Vísir - 03.12.1979, Page 2

Vísir - 03.12.1979, Page 2
VtSIR !■■■■ Mánudagur 3. desember 1979 Frá sjonarhóli barns Andrés Indriðason Lyklabarn. Mál og menning 1979 I grein hér i blaðinu fyrir skömmu fáraðist ég mikið yfir þvi hve fáar Islenskar barna- bækur hefðu komið út á þessu hausti. Það er útaf fyrir sig umhugsunarvert, en þegar fram koma bækur á borð við Lyklabarn er mér óhætt að segja að von sé um betri tið. Andrés Indriðason hefur um árabil verið starfsmaður hjá islenska sjónvarpinu og þar meðal annars séö um barnaefni. Þannig má segja að hann sé ekki byrjandi hvað snertir samskipti við börn. En Lykla- börn er hans fyrsta bók og byrj- unin lofar góðu. Bókin fjallar um stelpu, sem heitir Dísa. Hún lýsir dag- legu lifi hennar og hugsunum. Hún lýsir lifsháttum foreldra hennar, sem eru þvi marki brennd að vera upptekin i hinu alræmda lifsgæðakapphlaupi. Lýst er hvernig börnin verða einhvern veginn óafvitað útund- an i streðinu um lifsþægindin. Ég ætla ekki að fara aö lýsa söguþræðinum nákvæmlega. Hins vegar vil ég benda á nokk- ur þau atriði sem ég tel gefa bók þessari gildi umfram margar aðrar bækur, sem ætlaðar eru börnum. Höfundur lýsir til- verunni frá sjónarhorni Disu. Hún sér hlutina með öðrum aug- um en foreldrar hennar og oft finnst henni gengið á sinn hlut. Bókin lýsir ljóslega þvi rót- leysi sem einkennir margt fólk á tslandi. Lífsbaráttan er hörð og kröfurnar um lifsþægindi eru miklar. Þess vegna verður fólk að vinna mikið. Þess vegna vilja börnin gleymast og ganga i gegnum sérhvern dag með lykil um hálsinn og eiga að vera al- gjörlega sjálfbjarga. Bókin Lyklabarn er yfirfull af siðfræöi sem á brýnt erindi við stóran hluta islensku þjóðarinn- ar nú á timum. Þrátt fyrir það virðist höfundur hvergi vera að bókmenntir Sigurður Helgason skrifar um barnabækur prédika, heldur kemur hann boðskap sinum á framfæri án þess að lesandinn viti raunveru- lega af þvi. Eitt af þvi sem er fordæmt, er að svikja barn. Það leikur eng- inn vafi á þvi, að sérhvert barn á erfitt meö að sætta sig við það, að foreldrar þeiss- gangi á bak orða sinna. Þau skilja það ekki, af þvi það brýtur i bága við þau siðferðislögmál sem þau tileinka sér og fara eftir. En Andrés vill lika að það komi fram að ástæða þess, hversu afskipt börn verða sé sú að foreldrarnir séu of uppteknir við að byggja og breyta. Til sé fullorðið fólk sem gefi sér tima til að sinna börnum og veita þeim þá aðhlynningu sem er þeim nauösynleg. Guðfinna er fulltrúi þess fólks. Hún er ekki sifellt að rifast i börnunum, af þvi að hún skilur þarfir þeirra og hugsanir. 011 þekkjum viö dæmi um slikt fólk. Styrkur bókarinnar Lykla- börn felst að minu mati fyrst og fremst i þvi, að hún' fjallar um raunveruleg börn. Þau eru ekki óvenju gáfuð eða óvenju skemmtileg, heldur ósköp blátt áfram og venjuleg. Þess vegna ætti bókin að höfða til flestra barna. En hún á ekki siður brýnt erindi til foreldra. Hún gæti orð- ið til þess að þeir hugsuðu sinn gang. Höfundur virðist leggja sig fram um aö skilja börn og setja sig inn i vandamál þeirra. Að minu viti tekst honum vel til. Það kemur mér ekki á óvart aö þessi bók skyldi hafa hlotið verðlaun Máls og menningar. Gæði hennar gefa mér meira að Ein teikninganna úr bókinni Lyklabarn. segja vonir um að fleiri góöar bækur hafi leynst meöal þeirra bóka er fram voru bornar. Það sannar þaö sem ég hefi fyrr haldið fram að hvatning til rit- höfunda bæti barnabóka- útgáfuna. Ég vona að þessi fyrsta bók Andrésar Indriða- sonar verði ekki sú siðasta. Hann sómir sér vel á bekk með bestu höfundum þessa lands. Teikningar Haraldar Guðbergssonar i bókinnu eru laglegar. Letur er mjög læsilegt og bókin hinn eigulegasti gripur. O tD "" O w H • c o '3 .SS o fc *o t 3 X U M * * »O .. t 'O ,© 3 5 5 BARNASKÓR - JÓLASKÓR Teg: 8 Litur: dtfkkbrúnt leöur stæröir: 29—33 á 13.480.- stæröir: 34—38 á 14.650.- Litur: grábrúnt rúskinn, hæil 10 1/2 cm. Teg: 972, stæröir: 36—40 1/2 Verö: 19.990,- Litur: grábrúnt rúskinn, hæll 10 cm. Teg: 878, stæröir: 36—40 1/2 Verö: 24.130,- Litur: sinnepsbrúnt rúskinn, hæll 9 cm. Teg 7542, stæröir: 36 1/2—40. Verö: 31.180.- Litur: vinrautt leöur, hæll 8 cm. Teg: 654 stæröir: 36 1/2—40 1/2. Verö: 21.680.- Litur: ljósbrúnt leöur, hæll 6 1/2 cm. Teg: 5580, stæröir: 37—40. Verö: 20.850.- Teg: 5 Litur: Ljósbrúnt leöur stæröir: 29—33 á 11.150.- stæröir: 34—38 á 11.850.- Litur: dökkbrúnt rúskinn, hæll 10 cm. Teg: 888 stæröir: 36 1/2—40 1/2. Verö: 21. 680.- Litur: ljósbrúnt leöur. Teg: 1503, stæröir: 40 1/2—44 1/2. Verö: 18.990.- Framl. Appollo. Litur: brúnt leöur m/ leöursóla. Teg: 4824, stæröir: 41—45 Verö: 34.500.- STJÖRNUSKÓBÚÐIN Laugavegi 96 — Við hliðina á Sljörnubíói — Sími 23795 — Póstsendum Litur: Ijósbrúnt leöur Teg: 1500, stæröir: 40 1/2—44. Verö: 18.990.-

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.