Vísir - 10.01.1980, Qupperneq 9
VÍSIR
Fimmtudagurinn 10. janúar 1980
, •, «. , ,v\ \
9
Umsjón:
Guðmundur
Pétursson
Ferrarl
Tveir frægir ökuþórar úr Formúlu I-kappakstrinum sjást hér á
eintali, og efiaust er umræðuefnið hinn nýi Formúlu I-blll Ferrari,
sem notaður verður i heimsmeistarakeppninni þetta timabilið. — i
bílnum situr Gilles Villeneuve frá Kanada, frægur ökugarpur, en
maðurinn á hækjunum er enginn annar en Jody Scheckter frá
Suður-Afriku, sjálfur heimsmeistarinn.
Gullæðiö
Verðið á gulli að undanförnu hefur hagað sér
eins og barómetrið, færst upp og niður og þá
mest upp. Núna í vikunni voru öll fyrri met i sölu
þessa góðmálms slegin, þegar únsan af gulli fór
upp i 080 dollara á markaðnum i Hong Kong, en
það datt i gær aftur niður i 608 dollara.
A annarri myndinni hér sést fólk biða hjá ein-
um gullsalanum i New York eftir þvi að kaupa
gull, gull, gull.
Hin myndin gefur nokkra hugmynd um, hvaða
skriður hefur komist á sölu og kaup á gullskart-
gripum i gullæðinu.
Studlo
54
Myndsviðið er hið fræga diskó
tek „Studio 54” i New York og
það eru engir stirðbusar, sem
eru á dansgólfinu. T.v. er
Zhandra Rodriques, ballett-
dansmær frá Alþjóðaballettin-
um í Caracas, sem slettir þarna
úr klaufunum, en Leonid
Kozlow dettur ekki úr hrynj-
andinni. Kona hans, Valentina,
virðist eitthvað hikandi i
djamminu. Þau hjón voru mjög
i fréttum fyrr i vetur, þegar þau
struku frá sovéska Bolshoi-
ballettinum.
ROCKY OG SÚ HÝJA
Sú var tíðin, að Sylvester Stallone, sem skaust upp á stjörnuhimin
kvikmyndanna með myndinni „Rocky”, sagðist aldrei mundu hafa
orðið að neinu, ef ekki væri vegna konu sinnar.
Það hevrir til liðinni tið, og hér sést hann skeggjaður orðinn i
fylgd með leikkonunni Susan Anton, sem eins og hann leitar nú
skilnaðar frá ektamaka sinum, til þess að geta stofnað heimili með
Stallone.
Slón er sögu rlkarl
Þessi Bermúdamær komst I heimspressuna I vetur fyrir ...tja,
þarf annars nokkuð að tiunda það. Hún heitir Gina Swainson, er 21
árs, og þótti bera af 70 öðrum þokkadisum, sem kepptu að þvi að
verða fegurðardrottningin „Miss World ’79”.