Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 3

Morgunblaðið - 14.11.2001, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001 B 3 BÆKUR GUÐFINNA Eydal sálfræðingur hefur sent frá sér bók um tvíbura og nýtir sér til þess þekkingu og reynslu frá fleiru en einu sjónarhorni. Bókin mun vera sú fyrsta hér á landi sem frumsamin er um málefni fleirbura. Guðfinna lærði sálfræði í Kaup- mannahöfn, lauk þar námi 1975 og hefur verið sjálfstætt starf- andi sálfræðingur í Reykjavík árum sam- an þar sem hún vinnur við meðferð og ráðgjöf sjúklinga. Hún er ekki síður þekkt fyrir að hafa haldið vel sótt námskeið fyrir fyrir- tæki og stofnanir. Minna áberandi en veigamikil eru störf hennar í Barnavernd- arráði Íslands en hún hefur átt þar sæti um árabil. Við þetta bæt- ist að Guðfinna hefur verið sýnileg á ritvellinum og er skemmst að minnast bókarinnar Barnasálfræði (1995) sem hún samdi ásamt Álfheiði Steinþórsdóttur en einnig var Álfheiður meðhöfundur Guðfinnu að hluta Sálfræðibókarinn- ar (1993) sem Mál og menning gaf út. Sennilega kemur það foreldrum alltaf jafn mikið í opna skjöldu þegar í móð- urkviði leynast fleiri börn en eitt og Guðfinna lýsir því hve seint það kom í ljós í annarri meðgöngu hennar að þar voru tveir farþegar innbyrðis. Fyrsti sónar fann ekki nema annan tvíburann. Margt af því sem fram kemur í þessari bók á líka við einbura og þar sem börnin eru fleiri en tvö. Í formála eftir Halldór Hansen barna- lækni segir að eitt af frumvandamál- um hvers barns sé að átta sig á sínu eigin eðli, það er að segja „hver er ég – hvað gerir mig að mér?“ Hann segir flestum börnum takast að skynja fyrr eða síðar hver þau séu með viðbrögð- um sínum til manna og málefna, og hvað geri þau sérstök, en fyrir tví- bura er ferlið flóknara einkum séu þeir eineggja og á vegferð út í lífið með svo til sama mynstur af erfðaeig- inleikum ( bls.10). Lítið hefur verið fáanlegt hér á landi af lesefni um sálrænar hliðar þess að eignast fleirbura og hefur Guðfinna með bók sinni komið til móts við vaxandi hóp foreldra sem verður þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast á einu bretti fleira en eitt barn. Já, að líta á sig sem aðnjótandi sérstakrar gæfu og vera útvalinn er rauður þráður í bókinni. Bókin skipt- ist í læsilega og ágætlega skipulagða kafla svo sem um meðgöngu, fyrir- bura og kvilla, persónuleika og þroska fleirbura, sálrænan þroska og svo hin mismunandi aldursskeið og er farið yfir marga þætti sem geta verið öðruvísi og flóknari þegar um fleir- bura er að ræða en þegar barnið er aðeins eitt. Nefna mætti hefðbundin, hversdagsleg vandamál sem aðrir foreldrar þekkja síður. Eiga tvíburar að vera eins klæddir, saman í leik- skóla eða bekk eða fá sams konar leikföng? Hvað með samskipti við vini og systkini? Eða þá rifrildi og slags- mál sem flestum tvíburaforeldrum eru einum of vel kunn? Hvað breytist þegar börnin þroskast og verða ung- lingar? Hvernig geta foreldrar þá hjálpað til? Hvernig má tryggja sjálf- stæði hvers einstak- lings og stuðla að því að hann nái sem mestum þroska? Hver er reynzla fullorðinna tví- bura? Guðfinna velur að gefa lesandanum ekki bein svör við áleitnum spurningum heldur leiða hann gegnum þá valkosti