Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 14

Morgunblaðið - 29.09.2001, Page 14
14 D LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Um þessar mundir er ég aðvinna í nokkrum rann-sóknarverkefnum sem tengjast notkun aðgerðarannsókna og bestun í íslenskum iðnaði. Sem dæmi um rannsóknarverkefni, sem jafnframt eru meistaraverk- efni, má nefna fjögur verkefni: eitt verkefni snýr að bestun á hönnun varmaorkuvera, annað verkefni sem snýr að bestun flutningaferla á frosnum matvælum, þriðja verk- efnið snýr að hagræðingu í fram- leiðsluskipulagningu hjá framleiðslufyrirtæki með notkun svonefnds ERP-kerfis og aðgerðarrannsókna og fjórða verk- efnið snýr að notkun frammistöðumælinga við stefnumótun. Eitt af ofantöldum verkefnum, bestun á hönnun varma- orkuvera, er styrkt af Tæknisjóði Rannís. Að verkefninu koma nokkrir aðilar og er verkefnið þverfaglegt þar sem það tengir saman varmafræði, bestun og þróun hugbúnaðar. Verkefni er unnið í samstarfi við aðila í iðnaði sem eru Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns (VGK), Hitaveita Húsavíkur og Hita- veita Suðurnesja. Meginmarkmið verkefnisins er að þróa hugbúnað og nýjar aðferðir til að besta hönnun varmaorkuvera. Þetta er gert með því að nýta nýja og fullkomna tækni við lausn og bestun flók- inna reiknilíkana. Hugbúnaðurinn felur í sér nýja aðferða- fræði við hönnun af þessu tagi þar sem byggt er á reiknilíkani af orkuverinu og heildarkostnaður lágmarkaður með best- unarlíkani. Heildarkostnaður þýðir hér bæði stofnkostnaður og núvirtur rekstrarkostnaður yfir notkunartímabilið. Mögu- legar lausnir, það er möguleg gildi á hönnunarstikum, eru háðar ýmsum skorðum bæði vegna ytri aðstæðna og innra samhengis í viðkomandi ferli. Bestunarlíkan af svona við- fangsefnum geta orðið flókin og erfið úrlausnar en hugmynd- in er að nýta nýjungar í svonefndum víðværum bestunar- aðferðum (þ.e. global optimization) til að finna bestu lausnir. Verkfræðileg hönnun er flókið ferli þar sem ákvarða þarf margar hönnunarbreytur og skilja samspil þeirra. Þegar um margar hönnunarbreytur er að ræða verður fljótt erfitt fyrir hönnuð að hafa yfirsýn yfir allar mögulegar útfærslur. Notkun bestunar í verkfræðilegri hönnun gefur því verkfræðingi tæki til að rannsaka á auðveldan hátt samspil margra hönnunar- breyta og þar með möguleika á að finna bestu lausn hönn- unarvandamáls. Á þessu stigi er unnið að gerð líkans og hugbúnaðar fyrir orkuver sem byggist á tækni sem kennd er við Kalina. Kalina- tæknin er ný tækni sem hægt er að nota til að nýta lághita og spillivarma. Nýting slíkrar orku flokkast sem „græn orka“, eða umhverfisvæn orka og verður sífellt samkeppnishæfari á orkumörkuðum, þar sem önnur orka, t.d. olíuverð fer hækk- andi og þar sem umhverfismál og umhverfisraskanir skipa sí- fellt stærri sess við ákvörðunartöku. Nýlegt orkuver á Húsavík nýtir lághita til að framleiða orku með þessum hætti og er með fyrstu orkuverum í heiminum sem nýtir Kalina-tækni. Framtíðarmarkmið rannsóknanna er að nota þá fagþekk- ingu sem byggst hefur upp á Íslandi til að útvíkka þessa hug- búnaðarlausn til annarra varmafræðilegra orkuferla en Kalina og þannig verði hægt að nota þessa aðferð almennt við hönn- un varmaorkuvera. ... við hönnun varmaorkuvera Nafn: Birna Pála Kristinsdóttir Starfsheiti: Dósent við véla- og iðnaðarverkfræðiskor Fæðingard. og ár: 9. desember, 1967 Ættuð: Fædd og uppalin í Reykjavík Stúdentspróf: Frá Menntaskólanum í Reykjavík, 1987 Háskólapróf: Lokapróf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands, 