Morgunblaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 7
Borgartúni 30 • 105 Reykjavík • sími 510 5000 • mottaka@lifeyrir.is • lifeyrir.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
0
5
4
9
6
/
si
a.
is
ÞÚKEMSTLENGRA
ÁOKKARKOSTUM!
*Samkvæmt úttekt og samanburði Morgunblaðsins á séreignarlífeyrissjóðum,
24. okt. 2001.
Mótframlag launagreiðanda í séreignasparnað hækkaði
1. janúar 2002 í 2%.
Njóttu kostanna án þess að borga meira, skráðu þig í
Sameinaða lífeyrissjóðinn.
Lægsta umsýslugjald,* sem til lengri tíma sparar umtalsverðar
fjárhæðir.
Hæsta ávöxtun á innlendum skuldabréfasjóði.*
Hæsta ávöxtun á erlendum hlutabréfaleiðum.*
Hæsta ávöxtun á aldursleiðum.*
Enginn sölukostnaður.
Verði vanskil á séreignarsparnaði verða þau innheimt af
starfsmönnum sjóðsins.
Reiknað á Netinu! Finndu ávöxtun mismunandi tímabila og
ávöxtunarleiða á lifeyrir.is.
Séreignarsparnaður sem stendur upp úr
Sameinaði lífeyrissjóðurinn er einn af stærstu
lífeyrissjóðum landsins.
Í rekstri sjóðsins eru kostir stærðarinnar nýttir
til fulls, viðskiptavinum til hagsbóta.
Þess vegna fögnum við samanburði á
séreignarlífeyrissjóðum, hvenær sem er.
PÁLMI Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Smáralindar, hefur
í kjölfar full harkalegra bruna-
boða í verslanamiðstöðinni á
sunnudag, þar sem send voru út
sjálfvirk boð um rýmingu hús-
næðisins, gefið hönnuðum eld-
varnakerfisins fyrirmæli um að
breyta kerfinu á þann hátt að
brunaboð verði framvegis send út
á íslensku og ensku. Brunaboðin
voru eingöngu send út á íslensku
en það er ekki fyrr en á síðari
viðvörunarstigum sem einnig er
sent út á ensku. Þess má geta að
alls eru stigin 18.
Pálmi segir að fjöldinn allur af
útlendingum hafi verið í Smára-
lindinni á sunnudaginn þegar
rýmingarboðin ómuðu um Smára-
lind, þ. á m. liðsmenn varnarliðs-
ins á Keflavíkurvelli á frívakt,
sem hafi brugðið í brún. Í kjölfar
brunaboðanna komu ábendingar
um þennan ágalla eldvarnakerf-
isins frá verslunum og veitinga-
stöðum þar sem útlendingar voru
staddir. „Það er ljóst að við mun-
um strax í framhaldi af þessari
reynslu taka ensku inn á fyrsta
stigi,“ segir Pálmi og bætir við
að það verði vart flókið verk.
Eldvarnakerfið fór í gang um
kl. 14 á sunnudag og virðist sem
að glóð úr sígarettu hafi orsakað
smávægilegan eld í vörumóttöku
hússins. Talsvert af fólki var í
Smáralind þegar kerfið fór í
gang.
Brunaboð í Smáralind verða
einnig send út á ensku
RAFMAGN fór af í Árneshreppi á
Ströndum aðfaranótt föstudags síð-
astliðinn en þá var norðaustan stór-
hríð og frost.
Viðgerðarmenn frá Orkubúi Vest-
fjarða komust ekki yfir Trékyllis-
heiði vegna veðurs fyrr enn á laug-
ardagskvöld og þá í leiðindagjósti og
éljagangi, til að fara með línunni. Í
Reykjarfirði var brotinn staur og
slitin lína.
Rafmagn komst á flesta bæi um kl.
fjögur aðfaranótt sunnudags og síð-
ustu tvo bæina seinna á sunnudag.
Var því rafmagnslaust í tvo sólar-
hringa og rúmlega það á tveimur
bæjum. Þetta er í annað sinn í þess-
um mánuði sem rafmagn fer af í
óviðri en síðast fór rafmagn í byrjun
febrúar þá í tvo til þrjá sólarhringa.
Rafmagnslaust
í Árneshreppi
Árneshreppi. Morgunblaðið.
GUNNAR Sigurðsson varð efstur í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi um helgina vegna komandi
sveitastjórnar-
kosninga. Guð-
rún Elsa Gunn-
arsdóttir hafnaði
í öðru sæti en hún
er ný á lista. Á
kjörskrá voru 800
manns en rétt
rúmur helmingur
þeirra kaus, eða
435. Aðeins
Gunnar fékk
bindandi kosn-
ingu, eða 338 atkvæði í fyrsta sætið.
Sjálfstæðismenn á Akranesi hafa
verið með þrjá fulltrúa af níu í bæj-
arstjórn Akraness síðasta kjörtíma-
bil og tveir þeirra voru ekki í kjöri
áfram, þau Pétur Ottesen og Elín-
björg Magnúsdóttir.
Guðrún Elsa fékk 173 atkvæði í
fyrsta og annað sætið, Jón Á. Gunn-
laugsson varð þriðji með 143 atkvæði
í 1. til 3. sæti og Þórður Þ. Þórðarson
varð fjórði með 158 atkvæði í 1. til 4.
sæti. Í fimmta sæti varð Sæmundur
Víglundsson með 210 atkvæði í fimm
efstu sætin og Sævar Haukdal varð
sjötti með 207 atkvæði í sex efstu
sætin. Tólf manns gáfu kost á sér í
prófkjörinu.
Sem fyrr segir er Guðrún Elsa ný
á lista sjálfstæðismanna og Jón fær-
ist upp um þrjú sæti frá síðustu
kosningum. Þórður hefur áður verið
á lista flokksins, í kosningunum 1994,
Sæmundur er nýliði í sveitarstjórn-
armálum en Sævar var í áttunda
sætinu fyrir kosningarnar árið 1998.
„Gott að fá 92% atkvæða“
Gunnar Sigurðsson sagði við
Morgunblaðið að hann væri mjög
ánægður með sína útkomu í próf-
kjörinu. Það gæti ekki talist annað
en gott að fá 92% atkvæða í efsta
sætið eftir átta ára dvöl í bæjar-
stjórn.
„Ég er einnig mjög ánægður með
allt það fólk sem gaf kost á sér í próf-
kjörið. Í raun má segja að algjör end-
urnýjun eigi sér stað í efstu sætun-
um, ef ég er undanskilinn. Vissulega
hefði ég viljað sjá meiri þátttöku en
hún virðist almennt ekki vera mjög
góð hjá öðrum flokkum í öðrum
sveitarfélögum þegar prófkjör er
annars vegar,“ sagði Gunnar sem
átti von á að niðurröðunin á listanum
héldist miðað við prófkjörið þótt
hann einn hefði náð bindandi kjöri.
Sjálfstæðisflokkurinn
á Akranesi
Gunnar
Sigurðs-
son varð
efstur í
prófkjöri
Gunnar
Sigurðsson
♦ ♦ ♦
alltaf á föstudögum