Vísir - 12.10.1979, Blaðsíða 24
Föstudagur 12. október 1979
síminnerðóóll
Spásvæöi Veðurstofu isiands
eru þessi:
1. Faxaflói, 2. Breiðafjörö-
ur, 3. Vestfirðir, 4. Norður-
land, 5. Norðausturland, 6.
Austfirðir, 7. Suðausturland,
8. Suövesturland.
veöurspá
dagsins
Klukkan 3 var 1030 mb. hæð
yfir norðanveröu Grænlandi
en 973 mb lægð um 200 km
vestur af Irlandi. Enn veröur
kalt á landinu.
Veðurhorfur næsta sólar-
hring.
Suðvesturland til Breiöa-
fjarðar og miðin, NA 3-4 og
sums staöar 5-6, léttskýjaö.
Vestfiröir og mið, NA 4-5,
lltilsháttar él.
Noröurland NA 3-5 léttsk.
með köflum vestan tilen sums
staðar él austan til.
Norðausturland, Austfirðir
og mið, NA 4-5, sums staðar
dálitlar skúrir eöa él.
Suðausturland NA 4-5 og
sums staðar 5-6, skýjaö austan
til, bjart vestan til.
Suðausturmið NA 7-8, rign-
ing á djúpmiðum.
Veðrið hér
09 bar
Akureyri alskýjaö 2, Bergen
skýjað 10, Heisinki þokumóða
9 Kaupmannahöfn þoka 7,
Osló þokumóða 10, Reykja-
vfk heiösklrt frost 1, Stokk-
hólmur þokumóöa 10, Þórs-
höfnrigning 8.
Aþena heiöskirt 16, Berlln
heiðsklrt 16, Chicago skýjað
13, Feneyjar þokumó.ia 14,
Frankfurt mistur 17, Nuuk
skýjað 5, London skýjað 15,
Luxemburg alskýjað 17, Las
Palmas skýjað 23, Mallorca
hálfskýjað 20, Montreai
alskýjaö 7, Parls skýjaö 16,
Róm skýjað 15, Malaga
rigning 16, Vln heiðskirt 13,
Winnipeg smáél frost.
Loki
seglr
Stefnuræðu forsætisráð-
herra, sem aldrei veröur fhitt
var dreift á alþingi sem
trúnaöarmáli I gær. Hún mun
veröa þingmönnum til halds
og trausts á óvissutlmum.
Rafmagnsveitur rikislns:
Vantar 1.5 milliaröa úr
ríkissjóði fyrir áramót
- Rekstrarhallinn milljarður á hessu ári
„Fjárhagsstaðan er þolanleg í augnablikinu, en
við þurfum að fá einn og hálfan milljarð úr rikis-
sjóði fyrir áramót, ef ekki eiga að skapast alvar-
ieg vandræði”, sagði Kristján Jónsson, raf-
magnsveitustjóri, er Visir spurði um stöðu Raf-
magnsveitna rikisins.
Rafmagnsveitustjóri sagöi aö lega þúsund milljónir króna og
rekstrarhalli ársins væri rúm- umframkostnaður almennra
framkvæmda RARIK væri 430
milljónir. Stafaöi það af
kostnaöarhækkunum og gengis-
sigi á þessu ári. Hins vegar
hefði rflcissjóður greitt skuld
sina við RARIK vegna byggða-
lina, sem lagðar voru fyrir
rlkissjóö.
Þá sagði Kristján Jónsson
ennfremur, aö þótt sótt yrði um
hækkun á gjaldskrá, myndi hún
ekki skila neinum tekjum á
þessu ári.
Kristján sagði, að óskað hefði
verið eftir 1,5 milljaröa fram-
lagi úr rikissjóði og beðiö væri
eftirsvari. Aðspurður um, hvað
tæki við, ef féð fengist ekki,
sagöi Kristján, að þá gæti
RARIK ekki staðið I skilum,
hvorki meö að leysa út efni, raf-
orkukaup eða greitt út laun.SG
HÆKKVN A
TOLLFRJáLSU
FYRIR
FERDAMENN
Tollfrjáls varningur sem feröa-
menn mega hafa með sér hækkar
úr kr. 32.000Ikr. 60.000 frá ogmeö
mánudeginum. Til einföldunar er
llka sundurliðun á vörutegundum
með tilliti til hámarksandviröis
þeirra felld niður. Þá má ekki
kaupa mat eða sælgæti fyrir
meira en kr. 15.000.
Með reglugerð um þetta er
einnig numiö úr gildi ákvæði um
að tollgæslumenn skuli spyrja
farþega sérstaklega hvort þeir
hafi meðferðis einhvern toll-
skyldan varning, eöa varning
sem innflutningur er bannaður á
eða háður er innflutningstak-
mörkunum.
