Vísir - 20.03.1980, Page 16
J
VlSIR
Fimmtudagur 20. mars 1980
Umsjón: Illugi
Jökulsson
Jölasveinasaga
Tónabió: Meöseki félaginn
Leikstjóri: Daryl Duke
Aöalhlutverk: Elliot Gould,
Christopher Plummer og Susanne
York
Kanadisk, árgerö 1979.
Hvaö gerir bankagjaldkeri þeg-
ar jólasveinn rænir bankann
hans? Hann getur t.d. tekið þátt i
gamninu viti hann um fyrirætlan-
ir jólasveinsins i tæka tiö. En
hvað gerist ef jólasveinninn
kemstaö þvi að gjaldkerinn hefur
sjálfur labbað heim með hluta af
þýfinu? Jólasveinninn verður
öskureiður og bálvondur og trltil-
óður og gullfiskar, ungar stúlkur
og bankagjaldkerinn verða fyrir
barðinu á honum. Þannig er það
a.m.k. i „Meðseki félaginn”.
Þó geöveiki bankaræninginn
klæðist jólasveinabúningi og
aðalgjaldkeri rænda bankans sé
óvenju slyngur og uppáfinninga-
samur náungi dugar það höfundi
handrits „Meðseka félagans”
ekki til að koma saman sögu.
Hann þarf að bjarga þræðinum
við með ýmis konar aukapersón-
um, sem bregöur fyrir einu sinni
eða tvisvar, en eru nauðsynlegar
til að lappa upp á spennuna. Elli-
ær faöir og tiltektasöm skúringa-
kona eru einkar handhæg þegar
þrátefli er komið upp milli gjald-
kerans og ræningjans.
„Meðseki félaginn” er óneitan-
lega spennandi mynd þó stundum
þurfi hinar óliklegustu tilviljanir
kvikmyndir
til að trekkja hana áfram. Aðal-
kostur myndarinnar er þó leikur
Elliotts Gould i hlutverki gjald-
kerans sem er svo ósköp mein-
leysislegur og upptekinn af gull-
fiskunum sinum að engum dettur
I hug að hann eigi þátt I banka-
ráni. Eftir að gjaldkerinn fremur
glæpinn á hann lika oft á tíðum
kimileg samtöl við grunlausa
samstarfsmenn sina um fjármál
og bankastörf.
Christopher Plummer fer með
hlutverk geðveika bankaræningj-
ans en viðbjóðslegum uppátækj-
um og sadisma þeirrar persónu
virðast engin takmörk sett. Ekki
er auðvelt að sjá hvaða tilgangi
það þjónar að sýna aðrar eins
limlestingar og framdar eru i
„Meðseki félaginn”. Kvikmynda-
framleiðendur vita vel að áhorf-
endum þykir gaman að láta æsa
upp i sér hræösluna. En getur það
reynst rétt að kvikmyndahús-
gestum þyki líka gaman að finna
viðbjóðinn hrislast um sig þegar
manneskja er marin undir hæl
eins og fluga eða hausuö eins og
þorskur? Auðvitað hrekkur eng-
inn við þó allmargar persónur
sakamálamyndar týni engu fyrr
en lifinu. Það er þó ekki I hverri
mynd sem aðfarirnar eru jafn
óvenju subbulegar.
„Meðseki félaginn” er
sáraómerkilegur þriller, ef frá er
talinn frammistaða Elliotts
Gould. Ekki er hægt annað en að
vorkenna Kanádamönnum að
hafa þurft aö veita þessari mynd
viðurkenningu öðrúm myndum
fremur. En e.t.v. hafa það verið
samtök kvikmyndahúseigenda i
Kanada sem kusu myndina
„bestu mynd Kanada árið 1979”
eins og segir i blaðaauglýsingu
Tónabiós. Aö minnsta kosti hlaut
myndin metaðsókn þar vestra.
—SKJ
Kinversk skáldsaga
á fslensku
Á vormánuðum i fyrra var lesin
sem miðdegissaga i útvarp kin-
verska skáldsagan „Þorp i dög-
un” eftir Dsjá Sjúll. Saga þessi
geristá árunum 1930-40 og greinir
frá atburðum i lifi þorps eins i
Kina, einkum tengslum við styrj-
öldina við Japani.
Ef af útgáfu þessarar bókar
verður, yrði það nokkur við-
burður, þar sem mjög sjaldgæft
er að kinversk nútimaskáldsaga
komi út á islensku. Bókaforlagið
Skjaldborg á Akureyri vill þess
vegna að kannaður verði áhuginn
á útkomu slikrar bókar. Fáist
uþb. 300 áskrifendur fyrirfram,
hefur forlagið fullan hug á að gefa
hana út. Bókin mundi þá koma út
fyrir næstu jól. Hún yrði bundin i
fallegt band og yrði nálægt 200
bls. að stærð. Askriftarverð er að
hámarki kr. 12.000,- að sendingar-
og póstkröfukostnaði meðtöldum.
1 verslunum yrði hún talsvert
dýrari.
Hægt er að gerast áskrifandi að
bókinni með þvi að hringja i
þýðandann, Guðmund Sæmunds-
son s. 96-25745 á Akúreyri eða
Arnþór Helgason, formann Kin-
versk-islenska menningarfélags-
ins, s. 91-12943 i Reykjavik.
Einnig verða áskriftarlistar I
gangi á ýmsum stöðum. T.d. hafa
Bókaverslun Máls og menningar,
Októberbókabúðin, Verslunin
Panda og Bóksala stúdenta verið
beðnir að láta lista liggja frammi.
