Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 22.10.2002, Síða 6
Nær Júlíu Júlíus Jónasson, þjálfari Í HANDKNATTLEIKUR 6 B ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Leikurinn var jafn lengi vel enþegar 13 mínútur voru eftir jafnaði HK, 23:23. Þá hafði Jaliesky Garcia skorað 12 mörk fyrir Kópa- vogsliðið og var ill- viðráðanlegur. Norðanmenn settu hann þá í stífa gæslu, með góðum ár- angri. Sóknarleikur HK hrundi og KA stakk af. „Já, við tókum Garcia utar á vell- inum og ákváðum að láta lágvaxnari mennina hjá HK sjá um sóknarleik- inn. Við vorum reyndar dálítið hræddir við það því þeir eru flinkir, en þetta reið baggamuninn. Þeir hættu að skora, hornamenn þeirra sem höfðu verið okkur erfiðir urðu óvirkir og við gengum á lagið. Þetta var mikil refskák og að þessu sinni höfðum við betur,“ sagði Jóhannes Bjarnason, þjálfari KA, við Morgun- blaðið eftir leikinn. Jóhannes tók við liði KA í sumar eftir að hafa stjórnað yngri flokkum félagsins í mörg ár og er mjög ánægður með byrjunina á Íslands- mótinu. „Þetta gengur ljómandi vel og strákarnir standa sig vonum framar. Þeir eru mjög ákafir og dug- legir og það er hægt að ganga að því vísu að þeir leggja sig fram eins og þeir geta. Við vorum sárir eftir bik- artapið síðasta miðvikudag en þar fannst okkur illa með okkur farið og ég er feikilega ánægður með hvernig strákarnir brugðust við því í dag,“ sagði Jóhannes. Varnarleikurinn gerði útslagið fyrir KA-menn, sérstaklega í síðari hálfleiknum. Sem dæmi um hve öfl- ugur hann var vörðu markverðir KA aðeins eitt skot fyrstu 23 mínútur síðari hálfleiks en á sama tíma breytti Akureyrarliðið stöðunni úr 15:14 í 28:23. Jónatan Magnússon var í aðalhlutverki hjá KA og þessi ungi fyrirliði drífur sína menn áfram í vörn og sókn. Arnór Atlason skor- aði mörg góð mörk með tilþrifum og Baldvin Þorsteinsson sýndi skemmtilega takta í vinstra horninu. Með þessu áframhaldi geta KA- strákarnir hrundið öllum hrakspám og tekið þátt í slagnum um efstu sæt- in í vetur þó varla sé raunhæft að gera þá kröfu til þeirra að þeir verji titilinn. Leikur HK byggðist mjög á Garcia eins og oft áður og lengi vel náðu KA-menn illa að halda aftur af honum. Það var ekki fyrr en Hilmar Stefánsson lokaði hann af langt úti á velli sem kúbanska stórskyttan varð að játa sig sigraða. Þá sást best hve mikið munar um Vilhelm Gauta Bergsveinsson, sem er meiddur og verður líklega ekki með HK fyrr en eftir áramót. Hinn 17 ára gamli Björgvin Gústavsson kom í mark HK þegar 22 mínútur voru liðnar og stóð sig mjög vel, varði m.a. þrjú vítaköst. HK hafði unnið þrjá leiki í röð og getur greinilega sigrað hvaða lið sem er á góðum degi en með Vil- helm Gauta fjarverandi þarf Árni Stefánsson að leita fleiri leiða í sókn- arleiknum næstu vikurnar. „Strákarnir standa sig vonum framar“ ÍSLANDSMEISTARAR KA gefa ekkert eftir þótt meistaravörnin sé að nokkru leyti í höndum nýrra leikmanna. Þeir unnu sinn fjórða sigur í röð í 1. deildinni á laugardaginn, skelltu þá HK í Digranesinu, 32:28, og eru í öðru sæti. KA-strákarnir sýndu styrk sinn seinni hluta leiksins þegar þeir tryggðu sér sigurinn með því að skora fimm mörk í röð og það réð úrslitum. Víðir Sigurðsson skrifar Við vorum komnir í góða stöðu íupphafi seinni hálfleiks en þá vildu menn fara að sýna hvað í þeim býr og voru of fljótir að ljúka sóknunum. Auk þess áttum við á þessum tíma tvö eða þrjú stangarskot sem