Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 13
N Ó V E M B E R
Skráning og upplýsingar
í síma 568 5010
Heiti námskeiðs Dagsetning Tími Stundir
ISDN samnet ........................................................... 1.11.2001 - 3.11.2001 8:30 - 18:00 40
Skynjaratækni 2 ...................................................... 1.11.2001 - 3.11.2001 8:30 - 18:00 40
Reglugerð og rafdreifikerfi 2 ................................ 2.11.2001 - 4.11.2001 8:30 - 18:00 40
Gagnaflutningur ...................................................... 8.11.2001 - 10.11.2001 8:30 - 18:00 40
Þjófavarnarbúnaður ............................................... 8.11.2001 - 10.11.2001 8:30 - 18:00 40
AutoCAD 1............................................................... 9.11.2001 - 17.11.2001 8:30 - 16:30 40
LÍR-ÖS/ öryggisstjórnun rafverktaka .................. 9.11.2001 - 10.11.2001 17:00 - 17:00 15
LabVIEW framhald ................................................. 12.11.2001 - 14.11.2001 8:30 - 18:00 40
Áhrif truflana á tækjabúnað ................................. 15.11.2001 - 17.11.2001 8:30 - 18:00 40
Iðntölvur PLC 3....................................................... 15.11.2001 - 17.11.2001 8:30 - 18:00 40
Námskeið fyrir skoðunarmenn rafveitna ........... 17.11.2001 - 17.11.2001 8:30 - 17:00 10
Brunaviðvörunarkerfi............................................. 22.11.2001 - 24.11.2001 8:30 - 18:00 40
EIB forritanleg raflagnakerfi ................................. 22.11.2001 - 24.11.2001 8:30 - 18:00 40
Loftstýringar............................................................ 23.11.2001 - 24.11.2001 8:30 - 18:00 25
Brunaviðvörunarkerfi............................................. 29.11.2001 - 1.12.2001 8:30 - 18:00 40
Rafeindastýringar ................................................... 29.11.2001 - 1.12.2001 8:30 - 18:00 40
Skjámyndir 1 ........................................................... 29.11.2001 - 1.12.2001 8:30 - 18:00 40
AutoCAD 2............................................................... 30.11.2001 - 1.12.2001 8:30 - 16:30 40
Lokaúttekt rafverktaka.......................................... 30.11.2001 - 1.12.2001 17:00 - 17:00 15
Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · skoli@raf.is · www.raf.is
FYRIR RAFIÐNAÐARMENN
Vistaverur
þeirra
hjóna eru
oft og tíð-
um eins og
brandari
SINGAPORE Airlines býður
farþegum sínum að stoppa
eina nótt í Singapore fyrir
tæpar 150 krónur, samkvæmt
tímaritinu Wanderlust. Segir
að tilgangurinn með þessu fyrirkomulagi sé að
vekja athygli á Singapore sem viðkomustað. Til-
boðið felur í sér akstur til og frá Changi-flugvelli og
afslátt af alls kyns afþreyingu, svo sem í dýragarð-
inn í borginni, Jurong-fuglagarðinn, sem og ótak-
markaðan fjölda ferða með loftkældum rútum SIA.
Boðið er upp á gistingu á fyrsta flokks hóteli en til-
boðið gildir út mars á næsta ári.
Upplýsingar: www.singaporeair.com
Nótt í Singapore fyrir
rúman hundraðkall
SHANGRI-La-hótelkeðjan
býður viðskiptavinum sínum
allt að 40% afslátt af gistingu
og tvöfaldar vildarpunkta hjá
meðlimum 22 vildarklúbba,
segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Afslátturinn gildir
hjá 38 hótelum keðjunnar í Asíu, frá og með októ-
ber og út febrúar árið 2002. Einnig er boðið upp á
frían morgunverð í einhverjum tilvikum. „Afslátt-
urinn, tvöföldun vildarpunkta, þægindi hótelanna
og hin persónulega og margverðlaunaða asíska
gestrisni lætur gistingu hjá Shangri-La margborga
sig fyrir ferða- og kaupsýslufólk,“ segir í tilkynningu
frá hótelkeðjunni.
Shangri-La keðjan hefur um 20.000 herbergi á
sínum snærum í Asíu, í Kína, Hong Kong, á Fídjí, í
Indónesíu, Malasíu, Myanmar, á Filippseyjum, Taív-
an, í Singapore og Taílandi. Einnig stendur til að
opna fimm ný Shangri-La hótel á næstu tveimur
árum í Dubaí, Óman og Kína.
Upplýsingar: hoakeley@shangri-la.com.
Heimasíða: www.shangri-la.com
Afsláttur og vildarpunktar
í boði hjá Shangri-La-hótelunum
HIN síunga leik-, söng- og
þokkagyðja Marlene Dietrich
hefði orðið hundrað ára hinn
27. desember næstkomandi
hefði hún lifað svo lengi. Goð-
sögnin Dietrich fæddist upp-
haflega sem Marie Magdalene
Dietrich í Schönenberg í Berlín
árið 1901 og munu Berlínarbúar minnast hennar vel
og rækilega í tilefni þessara tímamóta. Meðal þess
sem búið er að skipuleggja er allsherjar gala-kvöld í
FriedrichstadtPalast frá 28. desember til 31. þar
sem fjöldi innlendra og erlendra listamanna
skemmtir viðstöddum í minningu Dietrich.
