Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 4
VtSIR
Fimmtudagur 25. september 1980.
i,* i V <
'4
Loksins - JÓKAT>CKI - Loksins
Jónatækin eftirsóttu loksins komin
Vegna mikillar eftirspurnar óskast pantanir
sóttar sem fyrst.
Verö kr. 68.750. — Takmarkað upplag.
Hreyfilshúsinu sími: 82980
ATVINNA
Óskum eftir að ráða
eftirtalda starfsmenn:
1. Húsgagnasmiði.
2. Laghenta menn til húsgagnaframleiðslu.
3. Snyrtilegan mann til þess að þrífa í verk-
smiðju vorri.
4. Flokksstjóra í samsetningarsal.
5. Saumakonu.
Mötuneyti á staðnum.
Trésmiðjan Víðir h.f.
Smiðjuvegi 2, Kópavogi.
BÍLALEIG4
Sfce/funni 17,.
Simar 81390 >
Tólf ára flóttamaöur
Síðar i þessum mánuöi taka
barnaverndaryíirvöld i Chicago
til yfirvegunar, hvort Walter
Polovchak, sem fæddist i
tlkraínu. i Sovétrikjunum, skuli
leyft aö vera um kyrrt í Banda-
rikjunum, eftir aö foreldrar hans
ákváöu aö snúa aftur heim til
Sovétrikjanna.
Walter er tólf ára. Foreldrar
hans fluttu frá Sovétrikjunum til
Chicago i ársbyrjun, en ákváöu i
júli i sumar, aö þeim likaöi ekki i
Bandarikjunum. Walter og
Natalie 17 ára systur hans likaöi
hins vegar prýöilega, og leituöu
hælis hjá yfirvöldum meö ósk um
aö vera um kyrrt. Foreldrarnir
létu þaö gott heita, hvaö Natalie
varöaöi, þar sem hún er nær kom-
in á legg, en Walter vildu þau
hafa meö sér. Þaö sama vildi
Sovétstjórnin.
Utanrikisráöuneytiö lagöi svo
fyrir, aö til bráðabirgöa yrði
Walter um kyrrt, þar til viöeig-
andi yfirvöld heföu fjallaö um
mál hans.
Drengurinn vill ekki yfirgefa
nýfengna vini, góöan skóla, nýtt
reiðhjól og fleira, sem heillar
barnshjarta, en fæst ekki i Sovét-
Walter Polovachak og Natalie
systir hans.
rikjunum, Hann á tvær frænkur i
Bandarikjunum og mundi ann-
arri þeirra falið forræöi hans, ef
hann yröi um kyrrt.
En á aö svipta foreldrana for-
ræöi barnsins, þegar þau hafa
ekkertþaö brotið af sér, sem ann-
ars þykir réttlæta slikt? Faöirinn
spyr i viötölum viö blaðamenn:
,,Er ég ofdrykkjumaöur? Nei!
Svelti ég börnin eða legg á þau
hendur? Nei. Hver er þá þessi
stjórn, sem ætlar sér að taka af
mér börnin?”
Margir i Bandarikjunum, eins
og viðast annars staðar, eru
þeirrar skoöunar, að réttur
staður barna sé hjá fjölskyldu
þeirra. Rétt mætti imynda sér
viöbrögöin, ef tólf ára bandarisk-
ur drengur stæöi i sömu sporum i
Moskvu, og úrskurðaö væri, að
hann yrbi um kyrrt og fylgdi ekki
foreldrunum.
Hinir, sem vilja láta þetta eftir
drengnum, vilja horfa á, að hugs-
anlega megi sýna fram á, að hann
myndi snúa heim til harðréttis i
Sovétrikjunum. Alla vega mundi
hann eiga erfitt um vik að fá leyfi
siðar til flytja aftur til Bandarikj-
anna, vegna þess aö slik útflytj-
endaleyfi liggja alls ekki á lausu
hjá sovéskum yfirvöldum. Leggja
þeir til, aö hann veröi til 18 ára
aldurs í Bandarikjunum, en þá sé
hann nógu þroskaður til aö gera
upp hug sinn um, hvort hann snúi
aftur til Sovétrikjanna eöa gerist
bandariskur borgari.
.y.'.w.v.v.v.v.v/.v.v.v/.v.v.v.v.w.v.vs'.w.vv.v
5?
BFO.
