Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 20

Vísir - 25.09.1980, Blaðsíða 20
VÍSIR Fimmtudagur 25. september 1980. Umsjón: Magdalena Schram Framkvæmdanefnd „Árs trésins’’ hefur ákveðið að verða við boði Iðnaðarmannafélags Reykjavikur um að efna til sýningar á nytja- og listmunum úr viði I tilefni ársins og hefur verið ráðgert aö halda sýning- una i nóvember. Iðnaðar- mannafélagið vinnur nú að þvi að safna sýningargripunum „þar sem vitað er að fjöldi iönaðarmanna um land allt hafa gert margan fagran grip úr tré, ýmist til nytja eða til að þjóna sköpunargleði og listhneigð höf- undar”, eins og segir I frétt Iönaðarmannafélagsins. Hugmyndin um slika sýningu kom fram á fundi félagsins á sl. vori og fékk strax góðar undir- tektir. Það gaf hugmyndinni einnig byr undir báða vængi, hversu vel tókst til með list- sýningu á vegum félagsins 1977. öllum iðnaðarmannafélögum I landinu hefur verið skrifað til aðleita fanga um sýningargripi og þótt undirtektir hafi enn verið dræmar, er það von sýningarnefndar, að breyting verði þar á, enda ætti enginn skorturað vera á iðnaðarmönn- um, sem gera fagra hluti úr tré. Eftirtaldir skipa nefndina og fylgja simanúmer með, svo að gera megi vart við nýja eða gamla muni unna úr tré: Helgi Hallgrimsson (33594 heima, 26240, vinna) Sæmundur Sigurðsson (16326) Jónas Sól- mundsson (22552), Karl Sæmundsson (16435) Þorkell Skúlason (19762), Hulda Valtýs- dóttir (36219) og Snorri Sigurðs- son (18150 heima, 40789 vinna) Þau tvö siðast töldu sitja nefnd- ina sem fulltrúar fram- kvæmdanefndar „Ars trésins”. OFVITINN LENGI LIFI! Þaö sem sýnt verður Fyrirhugað er að sýningin skiptist í þrjá hluta: 1. Skógræktardeild, sem aðal- lega verður byggð upp á ljðs- myndum og linuritum, 2. Viður sem smiðaefni: gerð viðar, vinnsla, þurrkun, o.sv. 3. Munir úr viði. ■Þessi þáttur sýningarinnar er sá sem snýr að iðnaðarmönnum sjálfum og verða þar sýnd hús- gögn,, nytjalistmunir og hreinir Baðstofa og fundarherbergi Iðnaðarmannafélagsins I gömlu Iönó. listmunir. Sýningin mun verða i Það hús er nú i eigu Reykjavlkurborgar, en baðstofunni haida kjallara Húss Iðnaðarins við félagsmenn. Það hefur ekki væst um fundargesti I þessari stofu, Hallveigarstig. sem er haglega gerð af Rikharði Jónssyni. Smiði baöstofunnar var Ms. lokið árið 1926. Iðnaðarmannafélagið með sýnlngu Gunnar örn Guðmundsson dýraiæknir i hiutverki dýralæknisins I óðali feðranna, ásamt Jakobi Þór, sem leikur aðalhlutverkið. óöalið (Reykjavík, Akureyri og í Eyjum A morgun, föstudag, hefjast sýningar að nýju i Reykjavik á kvikmyndinni Óðali feðranna. Myndin verður sýnd á öllum sýningartimum i Laugarásbiói frá föstud. 26. september til föstudagsins 3. október. Þá verður myndin einnig sýnd á Akureyri á morgun- og á sunnudaginn i Vestmanna- eyjum. Nú hafa um 70.000 manns seð þessa umtöluðu kvikmynd. A laugardaginn opnar Guðrún Tryggvadóttir sýningu i Djúpinu, Hafnarstræti. A sýningunni veröa Ijósmyndir af ýmsu tagi.ljósritun o.n. Sýning Guðrúnar verður opin á sama tima og veitingastofan Hornið og varir til 8. okóber. Þeir, sem fá sér I svanginn í Horninu, ættu ekki að telja það eftir sér að Uta niður I Djúpið. Þar eru jafnan skemmtilegar sýningar og svo má nú ekki gleyma jazzkvöldunum á fimmtudögum — t.d. i kvöld! Svningar hefjast að nýju í kvöld „Sýning Ofvitans er glæsi- legur sigur og i rauninni merkisatburður i isiensku ieik- húslifi. Fyrst og fremst er þaö að þakka Kjartani Ragnarssyni, sem fékk þá furðuiegu fiugu i höfuöið að setja Ofvitann á svið og jafnframt leikstjóranum, Kjartani Ragnarssyni, sem tókst að skila þessu verkefni sinu heilu i höfn.” ,,Ég óska Leikfélagi Reykja- vikur til hamingju með þessa skemmtilegu sýningu. Megi hún lengi lifa!” (BS i Visi eftir frumsýningu Ofvitans i fyrra- haust). Og hún lifir enn, þvi að i kvöld verður áfram haldið sýningum á Ofvitanum i Iðnó. Leikurinn var sýndur 100 sinnum i fyrra- vetur, og einatt fyrir fullu húsi og er ekki að efa, að endurkoma hans verður mörgum fagnaðar- efni. 101. sýningin er eins og fyrr sagði i kvöld og næsta verður á laugardagskvöldið kemur kl. 20.30. Ms. Þórbergur yngri og eldri. Emil Guðmundsson og Jón Hjartarson I hlutverkum sinum. Snorri Sveinn, Guöbergur, Hringur, örn, Magnús og Björgvin, allir i smáhvild frá undirbúningi Haustsýningarinnar að Kjarvalsstöö- um- (Ljósm. Ella) Hauslsýnlngín Arleg haustsýning FÍM verð- ur opnuð á laugardaginn kemur að Kjarvalsstöðum. 5 mynd- listarmönnum var boðið að sýna sem sérstökum gestum og eru það þau Asgerður E. Búadóttir, Guðmundur Benediktsson, Leifur Breiðfjörð, Valtýr Pétursson og Þórður Hall. FIM heur látið prenta póstkort i litl- um af einu verki hverra þessara listamanna og verða þau seld á sýningunni, auk korta sem gerð voru i tilefni Sýningar Sigurjóns Ölafssonar i vor. Þegar þetta er skrifað, lá enn ekki ljóst fyrir, hversu margir myndu sýna auk gestanna, en vist er að það verða fjölmargir og verður þar að lita teikningar, málverk, glermyndir og vefnað og muni úr leir á sýningunni. Hún veröur opnuð sem fyrr sagði á laugardaginn kl. 15 og varir til 12. október. vatnsiitir í flsmundapsal Þessa dagana sýnir Kristján Jón Guönason vatnslitamyndir i Asmundarsal við Freyjugötu. Hann sýnir 37 myndir, flestar úr Reykjavik. Kristján Jón stundaði nám i Myndlista-og handiðaskólanum 1961-64 og við Listiðnaðarskól- ann i Osló 1965-67. Hann hefur áður sýnt á Ungdomsbiennaln- um i Osló (1970) og á Haust- sýningum FIM. Sýning hans i Asmundarsal er opin frá kl. 4-22 og stendur til sunnudagsins kemur, 28. september. Kristján Jón. (Ljósm. Ella)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.