 fleiri atkvæöi á
bak viö þingmenn sina.
Þvi geta póstatkvæöin (utan-
kjörstaöaatkvæöi send i pósti)
oröiö til þess aö breyta þing-
mannatölunni, aö venjulega eiga
ihaldsmenn meirihluta I þeim.
Atkvæöamunurinn þykir þvi lik-
legur til að aukast, þegar póstat-
kvæöin hafa bæst viö.
Meö kvöldinu veröur greint frá
niöurstööu talningar póstat-
kvæöa, en aö sænskum lögum
veröur aö endurtelja og endanleg
úrslit munu því ekki liggja fyrir,
fyrr en I næstu viku.
Larsen og
Tal jafnlr
og efstlr
Bent Larsen og Mikhail Tal eru
efstir og jafnir, hvor meö 7 1/2
vinning á millisvæöamótinu i
Riga. Lokiö er þar tiu umferöum.
Tal átti i tiundu umferö hættu-
lega kóngssókn á Van Rimskick
frá Brasillu, en mun hafa yfirsést
og leit út fyrir, þegar skákin fór I
biö, aö hún yröi jafntefli. Larsen
geröi á meöan jafntefli viö
Tseshovsky.
Næstur á eftir þeim kemur
Gheorghiumeö7 vinninga ogeina
biöskák. Polugaevsky hefur 6 1/2
og biöskák og Ribli hefur 5 1/2 og
biöskák. Biöskákin, sem Ghe-
orghiu á óteflda er við Ribli, og
hefur Ribli þar skiptamun yfir og
er sagður hafa unniö tafl.
Fundu 4,5
tonn af
kannabis
Þaö bar veli veiöi hjá bresku
lögreglunni viö húsleitir i
Cornwall og i London, en hún
lagði hald á 4,5 smál- af
kannabis. Er þetta mesta magn
af fikniefnun, sem breska lög-
reglan hefurkomið höndum yfir I
einu.
Þaö er taliö, aö söluverömæti
þessa magns á svarta-
markaönum heföi numiö 10
milljón sterlingspundum.
Tuttugu og tveir Bretar hafa
verið handteknir vegna þessa
máls, þar af þrjár konur. Telur
lögreglan, að þarna hafi komist
upp um einhvera stærsta fikni-
efnahring, sem sögur fara af.
Haföi sá miöstöö sina I London.
AllsherjarDingiD komlD
saman á ný
Allsher jarþing Sameinuöu
þjóöanna var sett i gær og kemur
saman i dag til þess aö ákveöa
málaskrá þessa þinghalds.
Strax I byrjun þings, eöa núna á
fóstudaginn, er búist viö höröum
deilum um, hver skuli taka sæti
fulltrúa Kampútsiu, þvi aö viö
setningarathöfnina i gær véfengdi
Vietnam rétt Pol Pot-stjórnarinn-
ar fyrrverandi til þess að koma
fram fyrir hönd Kampútsfu.
Vietnam hefur æ ofan I æ, auk
austantjaldsrikjanna, krafist
þess, aö stjórn Heng Samrin, sem
fer meö völd I Phnom Penh, veröi
viöurkennd.
Meöal þeirra, sem tóku til máls
viö setningu allsherjarþingsins,
var Andrei Gromyko, utanrikis-
ráöherra Sovétrlkjanna, en hann
er formaöur sovésku sendinefnd-
arinnar. 1 ræöu sinni lagöi Grom-
yko mikla áherslu á mikilvægi
slökunarstefnunnar.