(Fréttatilky nning)
Sigfús og Guðmundur f
tónleikaferð til Ameríku
Sigfús Halldórsson, tónskáld og
Guðmundur Guðjónsson, söngv-
ari hafa fengið boð vm að koma
fram á skemmtunum hjá Is-
lendingafélögum viða um Ame-
riku og munu þeir halda utan 24.
þ.m.
Með þeim félögum verður Bill
Holm frá Minneota, en hann var
hér á Islandi I eitt ár við kennslu i
Háskóla Islands. Hann mun flytja
frumort ljóð á skemmtununum,
segja frá dvöl sinni á íslandi og
leika á pianó.
Gert er ráð fyrir að þeir félagar
komi fram á tuttugu og þremur
stöðum i Kanada og Bandarikjun-
um, og hafa islenskir listamenn
aldrei fyrr farið svo viða i einni
ferö til Ameriku.
Til þessarar tónleikaferðar er
stofnað af hálfu ofangreindrar
nefndar um samskipti milli Is-
lands, Kanada og Bandarikjanna,
og hefur nefndin veitt styrk til
fararinnar. Undirbúningur hefur
hins vegar verið I höndum ís-
lendingafélaganna vestra og
munu þau verða gestgjafar lista-
mannanna hvert á sinum stað.
A undanförnum árum hafa
samskiptin milli Islands og
Kanada og Bandarikjanna farið
ört vaxandi á ýmsum sviðum.
Megintilgangurinn með þessari
ferð er að styrkja böndin milli Is-
lendinga og fólks af Islenskum
ættum, sem búsett er vestra og
örva félagastarfsemina þar.
Er ekki að efa, að þessir ágætu
islensku listamenn, ásamt Bill
Holm, muni i þessari einstöku
ferð verða boðberar vináttu og
bræðralags, og hvarvetna au-
fúsugestir.
1 nefndinni eiga sæti: Heimir
Hannesson, formaður, séra Bragi
Friðriksson, formaður Þjóð-
ræknisfélagsins i "Reykjavik og
Arni Bjarnarson, formaður Þjóð-
ræknifélagsins á Akureyri. Ritari
nefndarinnar er Berglind As-
geirsdóttir, fulltrúi I utanrikis-
ráðuneytinu.
Skipulag ferðarinnar hefur
verið I höndum Jóns Asgeirsson-
ar, fyrrverandi ritstjóra Lög-
bergsi-Heimskringlu og verður
hann einnig I för með listamönn-
unum.
UDDábúlnn slóll ogsögumaður
- ný bók eltir Heiga Þorgiis
Nú er komin út ný bók eftir
Helga Þorgils. Hún heitir Uppá-
búinn stóll og sögumaöur. Reynd-
ar heitir bókin lika A dressed up
chair and a narrator, vegna þess
að hún er bæði á ensku og Is-
lensku.
Helgi Þorgils hefur mynd-
skreytt bók sina sjálfur einsog
hans er vandi og visa. Segja
myndirnar nokkra sögu að þvi er
best verður séð.
Bókina hefur Helgi Þorgils gef-
ið út sjálfur og hún er gefin út I 200
eintökum aöeins. Eru þau
númeruö af höfundinum sjálfum.
Bókin er ekki ólik fyrri bókum
Helga Þorgils og heldur ekki
myndverkum hans.
Einlelkur
Fimmtu Háskólatónleikar
vetrarins verða haldnir laugar-
daginn 22. mars 1980. Að þessu
sinni verða tónleikarnir haldnir I
Forsal Þjóðminjasafnsins við
Hringbraut og hefjast kl. 17.15
Aðgangur er öllum heimill.
Á þessum tónleikum leikur
Helga Ingólfsdóttir einleik á nýj-
an sembal Tónlistarskólans I
Reykjavík. Semballinn er
smiðaður I sembalsmiöju Willian
Dowd i Paris og er eftirliking af
frönskum 18. aldar sembal, bæði
ð sembai
hvaö smiði og skréytingu snertir,
Helga Ingólfsdóttir hefur haldið
fjölda tónleika á Islandi og er-
lendis og er vel þekkt fyrir túlkun
sina á gamalli og nýrri tónlist.
A tónleikunum verður frumflutt
Sembalsónata eftir Jón Asgeirs-
son og einnig verður flutt „Da”,
fantasia eftir Leif Þórarinsson. '
Auk þess verða flutt tvö vel þekkt
sembalverk eftir J.S. Bach,
Tokkata I e-moll og Forleikur
(Overture) partita I frönskum stil
i h-moll.
Tónlelkar
samkðrs
Vetrarstarf Samkórs
Rangæinga hófst i október ; s.l.
Félagar eru 24 úr sjö hreppum
sýslunnar. Hefur kórinn æft einu
sinni i viku I gagnfræðaskólanum
á Hvolsvelli undir stjórn Friðriks
Guðna Þórleifssonar. I vetur
hefur kórinn verið að æfa Missa
honorum eftir dr. Victor Urban-
cis, en þessi messa hefur ekki
veriö flutt i heild opinberlega
Rangæinga
áður. Auk þess hefur kórinn æft
sálmalög. Kórinn mun halda tón-
leika i Stóradalskirkju, Vestur
Eyjafjöllum, föstudaginn 21.
mars kl. 21.30. Laugardaginn 22.
mars kl. 13.30 syngur kórinn i
Hallgrimskirkju. Að tónleikunum
loknum verður ferðinni heitiö upp
á Akranes og sungið i Akranes-
kirkju kl. 18.