Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 9
Sá galli var hins vegar á þessu húsnæði að þarna var mikið ryk og mikið ónæði af öðrum götubörnum, sérstaklega sóttu uppdópaðir og baldnir strákar í félagsskap stelpn- anna. Um miðjan júlí var verkefnið komið nægjanlega vel á veg til þess að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna sýndi því áhuga. Það gerði það að verkum að unnt var að flytja í betra húsnæði þar sem er rennandi vatn og rafmagn og greiðir Barnahjálpin leiguna. Við kertagerðina er reynt að halda öllum kostnaði í lágmarki og nota sem einfaldastan búnað. Vaxið er brætt yfir viðarkolaeldi, en það hef- ur reynst bæði ódýrast og hentugast þar sem rafmagn er stopult. Aðal- lega eru notuð heimagerð kertamót, söguð úr vatnsrörum og er þar notið reynslunnar frá Sólheimum. Mest þykir stelpunum þó gaman að gera dýfð kerti, og er vinnuvikunni oft lokið með því. Kerti sem eru á markaði í Úganda eru yfirleitt mjög léleg vara. Þau brenna upp á svipstundu og eru auk þess mjó og skapa eldhættu þar sem þau geta auðveldlega oltið um koll. Þar eru hvorki til kerti sem staðið geta óstudd, né kerti í skálum sem dregur mjög úr eldhættu. Stúlkurn- ar framleiða því slík kerti, svo og hafa kerti þeirra langan brennslu- tíma. Þær framleiða einnig kerti þar sem sérstakri jurtaolíu, citronella, er blandað í vaxið. Þetta efni hefur þá náttúru að fæla frá moskítóflugur sem eru algengar í Úganda og bera sjúkdóma eins og malaríu á milli manna. Allar stúlkurnar sem voru á nám- skeiðinu vinna við kertaframleiðsl- una og að meðaltali koma 14–16 stúlkur til vinnu á hverjum degi. Stúlkurnar framleiða í dag 25 teg- undir af kertum, og smám saman er að myndast markaður fyrir kertin. Stúlkurnar fengu fyrstu launin sín greidd í lok júní, og þann dag ríkti mikil gleði á vinnustaðnum. Síðan er salan að smáaukast, þó svo að ekki sé enn búið að ná því takmarki að stúlk- urnar fái greidd leyfileg lágmarks- laun. Óléttar á götunni Í dag hefur öllum stúlkunum verið fundinn samastaður. Þær leigja sér herbergi eða hafa sest að hjá ættingjum eða vinum. Flestar hafa lokið einhverri skólagöngu, mislengi þó, ein er með stúdentspróf, meðan önnur getur tæplega skrifað nafnið sitt. Nokkrar hafa þurft að hætta í skóla vegna þess að þær hafa eignast barn. Eftir að kertagerðin hófst hefur fæðst eitt stúlkubarn. Móðirin er 16 ára, hún var í skóla og bjó hjá föður sínum, en þegar hann sá að hún var ófrísk rak hann hana að heiman. Hún fór þá til móðurömmu sinnar en faðir hennar rak hana þaðan líka. Hún fór þá til barnsföður síns, en hann á fyrir aðra konu og með henni tvö önnur börn, en fjölkvæni er leyfilegt í Úg- anda. Þar bjó hún um tíma, en eins og hún sagði „kom henni og konunni svo illa saman að hún fór á götuna“. Þar fann FOCA hana og aðstoðaði hana í gegnum fæðinguna og leigir handa henni herbergi í þrjá mánuði. Þær mæðgur koma í kertin á hverj- um degi, en því miður betlar hún gjarnan í bænum eftir vinnu. Þrjár af stúlkunum eru barnshafandi, bæði er að það gefur vel að betla með barn og svo eru þær einnig að koma sér upp einhverjum sem þykir vænt um þær. Ein af stúlkunum hefur verið á götunni í níu ár, hún er oftast í ein- hverri vímu, aðallega af því að anda að sér bensíni eða þynni. Hún kemur hins vegar í vinnu á hverjum degi, gerir kannski mismikið, en hefur minnkað eiturlyfjaneyslu sína til muna. Bestur árangur