Vísir - 19.09.1979, Page 9

Vísir - 19.09.1979, Page 9
9 VlSIR MiOvikudagur 19. september 1979 V A síöustu árum hafa umræður um landbúnaðarmál verið háværar og oft allt annað en málefnalegar. Meðal almennings og í hópi stjórnmálamanna hafa risið upp spámenn# sem virðast hafa ráð undir rifi hverju til lausnar vandamálum landbúnaðarins. Margt í þessum boðskap er heldur lauslega ígrundað og sá grunur læðist að mönnum að það sé ekki ein- göngu áhugi fyrir umbótum á þessu sviði sem ræður ferðinni/ heldur sé litið á landbúnaðarmálin sem „góð mál" í hinu daglega pólitíska þrasi og róttækar tillög- ur í þeim efnum líklegar til vinsælda meðal skatt- greiðenda. Hefur þetta komið greinilega í Ijós í því moldviðri/ sem þyrlað hefur verið upp í sambandi við síðustu hækkun búvara. Hinn almenni skattþegn þessa lands er hins vegar fremur illa i stakk búinn aö dæma um ágæti slikra kenninga. Málefni land- búnaöarins eru sérhæfö og býsna margslungin og hlutlaus fræösla i þeim efnum af skorn- um skammti. Þaö er hins vegar forsenda fyrir þvi aö hægt sé aö koma á skynsamlegum umbótum i landbúnaðarmálum að menn viki til hliöar allri slagoröa- mennsku, geri sér raunhæfa grein fyrir vandanum og séu til- búnir til aö takast á viö hann i alvöru. Vitlaus stefna Þvi er haldið fram aö vandi landbúnaöarins sé afleiöing rangar landbúnaöarstefnu i áratugi. Þessi fullyröing er aö verulegu leyti röng. Þvert á móti var stefnan I fullu gildi allt fram yfir 1960 og er enn i grund- vallaratriöum, þótt löngu sé timabært aö taka suma þætti hennar til endurskoöunar veröur rekunum seint kastaö á þessi grundvallarmarkmiö. Stefnan á rætur að rekja til þess þjóðfélagsástands, sem hér rikti á millistrlðsárunum og á árun- um eftir siöari heimsstyrjöld- ina. A fyrstu áratugum aldarinnar haföi oröiö veruleg breyting á búsetu landsmanna. Þéttbýlis- staöir tóku aö eflast og fólki fækkaöi i sveitum. Landbúnaö- urinn stóö höllum fæti I sam- keppninni viö aöra atvinnuvegi um vinnuafl og fjármagn. Rikjandi var skortur á búvör- um, einkum mjólk og kjör bænda voru mjög bág. A árun- um 1924-1947 var leitast viö aö ráöa bót á þessu ástandi meö margvislegri lagasetningu, sem um leiö markar hina opinberu landbúnaðarstefnu. Megin- markmiö hennar eru aö stuöla aö alhliöa framförum I landbún- aði og þar meö tryggja þjóöinni nægilegt framboö búvara, aö tryggja bændum viðunandi lifs- kjör og aö viöhalda byggöinni um landiö. Stefnan ber vott um stórhug og framsýni þeirra stjórnmálamanna, sem þá voru uppi og er grundvöllur þeirra geysilegu framfara, sem oröiö hafa i landbúnaðinum siöustu áratugina. Framfarir þessar hafa jöfnum höndum komið framleiöendum og neytendum til góöa. Menn ættu aö hafa þaö i huga þegar andmælt er þeim framlögum sem landbúnaöur- inn hefur fengiö af opinberu fé til jarðræktar og húsabóta, aö hér er um óbeina niöurfærslu á verölagi búvara að ræöa, án þessarar aöstoöar og annarrar svipaörar væri verölag búvara mun hærra en nú er. Sömuleiöis hefur ávallt verið tekiö tillit til framleiösluaukningar viö verö- lagningu búvaranna og hagræö- ing i landbúnaöinum þannig komiö neytendum til góöa i lægra vöruveröi. Frá 1940 hefur heildarframleiðslumagn I land- búnaöi þrefaldast þrátt fyrir þaö aö meira en helmingi færra fólk starfar nú viö búvörufram- leiöslu en fyrir 38 árum. A sama Hákon Sigurgrimsson, aö- stoöarmaöur landbúnaðarráö- herra, skrifar hér um land- búnaöarstefnuna og segir meöal annars, aö nú hafi bændur feng- iö i hendur þau stjórntæki, sem þeir hafi svo lengi beöiö eftir, en áhrifa þeirrar stjórnunar muni ekki gæta strax, heldur muni þaö taka nokkur ár aö ná fram- leiöslunni niöur I hæfilegt magn. tima hefur framleiösluverö- mæti á hvern mann fjórfaldast. Allir stjórnmálaflokkarnir komu nokkuö viö sögu þessarar stefnumótunar og ekki var um hana umtalsveröur ágreiningur fyrr en eftir 1960. Stefnubreytingin 1960 Áriö 1960, viö upphaf viöreisn- artimabilsins, var gerö breyting á framleiðsluráöslögunum, sem fól i sér verulega