1991. Mastersgráða í iðnaðarverkfræði frá University of Washington, Seattle, 1993. Doktorspróf í iðnaðarverkfærði frá University of Washington, Seattle, 1997 Núverandi staða: Dósent við véla- og iðnaðarverkfræðiskor Háskóla Íslands, tók við stöðunni sumarið 2000 Rannsóknarsvið: Einkum stundað rannsóknir á sviði að- gerðarannsókna, bæði fræðilegar rannsóknir á einstökum aðferðum og eins hagnýtingu aðferða í iðnaði. Þekking á erfða-grunni bjarkar-tegunda (Betula) á Íslandi er mikilvæg- asta forsenda fyrir hag- nýtingu og varðveislu náttúruskóga hérlend- is. Náttúruskóglendi felur í sér aðlögunar- og vaxtargetu sem þróast hefur að ís- lensku umhverfi í mörg þúsund ár og er þannig fyrirmynd til rannsókna í stofnerfðafræði og erfðavistfræði. Unnið hefur verið að greiningu á erfðagrunni bjarkar með því að beita fjöl- breyttum aðferðum í erfðafræði, grasafræði og skógrækt. Litningagreining á bjarkartegundum, s.s. birki og fjalldrapa, hefur sýnt fram á að í náttúrunni víða um landið er til þrílitna birki sem er kynblendingur milli (ferlitna) birkis og (tvílitna) fjalldrapa. Blendingar eru um 10% af bjarkarplöntum sem hafa verið rannsakaðar og þeir eru ekki ófrjóir. Með víxlunum blendinganna og birkis eða fjalldrapa hafa gen þeirra flust á milli tveggja tegunda í náttúrunni. Þetta fyrirbæri er kallað erfðablöndun eða genaflæði (introgression), og líklega vegna þess er birki okkar mjög breytilegt og kræklótt birki er algengt. Sameindaerfðafræðilegar rannsóknir okkar hafa staðfest erfðablöndunina og sýnt fram á að genaflæði gerist í báðar áttir á milli birkis og fjalldrapa hérlendis. Einnig hefur verið unnið að rannsóknum á erfðabreytileika birkis með því að skoða genabreytingar. Niðurstöðurnar benda til þess að birki hérlendis er frábrugðið öðru birki, en meðal okkar birkis eru Bæjarstaðabirki og Vaglaskógarbirki sérstök. Rannsóknir í erfðafræði birkis eru styrktar af RANNÍS og Háskóla Íslands. Ég er einnig að rannsaka erfðauppruna melgresis, en ís- enskt melgresi er af tegundinni Leymus arenarius sem hefur meginútbreiðslu í Norður-Evrópu. Sú rannsókn er styrkt af RANNÍS og Háskóla Íslands. Birki hérlendis er ólíkt öðru Nafn: Kesara Margrét Anamthawat-Jónsson Starfsheiti: Grasafræðingur F.dagur og ár: 18. nóvember 1951 Ættuð/ættaður, frá hvaða stöðum/landshlutum: Bangkok, Taílandi. Fjölskylda: Maki: Friðrik Ragnar Jónsson, verkfræð- ingur; Barn: Salóme Sirapat, 2 ára Háskólapróf, eftir gráðum: B.Sc. Honour og Gullorða Konungsins. Chulalongkorn Há- skóli, Bangkok, Thailandi. M.S. University of Kansas, Law- rence, Kansas, Bandaríkinjunum. Ph.D. Cambridge Háskóli, Cambridge, Bretlandi Núverandi starf/staða: Prófessor við Líffræðiskor, Raunvís- indadeild, Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið: Plöntuerfðafræði og frumuerfðafræði Helstu rannsóknaverkefni: Erfðafræðileg aðgreining ís- lenskra bjarkartegunda. Íslenskt melgresi. Um nokkurt árabilhöfum við dr. Har-aldur Halldórsson lífefnafræðingur unnið að athugunum á innri boð- kerfum í æðaþelsfrumum. Æðaþelið er þunnt frumu- lag sem klæðir allt æða- kerfið innan. Um langan aldur var þetta þunna lag ekki talið til stórræðanna en rannsóknir síðustu áratuga hafa leitt í ljós að æðaþelsfrumur framleiða fjölmörg virk efni sem m.a. hafa áhrif á æðavídd, viðnám í æðum, blóð- þrýsting, virkni storku- kerfis og blóðflagna, viðloðun og færslu bólgufrumna og mörg fleiri. Truflun í starfsemi æðaþelsins getur því verið afdrifarík fyrir heilbrigði blóðrásarkerfisins