Morgunblaðið - 21.09.2001, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 1 . S E P T E M B E R 2 0 0 1 B L A Ð B
LJÓSAHÖNNUN – FULLKOMIÐ FRELSI/2 BÍTILL GEGN MJÓLK/2
SAMSKYNJUN – ÞAU HEYRA LITI OG SJÁ HLJÓÐ/4 SENDIBRÉF –
MÍN HJARTKÆRA ÁSTMEY!/6 AUÐLESIÐ EFNI/8
Nábleikt og
skuggalegt
KVEÐJIÐ sakleysið og felið ykkur
myrkraöflunum á vald eru skilaboð
nýjustu erlendu tískutímaritanna um
förðunina í vetur. Andi drauga, vamp-
ýra og blóðsugna svífur yfir vötnunum.
Andlitið á að vera nábleikt og augn-
umgjörðin skuggaleg. Varirnar eru
ýmist nánast litlausar eða áberandi
rauðar, fjólubláar – jafnvel svartar.
Neglurnar hárbeittar og dökkar.
Tískusérfræðingur The Sunday Tim-
es minnir á að fötin verði að vera í stíl
við förðunina. Skilaboðin eru skýr.
„Láttu þér ekki detta neitt annað í hug
en svört föt með svörtum fylgihlutum í
vetur,“ segir hann. „Dragið fram fylgi-
hluti ekkjunnar, lafandi eyrnalokka og
dapurleg hálsmen með glitrandi stein-
um.“
Kynæsandi hryllingur
Von er að spurt sé hvaðan hrylling-
urinn komi og böndin berast að þunga-
rokkaranum Marilyn Manson. Aðdá-
endur goðsins víða um heim hafa fetað í
fótspor hans með því að mála andlit sitt
hvítt og augnumgjörðina svarta. Lík-
amsþjálfun, hreinleiki og guðstrú eru
víðsfjarri. Manson stendur fyrir stjórn-
leysi og hryllingi í guðlausum heimi.
Style heldur því fram að hryllingur
hafi alltaf verið kynæsandi og bendir
því til stuðnings á áhorfstölur fyrir
sjónvarpsseríurnar um blóðsuguna
Buffy. Með sama hætti virðist nærtækt
að benda á vinsældir galdrastráksins
Harrys Potters og hans hyskis í heima-
vistarskólanum víðfræga. Enn er hægt
að nefna sígilda baráttu góðs og ills í
Hringadróttinssögu og áfram væri
hægt að telja. Ef fram heldur sem horf-
ir fara vinsældir hryllingsins heldur
ekki dvínandi. Þvert á móti er búist við
að áhrifin verði sífellt ýktari og spilar
þar inn í að verið er að hefja tökur á sex
svokölluðum Hammer-hryllings-
myndum.
Lögmál fallið úr gildi
Á Íslandi er ekki búist við að förðunin
verði jafn ýkt og sagt er frá í erlendum
tískutímaritum í vetur. Þó er hægt að
greina ákveðna áherslubreytingu og
ber afgerandi dökka augnumgjörð þar
hæst. Gamla lögmálið um að ann-
aðhvort eigi að leggja áherslu á augn-
umgjörð eða varir er fallið úr gildi.
Núna eru varirnar ýmist nánast litlaus-
ar eða málaðar áberandi litum. Kinna-
litur er aftur kominn í tísku og dökk
lína kringum augun er nauðsynleg til
að tolla í tískunni. Dæmi eru um að lín-
an sé látin ná út fyrir augnlokin til að
draga fram eins konar Kleópötru-
augnsvip. Varablýantar eru aðeins not-
aðir til að skerpa línuna í kringum gloss
eða varalit.
Mest áberandi litirnir eru fjólublátt,
plómulitur, vínrauður, brúnt og grænt
þótt allir litir séu í rauninni í tísku. Þar
með talinn hárauði liturinn því eins og
Guðrún Ingólfsdóttir, snyrtifræðingur í
Clöru í Kringlunni, hefur eftir Coco
Chanel þá geta allar konur borið rautt
og gyllt.
FÖRÐUN
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tilbrigði við
stef – nýj-
asta nýtt í
tískuförðun
dregur dám af
útliti þunga-
rokkarans
Marilyn Man-
son. Ekki er þó
búist við því að
íslenskar konur
eigi eftir að bera
jafnýkta förðun í
vetur. Þórunn Gunnarsdóttir förð-
unarmeistari farðaði fyrirsætu í vetr-
arlitunum frá Marbert og Hard Candy.