Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 D 13 Ég er að hefjastíl- og hug-myndafræði- lega rannsókn á birt- ingarmyndum náttúrunnar á 19. og 20. öld, einkum í ís- lenskum bókmennt- um, og er styrktur til þess af Rannsóknar- ráði Íslands. Rann- sóknin miðast við mikilvægt hugtak í fagurfræði, hið há- leita eða súblíma (sublime á erlendum málum). Þetta hug- tak er gamalt og tengist upphaflega stílfræði (upphöfnum eða háum stíl), en á síðari öldum hefur það verið notað til þess að lýsa reynslu manna af því að hugsa um eða standa frammi fyrir einhverju sem er svo stórbrotið að það nær út fyrir öll mannleg mörk. Á 18. og 19. öld varð hið háleita áberandi í evrópskri fagurfræði, en þá fóru menn að beina sjónum sínum að náttúrufyrirbærum sem ekki þóttu fögur í hefðbundnum skilningi. Alpafjöllin voru t.d. talin bjóða upp á háleita reynslu af þessu tagi. Rannsóknartilgáta mín er sú að á 19. og 20. öld hafi náttúruljóð íslenskra skálda mótað sýn Íslendinga á hrika- lega fegurð norðursins og gefið henni margvíslegt inntak. Þessi háleita sýn einkennir ljóð Bjarna Thorarensens sem lofsyngur veturinn og skilgreinir óblíða náttúru norðurs- ins á jákvæðan hátt út frá siðferðilegum forsendum: hörð lífsbarátta eykur manngildið. Grímur Thomsen tengir hina háleitu náttúrusýn við óhugnanlegan heim þjóðtrú- arinnar í kvæðum sínum um íslenska eyðisanda og ógn- aröfl hafsins. Hið háleita tekur á sig mynd spámannlegrar mælsku í kvæðum Matthíasar Jochumssonar, þar sem ljóðmælendur standa frammi fyrir hrikalegum náttúrufyr- irbærum eins og fossum og hafís og spyrja áleitinna spurninga um tilvist Guðs. Ægifegurð íslenskra fjalla, fossa og vetrarhörku vekur ýmist hetjulund eða helþrá í kvæðum Kristjáns Jónssonar Fjallaskálds. Ljóðmælendur Hannesar Hafsteins una sér best undir berum himni og í Nafn: Sveinn Yngvi Egilsson Starfsheiti: Bókmenntafræðingur Fæðingard. og ár: 6. ágúst 1959 Ættaður frá: Norður- og Vesturlandi Stúdentspróf: 1979 Háskólapróf: M. phil. frá háskólanum í St. Andrews, Skot- landi 1991, MA frá Háskóla Íslands 1993 og dr. phil. frá sama skóla 2000 Núverandi starf/staða: Nýtur rannsóknarstöðustyrks frá Rannsóknarráði Íslands og er stundakennari við íslensku- skor Háskóla Íslands Rannsóknarsvið: Íslenskar bókmenntir síðari alda. Náttúra norðursins á 19. og 20. öld Náttúruljóð og fegurð norðursins stormi finna þeir sterklega til karlmennsku sinnar. Sem landnemi í Vesturheimi kemst Stephan G. Stephansson í mun nánari kynni við stórbrotna náttúru en hin skáldin. Manngildi og mikilfengleiki náttúrunnar takast á og end- urspeglast í myndvísum ljóðum Klettafjallaskáldsins. Í yrk- ingum sínum um fossa og útsæ sýnir Einar Benediktsson hin hrikalegu náttúruöfl norðursins á eðlisfræðilegri hátt en fyrri skáld og vekur máls á því að beisla orku þeirra með nútímatækni. Mannanna verk eins og skipasmíðastöðvar samtímans verða honum aflvaki hins háleita ekkert síður en náttúran. Þessi tilfærsla vísar fram á við til atómskáld- anna sem yrkja brotakennd ljóð sín á tímum kjarnorku- ógnar, en sú gereyðingartækni er endanlegur vottur þess að hið háleita er ekki síður