Morgunblaðið - 21.09.2001, Side 7

Morgunblaðið - 21.09.2001, Side 7
undar greindu frá óvenjulegum at- burðum í nýja landinu, sögðu frá tækninýjungum í landbúnaði og hvöttu landsmenn til dáða. Þarna fékk fólk fréttir frá ættingjum og vin- um, fólki sem það treysti, og þannig urðu bréfin og dagbækurnar raun- verulega eini miðillinn sem miðlaði góðum hugmyndum um landsins gagn og nauðsynjar. Þessi miðill var því augljóslega afar þýðingarmikill á þessu tímabili, á seinni hluta nítjándu aldar og í upphafi þeirrar tuttugustu. Mikilvægi þessara miðlunarþátta, bréfa og dagbóka, minnkar svo með aukinni bóka- og blaðaútgáfu og hvers konar fjölmiðlun. Þeir héldu hins vegar gildi sínu fyrir persónuna sjálfa og það á í rauninni einnig við um okkur nútímamenn þrátt fyrir allar tækniframfarir, eins og dæmið af sjálfum mér sannar.“ Sigurður Gylfi sagði að ótrúlega margir nútímamenn héldu dagbækur með einum eða öðrum hætti og ef til vill hefðu dagbókarfærslur aldrei ver- ið almennari en einmitt nú: „Ég er sannfærður um að þú held- ur einhvers konar dagbók, þó að það sé ekki nema bara í dagatalinu þínu á vinnustaðnum. Þú skrifar áreiðan- lega hjá þér verkefni sem fyrir liggja eða fundi sem þú þarft á mæta á og merkir við í dagatalinu þegar þú þarft að fara til tannlæknis, svo dæmi séu nefnd. Þetta er bara ein tegund af dagbókarskrifum. Hér áður fyrr hétu þær bændadagbækur og voru haldn- ar um það hvernig búreksturinn gekk. Sumir bændur gengu lengra í skrifum sínum og fóru að tjá sig um líðan sína og til dæmis hvernig þeim varð við þegar þeir fundu kúna dauða í skurði. Það er oft stutt skerfið úr vinnustaðadagbókum yfir í persónu- legar dagbækur og menn fara þá að tjá sig um ýmislegt sem fyrir ber yfir daginn: „Ég var á fundi með starfs- mönnum fyrirtækisins í dag og þar komu fram hugmyndir sem mér leist ekkert á...“ Fyrr en varir finna menn hversu góð aðferð þetta er til að létta á hjarta sínu fara þá jafnvel að bæta við enn persónulegri hugleiðingum. Það er alveg ljóst að dagbókin lifir góðu lífi og mun gera um ókomna framtíð. Því til stuðnings get ég nefnt að þegar haldinn var dagur dagbókar- innar, 15. október 1998, þá voru um sex þúsund einstaklingar fengnir til að halda dagbók þennan tiltekna dag og senda skrifin til Þjóðminjasafns- ins. Úr þessu varð til bók sem Mál og menning gaf út nokkrum mánuðum seinna og heitir „Dagbók Íslendinga“. Þessi bók er ótrúlega áhugaverður samtímaspegill og furðulega skemmtileg lesning, allt frá því að vera mjög opinskáar lýsingar um einkahagi viðkomandi í það að vera bara hefðbundin úttekt á því hvernig dagurinn gekk fyrir sig. Þarna skrif- uðu ungir sem aldnir og var talsverð- ur munur á hvernig menn tjáðu sig, til dæmis eftir aldri. Þessi bók er útaf fyrir sig merkileg heimild um hvernig fólk notar tungumálið á mismunandi hátt. Góð viðbrögð við „degi dagbók- arinnar“ sannfærðu mig um að fólk hefur enn áhuga á að notast við þetta form, dagbókina, og ég held að sendi- bréfið eigi líka eftir að ná sér aftur á strik, þegar fólk fer að sjá í gegnum tölvupóstinn,“ sagði Sigurður Gylfi og það vottaði fyrir vonarglampa í aug- um hans við þessi orð. Tölvupóstur er eins og samtal Um kosti