Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 6

Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 6
vísm Fimmtudagur 25. september 1980. 6 - Teksl Fram að slá danska llðið Hvidovre út úr EvröDukeppnl bikarhafa 09 komast í 2. umlerð? Framarar leika siöari leik sinn i Evrópukeppni bikar- meistara gegn danska liðinu Hvidovre á sunnudaginn og hefst leikurinn kl. 14.00. Eins og flestir vita lauk fyrri leik liðanna með sigri Dananna 1:0 og eru Framarar allir af vilja gerðir til að lumbra ærlega á „baunanum” á sunnudaginn eins og gefur aö skilja. Allir leikmenn Hvidovre eru hálf-atvinnumenn nema einn. Það er Englendingurinn Leroy Ambrose, dökkur á hörund og er hann fyrrverandi leikmaður með enska liöinu Charlton. Hann er skruggufljótur leik- maöur og sögöu Framarar eftir leikinn i Danmörku að hinn eld- snöggi leikmaður þeirra Trausti Haraldsson haföi vart við hon- um. Framarar verða að sigra i leiknum 2:0,ef þeir ætla sér að komast áfram i keppninni. Verði jafntefli veröur leikurinn framlengdur og ef ekki fást úrslit, veröur hlutkesti varpað. úrsi Lið Hvidovre er sem stendur i 10. sæti 11. deild i Danmörku og tapaöi um siðustu helgi fyrir Lyngby, en þaö er sama liðiö og Hvidovre sigraði i úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar i fyrra. Liöiö þykir leika skemmtilegan sóknarleik og skyndisóknir liös- ins eru mjög vel útfærðar. Að sögn Hólmberts Friðjóns- onar þjálfara Fram, munu Framarar sækja eins og kostur er, enda engu að tapa. Hólmbert sagði I samtali við Visi, að hann væri ekkki enn búinn að ákveða liösskipan i leiknum á sunnu- daginn, en hann sagði að svo gæti farið að hann myndi gera breytingar á liöinu. Þess má geta, aö miðaverð á leikinn á sunnudaginn verður lægra en veriö hefur á Evrópu- leikjunum sem fram hafa farið hér á landi i ár. Miðinn i stúku mun kosta 5000 kr. i stæði 4000 kr. og barnamiöinn 1000. Ahugamenn um knattspyrnu ættu að fjölmenna á Laugar- dalsvöllinn á sunnudaginn og hvetja Framara til dáða i leiknum, þvi að viö eigum Dönum grátt að gjalda og nægir i þvi sambandi aö minna á markatöluna 14:2 sem þeir eru jafnan fljótir að minna menn á, þegar á annaö borð er fariö að ræöa um Island og iþróttir við þá. Einni klukkustund fyrir leik- inn á sunnudaginn mun önnur útiskemmtun á vegum Fram fara fram á Laugardalsvell- inum. Mun söngflokkurinn ,,Þú og ég”, sem nýkominn er heim úr frækinni för til Póllands skemmta þar ásamt Þorgeiri Astvaldssyni. Koma þau örugg- lega til meö að hressa upp á mannskapinn og hleypa fjöri I hann fyrir átökin á milli Fram ogHvidovre á sjálfum leikvang- inum. Heiöursgestur Fram á þess- um fyrsta Evrópuleik I knatt- spyrnu á milli félagsliös frá Islandi og Danmörku hér á landi, veröur Erlendur Einars- son, framkvæmdarstjóri SIS. -SK. Marteinn Geirsson, fyrirliöi Fram, sést hér sækja að marki Hvidovre i leiknum sem fram fórf Danmörku. Seinni leikurinn fer fram á sunnudaginn og hefst kl. 14.00 á Laugardalsvellinum og veröur fróölegt aö sjá hvort Marteini og félögum hans I Fram tekst aö leggja Danina. Handknattleikssamband íslands fSLAND—NOREGUR Tveir LAMDSUIKIR í LAUGARDALSHÖLLINNI Laugardaginn 27. SEPT. kl. 15 Sunnudaginn 28. sept. kl. 20 Markmiðið er SIGUR Áfram ÍSLAND S. í. Garðar Gíslason hf. Hverfisgötu 4 — 6 Sími 11500 Polar — Sjávarafurðir Grófin 1 Miðaverð: Sæti kr. 4.000.- Stæði kr. 3.000.- Börn kr. 1.000.- Evrópuslagur Fram á sunnudag

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.