Vísir - 21.03.1980, Blaðsíða 13
Föstudagur 21. mars 1980
eikomm!
„Mér var sagt að ég væri
að boróa svmsheila”
Rabbað við Kristlnu Valgeirsdóttur, sem var skiptinemi I
Malaysiu i eitt ár.
Astinni halda
engin bönd!
Óvenju sérstætt sakamál.
99
Ég er senn sadd-
ur af metorðum”
— Helgarviðtalið er við Tómas Árnason, viðskiptaráðherra.
AUt um Hinrik áttunda
t tiiefni af nýjum framhaldsmyndafiokki.sem sýna á i sjón-
varpinu um þann ágæta mann.
MANNLÍF
við upphaf þingveislu.
Þaö er ljóst að iausafjárstaða bankanna er slæm þessa dagana. t
frétt Vfsis sl. þriöjudag kom fram að staðan hefur versnað um 10.6
milljarða kr. frá janúarlokum 1979 til janúarioka I ár. Til viöbótar
kemur siðan neikvæð þróun sem nemur 2.500 milljónum króna I
febrúar.
Að nokkru leyti getur það veriö eðlilegt að lausafjárstaða bank-
anna sé slæm á þessum tfma. Oft er mikið fjárfest á fyrstu mánuð-
um ársins án þess að sú fjárfesting sé farin að skila sér aftur, t.d. i
útflutningi sjávarafurða. Það breytir ekki þvi, að það getur aldrei
veriö eðlilegt að banki sé með óleyfilegan yfirdrátt hjá seðlabanka.
Slikt gerist ekki i löndum sem hafa heilbrigt efnahagslif.
En hvað er að? Er þetta ein af meinsemdum verðbólgunnar? Eru
bankarnir of góðir við lánbeiðendur? Eru höfuöatvinnuvegir
þjóðarinnar svona illa staddir? Er rikisbankakerfið of viðamikiö og
kostnaðarsamt? Er þörf á þrem rikisbönkum með tilheyrandi úti-
búakerfi um allt land?
Þessar spurningar og margar fleiri vakna þegar þessi mál eru
skoðuð. Visir leitaði svara I „kerfinu”, en þar fundust fáir sem vildu
tjá sig undir nafni um þessi mál. Nokkrir voru þó til með að segja
sinar skoöanir við blaðamanninn „okkar á milli” og er það sem hér
fer á eftir byggt á þeim samtölum.
Ljóst er af þeim tölum
sem komu fram I Visi, að
vandi Útvegsbankans er lang-
samlega mestur. Hann hafði
neikvæða stöðu við Seðla-
bankann um 6.5 milljaröa i
janúarlok og sýndi neikvæöa
þróun um 4.8 milljaröa næstu 12
mánuði þar á undan. Siöan
hefur bæst við þá upphæð,
sennilega milljarður eða meira.
Atriðin sem nefnd voru I
spurningunum hér að framan
eiga öll sök á þessum vanda
og ýmislegt fleira kemur til. A
Fréttaauki
Gisli
Sigurgeirsson,
blaðamaður,
skrifar
þaö lika við um útvegsbank-
ann. En hversvegna er staöa
Útvegsbankans langsamlega
verst? Hversvegna er ekki
höggviö á hnútinn og sagt hing-
að og ekki lengra? Þegar stórt
er spurt veröur lltið um svör.
Þetta tvinnast inn I efnahagsá-
standiö i þjóðfélaginu, sem
undangengnum rikisstjórnum
hefur ekki tekist aö koma i heil-
brigt horf.
Það þætti eflaust ekki góð lat-
Ina i viðskiptaheiminum að taka
lán með 70% vöxtum, en lána
það siöan aftur þriðja aöilanum
með rúmlega 40% vöxtum.
Þetta viröast þó bankarnir
gera, þvi vextirnir af yfirdrætt-
inum f Seðlabankanum eru 70%.
Enhvers vegna, hvernig gengur
þetta dæmi upp? Það gengur
einfaldlega ekkiupp, en riki er
nú einu sinni riki.
„Ég kenni stjórnvöldum
þetta, þau gera ekkert I mál-
inu”, sagði einn af viðmælend-
um VIsis, og hann hélt áfram:
„Þvimiöur verð ég að segja þér
alveg eins og er, að það eru svo
fáir stjórnmálamenn sem hafa
nokkuö einasta við á bankamál-
um. Það er svo furöulegt hvað
margir fljúgandi vel gefnir og
reyndir menn geta talað um
bankamál af miklum barna-
skap. Margir þeirra virðast
halda, að banki geti alltaf geng-
ið —bara af þviaörikiöá hann.
