Vísir - 10.12.1979, Qupperneq 8
<►' #
vtsm
Mánudagur 10. desember 1979
útgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: DavfO Guðmundsson
Ritstjórar: ólafur Ragnarsson
Hörður Einarsson
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson, Elias Snæland Jónsson.
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur G. Pétursson.
Blaðamenn: Axel Ammendrup, Halldór Reynisson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin
Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guð-
vinsson.
Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V.
Andrésson, Jens Alexandersson. Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson,
Magnús Olafsson.
Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson.
Auglýsingar og skrifstofur: Askrift er kr. 4.000 á mánuði
Siðumúla 8. Simar 86611 og 82260. innanlands. Verð i lausasölu
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611. 200. kr. eintakið.
;Ritstjórn: Siðumúla 14, simi 86611 7 linur. Prentun Blaðaprent h/f
Erkiklerkurínn og alblóöalðgln
Erkiklerkurinn Khomeini og útsendarar hans hafa þverbrotiö alþjóöasamninga og
reglur meö árásinni á bandariska sendiráöiö I Teheran og meöferö sendimannanna,
sem þar störfuöu. Ráöamenn siömenntaöra þjóöa veröa nú aö koma sér saman um
leiöir tii þess aö beygja irönsk stjórnvöld I þessu máli.
öfgafullir íranskir námsmenn
hafa nú haldið hópi bandarískra
sendiráðsstarfsmanna í gíslingu
í rúman mánuð eða frá því að
þeirgerðu árás á sendiráðsbygg-
inguna í Teheran 4. nóvember
síðastliðinn.
Þótt þeir hafi hótað Banda-
rikjamönnum lífláti og sagst
mundu sprengja sendiráðið í loft
upp beiti Bandaríkin vopnavaldi
til þess að frelsa fólkið, hefur
sem betur fer enn ekki til þess
komið. Aftur á móti ríkir enn
gífurleg spenna vegna þessa
máls. Lausn þess virðist ekki í
sjónmáli og (rönum er trúandi til
alls.
Hvort sem mönnum finnst sú
ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
veita fyrrverandi íranskeisara
landvistarleyfi er hann óskaði
læknismeðferðar í New York,
skynsamleg eftir á eða ekki,eiga
allir réttsýnir menn að geta tekið
undir fordæmingu á aðgerðum
Iransstjórnar og útsendara
hennar, sem hertóku sendiráð
Bandaríkjanna.
Það var ekki um að ræða neina
venjulega mótmælaaðgerð,
heldur freklegt brot á alþjóða-
samningi Sameinuðu þjóðanna
um friðhelgi erlendra sendiráða
og starfsmanna þeirra en rúm-
lega 130 ríki hafa gerst aðilar að
þessum samningi, þar á meðal
íran. Þá hefur að auki verið á
það bent í fjölmiðlum um allan
heim, að (ran er einnig aðili að
öðrum alþjóðasamningi, sem
allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti fyrir fáeinum
árum, en þar er árás á sendi-
menn erlendra ríkja talin alþjóð-
legur glæpur.
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti samhljóða á
dögunum yfirlýsingu þar sem
(ranir voru hvattir til að sleppa
gíslunum þegar í stað.
í dag er svo búist við að Al-
þjóðadómstóllinn í Haag taki
fyrir beiðni Bandaríkjastjórnar
þess efnis, að hann úrskurði að
Iransstjórn skuli sleppa gísl-
unum í sendiráðinu.
Dr. Gunnar G. Schram,
prófessor í þjóðaretti við laga-
deild Háskóla Islands, sagði í við-
tali á dögunum, að árásin á
bandaríska sendiráðið í Teheran
og taka gíslanna þar væri óvenju-
lega gróft brot á alþjóðalögum.
Gunnar sagði sér ekki kunnugt
um neinn hliðstæðan atburð, þótt
oft hafi verið gerður aðsúgur að
sendiráðum erlendra ríkja viða
um heim. Þetta væri í fyrsta
sinn, sem stjórnvöld hlutaðeig-
andi lands stæðu að baki árásar-
mönnunum og veittu þeim
óskoraðan stuðning, bæði í orði
og verki. „( því felst einmitt"
sagði dr. Gunnar „hið grófa
lagabrot erkiklerksins Kho-
meinis og preláta hans".
Þá sagði Gunnar Schram að
þarna væri um að ræða freklegt
brot á alþjóðlegum skuldbind-
ingum, og hlyti það að vera sam-
eiginlegt hagsmunamál allra
ríkja að sendimenn þeirra fengju
starfað í friði og öryggi að
skyldustörfum sínum hvarvetna,
sem þeir væru staddir erlendis.
Þau ríki, sem telja að árásin á
sendiráð Bandaríkjanna í
Teheran og aðgerðirnar gegn
starf smönnum þess séu alvarlegt
brot á alþjóðalögum, verða nú að
koma sér saman um aðgerðir
sem beygt geti stjórnvöld í (ran
og stöðvað ómannúðlega með-
ferð Khomeinis og ofstækis-
manna hans á sendimönnum er-
lends ríkis í landinu.