og galla tölvupóstsins og muninn á honum og „gamla, góða“ sendibréfinu sagði Sigurður Gylfi meðal annars: „Í tölvupóstinum fá menn oftast svar um hæl. Samskiptin ganga mjög hratt fyrir sig, sem getur auðvitað komið sér vel í nútímaþjóðfélagi. Samskipti manna í tölvupósti verða oft frekar eins og samtal. Munurinn er sá að í hinu hefðbundna sendibréfi fer fólk meira inn í sjálft sig, kafar dýpra í sálarlífið og menn hugsa meira um orðin sem þeir festa á blað. Í tölvupóstinum er meiri hætta á að menn láti allt flakka, skrifa bara það sem þeim dettur í hug í augnablikinu. Kosturinn við tölvupóstinn eru þessi snöggu viðbrögð, en um leið geta þau kallað fram vandamál, sér- staklega þegar menn láta vaða van- hugsuð orð sem þeir dauðsjá eftir. Annar ókostur við tölvupóstinn, ekki síst út frá sjónarhóli sagnfræðinnar, er auðvitað sá, að það sem skrifað er í tölvupóst geymist yfirleitt ekki. Þess- um bréfum er venjulega eytt með því að slá á takkann „delete“. Þar með fer forgörðum merkileg samtímaheimild um alþýðumenningu á Íslandi. En þótt heimildir glatist um tiltekna hugsun og atburði í tölvupósti má telja víst að hugsunar- og hugmynda- ferli samfélagsins gangi hraðar fyrir sig, við skiptumst á skoðunum um réttlæti og ranglæti af meiri krafti en áður. Síðan verðum við bara að gera það upp við okkur hvort er mikilvæg- ara, varðveislan eða lífið! Einhverjir sagnfræðingar myndu eflaust halda því fram að þetta tvennt væri eitt og hið sama.“ Sigurður Gylfi með bréf sem faðir hans, Magnús Helgason í Hörpu, skrifaði foreldrum sín- um frá Hull árið 1938. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. SEPTEMBER 2001 B 7 Cider vinegar diet formúla FRÁ Apótekin Fríhöfnin Vatnslosun, brennsla, og megrun með GMP gæðaöryggi H á g æ ð a fra m le ið sla Elskulega móðir mín! Guð gefi þér allar stundir góðar og gleðilegar; hann gefi þjer skjót- an og góðan bata, og gleðilegt nýj- ár. Það hryggir mig að vita ekki hvernig þér líður, enn gleður mig, að vita, að þú varst síðast á bata- vegi, er ég frétti; ég vona, að þér hafi farið síðan dagbatnandi, og að ég fái frá þjér næst kærkomið bréf. Þannig hefst bréf, dagsett á Garði 7. nóvember 1880, frá Finni Jónssyni, síðar prófessor í norræn- um fræðum við Kaupmannahafn- arháskóla, til móður sinnar Önnu Guðrúnar Eiríksdóttur. Bréfið er eitt fjölmargra sem birt eru í bók Sigrúnar Sigurðardóttur sagnfræð- ings, „Elskulega móðir mín, systir, bróðir, faðir og sonur. Fjöl- skyldubréf frá 19. öld“, en þar eru dregin fram sýnishorn úr sendi- bréfum fjölskyldu Önnu Guðrúnar og Jóns Jónssonar Borgfirðings. Sjálfsagt eru þessi bréf dæmigerð fyrir sendibréf frá þessum tíma, en hér eru dregnar fram heimildir um alþýðufólk sem hófst til vegs og virðingar á Íslandi og í Danmörku á sviði mennta og stjórnmála á seinni hluta nítjándu aldar. Börn Jóns og Önnu urðu sum þjóðkunn og auk Finns má þar nefna Klemens Jóns- son landritara og ráðherra og Guð- rúnu Borgfjörð sem var þekkt kona á sinni tíð. Bókin er sú þriðja í heim- ildaflokknum „Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar“ og í formála segja ritstjórarnir, Kári Bjarnason og Sigurður Gylfi Magnússon, með- al annars að höfundurinn, Sigrún