stefnubreyt- ingu. Framleiösla búvara haföi þá aukist töluvert og fariö var aö flytja út kindakjöt i nokkru magni og þaö ár fullnægöi mjólkurframleiöslan I fyrsta sinn innlenda markaönum. Til aö bæta halla af útflutningi kindakjöts var lagt gjald á sölu þess innanlands. Þessu undu viösemjendur bænda I Sex- mannanefnd illa og kröföust niöurfellingar gjaldsins. Réttur framleiöenda til slikrar gjald- töku var hins vegar staöfestur fyrir dómi. Mistök í lagasetningu Þær deilur, sem aö framan er getiö, leiddu til þess aö upp voru tekin ákvæöin um útflutnings- bætur. Það sem fyrir mönnum vakti meö útflutningsbótunum var aö veita bændum vissa tekjutryggingu, þ.e. aö tryggja þeim fullt verö fyrir nokkurt magn framleiöslu, sem væri umfram innlendar þarfir. Þetta var taliö nauösynlegt vegna sveiflna i framleiöslunni af völdum árferöis og átti jafn- framt að vera neytendum trygging fyrir þvi aö ætlö væri nægilegt framboö búvara fyrir innlenda markaöinn. (Jtflutningsbótaákvæöin út af fyrir sig eru skynsamleg og raunar i fullu gildi enn i dag, en viö setningu þeirra uröu þau al- varlegu mistök aö engin ákvæöi voru sett um hvernig hemja átti framleiðsluna innan skynsam- iegra marka, miöaö viö mark- aösaðstæöur og er þar komiö aö. stærsta annmarka landbúnaö- arstefnunnar. Akvæöi þessi reyndust mjög framleiöslu- hvetjandi og þegar áriö 1964 var bótarétturinn nýttur nær aö fullu. Þegar engar aögeröir til framleiösluhömlunar voru haföar i frammi, varö sá skiln- ingur smám saman algengur aö hér væri um aö ræöa eins konar kvótarétt, sem eölilegt væri aö nýta aö fullu. Þar meö höföu þessi ákvæöi fjarlægst mjög upprunalegan tilgang sinn, aö vernda bændur fyrir áföllum vegna sveiflna I framleiöslunni. Hefur það komiö greinilega i ljós i góöæri undanfarinna þriggja ára. Hver ber ábyrgðina? Fljótlega upp úr 1960 geröu framsýnir menn i forystuhópi bænda sér Ijóst hvert óheft framleiöslustefna myndi leiöa og á aðalfundi Stéttarsambands bænda 1966 komu fyrst fram til- lögur um aögerðir til fram- leiöslustjórnunar. Hefur þetta veriö ein meginkrafa bænda- samtakanna æ siöan, aö fá lög- festar heimildir til aö hafa stjórn á framleiðslunni. Fjarri fer þvi aö bændur hafi almennt veriö sammála I þessu efni, en forystumenn þeirra verða ekki sakaöir um aö hafa ekki séö hættuna og varaö viö henni. Þvi veröur tæpast fram hjá þvi gengiö aö Alþingi ber megin- ábyrgöina á þvi hvernig komiö er i framleiöslumálum landbún- aöarins. Allar tilraunir til aö fá þessu kerfi breytt hafa mistekist þar til 6. april á þessu ári, þegar Al- þingi samþykkti loks frumvarp landbúnaöarráöherra um heim- ildir til framleiöslustjórnunar. Ekki er hægt aö kenna einum stjórnmálaflokki hér um fremur en öörum. Menn úr öllum flokk- um hafa átt þátt i aö koma I veg fyrir slika lagasetningu, ýmist af misskilinni verndarhugsjón gagnvart landbúnaöinum eöa vegna þess aö þá skorti viösýni til aö taka þátt i aö leysa máliö á raunhæfan hátt. Þetta kom mjög glöggt I ljós 1972, þegar þingmenn úr öllum flokkum sameinuðust um aö hindra framgang frumvarps þáverandi landbúnaöarráöherra um breytingar á Framleiösluráös- lögum. Ef þaö frumvarp heföi veriö samþykkt, má meö nokk- urri vissu fullyröa, aö hægt heföi veriö aö koma i veg fyrir offramleiðslu siöustu ára. Sanngjörn krafa Nú hafa bændur loks fengiö I hendur þau stjórntæki, sem svo lengi hefur veriö beöiö eftir. Ahrifa slikrar stjórnunar fer hins vegar ekki strax aö gæta og þaö mun taka nokkur ár að ná framleiöslunni niöur i hæfilegt magn. Það veröur þvi aö teljast sanngjörn krafa, með tilliti til þe'ss sem aö framan er rakiö, aö þjóöfélagiö komi nokkuö til móts viö bændur vegna erfiö- leikanna nú meö þvi aö verja auknu fé til útflutningsbóta á þessu og næsta ári. Jafnframt er nauösynlegt aö ætla bændum nægilegan umþóttunartima til aö ná tökum á framleiöslumál- unum og byggja upp nýjar bú- greinar, sem fyllt geti það skarö sem myndast þegar dregur úr nautgripa- og sauöfjárrækt.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.