manngert en náttúrulegt. Ég tel að margt í umhverfisumræðu og ferðamennsku okkar daga megi auk þess skoða í ljósi þessa hugtaks, enda má oft heyra enduróm af íslenskum ættjarðarljóðum þegar menn ræða um hálendismálin og markaðssetja landið. Sérstaklega athyglisvert verður að kanna þjóðar- ímynd þá sem var ákveðið að birta með úrvali sagna í fyrstu tveimur bindunum af þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. TERRY GUNNELL Á landsvísu drekkur ungt fólk að meðaltali rúman einn lítra af gosdrykkjum og eða djúsi á dag. Þessi lífs- stíll hefur ekki bara verið tengdur við tannskemmdir heldur einnig við aukna tíðni á glerungseyðingu tanna. INGA B. ÁRNADÓTTIR Auk þessa er ég mikill áhugamaður um tónlist. Ég er núna að vinna í því að fá framúrstefnurokkarana PLP (Par Lindh Project) til landsins til að spila. HERMANN ÞÓRISSON Í skáldskap sínum og ýmsum ritgerðum hefur Guð- bergur leitast við að halda uppi spegli að íslensku þjóðerni, einkennum þess, siðvenjum, fegurðarskyni og hugmyndarfræði. BIRNA BJARNADÓTTIR Rannsóknartilgáta mín er sú að á 19. og 20. öld hafi náttúruljóð íslenskra skálda mótað sýn Íslendinga á hrikalega fegurð norðursins og gefið henni margvís- legt inntak. SVEINN YNGVI EGILSSON Kvikmyndir um persónu og hlutverk Jesú Krists, hvort sem þær segja sögu hans eða hafa tilvísun til persónu hans, geta verið mikilvægt innlegg í fræðin um Krist. ARNFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR Í vinnslu hjá okkurí þjóðfræði er nýrgagnabanki sem mun innihalda flokk- un og stafræna skrá íslenskra þjóðsagna frá 18., 19. og 20. öld. Þetta er stafrænn gagnabanki yfir aldur, heimildamenn, skrá- setjara, sögumenn, upprunastaði, stað- setningu, dreifingu, efni, minni, þemu, og uppruna íslenskra þjóðsagna (legends) sem hefur verið safnað og hafa verið birtar síðan 18. öld. Þessi skrá mun vera stórt skref að fyrstu heildar þjóð- sagnaarkiv Íslendinga. Meðal annars mun skráin gera fræðimönnum, kennurum, ferðamálastjórum, leiðsögu- mönnum og öðrum áhugamönnum kleift að kanna dreif- ingu þjóðtrúar, þjóðsagnategunda og þjóðsagnaminna um landið; að kanna dreifingu sagnamanna og heimilda- manna um landið; að kanna (gegnum dreifingu flökku- sagna og alþjóðlegra minna og könnun á slíku efni) erlend áhrif á íslenskar þjóðsagnir og þjóðlíf; að kanna stíl, áhugamál og trú einstakra sagnamanna og heimilda- manna; að finna upplýsingar um tiltekin minni, sagna- menn, sagnastaði, efni, atriði, trú og/eða sagnategund á mjög stuttum tíma; að gera nákvæman heildarsamanburð á innlendum og erlendum sagnaminnum og sagnateg- undum; að athuga hvaða efni var valið og sleppt í þjóð- sagnaútgáfunum til að fá betri skilning á áherslum rit- stjóra og safnara á mismunandi tímum og þ.a.l. þá ímynd þjóðmenningar og þjóðtrúar Íslendinga sem þeir vildu birta fyrir almenning og umheiminn. Verkefnið er styrkt af RANNÍS og rannsóknarsjóði Háskóla Íslands. Á þessari stundu, eru um 7.000 sagnir komnar í skrána, skráðar af nemendum í þjóðfræði í Háskóla Íslands a.m.l. í sum- arvinnu. Efnið verður einnig þýdd á ensku og aðgengileg á Netinu. Niðurstöður verða birtar með tímanum, en