Erfiðleikar, allt 1 lagi — rikiö
borgar. Þvi ekki að reka bank-
ana eins og sólitt fyrirtæki, svo-
leiðis á það að vera. Það er
leiðinlegt aö segja það, en þaö
er þannig meö fjöldann allan af
þingmönnum — og þannig hefur
það alltaf verið — að þegar rætt
er um bankamál virðist vera
múrað upp i öll skilningarvit”.
Útvegsbankanum hefur
aldrei veriO skapaður
rekstrargrundvöllur
Erfiöleikar útvegsbankans
eru ekki nýir af nálinni. „Bank-
anum hefur aldrei veriðkomið á
réttan kjöl, allt siðan hann var
stofnaður upp úr rústum
Islandsbankans”, sagði einn af
viðmælendum VIsis, um leið og
hann tók undir með fyrri heim-
ildarmanni og sagði: ,,Þetta er
sök stjómvalda. Það er svo
broslegt með þessa aumingja
karla, sem eiga að heita rikis-
stjórn, þeir halda aö banka-
stjórarnir séu kraftaverka-
menn. útvegsbankanum hefur
aldrei verið skapaður sá
rekstrargrundvöllur sem hann
þarf miðað við þau verkefni sem
honum eru ætluð. Ef banka-
stjórarnir gera ekki kraftaverk
er þeim ætlað að taka yfirdrátt i
Seðlabankanum og semja um
sem lægsta vexti.”
Hagdeild útvegsbankans
hefur gert Uttekt á afkomunni
sl. 20 ár. Skýrslan er hins vegar
ennþá leyniplagg rikisstjórnar-
innar. Þar kemur fram sam-
kvæmt áreiöanlegum heimild-
um Visis, að staða bankans hafi
oft veriö verri en hún er f dag.
Verst mun hUn hafa verið á ár-
unum 1966 — 67.
Þó talaö sé um útvegsbank-
ann i einni heild má ekki skilja
það svo, að öll UtibU hans séu
sett undir sama hatt hvað
slæma rekstrarstöðu varðar.
Mörg Utibúin sýna jafnvel já-
kvæöa stöðu, t.d. á Akureyri, en
Utibúin i Vestmannaeyjum,
Keflavik standa verst. Þar spil-
ar sjávarútvegurinn inn i, enda
eru nær 60% útlána bankans
bundin i sjávarUtveginum.
86.7% af útlánumútvegsbank-
ans fara til atvinnurekstrarins,
enaðeins 10.5% til einstaklinga.
Hinir bankarnir hafa hag-
stæöara hlutfall gagnvart
einkarekstrinum, Landsbank-
inn lánar 80.1% til fyrirtækja og
Búnaðarbankinn 77.5%. Af
einkabönkunum er Samvinnu-
bankinn hins vegar með lægsta
hlutfallið til fyrirtækja, eöa
55%.
EkKl úr mlkiu að
splla I „vlnsæi lán”
Útvegsbankinn hefur þvi ekki
úr miklu aö spila i svonefnd
„vinsæl lán”, til bilakaupa,
sólarlandaferða, eöa annars
sliks. Sparisjóðirnir geta aftur á
móti leyftsér slik lán, enda lána
þeir 57.9% af Utlánum sinum til
einstaklinga á móti 10.5% hjá
Útvegsbankanum. Þar virðist
skýringin vera á þvi, að þeir
sýna jákvæða þróun gagnvart
Seðlabankanum á meðan bank-
arnir sýna neikvæða þróun. Það
I
12
VÍSIR
Föstudagur 21. mars 1980
. ■ •
„Fáir stjórn-
málamenn
sem nafa
nokkurt vit á
Dankamálum"
eykur vinsældir hjá þeim sem
eiga sparifé, að geta lánað „vin-
sæl lán”.
Ýmis fleiri atriöi en hér hafa
verið nefnd hafa stuðlað að
erfiðri stööu bankanna.
Kjarninn i öllu saman er verð-
bólgusýrt efnahagslif þjóðar-
innar, samfara erfiðleikum I
veigamiklum atvinnugreinum
— og hækkandi oliuverö spilar
einnig inn i myndina. T.d. þurfti
Útvegsbankinn aö snara út 150
milljónum fyrir oliufarmi sem
°itt oliufélagið var að kaupa nú i
vikunni.
