Vísir - 20.03.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 20. mars 1980
3
Verða Utvegsbank-
inn og Búnaðar-
banklnn samebiaðir?
Eins og fram kom i Visi I gær hefur lausafjárstaöa bankanna
versnaö verulega á undanförnum mánuöum. Frá janúarlokum á
sl. ári og til janúarloka i ár hefur þróunin hjá bönkunum gagnvart
Seölabankanum veriö neikvæö um 10,6 milljaröa kr, eöa tiuþúsund
og sexhundruö milljónir króna, ef menn átta sig betur á þeirri töiu.
í heild er staða bankanna neikvæö f lok janúar um 6.3 milijaröa kr.
Verst er staðan hjá Útvegsbankanum, sem hefur neikvæöa stööu
yfir meöaltali, eöa um 6.5 miiijaröa kr. Búnaöarbankinn stendur
hins vegar best. Hjá ölium bönkunum hefur hins vegar veriö um
neikvæða þróun aö ræöa. Þetta vekur upp spurningar um hvaö
stjórnvöld hyggist gera til aö sporna viö þessari þróun, hvort sam-
eining Útvegsbankans og Búnaöarbankans sé i bfgerö, eöa aörar
aögeröir til einföldunar á bankakerfinu. Vfsir leitaöi svara viö
þessum spurningum, sem koma fram hér á sföunni.
Vil gera bankakerfiö
einfaldara, ódýrara
og skilvirkara
- segir Tómas Árnason. bankaráðherra.
,,Ég hef fulian hug á þvi aö
beita mér fyrir umbótum I
bankalöggjöfinni meö þaö fyrir
augum aö geta þetta einfaldara,
ódýrara og skilvirkara kerfi”,
sagöi Tómas Arnason, banka-
ráöherra, i samtali viö VIsi.
Eins og fram kom i forsiðu-
frétt Vísis i gær hefur lausafjár-
staöa bankanna versnað mikið á
siðustu mánuðum. Þetta var
borið undir Tómas og hann
spuröur um ástæðurnar og að-
gerðir til úrbóta af hálfu ríkis-
stjórnarinnar?
„Ég vil nú ekki segja neitt
gott um þetta”, sagði Tómas.
„Þetta er ein afleiðing þeirrar
miklu verðbólgu, sem við búum
við. Rikisstjórnin hefur sin
áform I sambandi við verðbólg-
una og vinnur náttúrlega aö
framgangi þeirra á öl'um svið-
um. Auövitað er meiningin að
haga peningapólitikinni i sam-
ræmi viö þau markmiö sem við
höfum sett okkur i verðbólgu-
málum”.
Þýðir þetta að þak verði sett á
útlánastarfsemi bankanna?
„Ég skal nú ekkert segja um
það mál á þessu stigi. Það er
verið að fjalla um þessi mál
núna i sambandi við undirbún-
ing fjárfestinga og lánsfjáráætl-
unar rikisstjórnarinnar. Það
veröur nú ekki alveg strax sem
hún veröur lögð fram. Fjár-
málaráðherra hefur sagt að það
verði liklega ekki fyrr en eftir
páska. Þaö þarf þó ekki að þýöa
aö ekki verði gripið til aðgerða
fyrir þann tima. Ég var t.d. á
fundi með bankastjórn Seðla-
bankans á mánudaginn, þar
sem þessi mál voru á dagskrá”.
Nú kemur fram að staða
Útvegsbankans er verst og
hefur versnað mest. Gefur það
hugmyndinni um sameiningu,
t.d. útvegsbankans og
Búnaöarbankans byr undir
báða vængi?
,,Ég skal nú ekki segja um
það, það eru engin ákvæði
umþað f stjórnarsamningnum
og umræður eru ekki í gangi. Ég
hef hins vegar áhuga á þvi að
gera umbætur i bankamálunum
og þá til einföldunar. A þessum
tima er staða þeirra sem lána til
útgerðarinnar slæm, en þvi er
ekki aö neita að útvegsbankinn
hefur átt i erfiðleikum lengi”,
sagði Tómas Arnason.
Seölabankinn styður
sameiningarstefnuna
„Þetta mál hefur ekki verið
rætt til lykta og litið um það að
segja umfram það, sem var i
VIsi”, sagöi Guömundur Hjart-
arson, bankastjóri Seðlabank-
ans, i viðtali við Vísi.