Upplýsingar: www.berlin-tourism.de
Eitt hundrað ár liðin frá
fæðingu Marlene Dietrich
efnisflokknum „á leiðinni“. Ferða-
handbækur eru fljótar að úreldast
og segir einnig í Wanderlust að
hægt sé að sækja nýjustu upplýs-
ingar um tiltekna staði á vefnum
og geyma sem pdf skjöl, vilji maður
vera reglulega vel með á nótunum.
Næstbesti og þriðji besti vef-
urinn eru imaginative-traveller.com
og exodus.co.uk, að mati lesenda.
LESENDUR Wanderlust
hafa valið bestu ferðavef-
ina. Í fyrsta sæti af 503 er
vefur lonelyplanet.com,
sem fær hæstu einkunn
hjá um 80% lesenda. Vef-
urinn þykir barmafullur af
gagnlegum upplýsingum
fyrir ferðalanga, auk þess
að vera aðgengilegur fyrir
þá sem ekki er sérstaklega
gefið um Netið. Hægt er
að leita að áfangastöðum á kort-
um eða með orðaleit, finna þús-
undir ráðlegginga undir yfirskrift-
inni „póstkort“ og lesa
þokkalegustu ferðasögur undir
Lonelyplanet.com langbesti vefurinn
Aðrir vefir sem þóttu bera
af eru:
easyJet.com
ryanair.com
travelbag.co.uk
wexas.com
roughguides.com
bugbog.com
virgin.com
80% lesenda Wanderlust telja þennan vef
bestan.
HÓTEL Künstler-
heim Luise í Berlín er
óvenjulegt fyrir þær
sakir að ekkert 30
herbergja þess líkist
hvert öðru. Hótelið
tók til starfa árið 1999
og var hópur lista-
manna fenginn til
þess að hanna eitt
herbergi hver en mið-
að er við að herbergin
séu endurnýjuð á
þriggja ára fresti svo
nýir listamenn fái
tækifæri til þess að láta sköp-
unargleði sína í ljós í húsinu. Að
vísu verður ekki ráðist í að end-
urnýja öll herbergin á þessu ári,
hefur travel-news.org. eftir tals-
konu hótelsins, en til stóð að
breyta tveimur þeirra nú um síð-
ustu mánaðamót, ef listamenn
sem búið var að ráða til starfans
væru „þannig stemmdir“. Munu
vinsælustu herbergin verða höfð
óbreytt um sinn að sögn um-
ræddrar talskonu.
Hótelið stendur við Luisen-
straße, skammt frá þinghúsinu,
Bundestag, og Listaakadem-
íunni og í grenndinni má einnig
finna fjölda erlendra sendiráða,
bundna stúdíós og fá ótakmark-
aða útrás fyrir hæfileika sína á
einstökum vettvangi. Hótelið
hefur hlotið mikla umfjöllun allt
frá opnun, meðal annars undir
yfirskriftinni „sofið fyrir listina“,
„gallerí með rúmum“ og „góð
nótt í listaverki“.
Verð gistingar er frá rúmum
4.600 krónum upp í rúmar 13.000
krónur nóttin og er morgunverð-
ur, söluskattur og þóknun lista-
mannsins innifalin.
stjórnsýslubyggingar ýmsar,
háskóla, söfn og leikhús, auk
þess sem Unter den Linden og
Friedrichstraße eru í stuttu
göngufæri. Byggingin var reist
árið 1825, er á lista yfir sögulega
minnisvarða og var gerð upp af
stakri nákvæmni nýverið, að því
er kemur fram á heimasíðu hót-
elsins, kuenstlerheim-luise.de.
Fá ótakmarkaða útrás
fyrir hæfileika sína
Þar segir að hugmyndin með
því að ráða einstaka listamenn til
starfa við hvert herbergi sé sú,
að leyfa hverjum og einum að yf-
irstíga takmarkanir hins hefð-
Hótel í Berlín þar sem hvert
herbergi er sérstakt listaverk
Grænleitt með veggföstum bókstöfum. Önd í lendingu í móttökunni.
Netfang: info@kuenstler-
heim-luise.de
HARVEY’S Bar í Edinborg er
kenndur við kanínu sem enginn sá
nema Jimmy
Stewart í kvik-
myndinni Har-
vey, sem gerð
var árið 1950.
Eigandinn er
íslensk kona,
Eirný Sigurðar-
dóttir, sem sótti
innblástur við
nafngiftina í um-
rædda kvik-
mynd, að því er segir á heimasíðu
barsins, www.harveysbar.co.uk. Auk
sögunnar bak við nafngiftina er að
finna á heimasíðu Harvey’s mynd af
eigandanum og ýmsum gestum, há-
degismatseðil, lista yfir veitingar,
staðsetningu og netfang. Barinn er
við Thistle Street í Edinborg.
Íslenskur bar og
ósýnileg kanína
Eigandi Harvey’s.
Netfang: contact@harveys-
bar.co.uk
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.845 á viku.
Innifalið í verði: ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar. (Allt nema bensín og
afgr.gjöld á flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar,
minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
GSM- símakort
með dönsku símanúmeri.
Nú einnig bílaleigubílar frá
Kaupmannahöfn og Hamborg sem
má aka um Austur-Evrópu.
Heimasíðan, www.fylkir.is
fjölbreyttar upplýsingar.
Fylkir Ágústsson
Fylkir — Bílaleiga ehf.
Sími 456 3745
Netfang fylkirag@snerpa.is .
Heimasíða www.fylkir.is .
Völundarhús
Salvadors Dalis