ljóst er nú þegar að mismunandi landsvæði hafa haft sérkenni varð- andi sagnagerð og þjóðtrú. Einnig er ljóst til dæmis að ná- in menningarleg tengsl hafa legið fyrir milli Norðurlands og Suðurlands (líklega að sumu leyti vegna verbúðar- göngu og fiskinnkaupa); og milli Íslands og Noregs á 19. öld (líklega vegna fiskveiðitengsla). Sérstaklega athygl- isvert verður að kanna þjóðarímynd þá sem var ákveðið að birta með úrvali sagna í fyrstu tveimur bindunum af þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar. „Dulbúningasiðir“: Ég stjórna einnig alþjóðlegum hópi fræðimanna sem eru að gera fyrstu heildarúttekt á dul- búningasiðum fyrr og nú í Skandinavíu, form, upphaf, til- gang og þróun þeirra. (Hér er verið að ræða um siði eins og sjást hér á landi á öskudegi, og dimmissjón í mörgum framhaldsskólum landsins, en fyrr á öldum komu þeir fram í vikivakaleikjum og e.t.v. fornum helgisiðum). Verk- efnið hefur fengið 10 milljóna íslenskra króna styrk frá NOS-H í Skandinavíu, og verður alþjóðleg ráðstefna hald- in í Finnlandi á næsta ári. Mun afrakstur verkefnisins koma síðan út í bók á 2003. Í tengslum við þetta verkefni ætla ég á þessu ári að athuga upphaf og þróun busa- og dimmissjónsiða í framhald- skólum landsins. Einnig verður kannaður tilgangur sið- anna og viðhorf til þeirra. Svo verður gerður samanburður milli skóla, og milli skólasiða á Íslandi og í nágrannalönd- unum. Niðurstöðurnar munu birtast á næstu ári. Þjóðsagnabanki og dulbúningar Nafn: Terry Gunnell Starfsheiti: Leiklistarfræðingur/íslenskufræðingur Fæðingard. og ár: 7.7. 1955 Ættaður, frá hvaða stöðum/landshlutum: Frá Bretlandi (Brighton) Stúdentspróf: 1973 (Hove) Háskólapróf, eftir gráðum: 1977: BA Hons, leiklistarfræði (Birmingham); 1978: PGCE (kennslu- og uppeldisfræði); 1981: Bacc. Phil. íslenska fyrir erlenda stúdenta (HÍ); 1991: PhD í íslenskum fræðum (Háskólinn í Leeds) Núverandi starf: Lektor í þjóðfræði Rannsóknarsvið: Þjóðsagnafræði; þjóðhátíðir, þjóðtrú og þjóðsiðir; alþýðuleiklist, og „Performance Studies“ Rannsóknir: Þjóðsagnagagnabanki: Í starfi mínu semlektor við tann-læknadeild Háskóla Íslands hef ég fengist við ýmsar rannsóknir á tannheilsu barna og unglinga. Rannsóknir mínar hafa þróast frá því að vera faralds- fræðilegar, í að prófa orsakatengsl ýmissa áhættuþátta, til að reyna að skýra út mis- munandi dreifingu á tannsjúkdómnum. Markhópar í rann- sóknum mínum hafa verið börn og unglingar, þó í seinni tíð hafi ég lagt meiri áherslu á unglinga vegna aukinn- ar áhættu þeirra á tann- skemmdum. Þessi aukna áhætta virðist að hluta til skýrast með því að unglingar eru minna undir umsjón foreldra, meðal annars hvað varðar tannhirðu og mataræði, auk þess að eftir 18 ára aldur stöðvast endurgreiðsla frá Trygg- ingastofnun ríkisins á tannlæknaþjónustu. Rannsóknir sem ég gerði á 14 til 16 ára unglingum sýndu að hjá þessum aldurshópi myndast að jafnaði, rúmlega ein skemmd á ári, sem er töluvert hærra hlutfall en hjá nágrannaþjóðum okkar. Helstu orsakir tannskemmda tengjast lífsstíl einstak- linga sem er víðast misjafn eftir aldri. Þannig kemur fram að aðalorsök tannskemmda