Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 1

Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 1
BÆKUR SÉRRIT MORGUNBLAÐSINS UM BÆKUR miðvikudagur 14.nóvember2001 Myndin af skáldinu Freysteinn Jóhannsson ræðir við Jóhann Hjálmarsson GANGANDI ÍKORNI kom út árið 1987 og var fyrsta prósaverk Gyrðis Elíassonar sem þá hafði sent frá sér fimm ljóðabækur og skipað sér í flokk athyglisverðustu ljóð- skálda á Íslandi. Með Íkornanum varð ljóst að Gyrðir var ekki síðri prósahöfundur en ljóðskáld og nú þegar hann sendir frá sér framhald þessa fyrsta prósaverks telur höf- undarverk hans níu prósaverk auk margra ljóðabóka. Í skáldsögum sínum og smásög- um hefur Gyrði tekist að skapa sér- stæðan heim sem gaman er að ferðast um. Innbyrðis tengsl bóka hans eru sterk; á myndmálssviði þeirra hljóma endurtekin stef og víða bregður fyrir kunnuglegum myndum og aðstæðum sem eru líkt og bergmál úr öðrum verkum hans, en einn mesti galdur Gyrðis er að lesandi fær sjaldan á tilfinninguna að höfundur sé að endurtaka sig, heldur þvert á móti lifnar þessi „sérheimur“ á nýjan hátt í hverju nýju verki, stækkar og þéttist. Höf- undareinkenni Gyrðis eru svo sterk að dyggum lesanda hans líður óðara vel í hverju nýju verki, að minnsta kosti ef hann hefur látið heillast af veröld hans á annað borð. Í nýju skáldsögunni, Næturlukt- inni, tekur Gyrðir upp þráðinn þar sem honum sleppti í lok Gangandi íkorna. Þau fjórtán ár sem skilja verkin að í tíma má helst merkja af fágaðri stíl. Órjúfanlegt samhengi og samfella er á milli bókanna tveggja. Reyndar mæli ég með að lesendur Næturluktarinnar end- urnýi kynnin (eða frumlesi) Gang- andi íkorna áður en þeir byrja á seinni bókinnni (bækurnar eru báð- ar tiltölulega stuttar og fljótlesnar) því bergmálið á milli bókanna er mikið og hvor bókanna dýpkar og víkkar út heim hinnar. Báðar bækurnar skiptast í tvo hluta og mætti lýsa því þannig að fyrri hlutinn gerðist í mannheimi en sá síðari í heimi dýr- anna. Hér er þó ekki um að ræða heim dýr- anna eins og hann kemur okkur fyrir sjónir í raunheimi eða dýralífsmyndum – heldur öllu fremur er hér um að ræða þann dýraheim sem mætir okkur gjarnan á síðum barnabóka: dýrin hafa „mannleg“ einkenni og samskipti þeirra minna á samskipti fólks blandað ýmsum kunnum þáttum úr áð- urnefndri veröld barnabóka. Greinilegar tilvísanir eru til barna- bóka í sögu íkornans, en sú sem fyrst kemur upp í hugann á við verkið allt: sagan um drenginn Sig- mar sem „dettur inn í“ heim dýr- anna minnir á söguna af stúlkunni Lísu sem datt um kanínuholu niður til Undralands, en sú líking nær reyndar ekki langt því heimur Undralands Lísu er af allt öðrum toga en dýraheimur Sigmars. Í fyrri hluta beggja bóka er frásögnin lögð í munn Sigmars sem er í fóstri hjá hjónun- um Björgu og Ágústi einhvers staðar uppi í sveit. Ekki er ljós hver tengsl hans eru við hjónin, en hann virðist að einhverju leyti hafa verið tekinn í fóstur til að fylla skarð drengsins sem er „horfinn“ og hefur að öllum líkindum ver- ið sonur Bjargar og Ágústs. Við fáum litl- ar upplýsingar um Sigmar í fyrri bókinni, en skynjum einsemd hans sterkt og þótt frásögn hans sé látlaus lýsing á hversdagssýsli hans þá hef- ur textinn sterka undiröldu sem kemur einmanaleika og vanlíðan drengsins vel á framfæri. Í Nætur- luktinni fáum við aðeins meiri upp- lýsingar um hann, faðir hans deyr og ljóst verður að drengurinn hefur haft lítið sem ekkert samband við hann og einnig kemur fram að hann Endalok íkornans? BÓKMENNTIR Skáldsaga Næturluktin Eftir Gyrði Elíasson. Mál og menning 2001, 117 bls. Gyrðir Elíasson NÝ skáldsaga Vigdísar Grímsdóttur nefnist Frá ljósi til ljóss. Í kynningu segir m.a.: Meginstef sögunnar er hin sígilda leit mann- eskjunnar að ástinni og hamingjunni, og sú leit getur tekið á sig ýmsar myndir í flóknum heimi þar sem ekkert er gefið. En leit höfundarins að leiðum til að tjá margbreytileika lífsins og afhjúpa óvænt sjónarhorn er ekki síður forvitnileg og kemur sífellt á óvart.“ Þetta er létt og leik- andi saga um nútímafólk þar sem allir eiga sér sín leyndarmál, óskir og drauma. En undir niðri togast andstæðurnar á, sann- leikurinn og lygin, lífið og dauðinn. Vigdís hefur sent frá sér fjölda skáldsagna, en einnig smásögur og ljóð. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga og verk hennar hafa verið þýdd og gefin út víða er- lendis. Útgefandi er Iðunn. Bókin er 196 bls., prentuð í Prentsmiðjunni Odda hf. Verð: 4.480 kr. Frá ljósi til ljóss Vigdís Grímsdóttir NÝ skáldsaga Ólafs Jó- hanns Ólafssonar sem nefnist Höll minning- anna kemur út í dag hjá Vöku-Helgafelli. Þetta er saga Íslendings sem hvarf að heiman um dimma nótt frá fjöl- skyldu sinni og vinum og endaði sem einka- þjónn hjá bandaríska auðkýfingnum William Randolph Hearst eftir fyrri heimsstyrjöld. Höll minninganna er sjötta skáldsaga Ólafs Jóhanns. Í kynningu frá útgefanda segir: „Höll minninganna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson er frásögn um mannleg örlög, ást og að- skilnað, einsemd og söknuð.“ Bókin er 324 blaðsíður að lengd. Ragnar Helgi Ólafsson hannar kápu en bókin er prentuð í Odda. Höll minninganna Ólafur Jóhann Ólafsson  Teikning/Andrés

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.