og leitt til sjúk- dóma eins og æðakölkunar, blóðsegamyndunar og smáæðasjúkdóma sem tengjast sykursýki. Vegna staðsetn- ingar æðaþelsins á innra borði æða í beinni snertingu við streymandi blóð verður æðaþelið fyrir fjölbreyttu áreiti, bæði af völdum boðefna í blóði og þess núnings og þrýst- ings sem sem mæðir af blóðstreyminu sjálfu. Æðaþelið bregst við þessum boðum á margvíslegan hátt og við höf- um í rannsóknum okkar leitað eftir auknum skilningi á þeim boðkerfum sem ræst eru í æðaþelsfrumunum við mismunandi áreiti og þeim svörum sem boðkerfin vekja. Síðasta skrefið í þessari vinnu er rannsókn á virkni líf- hvatans Akt í æðaþelsfrumum við mismunandi aðstæður sem við höfum nýlokið við í samvinnu við Brynhildi Thors, líffræðing og mastersnema, og Guðrúnu Dóru Clarke læknanema. Áður hefur verið sýnt fram á að Akt gegnir margþættu hlutverki í æðaþelsfrumum; hamlar gegn stýrð- um frumudauða, stuðlar að nýmyndun æða og örvar líf- hvatann eNOS sem stjórnar myndun köfnunarefnisoxíðs í frumunum en það er eitt mikilvægasta og virkasta efni sem æðaþelið framleiðir. Við höfum sýnt fram á að örvun æða- þelsfrumna í rækt með áverkunarefnunum thrombíni, his- tamíni og lysophosphatidylkólíni hindrar Akt-örvun í æða- þelsfrumunum. Einnig höfum við sýnt fram á hvernig þetta gerist og sérstaklega hvaða hlutverki annar mikilvægur líf- hvati, prótein kínasi C, gegnir í slíkri hindrun. Þar sem skert Akt-virkni getur haft alvarlegar starfrænar afleiðingar geta niðurstöðurnar skipt máli fyrir skilning okkar á sjúkdómum eins og æðakölkun og æðaskemmdum í sykursýki. Nægir að benda á að lysophosphatidylkólín miðlar æðaskemmandi áhrifum hins kólesterólríka LDL (low density lipoprotein) og í sykursýki örvast lífhvatinn prótein kínasi C, sem einmitt miðlar hindrunaráhrifum his- tamíns og thrombíns á Akt samkvæmt okkar niðurstöðum. Við vonumst því til að skoða megi rannsókn okkar bæði sem framlag til aukins skilnings á frumulíffræði æðaþels al- mennt og viðbót við þekkingu á meinþróun mikilvægra æðasjúkdóma. Skilningur á æðakölkun Nafn: Guðmundur Þorgeirsson Starfsheiti: Læknir Fæðingard. og ár: 14.3. 1946 Ættaður: Í móðurætt frá Harðbak á Melrakkasléttu en í föð- urætt frá Hæli í Gnúpverjahreppi Stúdentspróf: Menntaskólinn í Reykjavík 1966 Háskólapróf: Cand. med. et chir. frá HÍ 1973. PhD frá Case Western Reserve University í Cleveland, Ohio, 1978. Núverandi starf: Yfirlæknir á hjartadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss og prófessor við Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið: Þríþætt: 1. Frumulíffræði æðaþels, 2. Far- aldsfræði hjarta- og æðasjúkdóma, 3. Meðferðarprófanir á hjarta- og æðasjúkdómum Rannsóknir: Hindrun á virkni Akt í æðaþeli. Eitt helsta rannsókna-verkefnið sem égvinn að núna leitar svara við því hvers vegna ný- gengi insúlínháðrar sykur- sýki, eða sykursýki af gerð 1, er lægra hérlendis en meðal skyldra þjóða, en hér rann- sökum við hugsanlega verndandi þætti í íslensku mataræði eða hvort minna sé af efnum sem leitt geta til sjúkdómsins í okkar mataræði en í mataræði annarra þjóða. Að þessu verkefni vinn ég með mörgum góðum samstarfsmönnum bæði hér heima og er- lendis. Í samvinnu við finnskan vísindamann er ég nú m.a. að vinna að yfirliti um samsetningu kúamjólkur og heilsufars- áhrif, en svo virðist sem minna magn af ákveðnum kaseinum í íslenskri kúamjólk valdi því að við fáum síður sykursýki en t.d. Finnar eða Norðmenn. Þetta er hins vegar ekki eina skýringin þar sem við höfum fundið að fleiri prótein