Morgunblaðið - 26.02.2002, Qupperneq 24
UMRÆÐAN
24 ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er engum vafa
undirorpið að EES-
samningurinn, sem svo
mikil átök urðu um á
sínum tíma, varð ís-
lensku atvinnulífi sú
mikla lyftistöng sem
upphafsmenn hans
væntu. Ótvírætt er
þetta mikilvægasti við-
skiptasamningur sem
við höfum gert. Ég átti
sæti í utanríkisnefnd
þegar samningurinn
var til umfjöllunar í
þinginu og man vel
hvað forsvarsmenn
hans máttu þola harða
gagnrýni. Svo langt
var gengið að Jón Baldvin, formaður
Alþýðuflokksins, var sakaður um
landráð. Þegar ég lít til baka finn ég
hvað Sjálfstæðisflokkurinn sigldi
snilldarlega milli skers og báru í
þessu stóra hagsmunamáli og að þá
eins og nú höfðu menn þar á bæ lag
á að láta samstarfsflokkinn sitja
uppi með erfiðu málin.
Með samningnum fengum við m.a.
aðild að rammaáætlunum ESB en
miklar fjárhæðir hafa síðan verið
veittar til íslenskra rannsóknarverk-
efna. Veruleg félagsleg réttindi sem
skiptu máli, ekki síst fyrir fólk á
vinnumarkaði, fylgdu samningnum.
En stærsta hagsmunamál okkar Ís-
lendinga var tollfríðindi og aukinn
aðgangur að þýðingarmiklum mörk-
uðum fyrir fiskafurðir. Enda fór svo
að þegar rofaði til í kjölfar afla-
brests gátum við til fulls nýtt tæki-
færin sem EES-samningurinn bauð
upp á enda átti hann ríkan þátt í
uppgangi efnahagslífsins á síðari
hluta síðasta áratugar. Fátt eitt er
nefnt af því sem fylgdi þessum stóra
samningi um frjálsa för fólks og
fjármagns í Evrópu. En upp úr
stendur að nú vildu líklega allir Lilju
kveðið hafa.
Hvað hefur breyst?
Á Alþingi og víðar hefur utanrík-
isráðherra greint frá breytingum
sem hafa orðið á umhverfi EES-
samningsins og að breytt staða verð-
ur hjá EFTA-löndunum þegar um-
sóknarlöndin frá Austur-Evrópu hafa
fengið inngöngu í Evrópusambandið.
Fríverslunarsamningar við umsókn-
arlöndin falla úr gildi og semja þarf
um við Evrópusambandið hvað við
taki. Hætta er á að markaðsaðgengi
íslenskra fyrirtækja fyrir ýmsar sjáv-
arafurðir muni versna og við jafnvel
verða sett hjá í ýmsum tilvikum.
Stofnanaumhverfi samningsins hefur
gjörbreyst og rekstur EES-samn-
ingsins verður þungur í vöfum þar
sem EFTA-löndin eru orðin aðeins
þrjú Noregur, Ísland og Liechten-
stein. Þá má reikna með að ef evran
verður öflugur og stöðugur gjaldmið-
ill sem tekinn verður upp hjá öllum
núverandi Evrópusambandsríkjum
verði ekki auðveldara að tryggja
stöðugt gengi íslensku krónunnar.
Vaxtamunur milli Evrópu og okkar
getur enn aukist og fyrir utan áhrif
hárra vaxta á samkeppnisstöðu fyr-
irtækja er ljóst að vaxtamunur mun
hafa mikil áhrif fyrir neytendur. Það
fer ekki fram hjá neinum sem hlýðir
á utanríkisráðherra að hann er ugg-
andi um okkar hag.
EES-samningurinn er að veikjast
og þá ber íslenskum stjórnvöldum
að endurmeta stöðuna. Það er
skylda ekki aðeins utanríkisráð-
herra heldur líka forsætisráðherra
að gæta hagsmuna Íslands í Evrópu.
Forsætisráðherra vill
enga umræðu
Hlutverk stjórnmálaflokka er að
standa fyrir umræðu
og gefa fólkinu í land-
inu tækifæri til að taka
þátt í henni. Forsætis-
ráðherra vill ekki slíka
umræðu. Hann hefur
ákveðið að EES-samn-
ingurinn sé í fullu gildi.