þeir fá hraðaupphlaup úr og skora,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson fyr- irliði Vals spurður um þann kafla í síðari hálfleik þar sem Grótta/KR komst aftur inní leikinn. „Það var samt þetta sama í þessum leik og svo mörgum öðrum, þessi leikur vannst fyrst og fremst á góðri vörn, mark- varslan kemur síðan í kjölfarið á því og sóknarnýtingin var eins og í hverj- um öðrum leik,“ sagði Snorri. Sókn- arnýting Vals í leiknum var í með- allagi, rúm 43% í fyrri hálfleik en um 50% í þeim seinni. Á sama tíma var sóknarnýting Gróttu/KR aðeins 29% í fyrri hálfleiknum en í þeim síðari lagaðist hún til mikilla muna og var 50%. Grótta/KR varð fyrir miklu áfalli í upphitun þegar markvörður þeirra Hlynur Morthens varð fyrir því óláni að snúa sig á ökkla og þurfti hann að horfa á félaga sína frá áhorfendapöll- unum. „Það var vissulega mikið áfall fyrir þá að missa Hlyn út svo skömmu fyrir leik en við vitum að svona áföll geta oft orðið til þess að þjappa liðum saman og við gengum út frá því í loka- undirbúningi okkar. Það skilaði okk- ur sigri hér í dag, við erum á toppi deildarinnar og ætlum að halda okk- ur þar,“ sagði Snorri Steinn sem átti mjög góðan leik í liði Vals ásamt Markúsi Mána Michaelssyni og Ron- ald Eradze sem var á köflum hreint stórkostlegur í markinu og lokaði nær algjörlega á stórskyttuna Alex- ander Pettersons í fyrri hálfleiknum. Grótta/KR saknaði Hlyns Morthens greinilega í þessum leik og verður fróðlegt að sjá þessi lið eigast við í seinni umferðinni þegar Hlynur verð- ur kominn í mark Gróttu/KR að nýju. Ósigurinn skrifast þó engan veginn á markverði Gróttu/KR, Kári Garðars- son virkaði kaldur í fyrri hálfleiknum en hann stóð fyrir sínu í þeim síðari og varði á köflum frábærlega. Leik- menn Gróttu/KR mættu einfaldlega ofjörlum sínum í þessum leik þar sem þeir Dainis Rusko og Magnús Magn- ússon léku best í liði Gróttu/KR. FH björ nógu sinn mínú mun að h son Jóna sér e útum irliði líta r in vo um f síðar 5 m leikn varð hlut tryg Só leikn ans nána Í ÍR-I því með þre það Íris B Eyste skrifa Jafnræði var með liðunum í upp-hafi leiks og var staðan jöfn, 6:6, um miðjan hálfleikinn. Þá rak allt í rogastans hjá Aftur- eldingu og Framarar skoruðu fimm mörk í röð. Þórir S. Sig- mundsson horna- maður hjá Fram tók Daða Hafþórs- son úr umferð og riðlaði það algjörlega leik Aftureldingar. Daði skoraði ekki eitt einasa mark í fyrri hálfleik ásamt því að lykilmaðurinn Bjarki Sigurðsson náði sér engan veginn á strik. Framarar léku á als oddi og þau skot sem sluppu í gegnum vörnina varði Sebastian Alexanderson flest. Í síðari hálfleik breyttu Aftureld- ingarmenn um leikaðferð þar sem Bjarki fór í stöðu leikstjórnanda. Þórir tók hann þá úr umferð í stað Daða, sem náði í framhaldi að skora fjögur mörk á nokkuð stuttum kafla. Afturelding náði þó ekki að leysa þann vanda sem varnarleikur Fram skapaði og því sáu Mosfellingar aldr- ei til sólar. Hjálmar Viljhjálmsson var at- kvæðamestur Fram með 5 mörk en ekki má gleyma þætti liðsheildarinn- ar í sigrinum. Leikmenn unnu vel saman í vörn og náðu uppúr því þó- nokkrum hraðaupphlaupum sem skópu mörk. „Sigurinn var mjög sætur og bráð- nauðsynlegur því við byrjuðum mót- ið ekki nægilega vel. Nú höfum við náð tveimur ágætisleikjum í röð og förum vonandi að klifra upp töfluna,“ sagði Heimir Ríkarðsson þjálfari Fram eftir leikinn. „Það gekk upp að klippa einum hjá þeim úr