Morgunblaðið - 21.10.2001, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 B 19
bílar
ÖRYGGI bíla hefur tekið miklum
framförum frá 1995 og tala margir um
byltingu í þeim efnum. Niðurstöður
sænska Folksam tryggingafélagsins
leiða í ljós að bílar framleiddir eftir
1995 eru almennt mun öruggari en
eldri bílar. Rannsóknir Folksam sýna að
öryggi smábíla hefur aukist um 50%
og að 25% minni líkur eru á alvar-
legum slysum eða dauðsföllum í ný-
legum bílum en þeim sem eldri eru.
Sá búnaður sem bæst hefur í bíla
frá 1995 eru öryggispúðar fyrir bíl-
stjóra og farþega að framanverðu og á
hlið, ABS-hemlakerfi, yfirbyggingar
hannaðar til að draga úr hættu á al-
varlegum meiðslum, ný efni sem
styrkja farþegarými, bílbelti með
strekkjurum og álagsvörn, háls-
hnykksvörn og stöðugleikastýring.
Áætlað er að umferðarslys kosti
þjóðarbúið í heild 12-15 milljarða króna
á ári. Þótt ekkert annað breytist til
batnaðar en öryggi bíla hefur það mikil
áhrif til að minnka kostnað og meiðsli.
Þetta kemur fram í samantekt Vina
bílsins, regnhlífasamtaka Bílgreina-
sambandsins, bílaumboða, trygginga-
félaga og lánafyrirtækja, þar sem m.a.
er byggt á tölum frá Folksam, Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands og Um-
ferðarráði.
Öryggi smábíla
aukist um
50% frá 1995
FLUTTIR voru inn fleiri nýir fólks-
bílar allan níunda áratuginn en þann
tíunda. Á árabilinu 1980 til 1999 voru
samtals fluttir inn 91.954 nýir fólks-
bílar en á árabilinu 1990 til 1999 var
innflutningurinn 87.120 bílar. Þetta
kemur fram í samantekt sem Vinir
bílsins hafa sent frá sér, en þeir eru
regnhlífarsamtök Bílgreinasam-
bandsins, bílaumboða, trygginga-
félaga og lánafyrirtækja.
Í samantektinni segir að aukinn
innflutningar nýrra bíla árin 1999 og
2000 sé langt frá því að vera eitthvað
æði, en samtökin hafa gagnrýnt um-
fjöllun fjölmiðla um bíla og vilja rétta
stöðu hans í umræðunni. „Í heild
þarf að flytja inn um 15.000 nýja bíla
á ári til að endurnýjun verði eðlileg. Í
raun hafa færri bílar verið fluttir inn
síðasta áratug heldur en áratuginn
þar á undan. Þjóðinni hefur fjölgað
verulega á þessu árabili, eða um 53
þúsund manns frá 1980 til 2001.“
Sala á árinu innan við
helmingur af endurnýjunarþörfinni
Vegna samdráttar í sölu nýrra bíla
er fyrirséð að heildarinnflutningur á
þessu ári verði u.þ.b. 7.400 bílar, sem
er innan við helmingur af endurnýj-
unarþörfinni.
Meðalaldur bílaflotans hér á landi
er nú 8,8 ár, sem er talsvert hærra
en víðast hvar í Evrópulöndunum.
Meðalaldurinn fer hækkandi en
hann var lægstur á árunum 1988-
1991, um 7,6 ár.
Sá meðalaldur er sambærilegur
við það sem þekkist í flestum öðrum
Evrópulöndum.
Þá segir ennfremur í samantekt-
inni að bílar hafi hækkað í verði um
11% frá 1997 en á þessum tíma hafi
almennt verðlag hækkað um 19% og
innflutningsgengi um rúm 20%. Til
viðbótar komi að kaupmáttur hafi
sjaldan verið jafnmikill og nú.
Minni bílainnflutningur síðasta
áratug en áratuginn á undan
VOLKSWAGEN hefur sent út
fyrstu opinberu myndirnar af D1-
lúxusbílnum sem kemur á markað
næsta vor. D1 er þó ekki endanlegt
nafn bílsins og verður það ekki gef-
ið upp fyrr en í lok þessa árs.
Eins og sést er bíllinn afar líkur
Audi A8 í útliti. Dyr, skottlok og
vélarhlífin eru úr áli, sem dregur úr
þyngd bílsins. Aðrir hlutar yf-
irbyggingarinnar eru úr galvan-
iseruðu stáli. Bíllinn verður fáan-
legur með ekki færri en fimm
vélum.
Við markaðssetningu verður
hann þó eingöngu fáanlegur með
tveimur bensínvélum, þ.e. 3,2 lítra
V6, 241 hestafla, og 6,0 lítra W12
sem skilar 420 hestöflum. Síðar
verður fáanleg 5,0 lítra V10 dís-
ilvél, 333 hestafla, sem VW segir
að verði aflmesta dísilvél í fólksbíl í
heiminum. Staðalbúnaður í lúx-
usbílnum verður loftpúðafjöðrun og
4Motion-fjórhjóladrifið í W12 og
dísilgerðinni. Í öðrum gerðum verð-
ur 4Motion valbúnaður.
VW kynnir nýja gerð loftræsti-
kerfis í bílnum sem kallast 4-
Corner Climatic. Kerfið tryggir
hnökralaust loftflæði til allra staða
í bílnum með lofttúðum sem opn-
ast og lokast sjálfkrafa.
Í mælaborðinu verður sjö tomma
skjár þar sem eru stjórnstöðvar
fyrir sex diska geislaspilara, leið-
sögukerfi, sjónvarp, tölvu, síma og
loftkælingu.
Upptalning á öryggisbúnaði vek-
ur ekki síður athygli. Þar verður
m.a. að finna tíu öryggispúða. Bíll-
inn verður smíðaður í Dresden og
er búist við að smíðaðir verði 100
bílar á dag þegar fullum afköstum
verður náð.
Lúxusbíll
VW næsta
vor
Íburðarmikill að innan en laus við takkaflóð.
Sjá má Audi-svip á lúxusbíl VW.
Glæsieldhús frá A til Ö...
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
01
D
V
R
07
3
Við sérhæfum okkur
í heildarlausnum fyrir
eldhús og bað.
Innréttingar – Raftæki – Hreinlætistæki
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
- trygging fyrir l
águ
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is