Vísir - 03.12.1979, Side 15

Vísir - 03.12.1979, Side 15
Þðgn relðinnar: M|ðg góð slónvarpsmynd sem ð erlndl hlngað Heilir og sælir, Visis- menn . Sjónvarpið er stöðugt i sviðs- ljósinu (kastljósinu), enda er það nýjasti og eftirsóttasti heimilis- fjölmiðillinn, og ef til vill sá áhrifarikasti. Það- er þvi eðlilegt, að sjón- varpið verði fyrir gagnrýni. En skoðanir eru margvislegar og kröfurnar mismunandi, og þvi er erfitt að gera öllum til hæfis. Þó held ég, að flestir vilji, að efni sjónvarpsins sé hollt og jákvætt. Ofthefur islenska sjónvarpið flutt slikt efni, og ber vissulega að þakka það. Mig langar i þetta sinn að þakka sjónvarpinu sérstaklega fyrir kvikmyndina Þögn reið- innar. sem sýnd var föstudags- kvöldið 23. nóvember. Mér fannst það ein allra besta föstudags- mynd, sem sést hefur á skerm- inum i langan tima. Myndin var hnitmiðuð og vel leikin. Hún fjallaði um ólöglegt verkfall á vinnustað og um þann óheilla- anda, sem greip um sig meðal stárfsmannanna. meðan átökin stóðu yfir. Ahrifarikast var að skynja, hversu sefjunin gróf um sig meðal fólksins. Einstaklingurinn hugsaði sem minnst sjálfur, en lét leiðtoga verkfallsins og „alla hina” teyma sig eins og blind- ingja. „Gerum þetta, gerum hitt”, og þvi var hlýtt án minnstu athugasemda. Þó voru fáeinir þarna, sem ekki HRUNIÐ FflLH) Við fall vinstri stjórnarinnar i okt. sl., brá dagbl. Visir við skjótt og framkvæmdi könnun varöandi fylgi stjórnmálaflokkanna. Sam- kv. þeirri könnun er blaðið birtir föstud. 23. nóv., ætti sami flokkur að fá 26-27 þingsæti. — En nú nú gerist hið furðulega: Þótt leitað sé með logandi ljósi i frétt blaðs- ins um þessi efni, þá finnst október-könnunarinnar hvergi getið? Nú vakna tvær spurningar: 1) Hvað er verið að leitast við að fela? 2) Hvert hafa áðurnefnd 8—9 þingsæti farið (á einum mánuði? Olafur ólafsson, Hátúni 4, Rvk. ES: Auðvitað gleypti svo hið „hlautlausa” Rikisútvarp frétt Viss hráa. Svar: Hér er ekkert verið að fela.Könnunin sem gerð var i október var skyndikönnun sem náði ekki nema til 300 manns. Könnun sem gerð var i nóvember var gerö samkvæmt 1650 manna úrtaki er Reiknistof nun Háskólans framkvæmdi. Það væri þvi fásinna að bera þessar tvær kannanirsaman og þvi gerir Visir þaö ekki, hvað sem bréf- ritari gerir. Svartur Vísir HG hringdi: „Ég var aö fá föstudagsblað Visis i hendur og kann illa við þennan gráa lit sem er á blaðinu. Þetta hefur komið fyrir stundum áöur en ég sakna bláa litsins ein- faldlega af þvi hann flikkar upp á útlitið. Er ekki hægt að kippa þessu i lag?” Svar: Við vildum að sjálfsögöu hafa lit á haus og kili á hverjum degi. Hins vegar er það ekki fram- kvæmanlegt þegar blaðiö er jafn stórt og þaö var á föstudaginn og veröur viö og viö þegar mikiö efni og auglýsingar sprengja venju- lega stærö. Þetta er tækniatriöi sem við getum ekki breytt.en vonandi gefst lesningin jafn vel þótt litinn vanti. Blaflallamenn ekkl hressir Þið þarna i Bjáfjöllunum!.... Eruð þiö ekki hressir....! Við erum ekki hressir....! Vegna þess að árskort Ur Hamragili sem að öllu jöfnu veita helmings afslátt i Bláfiallalyfturnar hafa ekki veriö tekin gild i haust. Arskort i Blá- fjöll gilda frá hausti til vors en i Hamragili milli áramóta. Teljum við o kkur þvi hafa greitt fyrir allt áriö 1979. Viljum vér fá leiðrétt- ingu vorra mála. Steini 8435-8231 Palli 7016-7603. Gummi 3084-2391. Hemmi 4058-4528. Svenni 8764-4561. Arnar 0454-6709. Nilli 6613-5020. Þór ómar 9573-9000. vildu taka þátt i þessum ólöglega verknaði. Þeir reyndu að hugsa sjálfstætt. En hatur vinnufélag- anna braut þá niður. svo að þeir gáfust upp. Nema einn, hann þraukaði. En það fór illa fyrir honum. Þessi mvnd á erindi til okkar Islendinga, þvi að sefjun er hreint ekki óþekkt fyrirbæri meðal okkar. Og hættan er alls staðar fyrir hendi. Nefna mætti nýlegt dæmi, sem allir muna. Ekki eru ýkjamargir mánuðir liðnir siðan allt logaði hér i ólög- legum verkföllum. Framhaldið þekkja menn. Það er sorgarsaga. En meðan æsingin var sem mest, mátti enginn hugsa, enginn spyrja. enginn andmæla. það voru „svik”. Sefiunin var oíboðs- leg. Einstaka maður hafði þó kjaik til að hlýða samvisku sinni. En það kostaði illindi — eða sektir. Ekki veit ég. hvort þær sektir voru innheimtar. Kannske sáu menn að sér, þegar þeim rann móðurinn. Með þessum orðum er ég alls ekki að reyna að sverta verka- lýðsfélögin. Siður en svo. Þetta gat komið fyrir hvar sem var. Ég tek þetta aðeins sem nýlegt dæmi um sefjun. Fleira mætti nefna, en ég læt þetta nægja að sinni. En myndin i sjónvarpinu fjallaði einmitt um þetta vanda- mál. þessa hættu, sefjunina, sem jafnvel getur rænt glögga menn skynseminni og breytt grandvöru fólki i áfbrotamenn. Segja má þvi, að myndin eigi erindi til okkar allra, hvar i stétt sem við stöndum. Ég vil þvi leyfa mér að mælast til þess, og ég tel mig tala fyrir niunn margra, að sjónvarpið endursýni myndina við tækifæri. Um leið þakka ég marga ánægju- stund fyrir framan skjáinn. Elliði Elliðason. Efþú vilthafa heimilið glæsilegt og sérstœtt, skaltu koma til okkar, því við bjóðum upp á fleira en eldhúsinnréttingar. Möguleikarnir eru margir, og hér sjáið þið eitt dœmi. Veggur með viðarbitum og glœsilegum frönskum handunnum flísum á milli, sem eru með innbrenndum laufum, nokkurskonar steingerfingar, panelklœðningu og fulningahurð. Framleiðsla sem ber afá íslenskum markaði. Jrmnrettingar Skeifan 7 - Reykjavík - Símar 83913 -31113

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.