Reykjavíkurdeild
heldur góðaksturskeppni
laugardaginn 27. september
n.k. k/. 14.00.
> Skráning keppenda fer fram
:■ i sima 83533
■: fimmtudag og föstudag
:j kl. 9.00 ti/ 17.00.
/.,.".V//.,.V.W/.V.V/."//.,/.,.W//.W.V.W.W/.V/.VÍ‘
Vegna vinnustöðvunar
verður
smáauglýsingamóttaka
°9
kvörtunum
um blaðburð
svarað í síma
86611
fimmtudag til kl. 20
föstudag til kl. 20
laugardag lokað
sunnudag lokað
Opið mánudag frá kl. 9-22
Sími 86611
Tveggja ára krókódflar á krókódilabúi f Ródesiu, en 10% þeirra er sleppt aftur út I náttúruna til þess aö
reyna aö auka stofninn aö nýju.
Gleyplr tiskan krókódflana?
Flest tiska er hverful og
forgengileg, en krókódilatöskur
og skór viröast þó aldrei falla úr
tisku, 'og auövitaö hart-viö aö
búa fyrir krókódila, enda er taliö,
ab sá dýrastofn hafi minnkaö um
þrjá fjóröu á siöustu þrjátiu ár-
um, hvernig tárum, sem menn
vilja siöan gráta yfir þvi.
Þó gæti hagur þeirra farið aö
vænkast úr þessu, þvi aö um-
hverfisverndarsinnar munu hafa
opnaö augu Ibúa Papu Nýju
Guineu fyrir þvi að krókódilahald
geti oröiö arövænleg búgrein.
Kann þvi svo að fara, aö krókódil-
ar veröi ræktaöur fremur en
veiddir, og þaö I stórum mæli.
1 dreifbýlinu á Nýju Guineu
tóku menn þessum boöskap meö
miklum efasemdum I fyrstu, en
margir hafa siöan sannfærst um,
aö þessi nýja aðferö viö hlutina sé
bæöi arbbærari og eins hættu-
minni. Krókódilabú á Papua Nýju
Guineu flytja nú út árlega um
50.000 skinn, en hvert þeirra kost-
ar um 85 þúsund krónur, á meðan
unnin skinn fara upp I 570 þúsund.
— Kjötiö af halanum þykir gefa
gómsætar steikur.
Krokódilaeldi er auövelt, ef þeir
nást ungir, og krefst ekki mikils
tilhalds. Allt sem krókódilarnir
þurfa eru matur, hlýindi, skuggi,
vatn og öfluga rétt eöa giröingu.
Þeir eru matgráöu»ir, eins og ótal
dæmisögur eru til um, og er þaö
helsti hængurinn á fyrir fátæka
sveitaþorpsbúa á Nýju Guineu,
sem veröa aö ala krókódilinn i
þrjú ár, áöur en þeir geta gert sér
fé úr afuröinni. Samt hefur þró-
unin oröiö slik á siðustu fimm ár-
um, aö hömlulaus veiöi villtra
krókódila hefur nær lagst af, og i
nágrannarikinu Indónesiu ætla
menn aö taka sér þetta til fyrir-
myndar.
Krókódilaeldi er byrjaö i
smáum stil i Malaysiu og I
Zimbabwe ( Ródeslu). Vitaö er
um eitt krókódilabú i Thailandi,
og er þaö nokkuö stórt i sniðum.
Skilar þaö af sér 20.000 skinnum á
ári. I Ameriku hefur verið komið
upp nokkrum alligator-búum,
sem hafa allt upp i 10.000
alligatora (smávaxnari krókó-
dilastofn).
Allt þetta er samt aðeins brot af
þvi, sem skiptir um eigendur á
heimsmarkaönum. Eldisskinn
eru ætluð aðeins 3% af þvi, sem
höndlað er meö á skinnamark-
aönum. Hafa náttúruverndar-
menn reynt að koma á banni viö
verslun meö skinn af veiddum
krókódilum, en fengiö litinn
hljómgrunn fyrir tillögur sinar.
Frakkland, sem flytur inn þrjá
fjóröu allra krókódilaskinna,
aballega fyrir Gordon-Cheisy-sút-
unina, hefur hreinlega hafnað
þeim.
Þannig aö vaxi þessi búgrein
ekki þeim mun hraöari skrefum,
getur tiskan einfaldlega gleypt
þennan dvinandi dýrastofn.