Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.09.2001, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2001 D 19 Björn Bjarnason var formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1967–1968, og sat í fyrstu stjórn Félagsstofnunar stúdenta. Hann beitti sér sem menntamálaráð- herra fyrir al- mennri háskólalöggjöf og sérstakri löggjöf um Háskóla Íslands. Hvenær hófst nám þitt við Há- skóla Íslands? Ég hóf nám í lagadeild Háskóla Íslands haustið 1964 en þá um vor- ið varð ég stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík. Varðstu strax virkur í félagslífi stúdenta? Ég varð fljótt virkur þátttakandi í störfum fyrir Vöku, félag lýðræðis- sinnaðra stúdenta, tók meðal ann- ars saman afmælisblað um félagið með Jón Kristjánssyni, sem einnig var laganemi, þá fór ég í Stúdenta- ráð Háskóla Íslands og sat einnig í stjórn Orators, félags laganema. Á menntaskólaárunum lét ég ekkert að mér kveða í félagslífi, en þeim mun meira þegar ég kom í háskól- ann, ekki síst fyrir stúdentaráð. Hvaða trúnaðarstörfum gegndir þú fyrir stúdenta? Ég sat í stjórn Orators og var varaformaður og síðar formaður stúdentaráðs auk þess sem ég sinnti alþjóðasamskiptum á veg- um ráðsins, en á þessum tíma var hart tekist á um alþjóðamál á vett- vangi stúdenta og togast á um að- ild að IUS, sem var í tengslum við alþjóðahreyfingu kommúnista, ISC, sem byggði á vestrænum gild- um. Þegar ég var í þessu starfi átti stúdentaráð aðild að ISC. Hver voru samskipti nemenda og kennara á þessum árum? Í lagadeildinni höfðum við marga landskunna menn sem kennara og öll samskipti við þá voru mjög formleg. Ég kynntist Ár- manni Snævarr einna best, bæði lét hann sér annt um hag nem- enda, en einnig átti ég samstarf við hann sem rektor í störfum mínum fyrir stúdenta og hefur vinátta okk- ar dafnað fram á þennan dag. Síðar starfaði ég einnig með Ólafi Jó- hannessyni, sem var prófessor í stjórnskipunarrétti og stjórnlaga- fræði, en þá var ég skrifstofustjóri hjá honum í forsætisráðuneytinu og ritari í ríkisstjórninni, sem hann veitti forsæti 1978-79. Þótti mér ekki síður lærdómsríkt að kynnast honum í þeim störfum en að nema hjá honum lögfræði. Hverjir eru að þínu mati mátt- arstólparnir í sambandi ríkisins og Háskóla Íslands? Staða Háskóla Íslands og sjálf- stæði hefur styrkst í áranna rás. Hann er ekki lengur pólitískt bit- bein með sama hætti og áður, þeg- ar til dæmis var tekist hart á um skipun manna í prófessorsstöður á alþingi. Ég beitti mér fyrir al- mennri háskólalöggjöf og sérstakri löggjöf um Háskóla Íslands, sem veitir skólanum meira sjálfstæði en hann hefur nokkru sinni haft í samskiptum sínum við ríkisvaldið. Ég vil sjá skólann í fararbroddi sem mennta- og vísindastofnun, sem nýtur virðingar og álits jafnt innan lands sem utan. Þjóðir eru í meira mæli en nokkru sinni fyrr metnar eftir því, hvernig þeim hefur tekist að sækja fram á sviði mennta, vís- inda og rannsókna. Fyrir ríkið skiptir miklu, að Háskóli Íslands komi fram sem jákvætt, metnaðar- fullt afl í þjóðlífinu. Þjóðir metnar eftir vísindum BJÖRN BJARNASON segir þjóðir í meira mæli en áður metnar eftir því, hvernig þeim hef- ur tekist að sækja fram á sviði mennta, vísinda og rannsókna. BJÖRN BJARNASON Getur samfélagið tekið á móti öll- um fræðimönn- um? Fjölgun há- skólamenntaðs fólks hefur verið mikil og ör á síð- astliðnum tveim- ur áratugum. Ís- lenskar háskólastofnanir hafa að sama skapi vaxið og dafnað. Menntun er litin öðrum augum í dag en áður var, því nútímavæðing samfélagsins gerir síaukna kröfu til sérþekkingar. Tölur um námsmenn sem stunda grunn- eða framhaldsnám við há- skóla hérlendis sem og erlendis, staðfesta hinn aukna áhuga fólks á að fjárfesta í