hjá 14 ára unglingum hér á landi er millimálanart. Af þeim 14 ára unglingum sem höfðu alist upp við einn nammidag í viku, voru 50% án tannskemmda, samanborið við 13% þeirra sem enga reglu höfðu á sælgætisáti. Önnur rannsókn sem gerð var á 16 ára unglingum sýndi marktækan mun á tannskemmdatíðni þeirra sem nota tannþráð reglulega og þeirra sem ekki nota tannþráð. Búseta, þ.e.a.s. til sjávar og sveita hefur einnig áhrif á tannskemmdatíðni 14 ára unglinga. Til sveita er lægri tannskemmdatíðni og minna millimálanart heldur en í sjávarþorpum. Þar kemur væntanlega við sögu annars vegar aðgengi að sælgæti og gosdrykkjum og fjárhagur viðkomandi. Unglingarnir okkar eru í mikilli hættu vegna neyslu- hátta sinna, við eigum heimsmet í sælgætis- og gos- drykkjaneyslu, en samkvæmt könnunum eru neytendur þess sér í lagi unglingar. Á landsvísu drekkur ungt fólk að meðaltali rúman einn lítra af gosdrykkjum og eða djúsi á dag. Þessi lífsstíll hefur ekki bara verið tengdur við tannskemmdir heldur einnig við aukna tíðni á glerungseyðingu tanna. Glerungseyðing er margþættur sjúkdómur sem er ólík- ur tannskemmdum eða tannátu vegna þess að um er að ræða efnafræðilega upplausn tanna, en ekki samspil syk- urs og baktería eða örvera. Við skoðun á 15 ára reykvísk- um unglingum kom fram að fimmti hver unglingur hafði byrjandi glerungseyðingu. Þetta er nýr sjúkdómur hjá þessum aldurshópi, sem hefur þróast með lífsstílnum að vera sísúpandi á gosdrykkjum og öðrum súrum drykkjum. Munnvatnið verður ekki þess megnugt að eyða sýruáhrif- um drykksins þannig að glerungur tanna leysist upp. Munnvatn gegnir mikilvægu hlutverki í tannsjúkdóma- fræðinni og á eflaust eftir að koma við sögu lausna á gler- ungseyðingu á næstu árum. Vísindin munu hjálpa okkur að þróa forvarnir og meðferðir gegn þessum erfiða sjúk- dómi sem eflaust á eftir að herja meira á okkar yngri kyn- slóðir, ef neyslumynstur þeirra helst óbreytt. Í dag vinnum við að úrvinnslu gagna um tannskemmd- atíðni og glerungseyðingu einstaklinga um tvítugt, og ber- um saman við lífsstíl þeirra. Úrvinnsla gagna er unnin af sameiginlegum meistaranema í næringafræði og tann- lækningum, en þetta er eitt af fyrstu samvinnuverkefnum á milli deilda innan HÍ. Vegna smæðar okkar, gefur samvinnan meiri vídd í vís- indin með þverfaglegri vinnu á millli deilda. Markmið rannsókna minna eru að tengja áhættuþætti um lífsstíl við sjúkdóma, þannig að með fræðslu sé mögu- leiki á að fyrirbyggja þá. Nafn: Inga B. Árnadóttir. Starfsheiti: Tannlæknir. Fæðingard. og ár: 7.1. ’55. Stúdentspróf: Menntaskólinn við Tjörnina 1975. Háskólapróf, eftir gráðum: Cand.odont tannlæknir frá Tannlæknaháskólanum í Árósum í Danmörku 1981. Nam samfélagstannlækningar í Norræna Heilsuverndarháskólanum í Gautaborg 1983. MPH Master of Public Health í stjórnun og stefnumörkun í tannvernd frá University of North Carolina Chapel Hill 1995. Núverandi starf: Lektor og kennslustjóri í menntun aðstoðarfólks tannlækna við tannlæknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknir: Tannheilsa barna. Nammidagurinn sannar sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.