Vísir - 03.12.1979, Qupperneq 19

Vísir - 03.12.1979, Qupperneq 19
VÍSIR Mánudagur 3. desember 1979 Arni Arnason skrifar Hvaö er þaö sem „slær” kaupandann fyrst er hann sér bíl á bilasölu? Óþrif, smárispur og skellur iskemmdir á lakki) slitnar og skitugar mottur, gúmilausir pedalar, óvirk ljós, og önnur raf- magnstæki, og ýmislegt fleira smávægi- legt af sliku tagi sem auövelt er aö lagfæra. Hér er auövitað gengið út frá þvi að billinn sé almennt talaö i lagi, þ.e. i skoðunarhæfu ástandi og án allra stærri lýta. Byrjum á að þrifa bilinn hátt og lágt, ekki aðeins aö utan heldur einnig i farþegarými, vélarsal og skotti, vel og vand- lega. Tökum allar mottur úr og þrifum undir þeim og þær sjálfar, gott er aö gera þetta inni og láta allan bilinn þorna vel. Þurr og vistlegur bill vekur strax áhuga. Þegar billinn er allur orðinn skinandi hreinn er rétt að huga að boddyinu, rétta smábeyglur eins og eftir steinkast, slipa, sparsla og mála. Lakk á flesta bila fæst orðið i spraybrúsum til smáviðgerða. Þegar gert hefur verið við boddyið þannig að það sé misfellulaust er rétt að bóna vandlega yfir allan bilinn. Þvi næst eru ljósin athuguð, og skipt um perur ef með þarf, og um leið hugað að ýmsu smá- vægilegu sem kynni að fara i taugarnar á tilvonandi kaup- anda. Athugaðu þá að ýmislegt sem þú ert hættur að taka eftir, svo sem takka sem vantar á hnúð- inn, stirða bensingjöf eða læs- ingar, mæla sem sýna vitlaust, óvirkt inniljós, fastar mið- stöðvarstillingar, stiflaö rúðu- piss o.fl. þessháttar sem allt er til þess fallið að angra ókunn- uga. Gaktu út frá þvi að hver sem er geti ekið bilnum án sérstakra leiðbeininga frá þér. Það fer sérstaklega i finustu taugar fólks sem er að reynslu- keyra, ef sifellt þarf að veru að kenna þvi ný og ný „trikk” til aö þetta eða hitt virki. Þegar bill er undirbúinn undir sölu er rétt að gera allt sem hægt er til að billinn liti vel út og veki jákvæðar tilfinningar hjá hugsanlegum kaupanda, svo framarlega sem ekki er farið út i að villg um fyrir honum, með þvi að hylja galla eða reyna að leyna þeim beint eða óbeint. Það er sameiginlegt með öllum þeim atriðum sem hér eru nefnd að þau stuðla að þvi að billinn bjóði af sér góðan þokka og komi til dyranna eins og hann er klæddur. Það er algerlega ástæðulaust að láta bilinn koma fyrir eins og druslu ef hann er það ekki. Að lokum er sprautað yfir, þannig að billinn veröi svipfallegur á að lita. Athugaðu þó að litil beygla getur verið skárri en málningar- flekkur i öðrum lit en billinn. Mottur kosta ekki mikla peninga og sú tiifinning sem kaupandinn fær getur fært þér verð þeirra margfalt. Stórir, kringlóttir regndropar á bflnum vekja aðdáun þeirra sem eitthvað vit hafa á bilum, þeir gefa til kynna að góð bónhúð sé á bilnum. t sólskini verða áhrifin af gljáanum jafnvel enn meiri. Auk þess sem hreinn, vélarsalur” er traustvekjandi gerir þaö kaupandanum auðveldara aö kanna ástand þess sem þar er að finna. Reyndu ekki að fela neitt með skit. Vélarþvottur er ódýr og fljótlegur og skilar sér eflaust i ánægðum kaupanda. # ' •#! m m 'Ík: * Jf * 9 9 I ■ ■ 'fflm mt n| Jff T «. f é P ■mm Gleraugnamiðstöðin Laugavegi 5*Simar 20800*22702 Gleraugnadeildin Austurstræti 20 —Sirni 14566 blaöburöarfólk óskast! MELAR Reynimelur Hagamelur Furumelur RAUÐÁRHOLT II Skipholt Stórholt Mjölnisholt AÐALSTRÆTI Garðastræti Hávallagata Kirkjustræti LANGHOLTSHVERFI Laugarásvegur Sunnuvegur um stjórnmál 10 greina lefnu Sjálf- stæðisflokksins HÖFUNDAR: Jón Þorláksson Jóhann Hafstein Bjarni Benediktsson Gunnar Gunnarsson Birgir Kjaran Ólafur Björnsson Benjamfn Eirfksson Geir Hallgrimsson Jónas H. Haralz Gunnar Thoroddsen Dreifingaraðilar: s. 82900 og 23738 Safn 15 nýrra greina um frjáls- hyggjuna HÖFUNDAR: Hannes Gissurarson Jón St. Gunnlaugsson Pétur J. Eirlksson Geir H. Haárde Jón Asbergsson Þráinn Eggertsson Baldur Guölaugsson Halldór Blöndal Bessi Jóhannsdóttir Erna Ragnarsdóttir Þór Whitehead Davið Oddsson Friörik Sophusson Þorsteinn Pálsson Bœkurnar fást í helstu bókaverslunum og kosta kr. 4.000 og 3.500

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.