Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 6

Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 6
þátt í á háskólaárunum, enda lagðist hún af svo að ég náði aðeins í þá síðustu. Hún stóð til morguns. Dansleikir á Gamla garði voru einkar vinsælir en það voru engar bindindissamkomur og smávegis voru menn að fleka telpur svo að vitnað sé í orð þekkts góðborgara sem var í blóma lífsins um miðja öldina.“ AÐALGEIR KRISTJÁNSSON, f. 1924 var í námi 1947-1953 „Finnbogi Rútur Þorvaldsson prófessor kenndi okkur teiknun og landmælingu. ... Finnbogi var formfastur mjög í allri um- gengni, en þó mikið ljúfmenni. Hann þér- aði okkur nemendur sína og er sá eini Ís- lendingur sem hefur boðið mér „dús“, en slíkt var venja hans að gera þegar hann mætti nemendum sínum í fyrsta sinn eftir að þeir höfðu lokið fyrri hluta prófi hér heima. Hann sagði okk- ur stundum frá ýmsum atvikum úr lífi sínu með- an við sátum yf- ir teikningum á teiknistofunni. Hann var sögu- maður góður.“ „Nú kenndi Finnbogi land- mælingu eftir Klenum en hafði fram að þessu kennt bók eftir Schneider. Við urðum ekki mjög áskynja um breytinguna fyrir utan einu sinni. Þá var Finnbogi að kenna okk- ur jöfnunarreikninga. Þá kom allt í einu þessi gullvæga setning: „Hér fær Klenum núll en Schneider fékk óendanlegt. Á þessu er óneitanlega nokkur munur.“ SIGURBJÖRN GUÐMUNDSSON, verkfræðing- ur, f. 1933, var í námi 1953-1959. „Samskipti kennara og nemenda voru lítil en jukust eftir því sem leið á námið. Eins kennara minnist Hulda sérstaklega E kkert var gert til að létta nem- endum námið, engar umræður fóru fram og nemendur voru óvirkir í kennslustundum, nema þeir sem sátu á fremsta bekk og gengu upp. Var þessu þannig varið í öllum kennslugreinum og kennsluaðferð svipuð hjá öllum kennurunum í læknadeildinni; þurrir fyrirlestrar án nokkurra hjálpargagna. Kennararnir voru börn síns tíma og notuðu svipaðar kennsluaðferðir og lærifeður þeirra höfðu við- haft. Stúdentar urðu að gera sig ánægða með þetta og aldrei heyrðust kvartanir. Við þekktum ekki annað.“ „Aldrei heyrði ég stúdenta kvarta um fyrirkomulag kennslunnar, enda hefði það ekkert þýtt, stúdentar máttu sín einskis sem stjórnaraðilar og ekki hlustað á þá. Þeir urðu að taka við því sem að þeim var rétt enda voru þeir kostaðir af almannafé og af mörgum taldir baggi á þjóðfélaginu.“ GUÐMUNDUR BJÖRNSSON augnlæknir, f. 1917, d. 2001, var í námi 1937-1944 „Í sögu og bók- menntasögu var kennslan einkum þannig, að kenn- ari las upp hand- rit, en nemendur skrifuðu eftir. Þetta kom einnig fyrir í málfræði, en einnig var taflan mikið not- uð og nemendur þá einatt teknir upp að töflu. Stundum voru nemendur þó „teknir upp“ og kennslan var þá í samtalsformi.“ HARALDUR MATTHÍASSON, kennari, f. 1908, d. 1999, var í námi 1948-1951 „Með komu Ármanns Snævarr prófessors í deildina haustið 1948 verður gerbylting í lögfræðideildinni. Hann lét bréförk ganga um bekkinn og á hana skyldu nemendur rita nöfn sín. Síðan færði hann þetta í bók sína og að misseri loknu stóð t.d. í náms- ferilsbók minni vormisserið 1950: „Tíma- sókn í refsirétti ágæt (86%).“ „Ármann Snævarr prófessor bauð okkur heim til sín að loknu embættisprófi vorið 1952. Hann átti þá heima á Hagamel. Hann hafði áður haft boð fyrir okkur skömmu fyrir fyrrihlutapróf vorið 1949 hjá bróður sínum Árna Snævarr, er þá bjó í Galtafelli við Laufásveg. Stefanía dóttir Árna (f. 1945) lék sér þá í stof- unni hjá okkur og sagð- ist vera í leikskólanum í Tjarnarborg. „Það er minn háskóli,“ sagði sú litla.