Sigurðardóttir, sé ein þeirra sem hafi lagt rækt við einsöguna og tek- ið þátt í að móta aðferðir hennar hér á landi. „Eins og kunnugt er hafa íslenskir sagnfræðingar sem tengjast einsöguhefðinni unnið mikið með persónulegar heimildir meðal annars vegna þess að þær gefa fræðimanninum tækifæri til að kafa dýpra í atburði eða fyrirbæri sem eru til rannsóknar. Þessi bók ætti að gefa fræðimönnum sem vilja tileinka sér aðferðir einsög- unnar möguleika á að nýta sér þann efnivið sem hér er til umræðu. Sigrún hefur þann háttinn á að láta heimildirnar tala sínu máli að mestu en skýtur inn stuttum skýr- ingarköflum sem eru til þess gerðir að auðvelda lesendum lesturinn. Hún ritar einnig inngang að bók- inni þar sem gerð er grein fyrir heimildum, túlkunarmöguleikum þeirra og aðalpersónum. Aðal- áhersla er þó á texta fjölskyldunnar sjálfrar og gefst les- endum þannig tæki- færi til að túlka heim- ildirnar eftir sínu höfði og mynda sér skoðanir á atburðum, persónum og fyr- irbærum sem þarna koma við sögu.“ Þörfin mun ekki hverfa Sigrún er nú stödd í Kaupmannahöfn við framhaldsnám og eft- irfarandi svör sendi hún í tölvupósti um hæl, hratt og örugg- lega, daginn eftir að spurningarnar voru sendar. Tölvu- pósturinn er því augljóslega ekki alvondur: Hvaða gildi höfðu bréfaskrift- irnar fyrr á tímum? „ Gildi bréfa og bréfaskrifta er mjög misjafnt eftir því í hvaða sam- hengi það er skoðað. Ef við tökum sem dæmi systkinin Finn Jónsson og Guðrúnu Borgfjörð sem eiga bréf í bókinni „Elskulega móðir mín“ þá má segja að bréfaskrift- irnar hafi verið þýðingarmikill þáttur í lífi þeirra, og ekki aðeins vegna þeirrar augljósu staðreyndar að þau gerðu þeim unnt að halda sambandi við fjarstadda ættingja og vini heldur einnig vegna þeirra áhrifa sem bréfaskriftirnar höfðu á sjálfsmynd þeirra. Fyrir Guðrúnu Borgfjörð og margar aðrar konur var sá tími sem þær eyddu í bréfa- skriftir mjög dýrmætur því að þá settust þær niður til þess að skapa frásögn eða sögu úr því lífi sem þær lifðu. Þær veltu fyrir sér hlutum sem þeim hafði ekki gefist tækifæri til að íhuga áður og breyttu þannig upplifun sinni í reynslu. Þannig höfðu bréfaskriftirnar mikla þýðingu fyrir þær hug- myndir sem einstaklingurinn gerði sér um sjálfan sig og stöðu sína í samfélaginu. Þær endurspegla þar af leiðandi sjálfsmynd einstaklings- ins og hvernig hann staðsetur sig innan ákveðinna samfélagshópa, til dæmis fjölskyldunnar, vinahópa og þjóðfélagsins. Úr bréfunum má einnig lesa heilmikið um kynhlut- verk og þá möguleika og skorður sem hefðbundin viðhorf um kyn- hlutverkið settu fólki. Það sama má segja um tjáningu fólks á tilfinningum sínum sem meðal annars varpa ljósi á sam- skiptamynstur og þar með sam- skipti til dæmis foreldra og barna, systkina, vina og vinkvenna, yf- irvalds og alþýðu. Bréf hafa því mikið gildi sem heimildir og þau má nota til að varpa ljósi á bæði ytri um- gjörð fólks sem og hugmyndir þeirra um sjálft sig og heiminn.