Hann vill ekki óþægi-
lega umræðu og allra
síst um hugsanlega að-
ild okkar að Evrópu-
sambandinu. Þegar ég
hugsa til baka um um-
ræðuna um EES-
samninginn þykist ég
vita hvað bærist með
ráðherranum. En það
sem skilur í milli í póli-
tískri umræðu þá og nú er að þjóðin
ákveður sjálf að undangenginni um-
ræðu og að skilgreindum samnings-
markmiðum hvort við göngum í
Evrópusambandið. Ákvörðunin
verður tekin í þjóðaratkvæða-
greiðslu.
Þessi staðreynd skiptir öllu máli
og ætti að auðvelda heilbrigða og
opna umræðu. Margir Íslendingar
hafa þegar gert upp hug sinn varð-
andi Evrópusambandið. En þorri
fólks telur sig ekki enn hafa for-
sendur til að taka afstöðu. En til að
fólk geti tekið svo afdrifaríka
ákvörðun verða kostir og gallar
hugsanlegrar Evrópusambandsað-
ildar að liggja ljóst fyrir. Slík vitn-
eskja verður eingöngu til við öfluga
og upplýsta umræðu. Samfylkingin
hefur opnað þá umræðu á lýðræð-
islegan hátt. Í kjölfar fundaraðar
síðastliðinn vetur þar sem sérfræð-
ingar voru kallaðir til ráðuneytis
hefur Samfylkingin gefið út skýrslu
þar sem greind eru samningsmark-
mið Íslands við hugsanlega aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu.
Samfylkingin stendur fyrir fundum
úti um land þar sem liðsmenn koma
og ræða þessi mál. Að lokinni þess-
ari kynningu munu flokksmenn
sjálfir ákveða hvort aðildarumsókn
verði sett fram sem stefna Samfylk-
ingarinnar. Þessi vinnubrögð eru
lýðræðisleg og ekki að undra að þau
fari í taugarnar á þeim sem ákveða
allt með boðvaldi ofan frá – um-
ræðulaust.
Fleiri vilja opna
umræðu
Framsóknarflokkurinn hefur haf-
ið þessa umræðu, sömuleiðis Sam-
tök iðnaðarins, verkalýðshreyfingin
og fjöldi aðila úr íslensku atvinnulífi.
Vinstri grænir eru á móti og Sjálf-
stæðisflokkurinn tekur hana frá sér-
lega áhugaverðum vinkli. Þannig
sagði forsætisráðherra í Kastljós-
þætti Sjónvarpsins að hann hafi ekki
fengið upplýsingar um að neitt væri
að EES-samningnum en að það
mætti svo sem prófarkalesa hann.
Um hugsanlega aðild að Evrópu-
sambandinu sýndist honum að við
fengjum að fjalla um reglugerð um
rottueitur og fara inn í einhverja
nefnd um eftirlit á vinnustöðum ef
við gengjum í Evrópusambandið en
varla færum við að borga 20 millj-
arða fyrir það. Þetta er einhliða og
óupplýsandi umræða sem ekki er
mikil reisn yfir. Ég tel að forsætis-
ráðherra tali ekki fyrir hönd fjöl-
margra sjálfstæðismanna í atvinnu-
og viðskiptalífi þessa lands þegar
hann hafnar því að aðild að ESB feli
í sér nokkurn ávinning.
Samfylkingin gerir sér grein fyrir
að ekki er hægt að leiða stórmál eins
og Evrópusambandsaðild hjá sér
enda kemur í ljós að landsmenn eru
að íhuga þessi mál. Í skoðanakönnun
sem gerð var um síðustu mánaða-
mót kemur fram að tveir af hverjum
þremur aðspurðra telja að hefja eigi
viðræður um aðild að Evrópusam-
bandinu.
Ég hef ekki gert upp hug minn
um aðild að Evrópusambandinu en
tel brýnt að við ræðum kosti þess og
galla. Ég er stolt af að Samfylkingin
hefur valið að virkja alla flokksmenn
í umræðu og ákvarðanatöku um
Evrópusambandsaðild. Þannig hef-
ur Samfylkingin fyrst stjórnmála-
flokka sett málið í formlegt ferli
ákvarðanatöku.
Dugar EES-
samningur-
inn áfram?
Rannveig
Guðmundsdóttir
Evrópumál
Flokksmenn munu
sjálfir ákveða, segir
Rannveig Guðmunds-
dóttir, hvort aðildar-
umsókn verður sett
fram sem stefna
Samfylkingarinnar.
Höfundur er fulltrúi Samfylkingar
í utanríkismálanefnd.
ÞAÐ vakti athygli
mína er ég las yfir viðtal
við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur í Morgun-
blaðinu 10. febrúar sl.
að hún skyldi á engan
hátt tiltaka þátt
menntamálaráðuneytis-
ins eða ríkisins þegar
talið barst að átaki í
skólamálum í borginni.