Hafi farþegar slíkt með, ber
þeim skylda til þess, ótilkvaddir,
að skýra tollgæslumanni frá þvl.
Engar breytingar verða á þvi
magni áfengis eða tóbaks. OT.
Seyðisfiarðarmáiiö:
ÞJÓFURINN
ÓFUNDINN
„Máliö er enn óupplýst en
áfram unnið að þvi að finna
lausnina”, sagði Njörður Snæ-
hólm, yfirlögregluþjónn Rann-
sóknarlögreglu ríkisins i' morgun.
Njörður fór til Seyöisfjarðar i
gærdag vegna rannsóknar
þjófnaðarmálsins, sem þar kom
upp fyrir mánuði. Yfirvöld á •
Seyðisfirði munu hafa talið aö
lausn gátunnar kynni aö vera i
augsýn en svo var ekki. Sá.sem
stal einni og hálfri milljón úr
kaupfélagi staöarins. er ófundinn
enn.
Umferð er mikil á Reykjanesbraut úr Breiðholtshverfum á morgnana,
og erfitt að komast inn á götuna. Nú stendur til að lagfæra þetta og
tengja Stekkjabakka niður á Reykjanesbrautina. Vlsismynd GVA.
Rrelðhollsliverfln:
Bætt úr umferðarðngDveiti
„Eftir þessa samþykkt borgar-
stjórnar mun að öllum likindum
verða gefiö græntljós um að hefja
framkvæmdir viö að tengja
Stekkjabakka niöur á Reykjanes-
brautina”, sagöi Ingi Ú. Magnús-
son gatnamálastjóri I samtali við
Vísi i morgun.
Markús örn Antonsson lagði
nýlega fram tillögu i borgarstjórn
þess efnis að þegar i staö veröi
unniö að lagfæringum á tengingu
gatnakerfis Breiöholtshverfa við
Reykjanesbraut. Mikið vand-
ræðaástand skapast oft á anna-
timum við Reykjanesbrautina,
vegna umferöarinnar iir Breið-
holtshverfum.
Tillaga Markúsar var sam-
þykkt með 15 samhljóða atkvæö-
um og vísað til borgarráðs.
— KP.
Samþykkt ríkis-
stiórnarlnnar:
GAGNGER
ATHUGUN
A REKSTRI
RARIK
„Við höfum ekkert á móti þvl,
aö það verði gerð athugun á
rekstri okkar og viljum gjarnan
bæta hlutina eins og hægt er. En
ég veit ekki hvaö þarna liggur að
baki”, sagði Kristján Jónsson,
rafmagnsveitustjóri, Isamtali viö
VIsi.
I athugasemdum viö fjárlaga- •
frumvarpið, sem lagt var fram I
gær,kemurfram, að rikisstjórnin
hafi ákveðið ,,að fram fari gagn-
ger athugun og úttekt á rekstri
Rafmagnsveitna rlkisins.”
Kristján sagðist ekki vita til, að
neinar athugasemdir hefðu veriö
gerðar við rekstur Rafmagns-
veitna rikisins, en á undanförnum
árum hefðu nokkrar nefndir verið
skipaðar til að gera svona at-
huganir. Kvaöst hann slst á móti
þvl, að það yrði kannað, hvort
hægt væri aö koma hlutunum bet-
ur fyrir. — SG
Kæra sævars:
MÁLIÐ SENT
SAKSÓKNARA
Rannsókn Þóris Oddssonar
vararannsóknarlögreglustjóra á
kæru Sævars Ciesielskis um að
hann hafi veriö beittur haröræði
við rannsókn Geirfinnsmálsins er
nú lokiö. Máliö var sent rikissak-
sókna raigærogmunhannkanna
hvort ástæða er til frekari
aðgerða.
Deilur á Neskaupstað:
Starfsfölkið gekk frá
fiskverkunarborðunum
Miklar deilur hafa
verið vegna gæðaeftir-
lits i Síldarvinnslunni
hf. á Neskaupstað og
urðu svo rammar að
fólk gekk frá borðunum
fullum af fiski.
Það er kona I gæðaeftirlitinu
sem starfsfólkiö var óánægt
með og vildi losna við, sem olli
þessari sprengingu.
Einhvern veginn var málið
jafnað þannig að fólk gekk aftur
til starfa, en ekki er vitað hvort
það var frambúðarlausn. Visir
leitaði I morgun til forsvars-
manna Sildarvinnslunnar, en
tókst ekki aö fá nánari upp-
lýsingar.
Þórður Þórðarson, skrifstofu-
stjóri, viðurkenndi að gengið
hefði verið frá borðunum, en
sagði þaö aðeins hafa verið i
klukkutlma. Hann vildi ekki
ræða máliö frekar en visaði á
Ólaf Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóra, sem ekki tókst
að ná í I morgun.