umferð og auk þess voru Björgvin (Þór Björg- vinsson) og Guðlaugur (Arnarsson) að spila vel fyrir aftan þannig að það skilaði sínu. Þótt sex-núll vörnin sé okkar aðal þá verðum við að vera til- búnir að breyta til,“ bætti Heimir við. Hinn leikreyndi Bjarki Sigurðs- son skoraði aðeins eitt mark og var hvergi nærri sáttur við leik liðsins. „Ég er bara grautfúll yfir þessu tapi. Við héldum einfaldlega ekki einbeit- ingu og spiluðum ekki sem liðsheild,“ sagði Bjarki. „Við erum með unga menn og reynda og erum að reyna að byggja upp. Ég tel okkur geta gert mikið betur. Við þurfum bara að þróa okkar leik og menn þurfa að sýna fram á það að þeir séu keppn- ismenn,“ sagði Bjarki eftir leikinn. Auðvelt hjá Þórsurum Þórsarar áttu ekki í erfiðleikummeð slakt lið ÍBV á laugardags- kvöldið. Lokatölur urðu 36:25 og hefði sigurinn getað orðið enn stærri ef heimamenn hefðu ekki skipt sínum sterkustu mönnum út af í seinni hálfleik. Með sigrinum komst Þór aftur í hóp efstu liða en Vestmannaeyingar eru sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar. Það var strax ljóst hvert stefndi í þessum leik. Þór komst í 7:1 og 13:3. Leikmenn ÍBV virtust ekki finna leið fram hjá vörn Þórs en heimamenn gerðust nú værukærir og gestirnir skoruðu fjögur mörk í röð. Ekki reyndist þetta vera neinn vendi- punktur í leiknum því Þórsarar juku muninn á ný og staðan var 18:10 í leikhléi. Í seinni hálfleik kom styrkleika- munurinn á liðunum berlega í ljós. Þórsarar voru iðulega færri á vell- inum og tveimur færri í tvígang en náðu samt 10–11 marka forystu. Þeir leyfðu sér þann munað að hvíla Árna Sigtryggsson sem hafði skorað 7 glæsileg mörk með langskotum og síðustu mínúturnar var allt byrjun- arliðið komið út af. Varamennirnir héldu fengnum hlut en leikmenn ÍBV héldu þó áfram að berjast til að halda andlitinu. Vörn Þórs var góð framan af í leiknum og lagði grunninn að sigr- inum. Árni Sigtryggsson skoraði að vild en Páll Gíslason var þó marka- hæstur með 9 mörk, þar af 5 af víta- línunni. Hörður Sigþórsson og Þor- valdur Sigurðsson léku mjög vel. Hjá ÍBV lék Sindri Ólafsson ágæt- lega og Davíð Óskarsson tók góða rispu í seinni hálfleik. Sigurður A. Stefánsson var markahæstur með 9 mörk en 6 þeirra komu úr vítakasti. Leikaðferð Framara heppnaðist fullkomlega FRAM sigraði Aftureldingu nokkuð auðveldlega, 24:20, í Framheimili á sunnudag. Leik- aðferð Framara gekk full- komlega upp gegn ráðvilltum Mosfellingum. Afturelding er því í 11. sætinu með aðeins 4 stig eftir 7 leiki. Fram lyfti sér hins vegar upp í 8. sætið og er í hnappi margra liða um miðja deild. Morgunblaðið/Þorkell Hjálmar Vilhjálmsson, leikmaður Fram, sækir að marki Aftur- eldingar, þar sem Sverrir Björnsson er til varnar. Íris Björk Eysteinsdóttir skrifar Stefán Þór Sæmundsson skrifar Valur heldur toppsætinu VALSMENN halda toppsæti í 1. deild karla í handknattleik eftir leiki 7. umferðar sem fram fóru um helgina. Valur fór í heimsókn á Sel- tjarnarnes og lögðu heimamenn í Gróttu/KR með fjórum mörkum, 20:24, eftir að hafa haft forystu allan leikinn. Mesta forysta Vals var 7 mörk í síðari hálfleiknum en heimamenn bitu í skjaldarrendur og náðu að minnka muninn í tvö mörk undir lok leiksins og hleyptu við það óvæntri spennu í leikinn. En Valsmenn skoruðu þrjú af fjórum síðustu mörkum leiksins og tryggðu sér bæði stigin sem í boði voru. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.