menntun. Samkvæmt upplýsingum frá SÍNE, eru mjög margir vísindamenn nú að hefja framhaldsnám í ýmsum greinum hug- og félagsvísinda og margir eru langt komnir með slíkt nám. Á næstu 2-3 árum er til dæmis von á 12-13 útskrifuðum kvensagnfræð- ingum eingöngu úr doktorsnámi. Í dag eru þær 5. Samfélagið verður að geta tekið á móti þessum fræði- mönnum og gefið þeim tækifæri til að nýta þá þekkingu sem þeir hafa aflað sér. ReykjavíkurAkademían (RA) var stofnuð sem félag sjálfstætt starf- andi fræðimanna árið 1997. Eitt helsta markmiðið með stofnuninni var að útvega háskólamenntuðum sameiginlega starfsaðstöðu en sí- fellt fleiri fræðimenn kjósa frekar að vinna sjálfstætt að rannsóknum og fræðastörfum í stað þess að starfa innan bundinna ramma háskól- anna. Hérlendar háskólastofnanir Mikil og ör fjölgun fræðimanna STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR fornleifafræðingur og formaður stjórnar ReykjavíkurAkademíunn- ar segir mikla fjölgun fræðafólks augljóslega jákvæða. STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR rúma heldur ekki þann fjölda há- skólamenntaðra fræðimanna sem hafa hug á að stunda rannsóknir. Síðla árs 1998 varð draumur stofnenda ReykjavíkurAkademí- unnar að veruleika þegar félagið opnaði fræðasetur í JL-húsinu við Hringbraut 121 í Reykjavík. Um leið fluttust þar inn 10 sjálfstætt starf- andi fræðimenn. Viðbrögðin létu síðan ekki á sér standa og fræði- mönnum í Akademíunni fjölgaði ört og þétt. Nú, að fjórum árum liðnum frá stofnun hennar, vinna þar innanhúss að jafnaði 65 ein- staklingar eða stofnanir að fræða- störfum á sviði hug- og félagsvís- inda. Enginn vafi leikur á að með stofn- un ReykjavíkurAkademíunnar hafi orðið þáttaskil í sögu mennta- og menningarmála, ekki einungis hér- lendis því fjölgun háskólamennt- aðra á undanförnum árum er sú sama hér og í öðrum löndum Evr- ópu og í Bandaríkjunum. Rann- sóknasamfélag á háskólastigi, eins og RA, opnar nýjar leiðir til nýtingar á menntun og fræðum í þágu rann- sókna og menningar, og hvetur fræðimenn til dáða. Viðtaka fræðimannanna sjálfra á ReykjavíkurAkademíunni endur- speglar kannski í hnotskurn stöðu sjálfstætt starfandi fræðimanna eins og hún er í dag. Hin mikla fjölg- un fræðafólks og afrakstur verkefna þeirra hefur augljóslega leitt til já- kvæðrar vakningar á gildi mennt- unar og fræðastarfa. Daglega eru í boði vel sóttir fyrirlestrar, málstofur, röbb og ráðstefnur. Þetta á einnig við meðal almennings, sem tekið hefur við sér með virkri þátttöku í því sem fræðimennska gefur af sér. Er skilningurinn nægur? Fræði og símenntun er orðin nauðsynlegur þáttur í daglegu lífi okkar. Sjálfstæð fræðimennska er þungur róður og enn verða margir að kjósa þá leið að leggja fræðimennskuna á hilluna. Skilningur á mikilvægi fræðastarfa mætti vera meiri. Mikilvægt er að tryggja áherslu á grunnrannsóknir innan hug- og félagsvísinda sem ekki hafa augljós arðsemissjónar- mið að leiðarljósi. Þjóðfélagslegt mikilvægi rannsóknaverkefna er mikið fyrir háskólasamfélagið allt í heild sinni. Rannsóknir og vísindi gagnast okkur öllum. Er Reykjavík há- skólaborg? Já, það er hún. Háskóli verður að hafa borg sem bakland og til að borg standi und- ir nafni þarf hún að hafa háskóla. Sem höfuðborg landsins á Reykjavík líka að vera miðstöð menningar, mennta og vísinda og því eðlilegt að þar starfi helstu menntastofnanir okk- ar, s.s. Háskóli Íslands, Kennarahá- skólinn, Listaháskólinn, Háskólinn í Reykjavík og Tækniskólinn. Há- skólasamfélagið setur líka svip sinn á Reykjavík, sérstaklega miðborg- ina, gefur henni líf og lit. Kannanir sýna að ungt námsfólk er fjölmennt í hópi þeirra sem sækja hana heim. Hvaða gildi myndi þekkingar- þorp hafa fyrir borgina? Þeir