sem fyrir hendi geta verið og benda á nauð- syn þess að þótt for- eldrar geti jafnvel þurft að leita eftir að- stoð fagfólks við upp- eldi barna sinna þá þurfi þeir sjálfir að taka ákvarðanir um álitaefni í sínu lífi og barna sinna og bera ábyrgð á þeim. Á tækniöld hefur fleirburafæð- ingum verið að fjölga og eru hátt í hundrað á ári á Íslandi nú. Nýleg lög um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/ 2000 taka mið af þessu og veita tví- buraforeldrum sameiginlega rétt til fæðingarorlofs í 10 mánuði. Þríbura- foreldrar eiga rétt á 13 mánuðum. Þótt eineggja tvíburar séu furðu svip- aðir að fjölda frá einu landi til annars eða 3-4 fæðingar af hverjum 1.000 þá gegnir öðru um tvíeggja tvíbura sem eru 1-3 af hverjum 1000 fæðingum í Japan en 40 af hverjum 1.000 í Níger- íu svo dæmi séu tekin. Ýmislegt getur orðið til þess að auka líkur á fleir- burafæðingum. Hlýhugur til fleirbura og foreldra þeirra skín í gegn auk þess sem höf- undur er næmur fyrir tilfinningum lesandans. Þetta má sjá víða, t.d. í kaflanum um erfiðleika og sorg í fleir- burafjölskyldum þegar þær flóknu kringumstæður koma upp að annar tvíburinn er ekki heilbrigður en hinn heill, hvað þá ef foreldrar þurfa að syrgja barn jafnframt því að gleðjast yfir öðru eða fleiri börnum. Hvergi fellur höfundur í þann pytt að reyna að gera sig alvitran, eða setja sig í dómarasæti af því að henni sjálfri sem tvíburamóður hafi hentað ein leið út úr ógöngum en önnur. Finnst mér henni takast listilega að halda sér í sæti fagmannsins, í vissri fjarlægð, og gerir það bókina skemmtilega af- lestrar, nytsamlega og læsilega. Myndir í bókinni eru flestar teikn- aðar af tvíburum og lífga þær veru- lega upp á tilveruna. Að ala upp tvíbura Guðfinna Eydal Katrín Fjeldsted BÆKUR Sálfræði TVÍBURAR – FRÁ FÓSTURSKEIÐI TIL FULLORÐINSÁRA Höfundur: Guðfinna Eydal sálfræðingur. Útgefandi: Uppeldi ehf. 2001. Prentuð og innbundin í Riga í Lettlandi, 204 bls. „Þarna er geggjað hugmyndaflug á ferðinni og ótrúlegur söguþráður sem gengur þó fullkomlega upp. Persónusköpunin er afar lifandi, svo mjög að persónurnar sækja á mann lengi á eftir. Adda Ísabella er dásamleg, snarklikkuð en maður nauðaþekkir hana. Þessi bók er meinfyndin og frábærlega kaldhæðnisleg, ég hló oft upphátt og krimti í mér þess á milli. Ég gat ekki lagt bókina frá mér.“ Edda Björgvinsdóttir, leikkona og húmoristi „Í þessari fyrstu skáldsögu Hlínar Agnarsdóttur fá lesendur strax skýr skilaboð um að enginn tepruskapur verði við hafður í bókinni . . . Ósjaldan skellti ég upp úr og bágt átti ég með að leggja bókina frá mér. Sagan er vel upp byggð, rennur hratt og örugglega… Bók þessi er hin besta gleðipilla í skammdeginu fyrir hina íslensku sukkópatísku þjóð sem fær það óþvegið…“ Kristín Heiða Kristinsdóttir, strik.is „Þetta er lifandi og bráðskemmtileg frásögn, snargeggjuð nútímasaga, eins og sagt er á bókarkápu. Hlín er góður sögumaður og erfitt að slíta sig frá bókinni hennar.“ Guðríður Haraldsdóttir, Vikan „Mér fannst hún bara ekki fyndin.“ Kolbrún Bergþórsdóttir, Rúv u m d e i l d a r b æ k u r A Ð V Ö R U N ! „glæsileg frumraun, mjög skemmtileg lesning“ Páll Baldvin, Stöð 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.