Það sem þarna er að gerast er
ekki einungis mál Bandaríkjanna
og einsýnna trúarleiðtoga í (ran.
Það er ögrun við allar siðmennt-
aðar þjóðir, og ríkisstjórnir sem
virða alþjóðalög og reglur.
Erflðlelkar á llskmðrkuðum I Bandarlklunum:
„0RDID AÐ FINNA NÝJA VIÐSKIPTA-
VINI TIL AD FORDAST SAMDRATT”
„Markaðurinn hefur
verið erfiður og nokkur
sölutregða á fiski al-
mennt i Bandaríkjunum.
En þó hefur okkur tekist
að auka sölu okkar á
freðfiski um 12% á fyrstu
ellefu mánuðum ársins",
sagði Þorsteinn Gíslason,
forstjóri Coldwater Sea-
food í Bandaríkjunum, í
samtali við Vísi, en Þor-
steinn var staddur hér á
landi fyrir helgina.
Þorsteinn Gislason, forstjóri
Coldwater Seafood I Bandarikj-
unum.
- seolr Þorstelnn Gíslason forstlórl Coldwater seatood f samtall vlO Vfsl
Visir haföi boriö undir hann
þann oröróm, aö söluerfiöleikar
heföu veriö á freöfiski I Banda-
rikjunum og spuröi hvort þeir
heföu haft áhrif á fisksölu frá
Islandi.
„Mikill hluti af okkar sölu fer
til veitingahúsa, vegna þess aö
viö fáum betra verö þar en ef
selt er i verslanir, sem þjóna
heimilisnotkun”, sagöi Þor-
steinn.
„Efnahagsástandiö i Banda-
rikjunum er talsvert slæmt og
gifurlegar veröhækkanir á elds-
neyti hafa valdiö þvi, aö
almenningur hefur minna fé
milli handanna en áöur. Þaö
hefur komiö niöur á umsetningu
veitingahúsa og þess vegna höf-
um viö oröiö aö finna nýja viö-
skiptavini til aö foröast sam-
drátt i sölu.
Þetta hefur reynt mikiö á
sölustarfsemina og skrifstofan
hjá okkur hefur veriö á fullum
dampi”.
Erfitt með ufsa og karfa
— Hefur þetta markaösástand
haft þau áhrif aö birgöir hafi
safnast upp?
„Nei, birgöir okkar vestra eru
eölilegar og birgöir SH frysti-
húsa á frystum fiski i Banda-
rikjamarkaö eru einnig eölileg-
ar.
Hins vegar eru þessar birgöir
aö óvenjulega miklum hluta
ufsi og karfi. Þær tegundir eru
erfiöari i sölu I Bandarikjunum
heldur en þorskur og ýsa, en á
þeim tegundum er birgöastaöan
góö.
Framleiösla hjá frystihúsum
innan SH á karfa fyrir Banda-
rikjamarkaö var til dæmis rúm-
lega tvöfalt meiri I ár en á sama
tima i fyrra og framleiösuaukn-
ing á ufsa var 30%.
A undanförnum árum höfum
viö stööugt unniö aö aukningu á
sölu á karfa og ufsa, en þessi
mikla framleiösla er þó langt
umfram þaö, sem viö getum
meö góöu móti tekiö viö, án þess
aö til komi víötakar nýjar ráö-
stafanir. Þaö er ekki vist, hvort
Þessi mynd er tekin i annarri fiskréttaverksmiöju Coldwater Sea-
food i Bandarikjunum. — Visism.: KS
tekst að selja þennan hluta
birgðanna.
Markaöurinn fyrir karfa i
Bandarikjunum hefur að lang-
imestu leyti veriö hagnýttur af
kanadiskum framleiðendum, en
okkar hlutur hefur farið vax-
andi.
Þá hefur framleiðslan á
þorski og ýsu aukist litillega, en
þar hafa ekki verið miklir sölu-
erfiöleikar.”
Afkoman góð
— Hvernig er afkoma Cold-
water á þessu ári?
„Hún hefur veriö góð, en þó
ekkert tiltakanlega, miöaö viö
umsetningu fyrirtækisins. Fé-
lagið stendur fjárhagslega á
traustum fótum, sem hefur gert
okkur kleift aö greiöa framleiö-
endum fyrir fiskinn strax viö
móttöku.”
— Hverjar eru horfurnar i
markaösmálum i Bandarikjun-
um?
„Viö reiknum meö þvi, aö á
næstu mánuöum veröi fisksala
háö talsveröum mótbyr, sem
stafar fyrst og fremst af efna-
hagsástandinu og aukinni verö-
bólgu i Bandarikjunum.
Viö vonumst samt sem áöur
til þess aö geta haldiö áfram aö
hafa einhverja söluaukningu”,
sagði Þorsteinn, en hann vildi
ekki spá neinu um veröþróun.
-KS