“ Mun sendibréfið halda velli í framtíð- inni eða hverfa alveg fyrir tilstuðlan tal- síma- og tölvutækni? Ef svo fer hvers förum við þá á mis? „ Þörf fólks fyrir að raða minning- arbrotum saman í eina heild og mynda þannig frásögn um líf sitt mun sjálfsagt ekki hverfa þó að rafræn samskipti og sá hraði sem þeim fylgir verði sí- fellt umfangsmeiri í lífi flestra Vesturlandabúa og annarra for- réttindahópa. Rafræn samskipti og þá er ég einkum að hugsa um tölvu- póst hefur þróast í þá átt að vera fyrst og fremst vettvangur fyrir upplýsingamiðlun. Þar sem hraðinn er helsta einkenni hans þykir ekki við hæfi að einstaklingurinn setjist niður og skrifi langlokur um líf sitt og tilfinningar. Til þess að búa til sögu úr lífi sínu þarf einstakling- urinn næði og tíma. Því miður virð- ist sú skoðun njóta mikilla vinsælda í því hraðasamfélagi sem við lifum í að með því að hugsa, íhuga líf okk- ar og annarra, þá séum við fremur að eyða tímanum í stað þess að njóta hans. Nútímasamskipti bjóða ekki upp á að við séum að flækja málin með því að íhuga þau. Öllu máli skiptir að koma upplýsingum sem hraðast á framfæri. Þannig er unnt að gera allt sem skilvirkast og græða sem mestan pening og umfram allt, með skil- virkum boðleiðum komumst við hjá því að eyða tíma okkrar sjálfra og annarra. Bréfaskriftir og sá hæga- gangur sem þeim fylgir passa ekki vel inn í þetta samfélag. Þörf mannsins fyrir að gera upp líf sitt er samt sem áður söm við sig og í leit að farvegi fyrir þessa þörf eru ýmsar leiðir færar í nútímanum. Það sem einkennir ef til vill bókaút- gáfu og listsköpun aldamótanna er þörf fólks til að líta til baka, gera upp sína eigin sögu sem og sögu mannkynsins, unglingsárin og sögu tuttugustu aldar. Um þetta vitna ótal samtímabók- menntir og listsýningar sem hafa yfir sér ævisögulegt form eða vinna með bréfaformið og þá möguleika sem það felur í sér.“ Sigrún Sigurðardóttir sagnfræðingur Sigrún Sigurðardóttir Bréfin endurspegla sjálfsmyndina SYSTURNAR Elísa og Guðbjörg Skúladætur hafa ekki látið tölvu- tæknina aftra sér frá því að skrifast á við pennavinkonur með hinum hefð- bundna hætti, sem tíðkaðist löngu áður en tölvupóstur kom til sögunn- ar. Þær skrifast á við frænkur sínar á Egilsstöðum, systurnar Hörpu Sif og Ester Ölmu Gunnlaugsdætur. „Ég byrjaði að skrifast á við Hörpu Sif eiginlega um leið og ég lærði að skrifa, sjö eða átta ára,“ sagði Elísa, en hún er nú ellefu ára og pennavinkonan fyrir austan er tveimur árum eldri. Guðbjörg, sem er níu ára, kvaðst líka hafa byrjað sjö ára að skrifast á við Ester Ölmu, en þær eru jafnöldrur. Þær systur eru sammála um að það sé mun skemmtilegra að hand- skrifa bréfin en að skrifa þau á tölvu- skjá. „Ég er ekki mikið fyrir tölvur,“ segir Elísa, sem hefur orð fyrir þeim enda eldri. „Mér finnst líka miklu skemmtilegra að fá bréfin inn um bréfalúguna, en að fá þau með tölvu- pósti,“ bætir hún við. Þær kváðust báðar geyma bréfin sem þær fá. – Um hvað er svo skrifað í bréf- unum? „Bara um það sem er að gerast frá degi til dags. Til dæmis um það hvernig gengur í skólanum og svo- leiðis,“ sögðu þær systur og kváðust ekkert vera á leiðinni að breyta til og skipta yfir í tölvupóstinn. Frænkur og pennavinkonur Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Systurnar Elísa og Guðbjörg með nokkur bréfanna. Skemmtilegra að fá bréfið inn um lúguna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.