“ LEIFUR SVEINSSON, lög- fræðingur, f. 1927, var í námi 1946-1952 „Áramótadansleikurinn í anddyri háskólans var einhver stórfenglegasta samkoma sem ég tók fyrir lifandi kennslu og hressilegar lýsingar, en það er Níls Dungal sem var prófessor í patho- logy.“ HULDA SVEINSSON, læknir, f. 1920, var í námi 1940-1948 „Siður stúdenta á þess- um árum var að allir þeir, sem stunduðu nám við háskólann gengu um með stúdentshúfur sínar og voru því auðþekktir í bænum. Á námstíman- um þurfti ég að endur- nýja stúdentshúfuna í þessum tilgangi.“ ÁSTRÁÐUR JÓN SIGURSTEINDÓRSSON, guð- fræðingur, f. 1915, var í námi 1935-1939. HULDA SVEINSSON STÚDENTASKÍRTEINI AÐALGEIRS KRISTJÁNSSONAR LEIFUR SVEINSSON GUÐMUNDUR BJÖRNSSON HARALDUR MATTHÍASSON 6 D LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ KÆRA DAGBÓK! Við vöknuðum að sjálf-sögðu allar á sitthvoru heimilinu. Lára sem er þvílíkur morg- unhani var komin á fætur klukkan sex og mætt í leik- fimi út í bæ. Þvílík harka! Klara sem er nú ekki þekkt fyrir að slá slöku við var komin á fætur klukkan sjö en Brynja sem er með ein- dæmum morgunsvæf og sefur bara þangað til hún er vakin, átti sinn versta morg- un í langan tíma, enda var hún að semja fyrirlestur fyrir lyflæknisfræði til klukkan tvö í nótt. Úffff. Með mis- miklar stírur í augunum mættum við í skólann klukkan átta. Að venju var allt komið á fullt á slaginu átta og allir komnir á kaf í munna hver á sínum tann- læknastól. Í þrjá og hálfan klukkutíma gerðum við hvert kraftaverkið á fætur öðru í munnum fórn- arlamba okkar, deyfa hér, bora þar, fylla hér að ógleymdum heilgómunum. En við erum sammála um það að sjúklingum okkar þyki vinsælla að láta hvíta tennurnar eða setja tann- skraut á þær heldur en það sem á undan er talið. Í hádeginu skunduðum við glorhungraðar á kaffi- stofuna. Það stefndi í daprar bollasúpur en til mikillar lukku lumaði Lára á brauð- hleifi með sólþurrkuðum tómötum. Nammi namm, þetta bjargaði deginum. Í þokkabót var til lifrarkæfa á brauðið. Meðan við sátum alsælar að snæðingi fékk Lára upphringingu. Hinum megin á línunni var sjúk- lingur sem hafði verið í rót- fyllingarmeðferð á mánu- daginn. Vesalings maðurinn var í öngum sínum með bólgu í kinn á stærð við app- elsínu. Við Brynja og Klara stöppuðum stálinu í Láru sem tók á móti sjúklingi sín- um full samúðar að máls- verði loknum. Til allrar hamingju var vandamálið leyst á einfaldan hátt með skoðun og sýklalyfjakúr. Appelsínan mun því hverfa á nokkrum dögum úr kinn mannsins. Á slaginu eitt mættum við í lyflæknisfræði. Í þeim tím- um sjáum við að hluta til um kennsluna sjálf og á þremur klukkustundum voru fluttir þrír fyrirlestrar. Þegar líða tekur á daginn verðum við yfirleitt þreyttar og athyglin minnkar. Það er því mjög algengt að við verðum málglaðar. Kenn- arinn var farinn að þreytast á málæðinu sem skiljanlegt er en það er nú bara þannig í pottinn búið með konur, allavega okkur að við getum gert margt í einu. Þ.e. talað og unnið eða fylgst með samtímis. Þennan hæfileika hafa karlar ekki. Þeir geta bara talað eða unnið. Enda sátu bekkjarbræður okkar fjórir og steinþögðu. Ekki vitum við hvort þeir voru að hlusta. Klukkan fjögur fór- um við í röntgengreiningu til Jóns Viðars. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd vorum við afar áhugasamar enda stórskemmtilegt að rýna í röntgenmyndir. Eftir langan skóladag héldum við svo hver í sína áttina til annarra starfa. Lára er orðin mamma og því mikið að gera hjá húsmóð- urinni. Klara fór að vinna hjá foreldrum sínum á Café Kim, dugnaðarforkur stelp- an en Brynja var svo heppin að vera boðin í matarboð á eigið heimili. Tilvonandi tengdaforeldrar eru í höf- uðborginni og buðu upp á dýrindis kalkún með öllu til- heyrandi. Klara Jenný Kim Lára Björk Einarsdóttir Brynja Björk Harðardóttir. TANNLÆKNANEMARNIR : Klara Jenný Kim, Brynja Björk Harð- ardóttir og Lára Björk Einarsdóttir á dagbókardaginn. Í tilefni af 90 ára afmæli Háskóla Íslands var ákveðið að gangast fyrir því að nemendur héldu dag- bók í einn dag. Varð dagurinn 24. janúar 2001 fyrir valinu. Mark- miðið var að afla upplýsinga frá fyrstu hendi um líf stúdenta í starfi og leik á þessum tímamót- um. Háskólaútgáfan gefur á næstu vikum út bókina Dagbæk- ur háskólastúdenta, sem er úrval dagbóka stúdenta, en hér má sjá sýnishorn af dagbók sem háskólastúdentar sendu inn. Dagur í lífi þriggja tann- læknastúdenta DAGBÓK „Á þessu er óneit- anlega nokkur munur“ Þjóðháttadeild Þjóð- minjasafnsins safnar efni um stúdentalíf fyrri hluta 20. aldar. Deildin sendi fyrir nokkrum ár- um eldri stúdentum spurningar um kennsl- una í Háskóla Íslands og ýmislegt annað. Hér eru nokkur valin svör fyrr- verandi stúdenta við HÍ. SIGURBJÖRN GUÐMUNDSSON ÁSTRÁÐUR JÓN SIG- URSTEINDÓRSSON Úr viðtali þjóðháttadeildar við ÞÓRU STEF- ÁNSDÓTTUR f. 1932, en hún var kennari og skrifstofustjóri KHÍ. Er með B.A próf í sagn- fræði frá árinu 1957. „Kennarar og nemendur þéruðust, nem- endur höfðu engan aðgang að kennurum nema ef eitthvað sérstakt kom upp á, þá gátu þeir hringt heim til þeirra. En um eig- inlegan viðtalstíma var ekki að ræða. Kenn- arar voru afskaplega fjarlægir nemendum… Ekkert annað viðmót var hvorki af hálfu samstúdenta eða kennara í garð kvenstúd- enta. Háskólastúdentar litu ekki niður á al- menning. En einn atburður er Þóru minn- isstæður. Þá var föðursystir hennar að fara að halda erfidrykkju, en tengdamóðir hennar hafði látist. Kona hafði verið fengin til að sjá um veitingarnar og Þóra var feng- in til að aðstoða þá konu. Þegar konunni var sagt að stúlka hafði verið fengin henni til aðstoðar, vildi hún fá að vita á henni frekari deili. Þegar henni var svo sagt að stúlkan væri í háskólanum varð henni að orði: „Guð minn almáttugur, getur hún nokkuð gert… Þóra segir marga samnemendur sína hafa verið minnisverða, nefnir þar Sverri Hermannsson, Gunnar Schram og Magnús Óskarsson. Einnig Margréti Guðnadóttur en hún er eftirminnileg sökum þess hve fast hún stóð á sínu, var ekki feimin og hik- aði ekki við að halda fram sínum skoð- unum. Hún taldi sig jafnoka karlkyns sam- nemenda sinna… Kaffihúsin sem stúdentar sóttu aðallega voru Gildaskálinn (í Aðalstræti), Hressing- arskálinn og Kaffi höll. Á þessum stöðum borðuðu stúdentar aðallega kjötbollur og snitzel en það voru einna ódýrustu réttirnir sem hægt var að fá á slíkum stöðum. Með kjötbollunum voru bornar fram kartöflur og grænar baunir.“ STÚDENTAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.