myndu hafa mikla þýðingu, ekki bara fyrir borgina heldur fyrir landið allt, og þess vegna hafa borgaryfirvöld unnið mjög náið með háskólayfirvöldum að því að þróa þessa hugmynd. Ég er sann- færð um að það er ekki hægt að hugsa sér betri staðsetningu fyrir vísindagarða en í tengslum við Há- skóla Íslands. Vísindagarðar eru þekkingarsamfélag sem sækir styrk sinn í þá deiglu sem myndast þegar mikill samgangur er á milli fólks frá mismunandi menntastofnunum og nýsköpunarfyrirtækjum. Slíkt samfélag verður ekki búið til með símtækjum, tölvusamskiptum og fjarfundarbúnaði heldur með lif- andi samskiptum og samræðu. Við Íslendingar höfum ekki efni á að dreifa kröftum okkar með þeim hætti að hvergi verði til sterkur kjarni. Háskóli Íslands er sá kjarni sem við eigum og við verðum að gera honum kleift að gegna hlut- verki sínu sem aflstöð í íslensku samfélagi. Samspil háskóla og mið- borgar er líka gífurlega mikilvægt fyrir báða aðila. Öflugt háskóla- samfélag á Melunum er mikill styrkur fyrir miðborgina og það eykur aðdráttarafl háskólans sem þekkingarsamfélags að hafa þenn- an greiða aðgang að miðborginni með öllum sínum fjölbreytileika. Í hvað vonast borgin til að fjár- framlag henna nýlega, 62 milljónir, til HÍ fari? Við vitum að háskólinn er ekki ofhaldinn fjárhagslega en auðvitað vildum við gjarnan að þessir fjár- munir færu fremur í varanlega fjár- festingu en almennan rekstur. En þessu fjárframlagi fylgja engin skil- yrði af okkar hálfu. Auk þessa fram- lags leggur borgin háskólanum til tímabundin fjárframlög til að standa undir kennslu í félagsráð- gjöf, verkfræði og kvennafræði. Borgarfræði er ný grein í HÍ. Borgarfræðisetur hefur verið sett á fót. Hverju býst þú við að þetta skili? Ég bind miklar vonir við borgar- fræðin og Borgarfræðasetrið. Hér á landi hefur oft skort átakanlega á upplýsta og fræðilega umræðu um borgina sem lífsmunstur nútíma- mannsins. Kannski er það vegna þess að við eigum bara eina borg og á landsvísu eru menn alltaf svo feimnir við að fjalla um hana nema sem eitt af sveitarfélögum landsins. Þannig er varla til sú löggjöf eða reglugerð sem tekur nokkurt mið af sérstöðu borgarinnar og þeim vandamálum og verkefnum sem af henni hljótast. Fyrir vikið hafa verið gerð margvísleg mistök í fjárfest- ingu og skipulagi sem koma niður á samkeppnishæfni borgarinnar og um leið landsins alls. Kennsla og rannsóknir á háskólastigi geta skýrt fyrir okkur þau viðfangsefni sem við stöndum andspænis í borgar- samfélagi 21. aldarinnar, sem eru alls ekki þau sömu og á síðustu öld. Þá ætti hann að geta veitt nýjum stefnum og straumum inn í um- ræðu sem einkennist um of af smá- legu dægurþrasi sem engu máli skiptir þegar til lengri tíma er litið. Háskólinn ætti því að geta átt drjúgan þátt í að skýra fyrir borg- arbúum og stjórnmálamönnum hvernig auka megi lífsgæðin í borg- inni og bæta mannlífið. Nýir straum- ar inn í umræðu INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að Háskóli Íslands geti stuðlað að auknum lífsgæðum í borginni og bætt mannlífið. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Háskóli Íslands 90 ára Árnaðaróskir Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri Kennaraháskóli Íslands óskar Háskóla Íslands til hamingju með 90 ára afmælið Óskum Háskóla Íslands til hamingju með 90 ára afmælið Þökkum ykkur farsælt samstarf á liðnum áratugum . . . metnaðar- fullt afl í þjóðlífinu Hvaða þýðingu hefur Háskóli Íslands fyrir höfuðborgina? Hverjir eru máttarstólparnir í sambandi ríkisins og HÍ? Getur samfélagið tekið á móti öllum fræðimönnum? Leitað var til þriggja manneskja, sem láta sig Háskólann varða, með nokkrar spurningar. SKOÐANIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.