„Staða bankanna er erfið, en
ástæöan fyrir þessum erfiðleik-
um er s.amantvinnuð úr mörg-
um þáttum”, sagði Guömundur.
„A undanförnum árum hefur
verið gert samkomulag við
bankana um svokölluð „þök” á
útlán. Reynslan hefur hins veg-
ar verið sú, að útlánin hafa þró-
ast nokkuð I samræmi við verð-
bólgun a. Þau hafa þvi látið
undan verðbólgunni. Þessi
lausafjárstaða bankanna núna
kann að vera timabundin,
a.m.k. að hluta, og batna þegar
kemur fram á vertíðina og út-
flutningur eykst”.
„Það er gamalt mál sem oft
hefur verið rætt, meira að segja
komist inn á borð Alþingis en
aldrei lengra”, sagði Guðmund-
ur aöspurður um hugsanlega
einföldun á bankakerfinu og þá
með sameiningu Útvegsbank-
ans og BUnaðarbankans. „Ég
veit ekki hver staöa þessa máls
er núna, en ég hygg, að þeir sem
voru sameiningunni meðmæltir,
séu óbreyttrar skoöunar og
Seðlabankinn hefur stutt þá
stefnu, að fækka beri rikisbönk-
unum”, sagöi Guðmundur
Hjartarson.
G.S.
Greiöa 70% vaxtavexti
„Að þvi leyti sem um er aö
ræöa hreinan og óumsaminn
yfirdrátt, sem bankarnir hafa
skammtað sér sjálfir, þá reikn-
ast 4.5% dráttarvextir á ári.
Þessir vextir, ásamt
vaxta-vöxtum, samsvara um
70% ársvöxtum”, sagöi Bjarni
Bragi, deildarstjóri hagdeildar
Seðlabankans, i samtali við
Vfsi, aöspurður um vexti Seöla-
bankans af skuld viðskipta-
bankanna.
„Þetta er sama vaxtafyrir-
komulagiöog sem mestur hasar
varö út af á sínum tima, en þá
voru þeir 16% á meðan al-
mennir vextir voru 7-8%. En
þessir vextir verða að vera
svona háir, til þess að bankarnir
hafi ekki hagsmuni af þvi að
ganga I Seðlabankann”.
Staða Útvegsbankans er
verst. Hefur þú tölur um hvað
hann hefur þurft að greiða
Seðlabankanum I vexti á sl. ári?
„Nei, þær hef ég ekki”,
svaraði Bjarni. „Útvegsbank-
inn er alveg sérmál. Hann sýndi
góða innistæöuaukningu á sl.
ári. Hins vegar hefur hann notið
sérstakrar fyrirgreiöslu vegna
erfiörar aðstöðu og mikilla
skuldbindinga”, sagði Bjarni
Bragi.
G.S.
Fimm tslendingar fengu portúgalskar orður I sérstöku hófi, sem sendiherra Portúgals á tslandi,
Fernando Reino, hélt í Atthagasal Hótel Sögu. A myndinni sjást f.v. sendiherrahjónin Rcino, frú Dóra
Guöbjartsdóttir, ólafur Jóhannesson, utanrfkisráðherra, sem hlaut Krists kross, sem einungis er veitt-
ur f sérstökum tilvikum, Þórhaliur Asgeirsson, ráöuneytisstjóri, Tómas Þorvaidsson, forstjóri,
Jóhanna Kristjónsdóttir, blaöamaður og Karl Manúel, kaupmaöur. Visismynd: GVA
HE/LDSALA — SMASALA
HÖFUM FENGIÐ
Allar stærðfr af púströrs-
k/emmum og hosuklemmum
á mjög hagstæðu verði.
Engin hækkun frá síðustu sendingu
TIL
PASKA OG I FERMINGARVEISLUNA
kaupir fó/k mikið magn matvöru
VIÐ
bjóðum iægsta mögulega verð, og hæstu gæði
OPIÐ
frá k/. 2 virka daga og 9-12 /augardaga
S[//
ÞER SPARIÐ
SVO UM
MUNAR
HJÁ OKKUR
"//y
SPAFM/IARKA
'iNN