Vísir - 21.12.1979, Blaðsíða 13

Vísir - 21.12.1979, Blaðsíða 13
Föstudagur 21. desember 1979. 13 VINNUFATADUÐIN VEST/ verð kr. 14.900. PEYSA verð kr. 10.900 JAKKAR verð kr. 26.900.- ULPA verð kr. 26.900. oe GÆOI 0Ó«' HerraShöbúÓin ARMULA 7 - SIMI 81646 Nceg bílastœðr Skór á alla fjölskylduna Gott úrval Hógvœr ábending frá J Skipstjóra- og stýrimannatal Þetta er rit i algerum sérflokki. — Þrjú stór bindi — yfir 1900 æviskrár — prófskrár Stýrimannaskólans frá upphafi — fróðlegar yfirlitsgreinar um sjó- mannafræðslu, fisk- veiðar og siglingar. Kjörbækur á hverju heimili og sérstaklega tilvaldar jólagjafir. Sven Hazel: Nýja bókin nefnist: Guði gleymdir Flestar bækur Hazel hafa selzt upp á fyrsta ári. Af áður útkomnum bókum hans eru nú aðeins fáanlegar: Dauðinn á skriðbeltum, Hersveit hinna fordæmdu, Martröð undan- haldsins, Monte Cassino og Stríðs- félagar. Fjöldi stríðsbóka hefur verið skrifaður og margar góðar, en fullyrða má að engum er Hazel likur. Nú er í ráði að kvikmynda bækur hans. Hann hefur hlotið hástemmt lof og bækur hans selzt i milljónaupplögum i yfir 50 lönd- um. í lífsins ólgusjó Ný bók eftir Jóhann J.E. Kúld Enginn sem sér Jóhann Kúld, teinrétt- an, kempulegan og léttan í spori, gæti ímyndað sér að þar færi maður með svo ævintýralegan og átakamikinn lífsferil, sem raun ber vitni. Hér segir frá sjómannslífinu á síldarárunum og á öðrum fiskveiðum — siglingum á stríðsárunum og kynnum af ótöluleg- um fjölda manna á sjó og landi, af öll- um stéttum og standi. Langvarandi baráttu við berklana, dvöl á Kristnesi og Reykjahæli, ástvinamissi, fátækt og atvinnuleysi. — Verkalýðsbaráttu, vinnubanni. Novu-slagnum og átök- um i /.jarabaráttunni, tilraun til að svipta . ðhann kosningarétti. Bóka- og blaðaút áfu (Jóhann hefur skrifað 10 bækur), - áætlun um stærstu ölverk- smiðju í Evrópu, sem gufaði upp vegna striðsins. — Furðulegum dul- rænum fyrirbærum — og fjölmargt fleira mætti nefna sem sagt er frá af hispursleysi undanbragðalaust í þess- ari stórfróðlegu og skemmtilegu bók. Fyrri bækur Jóhanns hlutu á sínum tima einróma lóf og seldust upp til agna, en þetta er eflaust hans bezta bók. — Frásagnargleði hans er mikil og lífsferillinn svo fjölþættur að fáu verður við jafnað. Úr gömlum ritdómi: „Hann er fæddur rithöfundur og óvíst er að hann segi betur frá, þó hann hefði gengið í annan skóla en hinn stranga skóla reynslunnar, sem hann hefur staðizt með sæmd.” — Guð- mundur Finnbogason, landsbóka- vörður. í dagsins önn eftir Þorstein Metthiasson Þótt ár liði og margvíslegar breytingar verði á þjóðlifs- háttum er sagan ávallt ofin úr önn hins líðandi dags. Þeir, sem lengi hafa lifað, þekkja öðrum betur æða- slög mannlífs i .landinu á liðnum árum. Sú reynsla og þekking getur orðið framtiðinni hollur vegvísir, ef vel er að hugað. Manngildi skyldi meta eftir því, hve sterkir menn standa, í stormi sinnar tiðar og dug- miklir i dagsins önn. Þeir mætu menn sem hér rekja nokkra æviþræði eru fulltrúar þeirrar kynslóðar sem óbuguð hefur staðið af sér ölduföll ár- anna og skilað framtíðinni belra landi en hún tók við. Vökumaóur — Jón Jónsson klæðskeri frá ísafirði. Það er hátt til lofts og vítt til veggja — Guðbrandur Benediktsson bóndi frá Broddanesi. Minnist þess að blómabörnin skjálfa er berast skóhljóð göngumanni frá — Ingþór Sigurbjarnarson frá Geitlandi. í faðmi dalsins — Snæbjörn Jónsson frá Snæringsstöðum í Vatnsdal. Þorbjörg og Sigurjón, Árbæ i Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Þar gróa götur sem gekk ég forðum ungur — Sigurpáll Steinþórsson frá Vík í Héðinsfirði. Það trúir þessu enginn — Magnús Halldórsson frá Síðumúlaveggjum. Leikir af lífsins tafli eftir Hugrúnu Hugrún er mikilvirkur og fjölhæfur rithöfundur. Hún hefur sent frá sér ekki færri en 25 bækur — skáld- sögur, ljóð, ævi- þætti, smásögur og barnabækur. Samúð og kær- leikur til alls sem lifir er rauði þráðurinn í þessum smásögum Hug rúnar svo sem er i öllum hennai bókum, ásamt óbilandi trú á hand- leiðslu almættisins. Á þessum tímum efnishyggju og trúleysis er slíkt efni ef- laust ekki öllum að skapi, en vonandi finnast þeir sem hafa ekki gleymt guði sinum, og lesa sér til ánægju þessa hugljúfu bók. Denise Robins Ástareldur nefnist nýjasta bókin hennar. Það þarf ekki, dömur minar, að kynna ykkur bækurnar hennar Denise, þið þekkið þær og ykkur líður vel í návist þeirra. Þar er enginn sori á ferð, þótt barátta við ill öfl og erfið , örlög sé með í spil- inu verður hiðgóða í mannheimi alltaf yfirsterkara. Þess vegna eru bækur Denise Robins góðir og velkomnir kunningjar. Vegferð til vors Ný Ijóðabók eftir Kristin Rey Kristinn kemur víða viö í þessari bók sinni. Hann deilir fast á hernaðar- brjálæði, peninga- hyggju og alls kyns óáran í mannlífinu, en hann á fleiri strengi i hörpu sinni. Ást á vori og gróanda skipar veglegan sess og trú á „betri tíð með blóm í haga”. Skop og ' fyndni leynist einnig í pokahorninu. Þessi snotra bók er eflaust ljóðavinum kærkomin. Hús hamingjunnar eftir Gertrude Thome Ung, ástfangin hjón, Janet og Andy, erfa óvænt lítið draumahús. Hjartarúmið reyn- ist fljótlega of stórt fyrir húsið og áður en varirer það yfir- fullt af alls konar fólki, skyldu og vandalausu. Mislit- ur hópur, skrítinn og skemmtilegur, en samt er góðvild og skilningur alls ráðandi í litla hús- inu. Þrátt fyrir ýmiss konar smáslys og hrakfarir leið öllum vel og engum leiddist i „húsi hamingjunnar”. Von- andi verður enginn vonsvikinn sem les 'þessa skemmtilegu og þokkafullu sögu. • Góðfúslega, kynnið ykkur vandlega þessa auglýsingu, áður en þiðyeljið jólabœkurnar

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.