hefur þó náðst með tvær stúlkur sem voru í daglegri neyslu, en eru nú vímuefna- lausar í vinnunni þó svo að þær séu í einhverri neyslu utan vinnutíma. Um helmingur stúlknanna hefur einnig unnið fyrir sér með því að selja sig. Því miður hefur ekki verið hægt að borga þeim það mikið fyrir kerta- gerðina enn sem komið er að þær geti lagt niður þá iðju. Svo eru það undantekningarnar, líkt og ein stúlknanna sem á báða sína foreldra á lífi rétt fyrir utan Kampala. Þegar hún er spurð af hverju hún hafi farið á götuna er svarið að hún sé yngst af 11 systk- inum og að foreldrar hennar séu orðnir of gamlir til að geta ræktað kaffi sem hafi verið þeirra lifibrauð. Henni fannst því að hún gæti ekki verið byrði á þeim lengur og fór á götuna en hélt áfram í skóla og með aðstoð FOCA kláraði hún stúdents- próf og stefnir nú á að læra til ljós- móður. Góður vinnuandi Stúlkurnar, sem áður eyddu tíma sínum á götunni eða við að „gera ekki neitt“ eins og þær lýsa því, eru núna búnar að mæta reglulega í vinnu í fimm mánuði, nokkuð sem þær hafa aldrei gert áður. Þær koma til vinnu á hverjum degi, vinnuand- inn er góður og þær styðja hver aðra við að framleiða góða vöru í sam- ræmi við getu hverrar og einnar. Allar þekkja ferli kertagerðar í heild sinni svo hver og ein getur framleitt kerti upp á eigin spýtur ef til þess kæmi. Það er von okkar að kertagerðin nái að verða að litlu iðn- fyrirtæki sem rekið verði af fyrrver- andi götustúlkum. Fyrirtæki sem aðstoði stúlkur sem hafa hug á að halda áfram í námi eða vinnu til að hefja nýtt líf. Eftir því sem stúlk- urnar hverfa til annarra starfa opn- ast möguleiki fyrir nýjar stúlkur sem eru, eða hafa verið, á götunni í lengri eða skemmri tíma að bætast í hóp- inn. Höfundur er mannfræðingur og starfar á eigin vegum við að hjálpa götubörnum í Úganda. Hægt er að hafa samband með tölvupósti, goge- @simnet.is, heimasíðan er www.simnet.is/rge/goge. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 B 9 - fyrir heilsuna Beinþéttni mæling 552 4045 TÍMAPANTANIR Í SÍMA 530 5800 TÍMAPANTANIR Í SÍMA 564 5600 TÍMAPANTANIR Í SÍMA Mælingin kostar 950 kr. - Bjóðum beinþéttnimælingar framkvæmdar af hjúkrunarfræðingum Lyfju á eftirtöldum stöðum: Lyfja Laugavegi Mánudaga og þriðjudaga kl. 9-16.30 Lyfja Smáratorgi Miðvikudaga kl. 8-16 og fimmtudaga kl. 8-12 Lyfja Smáralind Fimmtudaga og föstudaga kl. 13-17 Vísindasjóður Tæknisjóður Umsóknarfresturinn er til 1. nóv. Eyðublöðin eru á heimasíðu RANNÍS, www. rannis.is Már Guðmundsson Bolli Þór Bollason Hvað er framundan í efnahagsmálum þjóðarinnar? Aukin óvissa á alþjóðavettvangi! Félag viðskipta- og hagfræðinga stendur fyrir opnum hádegisverðarfundi þriðjudaginn 23. október nk. kl. 12:00-13:30 á Radisson SAS, Hótel Sögu, Ársal, 2. hæð. Á fundinum verður fjallað um gengi krónunnar, skattamál og fleira í ljósi aukinnar óvissu á alþjóðavettvangi. Fundur, sem ætti að vera áhugaverður fyrir fjölmarga. Fyrirlesarar: Már Guðmundsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjámálaráðuneytisins. Fundarstjóri: Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptaskor Háskóla Íslands. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga Vinsamlega skráið þátttöku með tölvupósti fvh@fvh.is eða í síma 551 1317. Verð með hádegisverði er 2.500 kr. fyrir félagsmenn og 3.500 kr. fyrir aðra. Gylfi Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.