virðast hafa sér- stöðu í okkar mjólk, og sömuleiðis er ljóst að önnur næring- arfræðileg atriði skipta máli. Í grein sem finnskt samstarfsfólk okkar mun birta í Lancet á næstunni kemur t.d. fram að D-vítamín neysla á unga aldri virðist vernda Finna gegn því að fá insúlínháða sykursýki – en við höfum m.a. áætlað að reyna að bera saman D-vítamín í mataræði Íslendinga og Finna. Auk þessa verkefnis vinn ég að nokkuð stórum rannsóknum á næringu og heilsu ungra barna, næringarástandi sjúklinga á sjúkrahúsum og greiningaraðferð fyrir vannæringu og mats- áætlun, auk rannsókna á þyngdaraukningu og næringu á meðgöngu, á áhrifum mataræðis á samsetningu brjósta- mjólkur og rannsóknum á tengslum fæðingarþyngdar Íslend- inga og heilsu síðar á ævinni. Þetta byggist allt fyrst og fremst á góðri samvinnu milli manna, ekki síst góðri samvinnu við frá- bæra og áhugasama stúdenta og ungt vísindafólk, en einnig á samvinnu við mjög hæfa sérfræðinga t.d. í læknisfræði, töl- fræði og matvælafræði. Því fer fjarri að maður geri mikið einn. Samvinna við erlenda aðila er líka mikil, og geta t.d. stúdentar mínir sótt námskeið og fundi erlendis. Rannsóknirnar hafa verið gerðar mögulegar með innlendum og erlendum styrkj- um, t.d. frá Evrópusambandinu sem veitt hefur styrki til að kosta samstarf og nú nýverið einnig beint til að kosta rann- sóknarverkefni. b. Hver er niðurstaðan eða markmiðið? ( lík- leg niðurstaða eða þá tilgáta,dæmi um hugsanlegt gildi ... eftir því hver staðan er). Ég hef unnið að uppbyggingu Rannsóknastofu í næring- arfræði undanfarin ár en stofan er byggð upp í kringum rann- sóknaverkefni sem mér og samstarfsfólki, sérstaklega innan heilbrigðisgeirans, hefur fundist aðkallandi að vinna að. Nú vinna á stofunni átta manns – bæði stúdentar í rannsókna- tengdu framhaldsnámi í næringarfræði og annað starfsfólk. Við vinnum að rannsóknum á því hvernig næring getur stuðl- að að því að fyrirbyggja og meðhöndla sjúkdóma og við nýtum okkur séríslenskar aðstæður til þessara rannsókna. Það liggur verulega mikið á að rannsaka ákveðna þætti eins og til dæmis jákvæð áhrif af samsetningu íslensku kúamjólkurinnar. Íslensk kúamjólk og sykursýki Nafn: Inga Þórsdóttir Starfsheiti: Forstöðumaður Fæðingard. og ár: 25. desember 1955 Ættuð frá hvaða stöðum/landshlutum: Reykjavík. Stúd- entspróf frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1975 Háskólapróf, eftir gráðum: BS-próf frá HÍ 1980, Dr. med.sci. frá Gautaborgarháskóla 1989 Núverandi starf/staða: Prófessor í næringarfræði við HÍ og forstöðum. næringarstofu Landspítala – háskólasjúkrahúss Rannsóknarsvið: Uppbygging rannsóknastofu í næring- arfræði við HÍ og Landspítala – háskólasjúkrahús. Húsnæði rannsóknastofunnar er sem stendur hingað og þangað, eða á næringarstofu Landspítala, í íþróttahúsi HÍ og í leigu- herbergjum á Þjóðarbókhlöðu, auk aðstöðu á rann- sóknastofu Landspítala. Svo virðist sem minna magn af ákveðnum kaseinum í íslenskri kúamjólk valdi því að við fáum síður syk- ursýki en t.d. Finnar eða Norðmenn. INGA ÞÓRSDÓTTIR Við vonumst því til að skoða megi rannsókn okkar sem framlag til aukins skilnings á frumulíffræði æðaþels almennt. GUÐMUNDUR ÞORGEIRSSON Mínar rannsóknir um þessar mundir hafa það mark- mið að segja eitthvað nýtt um íslensk handrit frá miðöldum MÁR JÓNSSON Að búa til líkan með stærðfræðilegu máli eins og Z málinu hefur verið gert í nokkra áratugi en hefur ekki náð nógu mikilli útbreiðslu. EBBA ÞÓRA HVANNBERG VÍSINDI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.