Hvort hér er um klaufa-
skap eða gleymsku að
ræða veit ég ekki en tel
þó líklegra að framtaks-
semi menntamálaráð-
herra varðandi nýja að-
alnámskrá eigi ekki upp
á pallborðið þar á bæ nú
á kosningaári.
Það er ekkert nýtt að R-listinn
stæri sig af afrekum í skólamálum en
líkt og með önnur sveitarfélög ræður
þó mestu fjárhagsstuðningur ríkisins
í samræmi við nýja aðalnámskrá um
fjölgun kennslustunda og einsetningu
skóla. Við flutning grunnskólans frá
ríki til sveitarfélaga var búið svo um
hnútana við mat á kostnaði og öllum
álitsefnum að aldrei hefur komið til
misklíðar um túlkun þess efnis af
hálfu samningsaðila.
Lenging grunnskólans í valdatíð R-
listans er í samræmi við lög og reglu-
gerðir frá menntamálaráðuneytinu.
Lenging skóladagsins er á engan hátt
til merkis um stórhug R-listans í
menntamálum heldur hefur ekki ann-
að verið gert en að fara að lögum. Öll
efling innra starfs skólanna tekur nú
mið af nýjum námskrám, sem settar
eru af menntamálaráðuneytinu.
Að mínu áliti hefur Reykjavíkur-
borg komið til móts við þær kröfur
sem gerðar eru til nú-
tímaskólastarfs en þeg-
ar grannt er skoðað hef-
ur borgin þó frekar
mátt hafa sig alla við
heldur en hitt að standa
jafnfætis öðrum sveit-
arfélögum á höfuðborg-
arsvæðinu við að efla og
bæta skólastarfið.
Borgarstjóri segist
hafa lyft grettistaki í
einsetningu grunn-
skóla.
Eins og fram hefur
komið var Reykjavík
skylduð, líkt og önnur
sveitarfélög, til að ein-
setja grunnskólann.
Ríkið lagði fram fé til skólabygginga
svo að auðvelda mætti sveitar-
félögunum að standa við þær skuld-
bindingar. Rétt er að minna á að fyrir
yfirtöku grunnskólans voru skóla-
byggingar alfarið kostaðar af sveit-
arfélögunum.
Vegna lóðaskorts í borginni og
þeirra keðjuverkandi áhrifa þess
hvernig R-listinn hefur staðið að út-
hlutun og sölu lóða í nýjum hverfum
er það staðreynd að sárafá börn skila
sér nú í nýjustu skóla borgarinnar.
Barna- og fjölskyldufólk ræður ekki
við að kaupa dýrar íbúðir í nýjum
hverfum borgarinnar. Í Víkurhverfi
og þó sérstaklega í Grafarholti vantar
hreint og beint börn í skólana.
Í Ingunnarskóla í Grafarholti var
með meiri fyrirvara en áður ráðið í
stöður skólastjóra og aðstoðarskóla-
stjóra fyrir núverandi skólaár. Reikn-
að var með á annað hundrað börnum í
skólann. Það hlýtur að hafa komið
skelfingarsvipur á yfirvöld fræðslu-
mála þegar einungis 29 börn skiluðu
sér að hausti og þar af aðeins eitt barn
í tveimur árgöngum.
Grettistak í stefnu R-listans fyrir
næsta kjörtímabil þyrfti að felast í því
að koma til móts við fjölskyldufólk á
ný sem vill kaupa sér nýtt húsnæði í
Reykjavík og fá nemendur í nýju
skólana.
Borgarstjóri
gleymdi að
nefna aðstoð
ríkisins
Helgi
Árnason
Höfundur er skólastjóri.
Skólar
Sárafá börn, segir
Helgi Árnason, skila
sér nú í nýjustu skóla
borgarinnar.
FÉLAGSSVÆÐI íþróttafélag-
anna í Reykjavík; KR í Vestur-
bænum, Fram, Vals, Víkings,
Þróttar í Austurbæn-
um, ÍR og Leiknis í
Breiðholti, Fylkis í
Árbæ og Fjölnis í
Grafarvogi, hafa verið
vettvangur grósku-
mikils íþrótta- og
æskulýðsstarfs um
langt skeið. Íþrótta-
svæði sem nemur lík-
lega á fimmta milljarð
króna hafa risið. Þetta
hefur gerst á löngu
árabili. Á félagssvæð-
unum er aðstaða til
inni- og útiíþrótta.