Hel alflrel séð
skynseml I að hafa
Prjá rlkisbanka
Þegar þessi mál eru rædd
verður ekki gengið fram hjá
þeim umræðum sem verið hafa
annað veifið á undanförnum ár-
um, um að einfalda allt banka-
kerfiö, gera það: fljótvirkara, ó-
dýrara og um leið hagkvæmara
i rekstri. Finnst mörgum mikiö
um allan þann fjölda sem starf-
ar hjá bönkum og alla þá um-
gerð sem er i kring um þá starf-
semi.
„Éghefaldrei séð neina skyn-
semi i þvi að hafa hér 3 rikis-
banka”, sagöi einn viðmælenda
VIsis, hátt settur i bankakerf-
inu. 1972 skipaði þáverandi
bankamálaráðherra nefnd til að
„endurskoða allt bankakerfið,
þ.á m. löggjöf varöandi Seðla-
bankann og hlutverk hans, og
vinna aö sameiningu banka og
sparisjóða. 1 nefndinni áttu
sæti: Jóhannes Nordal, formað-
ur, Armann Jakobsson, Björg-
vin Vilmundarson, Guðmundur
Hjartarson, Jóhannes Eliasson
og Magnús Jónsson. 19. janúar
árið eftir skilaöi nefndin áliti
sinu, sem var i tveim bindum.
1 greinargerð nefndarinnar
segir m.a.: „Hér á landi eru nú
starfandi 96 innlánsstofnanir, (7
viðskiptabankar, 51 sparisjóð-
ur, 37 innlánsdeildir samvinnu-
félaga og Söfnunarsjóður
Islands), auk 17 fjárfestinga-
lánasjóða og Seðlabanka
Islands. Enginn vafi er á þvi, að
þetta er miklu meiri fjöldi stofn-
ana en hagkvæmt getur talist,
auk þess sem margar þeirra eru
of smáar til þess, að þær geti
uppfyllt sjálfsagöar öryggis-
kröfur. Af samanburði við hin
Noröurlöndin má ráða, að
bankastarfsemi hér á landi taki
hlutfallslega meira af mannafla
og framleiðslugetu þjóðarinnar
en á hinum Norðurlöndunum.”
Tvelr rlklsbankar og
tvelr hlutafélaga-
bankar væru nóg
Siðan segir i greinargerðinni
um fækkun viðskiptabanka:
„Nefndin kemst aö þeirri al-
mennu niöurstöðu að æskilegt
sé aö stefna að þvf, að viðskipta-
bankarnir verði i framtiðinni
ekki fleiri en þrir til fjórir, en
með þvi væri tryggð eðlileg
samkeppni. Væri þá t.d. eöli-
legt, að tveir af þeim væru rikis-
bankar, en tveir hlutafélags-
bankar. Eigi að stefna að þvi að
rikisbönkum fækki Ur þremur i
tvo, virðist sú leið helst koma til
greina, að þaö gerist með sam-
einingu Búnaöarbankans og Út-
vegsbankans og hefur nefndin
gert sérstaka athugun á þvi,
hvernig framkvæma megi slika
sameiningu og hvaða vandamál
væru henni samfara.”
Þá kemur fram i greinargerð-
inni, aö nefndin telur ekki siöur
mikilvægt, að hlutafélagabank-
arnir sameinist. Er nefnt sem
möguleiki að Samvinnubankinn
og Alþýðubankinn sameinist og
Verslunarbankinn og Iönaðar-
bankinn, nema svo fari að
Iönaðarbankinn verði tengdur
sameiningu Útvegsbanka og
Búnaðarbanka, þar sem rikið á
hlut I Iðnaöarbankanum. Þá er
tekið fram að selja þurfí nýja
löggjöf um starfsemi viðskipta-
bankanna.
Hvað er I veginum?
Þetta eru byltingarkenndar
tillögur, sem eru settar saman
af mönnum sem eru 1 hópi hæf-
ustu bankamanna landsins.
Þrátt fyrir það hefur ekkert
verið gert til að koma þeim I
framkvæmd. Hvað er I vegin-
um?