Með breyttri verka-
skiptingu ríkis og
sveitarfélaga fyrir
rúmum áratug var
gerð gangskör að því að reisa
íþróttahús, sem gerbreytti aðstöðu
til íþrótta innanhúss.
Fyrsta íþróttahúsið sem reist
var eftir að Reykjavíkurborg tók
yfir íþróttamannvirki var Víkin,
íþróttahús Víkings í Fossvogi,
1991. Í kjölfarið risu íþróttahús
KR, Fram, Fylkis og Fjölnis ásamt
íþróttahúsum í Breiðholti og Graf-
arvogi. Allt eru þetta glæsileg hús
sem hafa gerbreytt aðstöðu félag-
anna. Og í öllum íþróttahúsunum
er góð aðstaða fyrir
áhorfendur til þess að
fylgjast með kapp-
leikjum, þá helst í
handknattleik og
körfuknattleik. Átakið
til að bæta aðstöðu
íþróttafélaganna er
hið stærsta í sögu
íþrótta í Reykjavík.
En hvernig er að-
staða íþróttafélaganna
utanhúss? Hver er að-
staða almennings til
þess að fylgjast með
knattspyrnukappleikj-
um? Fyrir rúmum
áratug reistu KR-ing-
ar glæsilega stúku í
Vesturbænum sem
síðan var styrkt af borgaryfirvöld-
um. Síðan hefur lítið gerst til þess
að bæta aðstöðu hverfisfélaganna í
Reykjavík. Engin stefna hefur ver-
ið mótuð í heilan áratug.
Þetta er því furðulegra þar sem
reynslan af KR-stúkunni er afar
góð. Hún hefur styrkt KR fé-
lagslega sem á vellinum og skapað
skemmtilega hverfisstemmingu,
þar sem meðal annars hefur mátt
sjá borgarstjórann hvetja vaska
KR-inga til sigurs. Fólk hefur
flykkst á leiki KR óhult fyrir veðri
og vindum. Borgaryfirvöld hafa
reynst ófáanleg til þess að ganga
til samninga við önnur félög til
þess að reisa aðstöðu fyrir fólkið
sem mætir á völlinn til þess að
styðja félagið sitt í vinsælustu
íþróttagrein heims. Þrátt fyrir það
hafa Víkingur og Fylkir hafið
framkvæmdir upp á eigin spýtur
við stúkur í Fossvogi og Árbæ. Yf-
irvöldum hefur þótt sjálfsagt að
reisa aðstöðu fyrir áhorfendur sem
fylgjast með handknattleik og
körfuknattleik en ekki knatt-
spyrnu – vinsælustu íþróttagrein-
inni. Þetta er því furðulegra þar
sem reynslan af KR-stúkunni er
svo jákvæð. Hverfisfélögin hljóta
öll að sitja við sama borð; jafn-
ræðis sé gætt – eitt félag njóti ekki
forgangs yfir önnur.
Og ekki síður er það sérstakt
þegar litið er til kostnaðar við að
reisa stúkur. Gera má ráð fyrir að
hlutur borgaryfirvalda í stúku-
byggingu geti numið um 50-60
milljónum króna. Það eru um það
bil 10% heildarkostnaðar við
mannvirki hjá hverfisfélagi, t.d.
Víkurinnar í Fossvogi. Átak til
þess að reisa stúkur í Grafarvogi,
Árbæ, Breiðholti, Fossvogi og
Hlíðarenda gæti numið um eða yfir
300 milljónum króna eða vel innan
við tíund af uppbyggingu mann-
virkjanna í heild.
Þetta átak myndi stuðla að
skemmtilegri borg, litríkara mann-
lífi – öflugri íþrótta- og æskulýðs-
starfsemi.
Því er spurt: Hver er stefna
framboðanna í Reykjavík; Reykja-
víkurlistans, Sjálfstæðisflokksins
og Frjálslyndra og óháðra varð-
andi uppbyggingu áhorfendaað-
stöðu utanhúss hjá íþróttafélögun-
um? Eru framboðin reiðubúin til
þess að bæta aðstöðu þeirra þús-
unda sem vilja mæta á völlinn og
styðja sitt fólk?
Hvað um félögin?
Hallur
Hallsson
Félagastuðningur
Eru framboðin reiðubú-
in til þess að bæta að-
stöðu þeirra þúsunda,
spyr Hallur Hallsson,
sem vilja mæta á völlinn
og styðja sitt fólk?
Höfundur er fyrrverandi for-
maður Víkings.