„Þaðeru „bændaelementin” i
Sjálfstæðisflokknum og Fram-
sóknarflokknum, sem hafa
staðiö i veginum”, sagði banka-
maður Isamtali við Visi. 1 sama
streng tók alþingismaður. Hann
sagði að forsvarsmenn bænda
væru hræddir viö að fara I
skuldasúpuna með Útvegsbank-
anum.Þaðer semsagt góð staöa
Búnaðarbankans á móti slæmri
stöðu Útvegsbankans, sem er
ljónið i veginum. Einnig spila
eitthvaö inn i persónuleg mál
gagnvart bankaráðum og öðru
starfsmannahaldi bankanna.
En leysir sameining þessara
banka málið? „örugglega ekki
ein sér, það verður jafnframt að
treysta eiginfjárstöðu bankans
og semja við Seðla.bankann”,
sagði heimildarmaður Visis.
Andstæðingar sameiningar-
innar hafa lika bent á, að
sameiningin sem slik leysi eng-
an vanda. Eftir standi höfuð-
verkurinn við að fjármagna
höfuðatvinnuveg þjóðarinnar,
sjávarútveginn, sem sé stærsti
pósturinn I erfiðleikum Útvegs-
bankans.
A norðurlöndunum hefur þró-
unin oröið sú, að bönkum og
sparisjóðum hefur fækkað
verulega, samkvæmt þvf sem
kemur fram I skýrslu banka-
nefndarinnar. Ef miðað er við
árið 1920 til ársins 1971 hafði
viöskiptabönkum fækkað á þvi
timábili i Danmörku úr 185 i 79,
Finnlandi úr 25 i 7, Noregi úr 192
I 37 og i Sviþjóð úr 41 114. Sömu
sögu er að segja um sparisjóði I
viðkomandi löndum.
Hvað verður Tðmasl
ágengt gegn
„eiementunum”?
Leikmaður kafar ekki djúpt i
bankakerfið á einum degi. Það
erhins vegar ljóst aö nokkrir af
hæfustu bankamönnum lands-
ins komast að þeirri niðurstöðu
að það þurfi að „skera upp”
þetta kerfi, til að það verði ein-
faldara, ódýrara og hagkvæm-
ara i rekstri. Þó að versnandi
rekstrarf járstaða bankanna
eigisér viðtækari orsakir, þá er
vist að ekki yrði það til að gera
hana verri, þó hugmyndum
bankanefndarinnar yröi komið I
framkvæmd, þó ekki gerist allt i
einu. Ekkert er samt gert.
Tómas Arnason, núverandi
bankamálaráöherra, segir I við-
tali við VIsi i gær, að hann vilji
einfalda kerfiö. Hvort honum
veröur eitthvað ágengt gegn
þeim „elementum”, sem fram
aö þessu hafa staöið I veginum,
veröur framtiðin að leiöa i ljós.
G.S.
Jóhannes Nordal
Magnús Jónsson
Armann Jakobsson
Björgvin Vilmundarson
Guðmundur Hjartarson
Jóhannes Eliasson.
Nokkrir at hætustu bankamönnum landsins komust aö bví l netndaráiiti, aö rétt væri aö einfalda bankakerfið. Þrátt fvrir baö betur ekkert veriö gert.
NY ÞJONUSTA
Frá dönsku verksmiöjunni Sögaard:
• Sérsaumuð sætaáklæði fyrir alla bíla, nýja og
gamla, afgreidd með stuttum fyrirvara.
Komið á staðinn, veljið lit og efni, glæsilegt
úrval.
• Eigum á lager alhliða sætaáklæði í flesta bíla,
pelseftirlíking, þrír litir: Ijósbrúnt, dökkbrúnt
og grátt/ þolir þvott.
• Teppamottur í settum eða sérsniðin nylon-
teppi í bilinn. Isetning ef óskað er.
MJÖG GOTT VERÐ
SENDUM í PÖSTKRÖFU
Siðumúla 17,
/ V. M.VVÍrT Reykjavik,
flCWBÚÐIN/Simi 37140
Hvað
eru morgir metror of gorni
i þessum hnykli?
r
I
I
l
Hnykillinn er til sýnis
í versluninni
HOF, Ingólfstræti i
Sá, sem kemst næst því, fær vöruúttekt að
verðmæti kr. 50.000,- í versluninni HOF.
Lausnir sendist til: VISIS,
Síðumúla 8, 105, Rvík.
fyrir 25. mars nk.
— Merkt „HNYKILL"
Nafn: ...................
Heimilisfang:............
Sveitarfélag:............
Sími:....................
Hnykillinner.............
..........metrar.